Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 ✝ Helga SigríðurÞorsteinsdóttir fæddist á Öxl í Austur-Húnavatns- sýslu 30. apríl 1915. Hún lést 7. febrúar 2011. Foreldrar henn- ar voru Þorsteinn Björnsson, f. 10.12. 1886, d. 27.5. 1973, og Þuríður Þor- valdsdóttir, f. 25.5. 1892, d. 9.10. 1945. Systkini hennar: Gyðríður, f. 6.10. 1916, Björn, f. 20.3. 1918, d. 6.10.1986, Högni, f. 1.2. 1920, d. 3.10. 1935. Systkini samfeðra: Sigurður Hólm, f. 6.6. 1930, Jónína Krist- ín, f. 28.12. 1933, d. 15.7. 2004, Sigríður Guðrún, f. 8.1. 1935. Maki Einar Björnsson, f. 23.3. 1897, d. 1.5. 1983. Börn þeirra: 1) Björn, f. 14.11. 1941, d. 23.7. 1992, maki Ólöf Pálsdóttir, f. 5.4. 1943. Börn: Guðný Helga, f. 21.5. 1969, Einar Friðgeir, f. Börn: Einar Bragi, f. 12.4. 1983, Helga Björk, f. 5.5. 1986, Jó- hannes Örn, f. 18.11. 1993. Helga fluttist eins árs með foreldrum sínum að Þjótanda í Árnessýslu. Árið 1919 flytur hún við skilnað foreldra sinna að Barði í Miðfirði og ólst þar upp hjá móðurömmu sinni, Sig- ríði Jónasdóttur prestsekkju frá Melstað. Eftir barnafræðslu þess tíma fékk hún að njóta frekari tilsagnar með börnum prestshjónanna á Melstað. Hún stundaði nám í tvo vetur við Kvennaskólann á Blönduósi. 4. júní 1938 giftist hún Einari Frið- geiri Björnssyni, bónda á Bessa- stöðum, og þar bjuggu þau alla sína búskapartíð. Hún vann á Saumastofunni Drífu á Hvammstanga frá 1973 til 1983. Hún tók virkan þátt í fé- lagstörfum í sinni sveit, var meðal annars í sóknarnefnd Melstaðarkirkju, í stjórn Kven- félagsins Iðju og Kvennabands Vestur- Húnavatnssýslu, skóla- nefnd og áfengisvarnarnefnd Ytri-Torfustaðahrepps o.fl. Útför Helgu verður gerð frá Melstaðarkirkju í Miðfirði í dag, 19. febrúar 2011, og hefst at- höfnin kl. 14. 28.7. 1970, Páll Sig- urður, f. 16.11. 1972, Ingunn, f. 16.5. 1974. 2) Högni Ófeigur, f. 20.12. 1944, maki Guð- björg Ester Ein- arsdóttir, f. 6.3. 1946. Börn: Einar Loftur, f. 3.10. 1967, Bryndís Hrund, f. 3.9. 1971, Högni Þór, f. 10.4. 1979. 3) Bjarni Þór, f. 31.3. 1948, maki Árndís Alda Jónsdóttir, f. 7.5. 1948. Börn: Ingunn Helga, f. 16.10. 1972, Ragnhildur, f. 19.5. 1976, Jón Árni, f. 30.8. 1979. 4) Kristín Guðný, f. 6.10. 1949. Börn: Ólöf Birna, f. 3.8. 1982, Friðgeir Einar, f. 22.11. 1983. 5) Jón Ingi, f. 6.10. 1949, maki Vin- björg Ásta Guðlaugsdóttir, f. 30.12. 1956. Börn: Bessi, f. 17.2. 1979, Lára Kristín, f. 27.8. 1982. 6) Þorsteinn, f. 1.12. 1952, maki Kari Nedgaard, f. 19.9. 1954. Elskuleg tengdamóðir mín Helga Sigríður Þorsteinsdóttir er látin og kveðjum við hana í dag. Hún var mikil kjarnakona og stórkostleg persóna. Mér er minnisstætt þegar ég hitti hana fyrst fyrir 42 árum. Ég var þá rúmlega tvítug og nýbyrjuð með syni hennar Bjarna Þór. Hann fór með mig í heimsókn til að hitta mömmu sína sem var þá stödd á Hótel Sögu á þingi Kvenfélagasambands Íslands. Hún var klædd íslenskum bún- ingi, hló hátt og mikið og sló sér á brjóst og sagðist búa á hót- elinu sínu og bauð mig hjart- anlega velkomna í fjölskylduna. Eftir þetta varð hún og öll fjöl- skyldan á Bessastöðum hluti af mínu lífi. Að Bessastöðum var alltaf gott og koma. Þegar ég kom þangað fyrst voru Bjössi og Lóa að taka við búskapnum af Helgu og Einari, og það var gaman að koma inn í svona stóra og skemmtilega fjölskyldu og þar var Helga konan sem var alltaf eins og klettur og Einar maðurinn sem sagði okkur skemmtilegar sögur og var svo ljúfur og góður félagi. Börnin okkar Bjarna Þórs voru mikið í sveit á Bessastöðum hjá Lóu og Bjössa, Einari afa og Helgu ömmu enda líta þau á Bessastaði sem sitt annað heimili. Helga var mikil prjónakona og var allt- af að búa til eitthvað fallegt og einnig bjó hún til góðan mat og allt lék í höndunum á henni. Hún kenndi mér margt og var það ómetanlegt fyrir unga stúlku úr Reykjavík að fá að kynnast sveitabúskap og matargerð á Bessastöðum. Þegar ég eignað- ist drenginn minn, hann Jón Árna, haustið 1979 kom hún til okkar á Húsavík til þess að passa telpurnar mínar tvær og fékk hún þá sitt fyrsta fæðing- arorlof. Þegar hún var búin að bíða í tvær vikur og ekkert ból- aði á barninu, þá tók hún til sinna ráða og við fórum allar fjórar í gönguferð upp í fjall. Seinna um daginn fæddist drengurinn. Þegar ég kom heim af sjúkrahúsinu var hún búin að búa til sultu, kæfu, rúllupylsu, kleinur og margt fleira. Það var alltaf gaman að fá hana í heim- sókn. Þegar Jón Árni varð mikið veikur á fyrsta ári varð ég að vera lengi með hann á Sjúkra- húsinu á Akureyri. Þá hjálpaði hún okkur Bjarna Þór ómetan- lega með því að taka að sér heimilið á meðan. Á hverju hausti kom Helga til Húsavíkur og við vorum í berjamó heilu dagana. Við vorum þá oft þreytt- ar en tíndum heil ósköp af berj- um. Og þá var hún Helga mín glöð og kát. Eftir að við Bjarni Þór fluttum til Hvammstanga árið 1991 varð sambandið meira við Helgu tengdamóður mína. Alltaf var jafngaman að fá hana í heimsókn og eftir að hún flutti í íbúð fyrir aldraða í Nestúni á Hvammstanga varð sambandið enn nánara. Síðustu árin dvaldi hún á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga og fékk hægt andlát hinn 7. febrúar sl. og var ég hjá henni þegar hún skildi við. Það var mjög gott fyrir mig og ég er ánægð að hafa getað verið síðustu stundirnar með henni. Ég þakka Helgu tengda- móður minni fyrir allt það sem hún hefur gert fyrir mig og mína. Hún var stór kona. Megi guð og góðar vættir vera með henni. Árndís Alda Jónsdóttir. Helga amma mín er látin, vil ég minnast hennar með nokkr- um orðum. Ég var þess aðnjót- andi að vera í sveit á Bessastöð- um, í fyrstu hjá afa og ömmu, síðar hjá Bjössa og Lóu. Þar fékk ég hluta af uppeldi mínu, þar tók maður þátt í daglegri vinnu og varð að standa sig, það var gott veganesti út í lífið. Það voru fleiri sem nutu góðs af veru sinni hjá afa og ömmu sem sýndi sig í heimsóknum margra sem komu í heimsókn á sumrin. Tengslin voru og eru sterk við þetta fólk sem reyndist litlum sálum sem fóru í fyrsta sinn að heiman afburðavel. Að kveðja ömmu sína hinstu kveðju eru tímamót. Góðar minningar frá þessum árum eru meira og minna bundnar ömmu. Ég vil þakka henni alla velvild í minn garð og minnar fjölskyldu, ég minnist hennar með virðingu. Einar Loftur Högnason. Elsku amma. Væntumþykja og virðing eru bestu orðin til að lýsa tilfinningum mínum til þín. Við bjuggum lengi saman á Bessastöðum og þú tókst þátt í að ala okkur systkinin upp. Það hugnaðist engum annað en að hlýða því sem þú baðst um, ekki síst vegna þess að vel unnið verk var verðlaunað með góðu og réttmætu hrósi. Þegar ég hugsa til baka og rifja upp samverustundir okkar koma fram mörg skemmtileg at- vik. Ein elsta minningin er að hlusta á þig spila á gamla fót- stigna orgelið uppi í Hrútakofa og syngja með. Ekki man ég hvaða lög þar voru á ferð en minningin er góð. Sumarið sem ég sá um æð- arvarpið fyrir þig var skemmti- legt. Þrátt fyrir að þú kæmist ekki út með sjó vildir þú fylgjast með öllum æðarkollum. Voru gömlu vinkonurnar mættar í dekkin sín aftur? Var gæfa koll- an á sínum stað? Þá var nú eins gott að hafa svör á reiðum hönd- um. Eftir að þú fluttist á Hvammstanga var ætíð gaman að koma til þín og fylgdist þú vel með því sem var að gerast hjá fjölskyldunni. Börnin voru ætíð spennt að koma því alltaf var von á góðgæti hjá langömmu. Gott var að láta vita af sér með smáfyrirvara því þá var pönnu- kökustaflinn kominn á borðið þegar við mættum. Yfir pönnu- kökunum og mjólkurglasinu flugu margar skemmtilegar sög- ur frá þinni bernsku og búskap- arárum á Bessastöðum. Elsku amma, mig langar að þakka fyrir allar okkar samveru- stundir. Hvíl í friði. Þinn Einar Friðgeir. Í dag kveðjum við elsku Helgu ömmu okkar. Helga amma var fastur punktur í lífi okkar systkinanna. Á hverju sumri fór eitthvert okkar í sveit- ina til sumardvalar. Það var ekki amalegt að fara með ömmu út í varp að leita að hreiðrum, fá svo súkkulaði eða ávexti í kofanum hennar í varpinu á bakaleiðinni og hlusta á hana segja okkur sögur um lífið í gamla daga á Heggstaðanesinu. Hún gerði heimsins bestu kleinur og flat- kökur og þegar hún var spurð að því hvað hún setti í þær sem gerði þær svona góðar svaraði hún að bragði, nú það sem var til auðvitað. Fjölskyldan flutti til Hvammstanga árið 1991 og það var einn af jákvæðu þáttunum við að flytja landshorna á milli að flytja nær sveitinni okkar og allra sem þar voru og þar með talið ömmu Helgu. Það hjálpaði okkur unglingunum að aðlagast nýjum aðstæðum og sætta okkur við að flytja burt frá Húsavík þar sem okkur hafði liðið svo vel. Þegar amma varð 80 ára flutti hún í íbúðir fyrir aldraða í Nest- úni á Hvammstanga og þar leið henni vel. Hún hafði eldhús sem var í besta falli ætlað til að hita upp mat en henni tókst að elda þar dýrindisveislur og kökur og bauð gestum og gangandi. Hún hafði alltaf gott lag á því að tala við börn og unglinga og það var mjög gestkvæmt hjá henni í Nestúni og alltaf glatt á hjalla. Árið 2003 handleggsbrotnaði hún og fór inn á sjúkrahúsið á Hvammstanga. Brotið greri ekki og hún þurfti að fara í hjólastól og átti því ekki afturkvæmt í litlu íbúðina sína í Nestúni. Hún varð því vistmaður á sjúkrahús- inu á Hvammstanga upp frá því. Hún hefði getað syrgt það og orðið dauf og guggin, en eins og hún sagði sjálf þá ákvað hún þegar hún var ung að lifa sér ekki til leiðinda. Hún sætti sig við orðinn hlut og naut þess að búa á stað þar sem hún gat feng- ið þá aðstoð sem hún þurfti og dundaði sér við föndur og spil og tók af fullum krafti þátt í fé- lagsstarfinu á sjúkrahúsinu á meðan hún hafði heilsu til. Það var afskaplega vel hugsað um hana á sjúkrahúsinu og fær starfsfólkið þar okkar bestu þakkir fyrir góða umönnun í gegnum árin. Síðustu tvö árin var Helga amma rúmliggjandi og sagði sjálf að þannig hefði hún aldrei séð sjálfa sig fyrir sér og sagði oft á kvöldin að nú mætti Einar afi fara að leggja á Grána gamla og sækja sig. Nú er hann búinn að því blessaður og við kveðjum stórkostlega konu með söknuði, en huggum okkur við að hún átti gott líf. Hvíl í friði elsku amma. Ingunn Helga Bjarnadóttir, Ragnhildur Bjarnadóttir og Jón Árni Bjarnason. Blessunin hún Helga amma hefur nú kvatt okkur. Afi hefur líklega lagt við Gand sinn og Grána hennar ömmu og sótt hana, eins og hún var farin að bíða eftir að hann gerði. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast vel þeirri kjarnakonu sem Helga amma var. Að alast upp ekki bara í ranni foreldra, heldur einnig undir handleiðslu afa og ömmu, tel ég vera hollt öllum börnum, eftir þá góðu reynslu sem ég og systkini mín höfðum af því. Amma bjó á Bessastöðum í tæp 60 ár, flutti þaðan árið 1995 þegar við Jói keyptum jörðina af mömmu. Amma sagðist nú ekki ætla að fylgja jörðinni og flutti þá í elli- íbúðirnar í Nestúni á Hvamms- tanga. Ég reyndi að vera dugleg að fara með börnin mín í heim- sókn til ömmu út í Nestún og eins á sjúkrahúsið, eftir að hún flutti þangað. Hún söng og kvað við krakkana, kunni ógrynni af vísum og sögum. Alltaf þurfti maður að þiggja eitthvað gott í svanginn hjá henni, það var ómögulegt annað en að maður væri svangur eftir ferðina í kaupstaðinn. Henni var hugleik- ið að fólkinu í kringum sig liði vel, sagðist alltaf hafa óskað þess að kaupafólkið, sem kom í Bessastaði, drykki kaffi, því það væri svo gott að geta gert eitt- hvað gott fyrir það. Þegar ég kom til hennar á Hvammstanga sagði hún mér iðulega einhverj- ar sögur frá sínum yngri árum, t.d. af því þegar hún og Sigga frænka hennar voru sendar frá Barði að Melstað með skilaboð í símann. Þá spurði Sigríður amma þeirra hvort þær myndu nú örugglega skilaboðin og gætu komið þeim til skila. „Jú, ég man og Helga talar,“ sagði þá Sigga, því hún var mjög feimin, en amma ófeimin. Sögurnar voru svo skemmtilegar og vel sagðar að ég sé vel fyrir mér sögusviðið. Amma var lífsglöð og kát og hafði sérlega hvellan og skemmtilegan hlátur. Á manna- mótum var auðvelt að finna ömmu, því það glumdu iðulega hlátrasköll þar sem hún var. Á meðan krafta naut féll henni aldrei verk úr hendi, ef hún var ekki við heimilisstörf eða hann- yrðir, var hún að leggja kapal. Oft kom maður að henni þar sem hún dottaði yfir kaplinum. Með elju og dugnaði kom amma upp æðarvarpi hér heima á Bessastöðum. Margsinnis kom hún sár og svekkt heim eftir að vargurinn hafði spillt megninu af hreiðrunum. Ósköp sem hún gat verið reið við varginn, steytti hnefann að hrafninum og máv- unum og sagði þeim til synd- anna. Stundum kom hún heim með blóðtauma niður andlitið, en það var allt í lagi því það var bara eftir kríurnar, en þær voru miklar vinkonur hennar, enda hjálpuðu þær henni í baráttunni við vargana. Helga Sigríður Þorsteinsdóttir ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, VALDIMARS Þ. K. ÞÓRÐARSONAR, Álfheimum 54. Erla S. Guðmundsdóttir, Sigrún E. Valdimarsdóttir, Birgir S. Jóhannsson, Þórður Valdimarsson, Tryggvi Þór Valdimarsson, Jóhann Bragi, Edda María, Erla Valgerður, Aníta Ýr og Bjarki Freyr. ✝ Elskulegur faðir okkar, LEIFUR S. HALLDÓRSSON skipstjóri, Skipholti 2, Ólafsvík, sem andaðist á heimili sínu í Reykjavík miðvikudaginn 9. febrúar, verður jarð- sunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 26. febrúar kl. 14.00. Sætaferðir frá BSÍ kl. 10.00 og til baka síðdegis. Matthildur S. Leifsdóttir, Þorgrímur Leifsson, Steingrímur Leifsson, Úlfhildur Á. Leifsdóttir. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samhug og hlýju við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGVARS ANTONS ANTONSSONAR, Hlíðarvegi 24, Ísafirði. Erla G. Pálsdóttir, Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, Ketill Elíasson, Ingibjartur Anton Ingvarsson, Auður Bjarnadóttir, Hrönn Ingvarsdóttir, Sædís Ingvarsdóttir, Þorbergur Jóhannesson, Páll Ingvarsson, Gerður Sif Ingvarsdóttir, Eyvindur Gauti Vilmundarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför ÞÓRUNNAR STEFANÍU SAMÚELSDÓTTUR frá Bíldudal. Sérstakar þakkir til starfsfólks 2. hæðar N, hjúkrunarheimilinu Eir. Árni Konráðsson, Anna Aradóttir, Alda Konráðsdóttir, Ólafur Ólafsson, Stefán Konráðsson, Margrét Unnur Kjartansdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður og tengdasonar, MATTHÍASAR BJARKA GUÐMUNDSSONAR. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki heimahlynn- ingar Landspítalans og starfsfólki deildar 11B, Landspítalanum. Björg Ragna Erlingsdóttir, Lúðvík Már Matthíasson, Máni Matthíasson, Markús Ingi Matthíasson, Guðmundur Magnússon, Anna Björk Matthíasdóttir, Magnús Víðir Guðmundsson, Kristín K. Ólafsdóttir, Ágúst H. Guðmundsson, Kristín Valdemarsdóttir, Erlingur Lúðvíksson, Jakobína Ingadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.