Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 21

Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 21
Hörður Vilberg Lárusson Hemám hugans Hugmyndir manna um áhrif Keflavíkursjónvarpsins á íslenskt þjóðerni tandið órofa vöRÐ um tungu vora, þjóðerni og menningu gegn þeirri skrílmenningu ameríska mammons- ríkisins sem nú gerir innrás í land vort. Slandið vörð gegn því hernámi liugans og hjartans, gegn forheimskunni og þýlynd- inu, sem Ieppblöð og leppflokkar amerísks auðvalds boða, því það hernám er öllu öðru hættulegra.1 Þetta mátti lesa í Ávarpi til íslendinga frá miðstjárn Sósíalistaflokksins sem birtist í Þjóð- viljanum þann 8. maí 1951, daginn eftir að bandarískir hermenn stigu á íslenska grund eltir aðeins fjögurra ára fjarveru. Vegna ótta við að Kóreustyrjöldin gæti breiðst út og jafn- vel leitt til þriðju heimsstyrjaldarinnar höfðu NATO-ríkin stóraukið útgjöld sín lil hermála og merki þess mátti sjá á íslandi. Norður í Atlantshafi var mönnum þó ekki síður umhugað um samskipti mörlandans við hina erlendu hermenn. Víða voru ógróin sár frá stríðsárunum eftir kynni þeirra af íslenskum blómarósum og fundu margir dátunum flesl til foráttu. Heyra mátti raddir í öllum stjóm- málaflokkum sem héldu því fram að hersetan veikti siðferði þjóðarinnar og ýtti undir spill- "igu.2 Kristinn Guðmundsson Framsóknar- Hokki, utanríkisráðherra í stjórn Ólafs Thors 1953-56, segir t.d. í endurminningum sínum:3 Ameríkanarnir óðu hreinlega uppi. Peir voru líðir gestir í veislum á einkaheimilum hér í Reykjavík, einkum ef vín var haft um hönd. Veitingahúsin voru full af einkennis- klæddum mönnum. Og þeir gömnuðu sér óspart við íslenskar stúlkur og léku margar þeirra grátt. Fljótlega eftir komu hersins magnaðist and- staðan við hann og voru samskiptavandamál Jslendinga og varnarliðsins áberandi í kosn- ingabaráttunni fyrir alþingiskosningarnar 1953. Til marks um það má nefna dreifimiða frá Sósíalistaflokknum til kjósenda en á honum stóð: „Viltu að hernámspestin af Keflavíkur- flugvelli breiðist út um alll ísland?“4 Hér var að hætli sósíalista sterkt að orði kveðið, en jafnframt var Ijóst að margir litu á varnarlið- ið eins og pestina, sótthreinsa þyrfti sýkt svæði og einangra þau sem ekki væri hægt að hreinsa að fullu. Enda fór það svo að ríkis- stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks gekk til viðræðna við bandarísk stjórnvöld um að takmarka samskipti íslendinga og bandarískra hermanna. Greint var frá sam- komulaginu í Ríkisútvarpinu að kvöldi 26. maí árið 1954 en í því fólst m.a. að herstöðin skyldi girt af og ferðir hermanna út fyrir svæðið takmarkaðar. Einnig skyldi Hamilton- félagið, erlendur verktaki, hverfa á braut ásamt erlendu verkafólki, en íslenskir verk- takar og verkafólk taka við störfum þeirra.5 Islensk sljórnvöld höfðu því kallað lil er- lent herlið til að sinna vörnum landsins, en vegna smæðar þjóðarinnar töldu forráða- menn hennar að menningu, þjóðerni og jafn- vel siðferði hennar stafaði hætta af samskipt- um við varnarliðið. Þetta varð meðal annars til þess að bandarískir hermenn sem dvöldust hér á landi báru blendnar tilfinningar í garð íslensku þjóðarinnar og fannst oft á tíðum sem þeir sætu í fangelsi.*’ Þegar líða tók á sjötta ára- tuginn var þó reynt að hressa upp á sálarlíf her- mannanna með því að gefa þeim kost á að fara reglulega lil meginlands Evrópu til að vinna gegn áhrifum einangrunarinnar.7 Island var hins vegar búið að skella í lás! Rödd stórveldis Varnarliðið hóf rekstur útvarpsstöðvar fljót- lega eftir komu hersins eða í nóvembermán- uði árið 1951. Var þetta fastur liður í starfsemi Margir litu á varnariiðið eins og pestina, sótt- hreinsa þyrfti sýkt svæði og einangra þau sem ekki væri hægt að hreinsa að fullu 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.