Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 37
Hernám hugans
hann makráður í hægindi sínu og horfir á her-
sjónvarp, en tekur fálega málaleitunum séra
Bernharðs sem vill gera gangskör að því að
koma í veg fyrir svallsamkomur unglings-
telpna eyjarinnar með hermönnum í herstöð-
inni. í lok dómsdagskaflans eru ráðamenn
þjóðarinnar hver af öðrum dæmdir til dauða
og látnir gista hel.94 Þannig lýsir Jón Óskar
gangi Svartrar messu og þarf ekki að leita
langt til að sjá hvaðan fyrirmyndirnar eru
fengnar.
I orðræðu andstæðinga Keflavíkursjón-
varpsins var íslandi oftast stillt upp sem
hreinu, saklausu og óspilltu landi sem byggi
að sérstæðri og merkilegri menningararfleifð
sem gerði íslendinga frábrugðna öllum öðr-
um. Hér á landi væri alþýðan upplýstari en
víðast hvar annars staðar og æskan óspillt.
Bandaríkjamönnum og fjölmiðlum þeirra var
hins vegar úthlutað hlutverki skúrksins.
Þeirra var að sýkja hugsunarhátt þjóðarinnar,
slæva dómgreind hennar og draga hana niður
í spillinguna sem fyrirfannst í Bandaríkjun-
um. Engu var líkara en að ísland væri í hlut-
verki saklausrar sveitastúlku sem vart mátti
vamm sitt vita, en Bandaríkin í hlutverki hins
veraldarvana glaumgosa sem hafði það eitt að
markmiði að fleka stúlkuna og henda henni
síðan frá sér í angist og uppnámi eftir að hún
hafði gagnast honum.
Áróður eða afþreying?
Andstæðingar Keflavíkursjónvarpsins vísuðu
oft til þess að frá Keflavík bærist linnulaus
áróður Bandaríkjastjórnar sem miðaði að því
að grafa undan íslensku þjóðerni. Víst mátti
finna áróður gegn kommúnisma í sjónvarpinu
en áróður sem beindist gegn íslensku þjóð-
erni er vandfundinn. Ef litið er á dagskrána
má sjá að dagskráin líkist helst því sem sjá má
á Stöð 2 í dag og er til merkis um aukið vægi
bandarísks efnis í íslensku sjónvarpi í seinni
tíð. Við skulum líta á dagskrá Keflavíkursjón-
varpsins þann 19. desember 1967 til glöggvun-
ar og bera hana saman við dagskrá Ríkissjón-
varpsins eins og hún birtist í Sjónvarpstíðind-
um.
Dagskrár sjónvarpsstöðvanna þriðjudaginn 19. desember 1967
Keflavíkursjónvarpið
17.00 Þriðjudagskvikmyndin:
„Miracle on 34lh Street" (Sjá föstud. 22. des.).
18.30 Mayor of the Town: „Borgarstjórinn".
19.00 Fréttir.
19.25 Moments of Reflection: „Þankabrot".
19.30 Fréttaþáttur.
20.00 Lost in Space. „Ævintýri í geimnum“. - Robinson
fjölskyldan lendir í mörgum spennandi ævintýrum,
þegar hún ferðast til annarra hnatta.
21.00 Green Acres: „Grænar grundir" - Gamanþáttur.
21.30 Skemmtiþáttur Smotherbræðra: Tom og Dick
Smother kynna ýmsa góða skemmtikrafta.
22.30 Fractured Flickers: Sambland af þöglum kvikmynd-
um og teiknimyndum.
23.00 Kvöldfréttir.
23,15 Leikhús norðurljósanna: „The Brasher Doubloon". -
Spennandi kvikmynd frá Twentieth Century-Fox,
tekin árið 1947, með George Montgomery og Nancy
Guild í aðalhlutverkum. (Sýningart. 1 klst. og 29 mín.).
íslenska sjónvarpið
20.00 Erlend málefni. Umsjón: Markús Örn Antonsson.
20.20 Tölur og mengi. 13. þáttur Guðmundar Arnlaugs-
sonar um nýju stærðfræðina.
20.40 Nauðsyn öryggis í æsku. Fjallað er um barnauppeldi,
einkum með tilliti til öryggisráðstafana, sem gera
þarf til þess að forða börnum frá hættum.
Þýðandi: Sigríður Þorgeirsdóttir
Þulur: Óskar Ingimarsson.
21.05 Um vefjaflutning. Árni Björnsson, læknir, sýnir og
skýrir, hvernig fluttir eru vefir úr einum líkamshluta í
annan og jafnvel milli einstaklinga.
21.25 Nýjasta tækni og vísindi. Þýðandi: Reynir Bjarnason
Þulur: Andrés Indriðason
21.50 Fyrri heimsstyrjöldin. (16. þáttur)
Bandaríkin skerast í leikinn.
Þýðandi og þulur: Þorsteinn Thorarensen.
22.15 Dagskrárlok.
35