Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 93

Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 93
/ Islensk sauðnautasaga stjórnar í þessum eí'num og áleit hann vanda- laust að halda sauðnaut sem nytjadýr.27 Sauðnautaáhugi á íslandi og viðbrögð danskra stjórnvalda Þrátt fyrir viðleitni Friis og annarra sauð- nauta- og Islandsvina var Island sauðnauta- laust land þegar Kaupmannahaí’narblaðið Berlingske Tidende birti hinn 6. febrúar 1928 fréttaklausu þess efnis að íslenski Grænlands- farinn Vigfús Sigurðsson hefði nýverið sótt um fjárstyrk til Alþingis til að halda til Græn- lands eftir sauðnautum í því skyni að flytja þau til eldis heima á íslandi. Vigfús hafði tek- ið þátt í leiðangri undir forystu danska höf- uðsmannsins Johans Peters Kochs þvert yfir meginjökul Grænlands árin 1912-13, og hafði liann þá kynnst grænlensku dýralífi, þar á meðal sauðnautum, sem höfðu ærslast við hesta leiðangursmanna og reynst hin nytsöm- ustu veiðidýr þegar vistir tók að þverra.28 Raunar hafði Vigfús sótt um fjárstyrk frá Alþingi árið 1927 til þess að afla sauðnauta,29 en beiðni hans barst þá of seint til þess að unnt væri að taka hana fyrir á þinginu. I þessu erindi gerði Vigfús þingheimi grein fyrir áformum sínum og fórust svo orð: Síðan jeg fór um Grænlands-óbygðir með höfuðsmanni J.P. Koch árið 1912-13 og kyntist dýraríki þess og staðhátlum, hefi jeg þrásinnis hugsað um það, að æskilegt væri, að íslendingar gerðu út skip til veiði- fanga norður á austurslrönd Grænlands, og þá einkum í þeim tilgangi, að ná lifandi Moskus-nauta-kálfum og flytja þá hingað til lands. Mundi þetta harðfenga dýr þrífast hjer á landi sjálfala og geta orðið lil góðra nytja, þar sem vel hagar til. Par sem alls eigi er amast við slíkri veiðiför af Dana hálfu, þá er oss nú í sjálfsvald sett að takast á hendur leiðangur í þessu skyni, og er jeg nú að gangast fyrir fjelagsstofnun, til þess að koma honum í framkvæmd, og jafn- framt til þess að koma upp Moskus-nauta- hjörðum hjer á landi.30 Vigfús endurnýjaði styrkbeiðni sína og hún var tekin fyrir á Alþingi veturinn 1928. Það vakti samstundis athygli í danska utanríkis- ráðuneytinu, sem fól Frank le Sage de Fontenay, sendiherra Dana á íslandi, að rann- saka erindi Vigfúsar og viðbrögðin við því. Það skyldi hann gera án þess að hal'a sam- band við íslensku ríkisstjórnina, enda væru sauðnautamál viðkvæm um þessar rnundir. Norðmenn og Danir deildu um réttinn til Austur-Grænlands og dýravinir í báðum löndum létu til sín heyra í hvert sinn sem fréttir bárust af sauðnautadrápi. Dönsk stjórn- völd töldu að jafnvel mætti vonast eftir því að sauðnautaveiðar væru orðnar svo illa þokk- aðar rneðal almennings í Noregi að brátt yrði grundvöllur fyrir samkomulagi um að tak- marka veiðarnar frekar en Austur-Grænlands- samningurinn gaf færi á. Við þessar kringum- stæður áleit utanríkisráðuneytið afar óheppi- legt ef Alþingi veitti Vigfúsi styrk til sauð- nautafarar, auk þess sem þar var talið að dýr- in gætu naumast koniið íslendingum að nokkru gagni.31 Ekki gat þó komið til mála að banna förina, því samkvæmt 6. grein Sam- bandslagasamningsins frá 1. desember 1918 áttu Islendingar jafnan rétt á við Dani innan dönsku ríkisheildarinnar,32 og nutu þar að auki tilskipunarinnar frá 1924. Fontenay fór nú á stúfana að grennslast fyrir um áform Vigfúsar Grænlandsfara, og varð fljótlega það ágengt að Jón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis, leyfði honum að sjá umsóknina um fjárstyrkinn. Henni fékk sendiherrann snarlega snúið yfir á móðurmál sitt og sendi til yfirboðara sinna í heimaland- inu. Kvað hann ljóst að nokkur áhugi væri fyrir sauðnautamálum á Islandi, og var sjálfur þeirrar skoðunar, að færi svo að Alþingi og ríkisstjórn Islands sýndu vilja til að styrkja áform Vigfúsar, væri ekki nema réttmætt að Danir veittu þeim einnig eitthvert liðsinni. Tiltækið væri þó altént athyglisvert frá nátt- úrufræðilegum sjónarhóli.33 Þess sjást engin merki að danskir embætt- ismenn hafi haft sig í frammi við að liðsinna íslendingum í sauðnautamálinu, en vonuðust greinilega eftir því að geta haft hönd í bagga með væntanlegri sauðnautaför. Fontenay var falið að tilkynna íslenskum stjórnvöldum að danska ríkisstjórnin fylgdist með áformunum um sauðnautaflutninga til íslands með mikl- um velvilja og gerði ráð fyrir að íslendingar leituðu ráða hennar áður en af sauðnautaför Mynd 9. Vigfús Sigurðsson Grænlandsfari, upphafsmaður að flutningi sauðnauta til íslands. íslendingar myndu vart taka sauðnautakrof fram yfir íslenskt kindakjöt eða þykja sauð- nautareyfi betri til nytja en ull af íslensku fé
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.