Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 85

Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 85
Um áttvísinnar gagn og nauðsynjar Eins er þetta um ættfræðina. Ættartala Jóns og Gunnu æsir að líkindum ekki fróð- leiksþorsta margra annarra en þeirra sjálfra en sitthvað annað í ættfræðinni ætti að skerpa áhuga fleiri en þeirra skötuhjúanna, a.m.k. sagnfræðinga og félagsfræðinga. En það er nú verkurinn. íslenskir vísindamenn holt og bolt eru áhugadaufir um ættfræði eða taka hana a.m.k. ekki alvarlega sem rannsóknargrein. Frá þessu eru vissulega undantekningar en þetta er nú samt hinn almenni sannleikur. Sú afsökun að íslenskir sagn- og félagsfræð- ingar séu fáir ef ekki smáir er ógild hér. ís- lendingar eiga rnikinn og einstakan ættfræði- arf og hann ber þeim að ávaxta, sjálfum sér og hinu alþjóðlega fræðasamfélagi til góða. Kunnar eru þær nytjar sem erfðafræðin hefur um þessar mundir af íslenskri ættfræði en um þær skal þó ekki rætt hér, enda vekja þær lítinn áhuga annarra en erfðafræðinga og peningamanna (sem eru ekki endilega lakari menn en ýmsir aðrir). Ættfræðin gefur á hinn bóginn þvílík rannsóknarfæri á sviði félags- sögu og lýðfræði að það sætir undrum að þau skuli liggja ónýtt. Örfá dæmi verða að duga þessu til lýsingar. Frumathugun sem ég hef gert á viðgangi nokkurra íslenskra ætta á 19. og 20. öld leiðir í Ijós að hann er afar misör. Eftirfarandi tafla sýnir niðjafjölda í „Krákustaðaætt" 1. júlí 1995 og viðgang hennar frá upphafi; tölurnar innan sviga sýna hversu margir í hverri kyn- slóð náðu tvítugsaldri eða höfðu náð þeim aldri l.júlí 1995: Viðgangur Krákustaðaœttar Kynslóð Fœðingarár Niðjafjöldi Á líji 1995 i. 1856-1867 8 (3) - 2. 1887-1898 11 (11) - 3. 1909-1942 74 (68) 41 4. 1929-1978 254 (241) 240 5. 1951- 534 (181) 526 6. 1970- 191 (8) 191 7. 1989- 5 (0) 5 Alls 1077 1003 Fjölgun þessarar ættar (1856-1995) hefur orðið 4-5 sinnum örari en svokallaðrar „Torfaættar11 (1858—1991 ).4 Þessi stórfelldi mun- ur virðist einkum skýrast af efnahag og mennt- un. Systkinin níu sem Torfaælt rekst frá voru af efnafólki og gengu öll í skóla erlendis. Syst- urnar þrjár sem Krákustaðaætt er komin af uxu á hinn bóginn upp í sárustu fátækt og nutu engrar skólagöngu og raunar tfðkaðist formleg menntun ekki í ættinni fyrr en á með- al barnabarna þeirra systra, í 3. kynslóð ættar- innar. Athugun nu'n á þessum og fleiri ættum bendir til þess að stéttaskipting hafi verið - og sé - talsvert rnikil á íslandi, meiri en rnenn vilja yfirleitt viðurkenna. Þetta er þó aðeins vísbending. Alhugunin er of lítil til þess að geta talist marktæk og auk þess er hugsanlegt að einhverjar breytur sem ég athugaði ekki hafi áhrif á fjölgun í ættum. En rannsóknar- efnið er til staðar og bíður þess í ofvæni að einhver geri því verðug skil. Krákustaðaætt er upprunnin úr Sléttuhlíð í Skagafirði en hefur orðið „óskagfirskari“ með hverri kynslóð, sem vonlegt er. I 2. kyn- slóð bjuggu tæplega 64% ættarinnar enn í Skagafirði en það hlutfall fór niður í 17,6% í 3. ættlið og í 4. kynslóð er hlutlall Skagfirð- inga aðeins um 9,1%, nokkru lægra en hlut- fall þeirra ættmenna í þessari kynslóð sem Það kostar aðeins fáeinar krónur að skrá kirkjubækur og manntöl á tölvur og útbúa þannig mann fræðilegan gagnagrunn 83
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.