Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 83

Ný saga - 01.01.1998, Blaðsíða 83
Halldór Armann Sigurðsson Um áttvísinnar gagn og nauðsynjar inn ónafngreindi 12. aldar snillingur sem kallaður hefur verið virðingar- heitinu „höfundur fyrstu málfræðirit- gerðarinnar“ setti íslendingum stafróf að hægra yrði „að rita og lesa ... bæði lög og átt- vísi eða þýðingar helgar eða svo þau hin spak- legu fræði er Ari Þorgilsson hefur á bækur sett af skynsamlegu viti“.' Ættfræðin er móðir sagnfræðinnar en nú á dögum er hún þó hornkerling í ranni hennar, orðin að hjáfræði sem sagnfræðingar með sjálfsvirðingu líta ekki við. Og Adam lifði hundrað og þrjátíu ár; þá gat hann son í líking sinni, eftir sinni mynd, og nefndi hann Set. ... Og er Metúsala var hundrað áttatíu og sjö ára gat hann Lamek. ... Og er Lamek var hundrað áttatíu og tveggja ára, gat hann son, og hann nefndi hann Nóa og mælti: Þessi mun hugga oss í erfiði voru og striti handa vorra, er jörðin, sem Drottinn bölvaði, bakar oss.2 Hér felur ættartalan í sér framvindu sögunn- ar, er sjálf framvindan. Og hliðstæður á ís- lenskum bókum einu árþúsundi síðar, eða tveimur, eru fljótfundnar, til að mynda Yng- lingatal Ara fróða. Nútímamönnum kunna að þykja þessar ættaromsur merkingarlausar og jafnvel hlægilegar. En þær voru settar á bók- fell af því að þeim sem það gerðu fannst að þær skiptu máli, hefðu merkingu. Þeir litu með öðrum orðum svo á að í ættartölunum fælisl mikilvæg vitneskja um heiminn. Lítum á annað dæmi: Jón biskup Arason var höggvinn 1550. Sonur hans var Ari lögmaður í Möðrufelli, faðir Helgu er átli Pál Jónsson sýslumann, Staðarhóls-Pál. Dóttir þeirra var Ragn- heiður móðir Brynjólfs biskups. Önnur dóttir Helgu og Páls var Elín móðir Magn- úsar Björnssonar lögmanns og Sigríðar Björnsdóttur er átti Pál sýslumann á Þing- eyrum Guðbrandsson biskups Þorláksson- ar. Sonarsonur Sigríðar og Páls var Jón Þorláksson lögréttumaður í Víðidalstungu er átti Hildi Arngrímsdóttur hins lærða Jóns- sonar. Sonur Jóns og Hildar var Páll lög- maður Vídalín. Ég á heldur von á því að margir vilji telja að þessi þula komi okkur við, sé partur af því sem við viljum kalla íslandssögu. En lítum þá á enn eitt dæmi: Systir Páls lögmanns Vídalíns var Kristín, kona Jóns Magnússonar sýslumanns í Búð- ardal, bróður Arna handritasafnara. Jóni var margt stórvel gefið, sarndi m.a. allmerka íslenska málfræði, en hann var breytinn og lánlítill í einkalífi sínu. Dóttir þeirra Krist- ínar var Guðrún, kona Þorláks Bjömssonar lögréttumanns í Sólheimum í Sæmundar- hlíð. Dóttir þeirra var Halldóra Þorláksdótt- ir, föðurmóðir Sölva Þorlákssonar bónda á Þverá í Hrolleifsdal, afa Björns Bjarnason- ar í Brekku hjá Víðimýri og Arna Magnús- sonar á Mallandi á Skaga. Synir Björns voru Andrés skáld og Andrés útvarpsstjóri en dóttir Arna var Guðrún frá Lundi. Sjálfum finnst mér þetta skemmtilegt því að þarna eru nefndir föðurættingjar mínir. En kem- ur öðrurn þetta við, er þetta partur af „hinni almennu íslandssögu“? Þeirri spurningu vilja ýmsir áreiðanlega svara neitandi en þá vand- ast málið. Hvað er þess virði að vita það? Öll sagnaritun er aðeins tilraun, talsvert ófullkomnari en flestum okkar er ljúft að við- urkenna. Veruleikinn og verðandin eru óend- anlega margslungin og verða ekki „handsöm- uð“ og endursögð. „Þjóðarsagan" er aðeins sú túlkun á fortíðinni sem urn hefur náðsl 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.