Ný saga - 01.01.1998, Side 51
Sískrifandi smiður
ÆTT OG UPPRUNI
Magnús Kristjánsson smiður og rithöfundur
Magnús Kristjánsson í Olafsvík var tvígiftur og
átti fjölda barna. Fyrri kona hans var Kristín
Þórðardóttir frá Rauðkollsstöðum og bjuggu
þau saman í tæplega tvo áratugi og eignuðust
sjö börn; dóu þrjú þeirra í bernsku:
1. Þórður, fæddur 1902, dó tæplega ársgamall.
2. Kristján, fæddur 1904, dó hálfs annars árs.
3. Kristín María, fædd 1905, ráðskona, dó
1979.
4. Lovísa, fædd 1907, dó 1988, gift Þórjóni
Jónassyni og áttu þau tíu börn.
5. Þorleifur, fæddur 1910, verkamaður í
Ólafsvík, dó 1970.
6. Jóhann Guðni, fæddur 1911, dó 1969,
giftur Olgu Konráðsdóttur, áttu einn son.
7. Sigurjón, fæddur 1914, dó vorið 1916.
Seinni kona Magnúsar var Sigþrúður Katrín
Eyjólfsdóttir frá Bjarneyjum á Breiðafirði og
átlu þau saman þrjú börn. Þau eru:
8. Eyjólfur Aðalsteinn, vélstjóri, fæddur 1923,
giftur Sigurrós Jónsdóttur, tvær dælur.
9. Magnús, stýrimaður, fæddur 1926, giftur
Margréti Gunnarsdóttur og á hann þrjá
syni.
10. Ingveldur, fædd 1930, húsfreyja í Ólafsvík,
gift Ríkharði Jónssyni og eiga þau eina
dóttur.
Föðurætl Magnúsar er kennd við Skógar-
nes. Faðir hans var Kristján Gíslason, fæddur
á Ytra-Skógarnesi 3.2. 1831. Foreldrar Krist-
jáns voru þau Gísli Þorvaldsson og Katrín
Bárðardóttir í Ytra-Skógarnesi.
Fyrri kona Kristjáns var Oddný Sigurðar-
dóttir frá Brandsbúð á Arnarstapa. Hún dó
el'tir stutta sambúð þeirra. Þau áttu tvo syni:
1. Sigurð Kristjánsson, dó áttræður í apríl
1933. Hann var faðir Magnúsar í Mikla-
holti og Elísabetar, konu sr. Arna Þórar-
inssonar á Stóra-Hrauni.
2. Daníel Krisljánsson, flutti til Ameríku og
dó þar í hárri elli.
Seinni kona Kristjáns var Jóhanna Gísladótt-
•i', fædd 14. 1. 1833 í Eiríksbúð á Arnarstapa.
Foreldrar hennar voru Gísli Sigurðsson og
Þorbjörg Þórarinsdóttir. Jóhanna var æltfróð
og sagnlróð gáfukona. Andaðist í Ytra-Skóg-
arnesi 14.5. 1909, 76 ára. Þorbjörg móðir
hennar var fædd á Reykjum í Hrútafirði.
Önnur dóttir hennar hét Steinunn og fleiri
börn áttu þau Þorbjörg og Gísli.
Á Arnarstapa bjó Kristján í níu ár en flutt-
ist þaðan aftur að æskuheimili sínu, Ytra-
Skógarnesi, þar sem hann bjó til dauðadags.
Velmetinn, hreppstjóri og oddviti, fékkst m.a.
við lækningar. Andaðist í Ytra-Skógarnesi á
heimili sínu 16. júní 1886, 55 ára gamall.
Þau Kristján og Jóhanna áttu saman tíu
börn og af þeim komust fimm til fullorðinsára:
3. Gísli Kristjánsson, smiður í Skógarnesi.
Gísli dó á 93 ára afmælisdegi sínum 22.
mars 1953 í Reykjavík.
4. Oddný Kristjánsdóttir. Dó í Reykjavík
1936.71 árs.
5. Steinunn Kristjánsdóttir, móðir Jóhanns
skálds. Dó í Ólafsvík 1944, 74 ára.
6. Kristján Kristjánsson smiður, dó í Ólafsvík
1944.71 árs.
7. Magnús Kristjánsson, fæddur 1875, smið-
ur og rithöfundur, dó í apríl 1963, 87 ára.
Mynd 3.
Magnús Kristjáns-
son (1875-1963),
meðhjálparí,
smiður, sveitar-
stjórnarmaður og
rithöfundur.
49