Ný saga - 01.01.1999, Page 77

Ný saga - 01.01.1999, Page 77
leyti með óbreyttu orðalagi, aðeins lagfærð augljós pennaglöp. Stafsetning hefur hins veg- ar verið leiðrétt samkvæmt núgildandi reglum og eins kommusetning sem er mjög á reiki. Það er gert með leyfi bréfritara frá 1. maí 1951: „Elsku Dóra mín. Nú loksins sendi ég þér þessar línur sem þú getur lesið á fundi en mér finnst það ekki vera þess vert eða ef þær eru ekki interseraðar í hvernig við lifum hér. Þú ræður hvort þú lest það eða ekki og eins að laga orðalag.“ Frænkurnar voru systkinabörn, börn Önnu og Guðmundar Sveinbjörnsbarna sem fædd voru í Bygggarði á Seltjarnarnesi.2 Halldóra Jónasdóttir giftist Sigurði Þorsteinssyni (1884 -1938) frá Reykjavík. Þau eignuðust þrjá syni, Ásgeir Jónas (1917-1998), Þorstein (f. 1919), búsettur í Winnipeg, og Sveinbjörn (f. 1921), búsettur í Vancouver. Eftir lát Sigurðar var Halldóra með leigjendur og kostgangara í húsi sínu. Eftirfarandi var skrifað um hana í bæklingi um afkomendur Jónasar og Önnu: Halldóra vann mikið að handiðn. Hún kembdi, spann og fékkst dálítið við að vefa. Á íslenskum peysufötum spann hún á fundum og sýningum í Winnipeg, Los Ang- eles og víðar. Hún var Fjallkona á hundrað ára hátið íslendinga í Utah 1955.3 Halldóra dvaldist um tíma hjá frændfólki4 sínu á Valdastöðum í Kjós og hófst þá vinátta sem entist þeim nöfnum ævilangt. Um þá dvöl sína skrifar hún til frænku sinnar: „ég geymi svo margar minningar frá þeim tíma sem ég var á Valdastöðum, minningu móður þinnar geymi ég í þakklátu hjarta, ég á henni að þakka þá litlu manndáð sem í mér er og þó má ég ekki vanþakka það sem guð hefur gef- ið mér... Eg held að maður geymi belur í hug- anum þessar minningar þegar maður fer af landi burt.“ Þegar Lóa fjallar um sjálfa sig fer henni eins og konum var tamt. Hún virðist ekki hafa trú á því að hún hafi frá neinu merkilegu að segja og því síður að hún geti komið því réttu frá sér þannig að einhver hafi gaman af. Erla Hulda Halldórsdóttir hefur skrifað um sjálfs- mynd kvenna á 19. öld og segir þar meðal ann- ars: „Menntunarskortur kvenna varð þess valdandi að þær voru gjarnar á að afsaka bréf sín, bæði skriftina, stílinn og innihaldið. Vera má að hluta afsakananna megi skýra sem nokkurs konar stílbrigði en varla að öllu leyti.“5 Lóa líktist að þessu leyti konum fyrri alda. Hún gerir heldur ekki mikið úr þeim kjarki sem þurfti til að taka sig upp og flytja vestur um haf. Þetta kemur fram í bréfi frá 1947: góða skilaðu kveðju og þakklæti til Bjarg- arh fyrir að hún vildi greiða götu mína, hún var alltaf svo góð. Hún var eina mann- eskjan sem skrifaði mér bréf áður en ég fór af íslandi og tjáði mér hvað mikil eftirsjón væri í að við flyttum af landi burt, en mér fannst nú annað, bara landhreinsun af svona hyski, bláfátæku og ræflum eins og ég. Nú er Björg gift lækni og í fyrri daga mátti maður helst ekki líta á það fólk nema bukka sig niður á jörð, en við Ameríkubú- ar erum óvanir því, en ég veit nú annars að hún er enginn kjáni. Hún er víst góð eins og hún var. Vona að henni líði ætíð sem best. Þótt Halldóra hefði í orði kveðnu ekki mikla trú á sjálfri sér hafði hún tileinkað sér nútíma jafnréttishugmyndir hvað varðaði stöðu kvenna í samfélaginu. í fréttabréfi til kvenfé- lagskvennanna dagsettu 12. apríl 1952 skrifar hún lil dæmis: „Konur eiga að vera við heims- völdin, og vera sjálfstæðar en ekki gera allt sem karlmennirnir segja okkur að gera.“ í fyrstu bréfunum, frá árunum 1946^18, verður Halldóru tíðrætt um ástandið í heim- inum, sérstaklega stríðið. Fyrsta bréfið sem varðveist hefur er frá 1. desember 1946. Þar segir hún fréttir af sonum sínum og viðfangs- efnum þeirra, en bætir svo við: Já af okkur hér er allt fremur gott að frétta. Mér finnst að ég hafi mikið að þakka fyrir drengina mína, fyrir þá sterku og blíðu hönd forsjónarinnar að gefa mér þá heim aftur ... Svo þú sérð við höfum verið bless- unarlega varðveitt í gegnum þetta hrylli- lega stríð sem er hræðilegra en að orðum taki að tala um það, en þó er ennþá voða- Mynd 2. Halldóra Jónas- dóttir (Lóa), ung stúlka á Akranesi. En mér fannst nú annað, bara landhreinsun af svona hyski, bláfátæku og ræflum eins og ég 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.