Morgunblaðið - 11.04.2011, Blaðsíða 1
Á KAJAK
UMHVERFIS
DANMÖRKU
RAGNA ÍSLANDS-
MEISTARI Í
ÁTTUNDA SINN
HÁÐ VERKJALYFJUM
VIÐ FÆÐINGU
BADMINTON ÍÞRÓTTIR UNGBÖRN FÁ MEÞADÓN 19HYGGST SETJA NÝTT MET 7
Misnotkun á lyfseðilsskyldum
lyfjum eykst vestanhafs
Kjósendur höfnuðu Icesave-
lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu
um helgina. 69.462 sögðu já í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni um lögin eða
40,23% af gildum atkvæðum en
103.207 sögðu nei eða 59,77%.
Alls greiddu 175.114 manns at-
kvæði og var kjörsókn því 75,34%.
Þetta er betri kjörsókn en í síðustu
sveitarstjórnarkosningum þegar
73,5% kusu og í þjóðaratkvæða-
greiðslunni í fyrra þegar 62,7%
kusu.
Andstaðan við lögin var heldur
meiri en kom fram í skoðanakönn-
unum sem gerðar voru síðustu dag-
ana fyrir kjördag.
Meirihluti kjósenda í öllum kjör-
dæmum hafnaði lögunum. Mest var
andstaðan í Suðurkjördæmi eða um
72%, en andstaðan var minni í kjör-
dæmum á suðvesturhorni landsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Icesave Talning í Ráðhúsinu.
103.207
kjósendur
sögðu nei
Kosningaþátttaka
var 75,34%
Baldur Arnarson, Bjarni Ólafsson,
Egill Ólafsson og Kristján Jónsson
Úrslitin í kosningunum um Icesave-lögin voru
afgerandi og vildi meirihluti kjósenda í öllum
kjördæmum fella lögin úr gildi. Hlutfall þeirra
sem sögðu „nei“ var þó mun hærra á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS á
Íslandi, segir í samtali við Morgunblaðið að úr-
slitin muni ekki ógna efnahagslegum stöðug-
leika á Íslandi. „Icesave hefur aldrei verið hluti
af efnahagsáætlun AGS og lausn deilunnar við
Breta og Hollendinga hefur aldrei verið skilyrði
hjá okkur.“ Hann segir enga hættu á að AGS
gjaldfelli lán sín til Íslands og segir úrslitin ekki
munu hafa bein áhrif á efnahagsáætlunina. Öss-
ur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segist
ekki telja að niðurstaðan í málinu eigi að hafa
áhrif á aðildarumsóknina í ESB, enda hafi tals-
menn ESB og Breta tekið fram að um tvö að-
skilin mál væri að ræða. Sylvester Eijffinger,
hagfræðiprófessor og ráðgjafi hollenska for-
sætisráðherrans, segist aftur á móti telja að á
þessari stundu sé enginn möguleiki á því að Ís-
land fái aðild að sambandinu.
Atli Gíslason, sem nýlega sagði sig úr þing-
flokki VG, segir framtíð ríkisstjórnarinnar
hanga á aðildarumsókninni í ESB. „Ef ESB-
umsóknin strandar þá hrynur stjórnin.“
Mikill meirihluti sjálfstæðismanna virðist
ekki hafa fylgt formanni sínum, Bjarna Bene-
diktssyni, í kosningunum, en Bjarni greiddi at-
kvæði með lögunum um Icesave-samninginn á
sínum tíma. „Ef það er hægt að draga einhverja
ályktun af þessari niðurstöðu er það þá helst að
menn eiga ekki að fara gegn ályktunum lands-
fundar,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þing-
maður flokksins. Stuðningsmenn Bjarna telja
þó stöðu hans trausta innan flokksins.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, sagði á
blaðamannafundi í gær að ríki ESB hlytu að
viðurkenna að rangt hefði verið að styðja samn-
inginn sem felldur var í þjóðaratkvæðagreiðslu
í fyrra. Bretar og Hollendingar hefðu „stillt Ís-
landi upp við vegg“ og ESB-ríkin hefðu „stutt
ósanngjarnar kröfur“ sem myndu með tíð og
tíma hljóta harðan dóm sögunnar.
M Icesave »12-13, 14-15, 16-17
Stöðugleika ekki ógnað
Úrslitin hafa ekki áhrif á áætlun AGS Hollendingar ætla að stöðva ESB-
inngöngu Íslands Atli Gíslason segir stjórnina hanga á ESB-umsókninni
Á milli 100 og 150 manns voru
strandaglópar í Staðarskála í gær-
kvöldi en Holtavörðuheiðin var
lokuð vegna mikils óveðurs sem
gekk yfir landið. „Foreldrar
hringja mikið hingað til að spyrja
um krakkana sína,“ sagði Malin
Eldh, starfsmaður Staðarskála, en
það má ætla að mörg ungmenni
hafi verið á suðurleið eftir við-
burðaríka helgi á Akureyri. Verið
var að hjálpa öllum að fá gistingu
í nágrenninu. „En það verður eng-
um hent út hér,“ ítrekaði Malin.
Mikið óveður gekk yfir Suð-
vestur- og Vesturland í gær. Um
300-400 tilkynningar bárust til
lögreglu. Um áttaleytið í gær-
kvöldi voru björgunarsveitir
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
búnar að sinna 210 aðstoðar-
beiðnum á höfuðborgarsvæðinu og
um 140 á Suðurnesjum og nokkr-
um tugum á öðrum stöðum á land-
inu. Alls tóku rúmlega 200 björg-
unarsveitarmenn þátt í
aðgerðunum.
Stórt gat kom á flugskýli Ice-
landair við Keflavíkurflugvöll.
Málmplötur rifnuðu utan af flug-
skýlinu og myndaðist ílangt lóð-
rétt gat á húsinu. Víða fuku þak-
plötur og tré rifnuðu upp með
rótum. ingarun@mbl.is »2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á hliðina Rúmlega 200 björgunarsveitamenn tóku þátt í aðgerðunum en hér eru tveir hjá hjólhýsum sem fuku um koll við Korputorg.
Mikið óveður gekk
yfir og olli usla
Ljósmynd/Haukur Snorrason
Fallið Áratuga gamalt lerkitré í Karfavogi fauk upp með rótum.
Þingflokkur VG kaus í
gær Árna Þór Sigurðs-
son formann þing-
flokksins. Þessi
ákvörðun kom fráfar-
andi þingflokks-
formanni, Guðfríði
Lilju Grétarsdóttur, á
óvart, en hún hefur
verið í fæðingarorlofi.
Segir hún að ákvörðun
þingflokksins sé ekki í anda laga um
fæðingarorlof, einkum í ljósi þess að VG
kenni sig við femínisma og kvenfrelsi.
Guðfríður sett af
BREYTINGAR Í ÞINGFLOKKI VG
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Stofnað 1913 85. tölublað 99. árgangur
M Á N U D A G U R 1 1. A P R Í L 2 0 1 1