Morgunblaðið - 11.04.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011
Þjónusta Veitingahús Ferðaþjónusta Íþrótta- og félagasamtök
Greiðslulausnir sniðnar að þinni atvinnugrein.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
AK Extreme, snjóbretta- og tónlist-
arhátíð, var haldin nú um helgina í
tíunda sinn. Veðrið var gott og mik-
ið var um að vera þar en það sem
kannski stóð hæst upp úr var gáma-
stökkskeppnin sem haldin var á
laugardagskvöldið en þar var
keppt um AKX-titilinn.
Fjórum gámum frá Eimskip var
stillt hverjum ofan á annan og snjó
staflað að efsta gám. Þá var búin til
leið með snjónum fyrir keppendur
til að stökkva.
Guðlaugur Hólm Guðmundsson,
25 ára snjóbrettakappi frá Akur-
eyri, sigraði í keppninni og fannst
það alls ekki leiðinlegt. „Ég hef allt-
af tekið þátt á AK Extreme en aðal-
lega er ég erlendis að taka upp
vídeómyndir. Þetta er það eina sem
ég geri,“ sagði Guðlaugur, betur
þekktur sem Gulli. Hann er dugleg-
ur að skella sér til Skandinavíu og
Bandaríkjanna til þess að komast á
bretti en hann segist búinn að
stunda snjóbrettið í um 13 ár.
Þetta er það eina sem ég geri
Flinkur Það sem Gulli (lengst til vinstri) segir skipta mestu máli við að taka þátt í svona keppni er að taka engu of alvarlega, heldur bara að hafa gaman af.
Guðlaugur
hreppti AKX-
titilinn um helgina
Ljósmynd/Einar Guðmann