Morgunblaðið - 11.04.2011, Síða 8

Morgunblaðið - 11.04.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Galleríi Fold Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn 11. apríl, kl. 18 H araldurBilson Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna Verkin verða sýnd mánud. kl. 10–17 Í Morgunblaðinu á laugardag errætt við Róbert Marshall, for- mann allsherjarnefndar, um frum- varp til upplýsingalaga. Þar segir hann að með frumvarpinu eigi að- gangur að aukast að upplýsingum um op- inbera stjórnsýslu og meðferð op- inberra hagsmuna- mála.    Ný upplýs-ingalög eiga að sögn Róberts að stuðla að meira upplýsinga- streymi í stað þess að hefta það. Blaðamannafélag Íslands hefur gagnrýnt frumvarpið og telur til dæmis fráleitt að fjölga undan- þágum frá upplýsingaskyldu, eins og frumvarpið geri ráð fyrir.    Í sama blaði var frétt um að fjár-málaráðuneytið hefði ekki farið að þeirri ósk úrskurðarnefndar um upplýsingamál að ráðuneytið taki ákvörðun um hvernig það svari beiðni Morgunblaðsins um upplýs- ingar um kostnað við samninga- nefnd í Icesave-deilunni.    Úrskurðarnefndin hafði óskaðeftir því að ráðuneytið af- greiddi beiðni Morgunblaðsins efn- islega í síðasta lagi kl. 16 á föstu- dag, en það var ekki gert.    Framkoma fjármálaráðuneyt-isins gagnvart beiðni fjölmiðla um upplýsingar um kostnað við samninganefndina um Icesave er ekkert einsdæmi hjá þessari rík- isstjórn. Þetta er aðeins nýjasta dæmið af mörgum um pukrið og leynimakkið sem einkennt hefur störf hennar.    Að þessi ríkisstjórn skuli reynaað halda því að fólki að hún sé nú með frumvarp í vinnslu sem hafi þann tilgang að auka upplýsinga- streymi er í besta falli grátbroslegt. Róbert Marshall Leynimakk og upplýsingalög STAKSTEINAR Veður víða um heim 10.4., kl. 18.00 Reykjavík 3 slydda Bolungarvík 6 rigning Akureyri 6 léttskýjað Egilsstaðir 8 rigning Kirkjubæjarkl. 5 skýjað Nuuk -10 heiðskírt Þórshöfn 10 þoka Ósló 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 heiðskírt Stokkhólmur 11 skýjað Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 21 heiðskírt Brussel 21 heiðskírt Dublin 20 léttskýjað Glasgow 18 heiðskírt London 17 heiðskírt París 25 heiðskírt Amsterdam 16 heiðskírt Hamborg 17 heiðskírt Berlín 17 heiðskírt Vín 17 léttskýjað Moskva 2 skýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 23 léttskýjað Barcelona 21 heiðskírt Mallorca 20 léttskýjað Róm 18 léttskýjað Aþena 16 léttskýjað Winnipeg 5 þoka Montreal 12 alskýjað New York 11 alskýjað Chicago 23 heiðskírt Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 11. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:11 20:48 ÍSAFJÖRÐUR 6:08 21:00 SIGLUFJÖRÐUR 5:51 20:44 DJÚPIVOGUR 5:39 20:19 Miðlun ehf. hefur sent frá sér frétta- tilkynningu í ljósi kæru Persónu- verndar á fyrirtækið vegna varð- veislu Miðlunar á viðkvæmum gögnum um svör þátttakenda í könn- un, sem fyrirtækið gerði fyrir fjár- málaráðuneytið. Miðlun vildi út- skýra málið betur frá þeirra sjónarhóli en fyrirtækið telur að um mannleg mistök hafi verið að ræða og biðst velvirðingar á mistökunum í fréttatilkynningu sinni. Könnunin, sem gerð var árið 2008, átti að skoða einelti meðal ríkis- starfsmanna. Svarendur voru nafn- greindir en þátttakendum var til- kynnt að ekki væri hægt með nokkru móti að rekja svör þeirra. Svörin voru almennt númeruð þar sem hak- að var við svarmöguleika en í sumum tilvikum var gert ráð fyrir að svar- endur rituðu sinn eigin texta við spurningu og mátti þá lesa hann. Í samningum Miðlunar og fjár- málaráðuneytisins var Miðlun gert að eyða öllum gögnum tveimur vik- um eftir framkvæmd. Hins vegar kom í ljós að þau höfðu verið varð- veitt í um tvö ár. Þá kemur fram að fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins hafi kom- ist yfir gögnin og stolið þeim en talið sé að það hafi verið gert í þeim til- gangi að komast yfir greiðslukorta- upplýsingar. Ennfremur segir að gögnin hafi komið í ljós hjá lögreglu þegar viðkomandi einstaklingur var yfirheyrður vegna annarra afbrota. Miðlun biðst í fréttatilkynningu sinni velvirðingar á þeim mistökum sem gerð voru. „Miðlun ehf. hefur þegar gripið til ráðstafana til að efla öryggiskerfi fyrirtækisins. Unnið verður í samræmi við kröfur Per- sónuverndar að öllu leyti,“ segir í til- kynningunni. gunnthorunn@mbl.is Biðst velvirðing- ar í kjölfar kæru  Varðveitti persónugreinanleg gögn í tvö ár Félag læknanema stóð á laugardag fyrir stórslysaæfingu við slökkvi- stöðina í Hafnarfirði. Sett var á svið rútuslys og höfðu nemarnir mis- jafnt hlutverk eftir því hversu langt þeir eru komnir í náminu. Það dæmdist á fyrsta árs nemana að leika slasað fólk sem eldri nem- endur sáu svo um að hlúa að, greina og flytja til frekari aðhlynningar. Hinir „slösuðu“ voru málaðir með gerviblóði, en þeir áttu samkvæmt handritinu að hafa lent í rútuslysi skammt frá Blönduósi. Skipulögðu stórslys Morgunblaðið/Árni Sæberg Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg og Norræna hús- ið hafa tekið höndum saman um endurbætur á friðlandinu í Vatnsmýri og tengist upphaf verkefnisins ald- arafmæli HÍ 2011. Í dag, mánudaginn 11. apríl, undirrita Jón Gnarr borgarstjóri, Kristín Ingólfs- dóttir rektor og Max Dager for- stjóri samkomulag um samstarfið og fer athöfnin fram í gróðurhús- inu við Norræna húsið kl 13:30. Í markmiðum samstarfsins felst m.a. endurnýjun og viðhald líf- fræðilegs fjölbreytileika á svæðinu, að rannsóknir á svæðinu verði styrktar og þekkingu miðlað til al- mennings og að svæðið verði fyrir- mynd að endurheimt votlendis. Vatnsmýrin verði rannsóknarstofa Jón Gnarr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.