Morgunblaðið - 11.04.2011, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég sá hvað þetta er vel byggt og
flott hús og fannst hræðilegt að láta
það grotna niður – en beið alltaf
eftir því að einhver annar gerði
eitthvað í mál-
inu,“ segir Stein-
gerður Jóhanns-
dóttir, áhuga-
ljósmyndari í
Hafnarfirði, sem
keypt hefur
gamla íshúsið í
Krossavík við
Hellissand og er
ásamt manni sín-
um, Árna Em-
anúelssyni, að
gera það upp sem listamiðstöð.
Íshúsið stendur eitt og sér í fal-
legu umhverfi í hrauninu við
Krossavík sem er á milli Hellis-
sands og Gufuskála. Það var byggt
1935 sem íshús til að þjóna útgerð
úr Krossavík og Hellissandi en var
aðeins notað í átta ár. Húsið stend-
ur nú eitt eftir.
Sýningarsalir og listmannsíbúð
Ljósmyndaáhuginn dró Stein-
gerði á Snæfellsnes. Þau hjónin
ákváðu að kaupa gamalt og illa far-
ið hús á Hellissandi og gera það
upp til að geta verið meira þar.
„Mér finnst gaman að skipuleggja
og sjá fyrir mér hvernig hlutirnir
geti orðið flottir og fæ síðan Árna
með mér til að koma því í verk. Við
unnum mest sjálf við endurbygg-
ingu Ártúns,“ segir Steingerður.
„Mig langar til að leyfa sem flest-
um að njóta fegurðarinnar með
mér.“
Þau hafa sama háttinn á við
endurbyggingu hússins í Krossavík
sem kallað hefur verið Hvíta húsið.
Steingerður stefnir að því að hefja
starfsemi í húsinu í sumar og ljúka
viðgerðinni sem mest á árinu.
Tveir sýningarsalir verða í hús-
inu og íbúð á efri hæðinni. Stein-
gerður hefur áhuga á að vera sjálf
með einhverja starfsemi þar á
sumrin, sölu listmuna og mynda og
jafnvel kaffisölu en leigja út lista-
mannsíbúð og sýningarsali. Þá vill
hún hafa einhverja starfsemi í hús-
inu sem minnir á upphaflegt hlut-
verk þess og staðinn.
„Þetta er frábær staður. Ekkert
skyggir á jökulinn og sjórinn er
magnaður á hvaða tíma árs sem
er,“ segir Steingerður þegar hún er
spurð að því hvort hún telji að fólk
muni leggja leið sína þangað. Þá
vekur hún athygli á skemmtilegum
útivistarmöguleikum í nágrenni
Hvíta hússins.
Hvíta húsið í
Krossavík gert upp
Hjón úr Hafnarfirði gera upp gamla íshúsið í Krossavík
við Hellissand Stefna að opnun listamiðstöðvar
Breytt Íshúsið í Krossavík við Hellissand fær nú nýtt hlutverk.
Steingerður
Jóhannsdóttir
Krossavík
» Hellissandur hefur lengi ver-
ið ein mesta veiðistöð við
Breiðafjörð.
» Þar voru tvær aðskildar ver-
stöðvar, Sandur og Keflavík.
Eftir að vélar voru settar í
bátana og færra fólk var til að
draga bátana á land þurfti að
finna betri lendingar.
» Brimvarnargarður var
byggður 1922 í Krossavík,
vestan við Hellissand. Einnig
voru byggð hús á landi til að
þjóna útgerðinni.
» Um miðja öldina fluttist út-
gerðin mikið til Rifs þegar ráð-
ist var í hafnarbætur þar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kristín Ágústsdóttir
Nýverið héldu nemendur í 1.-7.
bekk Nesskóla í Neskaupstað
skemmtilega danssýningu í
íþróttahúsinu. Sýningin markaði
endalok dansnámsins þennan vet-
ur, en Guðrún Smáradóttir dans-
kennari hefur undanfarið kennt
þeim helstu taktana í hinum fjöl-
breyttustu dönsum. Um 120 nem-
endur dönsuðu fyrir fullu húsi af
stoltum foreldrum, öfum, ömmum,
systkinum, frænkum og frændum.
Sumir dönsuðu skottís, aðrir ræl,
enn aðrir diskó og einhverjir
spreyttu sig á hipphoppi. Í lokin
sýndu allir 120 krakkarnir saman
dansatriði úr Grease með glæsi-
legum tilþrifum.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Einbeiting Ísabella Danía Heimisdóttir og Kári Kresfelder Haraldsson í 2.
bekk Nesskóla á Neskaupsstað vönduðu sig mikið í skottísnum.
Dansað af lífi og sál