Morgunblaðið - 11.04.2011, Page 10

Morgunblaðið - 11.04.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 Morgunblaðið/Atli Vigfússon Stolt Kolbrún og Jóhannes fyrir framan aðalbyggingu hótelsins. Atli Vigfússon laxam@simnet.is Mér líður mjög vel aðhafa náð þessumáfanga því það varekki einfalt. Þetta er búið að vera krefjandi verkefni sem ég ætlast til að skili árangri í okkar rekstri,“ segir Kolbrún Úlfsdóttir ferðaþjónustubóndi í Rauðuskriðu í Aðaldal en hún og maður hennar Jóhannes Haraldsson fengu nýlega svansvottun á hótelið sitt sem skiptir þau og gesti þeirra miklu máli. „Ég var búin að hafa auga á þessu um tíma,“ segir Kolbrún enn- fremur, „en ég hef alltaf hugsað um náttúruna og umgengnina við hana og viðfangsefnið er sannarlega ögr- andi.“ Kolbrún og Jóhannes sóttu um hjá Umhverfisstofnun vorið 2010 og í framhaldi af því byrjuðu þau að flokka úrgang í átta flokka fyrir ut- an spilliefni. Þar má nefna plast, gler, áldósir, pappír og bylgju- pappa, fernur og pappaumbúðir, matarleifar sem fara í jarðgerð og Svansvottun á sveita- hóteli er gæðastimpill Kolbrún og Jóhannes keyptu Rauðuskriðu árið 1987 og hafa rekið gistiþjónustu þar í samvinnu við Ferðaþjónustu bænda. Þau eru stolt af því að vera komin með svansvottun og eru mjög bjartsýn á framtíðina, enda mikið bókað fyrir sumarið. Sem betur fer eru áhugamál fólks fjölbreytt og það er vissulega hægt að vera veikur fyrir nánast hverju sem er. Og sumir eru mjög veikir fyrir bókum og bókahillum. Þeir hinir sömu ættu sannarlega að fara inn á ofangreinda bloggsíðu sem inniheld- ur ljósmyndablogg einvörðungu af bókum og bókahillum. Fjölbreytnin er dásamlega mikil og hugmyndaflugið ótrúlegt. Bækur í öllum mögulegum og ómögulegum stellingum. Sumar myndirnar sýna nánast bókagjörn- inga, þar sem uppröðun bókanna er listaverki líkust. Ein myndin sýnir til dæmis veitingastað þar sem bækur þekja loft ekki síður en veggi, önnur sýnir bókahillu þar sem reiðhjól í fullri stærð stendur í efstu hillu, önn- ur mynd er af manneskju í sófa og hún er þakin bókum. Það er hreinn unaður sem fylgir því að skoða feg- urðina á þessum myndum enda stendur skýrum stöfum á forsíðunni að þetta sé „klám“ fyrir þá sem elska bækur. Áhugasamir geta reynt að fá myndir sínar af bókahillum birtar á þessari síðu en þær eru valdar á síð- una af mikilli kostgæfni. Um að gera að prófa og sjá hvort þær hljóti náð fyrir augum dómnefndarinnar. Vefsíðan www.bookshelfporn.com Morgunblaðið/ÞÖK Bókahillur Hægt er að raða bókum upp á óteljandi vegu. Bókahilluást í ótal afbrigðum Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Nú fer að styttast í stærsta brúð- kaup ársins sem fara mun fram að morgni 29. apríl næstkomandi í Westminster Abbey. En þá munu ganga upp að altarinu Kate Middle- ton og Vilhjálmur prins að við- stöddum nítján hundruð gestum. Mikið tilstand er auðvitað í kringum slíkt brúðkaup og margir sem nýtt hafa sér tækifærið til að selja eitt- hvað sniðugt. Eins og t.d. pezkalla í líki þeirra verðandi hjóna, konung- lega smokka og sæti í skoðunarferð um heimaslóðir Kate. Vilja líkast Kate Forsvarsmenn fataverslunarinnar Peacock í Bretlandi freista þess nú einnig að fá bita af kökunni. Feta þeir í fótspor keppinauta sinna hjá stórmarkaðnum Tesco en þar seldist nýlega á undir klukkutíma eftirlíking af trúlofunarkjól Kate. Eftirlíkingin kostaði 16 pund eða tæplega 3000 krónur. Hún var öllu ódýrari en upp- runalegi kjóllinn sem kostaði um 75.000 íslenskar krónur. Peacocks ætlar nú að gera enn betur og selja hinn fagurbláa kjól á aðeins 14 pund. Markaðsfólk fyrirtækisins er þessi fullvisst að kjóllinn muni rjúka út eins og heitar lummur. Enda finn- ist varla sú breska kona sem ekki vilji líkast hinni íðilfögru bresku yngismey og verðandi prinsessu. Búist er við að hamagangurinn verði slíkur að boðið er upp á lista þar sem hægt er að láta taka frá fyrir sig kjól. Hann heitir því skemmti- lega nafni Waity Katie og vísar í gælunafnið sem Kate fékk á þeim tíma sem leið og beið og ekkert ból- aði á bónorði. Kjólnum ku ekki fylgja bónorð frá prinsi þó hverri konu eigi að líða eins og prinsessu í honum. Eftirlíking af trúlofunarkjólnum Prinsinn fylgir ekki með Vinsæll Hér má sjá bláa trúlofunarkjólinn en eftirlíkingar af honum hafa rokið út. Pez Minjagripir í tengslum við hið konunglega brúðkaup eru af ýmsum toga og þar á meðal eru peskarlar af parinu. Það veit hver maður að bros getur dimmu í dagsljós breytt, eins og skáldið komst að orði hér forðum. Og nú þegar vorið er handan við hornið er um að gera að hleypa tilhlökk- uninni inn í hjartað og láta gleðina breiðast út í björtu brosi. Það er bæði hollt og gott að brosa, þá framleiðum við gleðiefni í heilabúinu og við gleðj- um aðra sem mæta okkur með því að senda þeim bros. Endilega … … byrjið vikuna með brosi Reuters Bros Þau eru til alls líkleg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.