Morgunblaðið - 11.04.2011, Síða 32

Morgunblaðið - 11.04.2011, Síða 32
32 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ER HÆTT!! ÉG NENNI EKKI AÐ SPILA MEÐ LIÐI SEM TAPAR ÖLLUM LEIKJUNUM SÍNUM! ÞAÐ ER TILGANGSLAUST AÐ SPILA MEÐ LIÐI SEM TAPAR BARA OG TAPAR! ÞETTA LIÐ ER SÖKKVANDI SKIP OG ÉG ER FARIN FRÁ BORÐI! HVER FER ÞAR!? ER ÞAÐ VINUR EÐA ÓVINUR!? HVORUGT! ÉG ER HLUTLAUS! ÞETTA ER SVISS- LENDINGUR! ÞÚ ÆTTIR AÐ SJÁ SJÁLFAN ÞIG! ÞÚ ERT ÓGEÐS- LEGUR! ÞAÐ ER FÍLA AF ÞÉR OG SVO ERTU ALLUR ÚTATAÐUR Í RUSLI OG MATARLEIFUM ÞAÐ ER KANNSKI VOND LYKT AF MÉR EN ÉG ER NÚNA MEÐ NESTI HANN ER VANKAÐUR, DRÍFUM OKKUR! ÉG GET EKKI FARIÐ ÁN PENINGANNA! HAFÐU EKKI ÁHYGGJUR... ÞÚ ERT EKKI AÐ FARA NEITT! HVAÐ...! ÉG VAR BÚINN AÐ SEGJA KÖTU AÐ HÚN YRÐI AÐ HALDA Á TÖSKUNNI SINNI SJÁLF, AF HVERJU STÓÐSTU EKKI MEÐ MÉR? HÚN VAR VIÐ ÞAÐ AÐ MISSA AF RÚTUNNI! JÁ, EN ÉG HELD AÐ HÚN ÞURFI SAMT AÐ LÆRA SÍNA LEXÍU HÚN ER ORÐIN STÓR OG Á AÐ LÆRA AÐ TAKA ÁBYRGÐ Á DÓTINU SÍNU OG HEFÐIR ÞÚ VERIÐ TILBÚINN AÐ KEYRA HANA? JÁ, EF ÉG VÆRI EKKI AÐ VERÐA OF SEINN Á FUND ODDI ODDI Hjartans þakkir Af hjartans einlægni langar mig að þakka lesendum mínum fyrir frábærar viðtökur á verkum mínum Ertu Guð, afi? og Þokunni sem komu út fyrir síð- ustu jól. Á vormán- uðum 2010 fékk ung- lingabók mín Núll Núll 9 Bókaverðlaun barnanna sem vinsæl- asta bók ársins 2009 og haustið 2010 hlaut Ertu Guð, afi? Ís- lensku barna- bókaverðlaunin. Að hafa unnið til sjö verðlauna á rithöf- undaferlinum, þar af fimm í skjóli nafnleyndar, er þakkarvert. Og vit- anlega kitlar það hégómagirndina að hafa átt tvær söluhæstu skáldsögur fyrir börn og unglinga á síðustu jóla- bókavertíð. Að sama skapi fyllist ég auðmýkt. Það er mér mikilvægt að vera í nánum tengslum við ungmenni og ég er hrærður yfir þeim viðtökum sem ég fékk í þeim tugum skóla sem mér var boðið að heimsækja á síðasta ári. Það auðgar andann að fá að um- gangast lesendurna, lesa fyrir þá, gefast kostur á að svara spurningum og hreinlega horfast í augu við þessi frísklegu og líflegu ungmenni. Það liggur í hlutarins eðli að starf rithöf- undar er yfirleitt einmanalegt og þess vegna eru viðbrögð lesenda og ekki síst foreldra mikilvæg hvatning til að gera enn betur. Mannrækt er þema bókarinnar Ertu Guð, afi? og hefur afi Afríka augljóslega sáð fræjum í sálir fjölmargra les- enda. Fjölmörg þakk- arbréf frá foreldrum og ungmennum bera þess glögg merki. Það eru forréttindi að skrifa fyrir æsku þessa lands því hún hefur einlægn- ina og heiðarleikann að leiðarljósi. Þrátt fyrir augljósa velgengni eru ekki allir viðhlæjendur og þannig verður það aldrei, hvorki í mínu til- viki né annarra. Mót- læti og höfnun er oftar en ekki olía á eld þess metnaðar sem knýr suma áfram. Auðvitað hefði ég kosið, á 22 ára ferli sem rithöfundur, að vera annað slagið á meðal þeirra 70 rithöfunda sem hljóta starfslaun á ári hverju. Og þar af leiðandi getað einbeitt mér alfarið að því að skrifa vandaðar bækur fyrir börn, sem eru lesendur „fullorðinsbókmennta“ þeg- ar fram líða stundir. Ég hef reyndar hlotið starfslaun í 6 mánuði af þeim 264 mánuðum sem hafa verið í boði frá því ég skrifaði mína fyrstu bók ár- ið 1989. En krakkar, hjartans þakkir fyrir stuðninginn, öll bréfin og ógleymanlegar viðtökurnar. Þið eruð ljós heimsins. Þorgrímur Þráinsson rithöfundur. Ást er… … komin í land. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9. Útsk./ myndlist kl. 13, félagsv. kl. 13.30. Árskógar 4 | Handavinna/smíði/ útskurður kl 9. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur, handa- vinna, leikfimi kl. 13, sögustund kl. 13.45. Dalbraut 18-20 | Myndlist/postulín kl. 9, leikfimi kl. 10, kl. 13 brids. Dalbraut 27 | Handav. kl. 8, bænastund kl. 9.30, leikfimi kl. 11, uppl. 2. h. kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30. Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9, botsía kl. 11. Handverkskl. Valdórs kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 9, leiðb. til hádegis, botsía kl. 9.30, gler/postulín kl. 9.30/13, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17, skap- andi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulín kl. 9, tréskurður kl. 9.30, ganga kl. 10, handav/brids kl. 13. Félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikf. kl. 9.15, 10, 11, vatnsleikfimi kl. 12.10. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9, m.a. tréútskurður/handavinna. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Frá hád. spilasalur opinn. Kóræfing kl. 15.30. Föstud. 12. apríl kl. 14.30 kynning í Félagsheimili Leiknis v/Austurberg, ,,Allir finna eitt- hvað við sitt hæfi“. Háteigskirkja - starf eldri borgara | Spil, spjall og kaffi kl. 13. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9. Bænastund kl. 10, Helga fótafr. á staðn- um tímapant. í s. 6984938. Hárgr.slust. Fjólu opin kl. 9-14, tímap. í s. 8946856. Hraunsel | Ganga kl. 10 frá Haukah., kór kl. 10.30, glerbr./trésk. kl. 13, félagsvist/ botsía kl. 13.30, vatnsleikf. kl. 14.40. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9. Brids kl. 13. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30. Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Egils- höll kl. 10. Botsía Eirborgum, Fróðengi, kl. 13.30, sjúkraleikf. kl. 14.30. Á morgun er sundleikfimi. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við Hringborðið - spjallhópur kvenna kl. 10.30, handverks-/bókastofa kl. 11.30, Prjónaklúbb. og fl. kl. 13, botsía kl. 13.30, söngstund kl. 15. Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Handa- vinna kl. 9/13. Samverust. með djákna kl. 14. Útskurður kl. 13. Vesturgata 7 | Handavinna, botsía, leik- fimi kl. 9.15. Tölvuk. kl. 12, kóræfing kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, postulín/bókband kl. 9, morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, framh.saga kl. 12.30, handavinnust./stóladans/spil kl. 13. Sigurjón Valdimar Jónsson á Sel-fossi sendi Vísnahorninu kveðju: „Þeir voru að finna fimm þúsund ára gamlan homma í hellisskúta Þar var hann jarðsettur ásamt pottum og öðrum eldhúsáhöldum Allt of fljótt er ályktað, efi í huga nokkur, hellisbúinn held ég að hafi verið kokkur!!!!“ Við fossinn Dynk í Þjórsá var blandað á ferðapelann. Sturla Frið- riksson líffræðingur og lífskúnstner, eins og hann var kynntur í Vísna- horninu á laugardag, átti þessa vísu: Ekki er Þjórsá sopasínk svona Hreppamegin. Vatnið, sem hér draup á Dynk, dugði vel á fleyginn. Lagt var norður svartan sand og riðið eftir áttavita um nótt á Holta- mannaafrétti. Sturla kvað: Fellum tjöld og förum skjótt fram með Ölduhlíðum. Inn að Köldukvísl í nótt klárum völdum ríðum. Enn er þokan æði dimm, ætti að fara að rofa. Nú er klukkan nærri fimm, nú er mál að sofa. Á jafndægri orti Sturla: Nú styttist hún ótt hver einasta nótt, sem eflaust því tengist að dagurinn lengist. Þessa vísu kallar hann Spilavítið: Hér í tafli skiptast sköp, skaði þinn er mér í vil. Að jöfnu ganga gróði og töp, glötuð von og unnið spil. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Þjórsá og hellisskúta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.