Morgunblaðið - 21.06.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2011
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
55
43
0
06
/1
1
Opinn ársfundur
Orkuveitu Reykjavíkur
2011
www.or.is
Orkuveita Reykjavíkur heldur í fyrsta sinn opinn ársfund 23. júní 2011
kl. 14:00 til 16:00. Það er gert til að auka gegnsæi í starfseminni og
stuðla að upplýstri umræðu um málefni fyrirtækisins.
Á fundinum verða kynntar áherslubreytingar í rekstri, skipulagi og
þjónustu OR, drög að nýrri eigendastefnu fyrir fyrirtækið og staða
úttektar eigenda á tildrögum fjárhagsvanda fyrirtækisins.
Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að
Bæjarhálsi 1 í Reykjavík.
Vinsamlega skráið þátttöku á http://www.or.is/arsfundur
Grunngildi OR eru virðing, hagsýni, heiðarleiki, eldmóður, traust og sveigjanleiki.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Aska úr Grímsvatnagosi gerði Tóm-
asi Manoury hjá Íslenskum fjalla-
leiðsögumönnum og sjö hörkudug-
legum Frökkum erfitt fyrir þegar
þegar þau gengu frá Núps-
staðaskógi yfir í Skaftafell. „Þetta
var í fyrsta skipti á mínum ferli sem
leiðsögumaður sem ég vonaðist eftir
rigningu. En hún kom aldrei,“ sagði
Tómas sem telur að þetta sé fyrsti
leiðangurinn um þessar slóðir frá
goslokum.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Tómas í gær var hann staddur í
Bæjarstaðaskógi, skammt frá
Skaftafelli og ætlaði hópurinn, þrjár
konur og fimm karlar, að nota dag-
inn til að ganga að Morsárjökli og
loks inn að tjaldstæðinu í Skafta-
felli. Þar verður hópurinn í þrjár
nætur og býðst að ganga á Hvanna-
dalshnúk, sé fært á tindinn.
Vöknuðu í öskufoki
Alls hefur ferðalagið þá tekið 14
daga, þar af níu með bakpoka. Upp-
haflega átti að ganga frá Lakagíg-
um að Skaftafelli en vegna ösk-
unnar var ákveðið að byrja á að
ganga að Fjallabaki og síðan leggja
í gönguferð um öskusvæðið. Og sú
ferð hefði gengið þrautalaust hefði
jarðvegurinn ekki verið skraufþurr
og ekki hefði endilega brostið á með
hífandi roki.
Tómas segir að þegar þau hafi
tjaldað í Núpsstaðaskógi á fimmtu-
dag hafi verið logn. Um nóttina
rauk upp í norðanrok og um morg-
uninn vöknuðu þau því í miklu ösku-
foki. Askan fauk inn í tjöldin og
settist í föt, svefnpoka, matinn og
raunar allan búnað. „Það var allt
orðið svart,“ sagði Tómas.
Tjöldin rétt stóðu
Alvarlegast var að askan stíflar
og eyðileggur rennilása í tjöldunum.
Þau ákváðu því að stytta ferðina
með því að ganga tvær dagleiðir á
einum degi og næst reistu þau tjöld
við Grænalón. Þar skall á versta
veður: norðan bálviðri, og með
fylgdi mikill öskustormur. „Ég varð
að flýja út úr tjaldinu mínu. Renni-
lásinn stíflaðist þannig að ég gat
ekki lokað því og tjaldið fylltist af
ösku,“ sagði Tómas. Um nóttina
svaf hann því í braggatjaldi sem
bæði er notað til matseldar og gist-
ingar. Rokið var þvílíkt að Tómas
vaknaði nokkrum sinnum þegar
tjaldsúlurnar svignuðu og nudd-
uðust upp við andlit hans. „Það var
bara brjálað veður þessa nótt við
Grænalón. Tjöldin bara rétt stóðu.“
Daginn eftir gekk hópurinn yfir
Skeiðarárjökul og tjaldaði í Norð-
urdal. „Það var nú það eina jákvæða
við þessa ösku að það var eins og
það væri búið að malbika jökulinn.
Yfirleitt er hann seinfarinn en nú
var hann alveg sléttur.“ Öskulagið
yfir jöklinum hafi verið um senti-
metri að þykkt en vestan við jökul-
inn hafi öskuna dregið í um eins
metra djúpa skafla í lægðum og
lautum. Mun minni aska er austan
við jökulinn
Tómas segir að Frakkanir hafi
tekið aðstæðum mjög vel. „Það var
bara hlegið að þessu,“ sagði hann.
Flúði tjaldið í brjáluðum öskubyl
Hópur sem gekk úr Núpsstaðaskógi yfir í Skaftafell lenti í miklu öskufoki Mikil aska á jökli
Aðstæður hefðu verið skaplegar hefði rignt eða þau sloppið við rokið Allt orðið svart að morgni
Ljósmynd/Tómas Manoury
Hópurinn Frönsku ferðamennirnir tóku öskufokinu mjög vel, segir Tómas. Á leiðinni Gangan frá Núpsstaðaskógi yfir í Skaftafell er löng og ströng.
Núpsstaðaskógur
Grænalón
Norðurdalur
Bæjarstaðarskógur
Skaftafell
Grunnkort: LMÍ
Börnum á Flúðum og nágrenni gefst kostur á að læra golf tvo tíma í senn
tvisvar í viku á Selsvelli og stendur golfkennslan fram í júlí. Um tuttugu
börn eru í hópi þessara efnilegu golfara. Mörg eru áhugasöm og eiga golf-
kylfur nú þegar. Það eru þeir Karl Gunnlaugsson og Árni Þór Hilmarsson
sem annast kennsluna. Golfklúbburinn Flúðir er aldarfjórðungsgamall og
eru félagar hans fjölmargir.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Börnin læra golf
Enn einu sinni stendur ferðaþjón-
ustan frammi fyrir því að hálauna-
hópur hóti að trufla flug sem skað-
ar ferðaþjónustuna um land allt nú
á háönn en flugmenn hjá Iceland-
air hafa boðað yfirvinnubann 24.
júní nk. hafi samningar ekki tekist,
segir í yfirlýsingu frá Samtökum
ferðaþjónustunnar.
„Ef ekki tekst að leysa málið
fljótt er viðbúið að hoggið verði
stórt skarð í tekjur sumarsins hjá
fyrirtækjum víða um land með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.“
SAF segja erlendar ferðaskrif-
stofur fylgjast vel með og spyrjast
fyrir og séu þessa dagana að taka
ákvörðun um hvort þær hætti við
að senda hópa hingað í sumar.
„Það er fullkomlega óásættanlegt
að verkfallsaðgerðir fámennra há-
launahópa, sem telja sig eiga kröfu
á meiri launahækkunum en al-
menningur í landinu, stórskaði
heila atvinnugrein og þar með
þjóðarbúið.
Við þolum þetta ekki,“ segir í til-
kynningu SAF.
Óþolandi truflun
frá hálaunahópum