Morgunblaðið - 24.06.2011, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.06.2011, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  146. tölublað  99. árgangur  BJARGSIG, KLIFUR OG SIGLING BJÖRGUNARBÁTA GRILLIÐ KVEIKIR NEISTA Í FÓLKI SKEMMTILEGT AÐ ENDURHANNA OG RAÐA UPP Á NÝTT GRILLBLAÐ 16 SÍÐUR HÖNNUN GUÐMUNDU SJAFNAR 10ÚTIVISTARSKÓLI 16 Héraðsdómur Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu í gærmorgun að Ís- landsbanki væri bundinn af nauða- samningum sem gerðir voru við konu á síðasta ári. Kröfu bankans um að fá fellihýsi konunnar sem fjár- magnað var með bílasamningi frá bankanum, sem síðar var rift, var hafnað. Bankinn hafði í gær ekki ákveðið hvort úrskurður héraðsdóms yrði kærður til Hæstaréttar. Ef svo verð- ur og hann staðfestur af réttinum telur lögmaður konunnar að úr- skurðurinn geti haft fordæmisgildi fyrir aðra í sömu aðstæðum, og jafn- vel sett nauðasamninga þeirra sem látið hafa tæki sín af hendi í uppnám því ekki megi mismuna kröfuhöfum. Gæti markað veginn Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðs- maður skuldara, segir allan gang á samningum en úrskurðurinn sé engu að síður mjög merkilegur. „Ís- landsbanki ætlar þarna að rifta nauðasamningnum og taka eignina og þarna er lögð mjög skýr lína með það af héraðsdómi.“ Hún telur að skoða þurfi hversu margir séu í sömu stöðu og tekur fram að verði úrskurðurinn stað- festur af Hæstarétti, verði hann kærður, geti hann markað veginn fyrir embættið í slíkum málum. »20 Fellihýsi í skjóli greiðslu- aðlögunar Morgunblaðið/Ernir Af einhverjum ástæðum er alltaf svolítið meira spenn- andi að gera það sem ekki má heldur en það sem má. Þessi börn í Nauthólsvíkinni gátu ekki setið á sér og príluðu á veggnum sem bannað var að klifra upp á. Sennilega hefði þeim aldrei dottið það í hug nema vegna þess að skiltið vakti athygli þeirra á því. Freistandi að brjóta reglur Morgunblaðið/Eggert  Erfitt ástand er víða í sveitum vegna kulda og kals, einkum norðanlands og austan. Har- aldur Benedikts- son, formaður Bændasamtak- anna, segir tíð- arfarið óvenju- legt og teygja sig suður í Borgarfjörð. „Það herðir að en ann- ars eru bændur mjög magnaðir í því að bregðast við í svona árferði. Þetta er óvenjulegt en þetta er ekki óþekkt. Svo framarlega sem við fáum ekki snjókomu aftur,“ segir Haraldur. »4 Víða erfitt í sveitum vegna kulda og kals Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Ákveðið hefur verið að frestar gild- istöku skrefareglunnar svokölluðu þar til í ágúst. Reglan kveður á um aukalegt gjald vegna sorptunna sem standa lengra en 15 metra frá götu. Átæðan er sú að borgarlögmaður telur kostnaðarútreikninga ekki uppfylla kröfur sem gera verði til rökstuðnings fyrir þjónustugjaldi. Reglurnar gerðu ráð fyrir 4.800 króna ársgjaldi ef sorptunnur standa lengra en 15 metra frá götu. Nú er verið að ákvarða gjaldið upp á nýtt og meðal annars þarf að finna hver raunveruleg meðalfjarlægð sorpíláta í Reykjavík er frá sorpbíl. Ekki brot á jafnræðisreglu Reykjavíkurborg er skylt að sækja heimilisúrgang á hvert heimili innan borgarmarkanna. Borgarbúar eiga því ekki að þurfa að sækja sér- staklega um losun sorpíláta sem standa lengra en 15 metra frá sorp- bíl. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari borgarlögmanns við fyr- irspurn Mörtu Guðjónsdóttur, vara- borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um nýjar verklagsreglur í sorp- hirðumálum borgarinnar. Spurning Mörtu sneri að því hvort fyrirkomulag um að inn- heimta hærra gjald fyrir að sækja sorpílát utan 15 metra fjarlægðar frá sorpbíl bryti gegn jafnræðis- reglu stjórnsýslulaga. Í svari sínu telur borgarlögmaður svo ekki vera. Hins vegar gerir borgarlögmaður athugasemdir við ákvörðun þjón- ustugjaldsins. MÚtreikningar skrefagjalds »14 Illa ígrundaðar sorpreglur  Reykjavíkurborg hefur frestað gildistöku skrefareglunnar þar til í ágúst  Reikna þarf rétta meðalfjarlægð sorptunna frá götu til að ákvarða gjaldtöku Svar borgarlögmanns » Borgarlögmaður segir fyr- irkomulag um að innheimta hærra gjald fyrir að sækja sorpílát utan 15 metra fjar- lægðar standast lög. » Þá eru gerðar at- hugasemdir við framkvæmd- ina og ákvörðun gjaldtök- unnar.  Ekki hafði náðst sátt í kjaradeilu flugmanna og Icelandair þegar Morgunblaðið fór í prentun á tólfta tímanum í gærkvöldi. Að sögn Jóns Þórs Þorvalds- sonar, varaformanns Fía, stóð fund- ur þá ennþá yfir og taldi hann lík- legt að fundað yrði nú í morgun líka, ef ekki næðust sættir í nótt. Hann vissi þá ekki hvort fundað yrði langt fram á nótt. Hið sama var að heyra á viðmæl- anda úr samninganefnd Icelandair. Sagði hann að allt væri reynt til að menn næðu saman. Hreyfing væri á viðræðum en alls óvíst hversu lengi yrði fundað eða hvort samningar næðust áður en yfirvinnubann tek- ur gildi klukkan 14 í dag. »14 Kjaradeila flug- manna enn óleyst Morgunblaðið/Ernir  Starfsmenn Ósafls í Bolungarvík voru í vandræðum með vélar í vik- unni, tvær voru bilaðar á þriðjudag og á miðvikudag biluðu tvær til við- bótar. Í gær varð svo það óhapp að sprenging í efnisnámu í hlíð Trað- arhyrnu mistókst, svo grjóti rigndi yfir fjórar íbúðagötur í bænum. Vigdís Kristín Steinþórsdóttir telur að álfar í fjallinu hafi reiðst vegna jarðrasks við gerð Óshlíðar- ganga og telur mögulegt að óhapp- ið megi rekja til þeirra. Í fyrradag var fundur með verk- tökum og sjáendum, þar sem sókn- arprestur Bolungarvíkur, Agnes Sigurðardóttir, flutti bæn. »3 Töluðu til álfa degi fyrir óhapp Grjótregn Brotin rúða í einu íbúðarhúsanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.