Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 8
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Tíu laxar veiddust á opnunardaginn í Grímsá í Borgarfirði á miðvikudag, sem hlýtur að teljast gott þótt það jafnist ekki á við fjörutíu laxa veisl- una fyrsta veiðidaginn í fyrra. Birgir Gunnlaugsson setti í fyrsta laxinn, þar sem hann kastaði í Lax- foss að sunnanverðu. Félagi hans kastaði flugunni fyrstur, norðan við fossinn undir Miðbergi, en reisti ekki fisk þótt búið væri að sjá þar nokkra. Þá kom Birgir sér fyrir á fossbrúninni og kastaði fyrst léttri flugu, án árangurs, en þegar hann greip stöngina með sökkendanum og hálftommu túpuflugu á, þá þurfti ekki mörg köst. Lax hrifsaði flug- una í hvítfyssinu og skömmu síðar landaði Birgir 62 cm hæng. Hann kastaði aftur og í fyrsta kasti tók falleg 80 cm hrygna fluguna og var gefið líf, eins og reglur í Grímsá kveða á um en þar ber að sleppa laxi yfir 69 cm. Auk fimm fiska úr Laxfossi feng- ust fiskar í Strengjum, Þingnes- strengjum og Lambaklettsfljóti. Mest tveggja ára laxar Fyrsta holl sumarsins í Miðfjarð- ará lauk veiðum um hádegi í gær og var Rafn Valur Alfreðsson leigutaki hæstánægður með út- komuna. „Við fengum þrjátíu laxa á þessar sex stangir á tveimur og hálfum degi, þetta var rosalega flott,“ sagði hann og bætti við að í gærmorgun hefði fyrsti smálaxinn veiðst. Fram að því höfðu allir fisk- arnir verið 80 til 90 cm langir; fallegir og vel haldnir stórlax- ar. Laxar hafa veiðst í Vesturá, Austurá og Miðfjarðaránni sjálfri. „Ég fékk fisk í Kambsfossi í Austurá í morgun en í Vesturá hafa enn ekki veiðst fiskar ofan við Hlíð- arfoss; Hlíðarfoss og Kerfoss gáfu marga,“ sagði hann. Það var kalt og hvasst í Miðfirð- inum og ekki síður við Vatnsdalsá en þar veiddi opnunarhollið 12 laxa, 80 til 90 cm langa. Hólakvörnin gaf flesta en þrír fiskanna veiddust á efra laxasvæðinu, í Forsetahyl, Nónhyl og Efri-Ármótum, og er það góðs viti fyrir framhaldið. Fyrsti lax sumarsins í Mýrarkvísl í Reykjahverfi veiddist á miðviku- dag, 88 cm hængur. Laxárnar eru opnaðar hver af annarri þessa dag- ana, í dag meðal annars Víðidalsá og Fitjá og Ytri-Rangá. „Við fengum þrjátíu laxa – þetta var rosalega flott“  Góð opnun í Miðfirði  Tíu fyrsta daginn í Grímsá  Tólf vænir úr Vatnsdalsá Morgunblaðið/Einar Falur Tog við fossinn Birgir Gunnlaugsson glímir við fyrsta lax sumarsins í Grímsá, en hann tók við Laxfoss. 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011 Der Spiegel hefur fram til þessaverið ákaft stuðningsblað Evr- ópusambands og hugsjóna því tengdra og nálgast stöðu RÚV hvað það varðar. En síðustu misseri hef- ur gætt þar meira raunsæis og hrein- skilnislegrar um- ræðu. RÚV hefur staðið sig betur og lætur engan bilbug á sér finna.    Síðasta stórfyrir-sögn hins alþjóðlega vefrits út- gáfunnar er: Hvernig evrópska elít- an týndi heilli kynslóð.    Feitletraði undirkaflinn er þessi:„Evrópusambandið er í mikl- um erfiðleikum. Ekki aðeins er sameiginlega myntin í molum og mörg ríki svæðisins í fjárhags- legum dauðateygjum heldur sjá ungir Evrópubúar ekki lengur að Evrópusambandið geti orðið þeim til framdráttar. Milljónir þeirra fylla strætin og krefjast framtíðar.“    En það eru ekki aðeins vormennEvrópu, unga kynslóðin, sem efast. Einn helsti hugsuður ESB, Jacques Delors, 85 ára gamall, hef- ur áhyggjur af sameiginlegu mynt- inni. En ekki aðeins það. Tíðarand- inn hefur breyst að hans mati.    Delors segir að vandinn sé tví-þættur. Fyrri krísan snúi að myntinni, en seinni krísan sé sýnu alvarlegri: Hún snýst um tilgang. Hann spyr sig: „Kæra Evrópubúar – borgararnir og hin pólitíska elíta þeirra – sig nokkuð lengur um þetta sögulega verkefni um Evr- ópusamband?“    Á Íslandi situr ríkisstjórn meðþað sem sitt heilagasta verk- efni að ná um borð á þriðja farrými hins evrópska Títanik áður en það rekst á borgarísjakann. Jacques Delors Úr takti við tíðarandann STAKSTEINAR Veður víða um heim 23.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 12 skýjað Akureyri 9 skýjað Kirkjubæjarkl. 12 skýjað Vestmannaeyjar 10 skýjað Nuuk 8 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Ósló 16 skýjað Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Stokkhólmur 15 skúrir Helsinki 16 skýjað Lúxemborg 16 skýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 15 léttskýjað Glasgow 16 léttskýjað London 18 léttskýjað París 18 heiðskírt Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 15 skýjað Berlín 18 skýjað Vín 23 skýjað Moskva 22 heiðskírt Algarve 26 heiðskírt Madríd 32 heiðskírt Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 30 heiðskírt Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 21 léttskýjað Montreal 22 skýjað New York 21 skúrir Chicago 21 alskýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:57 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:11 23:49 „Opnunarhollið fyllti næstum fyrstu síðuna í veiðibókinni, veiddu rúm- lega 20 laxa,“ sagði Jóhannes Oddsson veiðivörður í Langá á Mýrum í gær. Þá voru bændur að safnast í hús, en þeir veiða nú tvær vaktir áður en veiðihúsið verður formlega opnað. Jóhannes sagði bara góðar fréttir vera af opnuninni, enda fallegt vatn í ánni, Langavatn fullt, það boðar góða vatnsstöðu í sumar, og fiskur þegar búinn að dreifa sér vel. „Við náðum að flytja stóra hrygnu í klak- hús en meira en helmingur fiskanna sem veiddust reyndust tveggja ára fiskar,“ sagði hann. Þar á meðal komu fjórir stórir á fjallsvæðinu svoköll- uðu. „Strengir eru ekki að gefa megnið af aflanum eins og stundum í opn- un – þessi byrjun veit á gott.“ Lax stekkur í Skuggafoss í Langá. „Þessi byrjun veit á gott“ GÓÐ BYRJUN Í LANGÁ OG LAXAR BÚNIR AÐ DREIFA SÉR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.