Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
Kristel Finnbogadóttir
kristel@mbl.is
Á fundi borgarstjórnar í Reykjavík
21. júní síðastliðinn þurfti að gera hlé
á fundi eftir að Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn,
krafðist þess að forseti borgarstjórn-
ar, Elsa Hrafnhildur Yeoman, ávítti
Björk Vilhelmsdóttur borgarfulltrúa
Samfylkingarinnar og Dag B. Egg-
ertsson, formann borgarráðs og
borgarfulltrúa fyrir Samfylkinguna,
vegna brota á 6. gr. siðareglna kjör-
inna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg.
Las minnispunkta úr dagbók
Á fundi borgarstjórnar voru til
umræðu breytingartillögur þar sem
deilt var um aðkomu meiri- og minni-
hluta í borgarstjórn að tillögum. Í
umræðunni var meirihlutinn gagn-
rýndur fyrir að vinna ekki tillögurn-
ar í meira samráði við minnihlutann.
Fyrir hönd meirihlutans svaraði
Dagur B. Eggertsson gagnrýninni
svo að minnihlutinn hefði sagt sig frá
störfum úr stjórnkerfisnefnd. Krafð-
ist minnihlutinn þá gagna sem
studdu þessa staðhæfingu. „Ég fór í
ræðustól og sagði að ég hefði engin
formleg gögn en á sameiginlegum
fundi stjórnkerfisnefndar og borgar-
ráðs hefði ég tekið niður minnis-
punkta í eigin dagbók þar sem fram
kom orðrétt hvað borgarfulltrúar
sögðu. Með því að lesa það upp braut
ég siðareglur,“ segir Björk Vilhelms-
dóttir um fundinn.
Dagur B. Eggertsson á hins vegar
að hafa brotið siðareglur með því að
vitna í minnispunkta starfsmanns.
Augljóst brot á reglum
6. gr. umræddra siðareglna kveð-
ur á um trúnaðarskyldu kjörinna
fulltrúa. Þar segir meðal annars að
kjörnir fulltrúar skuli virða trúnað
um ummæli einstakra fundarmanna
á lokuðum fundum í nefndum og ráð-
um Reykjavíkurborgar.
„Það var augljóst í þessu tilviki að
um væri að ræða brot á siðareglun-
um sem og samþykktum borgar-
stjórnar. Ég vakti athygli forseta á
því,“ segir Hanna Birna Kristjáns-
dóttir. „Ef borgarfulltrúar fylgja
ekki þessum reglum er það forseta
að úrskurða hvernig brugðist skuli
við því. Rétt er að taka fram að eng-
inn ágreiningur var um hvort regl-
urnar hefðu verið brotnar eða ekki,“
segir Hanna Birna. Hún segist vona
að borgarfulltrúar séu meðvitaðir
um siðareglurnar en allir fulltrúar
undirgangast þær með undirskrift.
Björk segist ekki hafa ætlað
brjóta reglurnar á vísvitandi hátt en
segir að umræðan hafi verið orðin
hörð og henni hafi þótt ástæða til að
styðjast við umrædd gögn. „Mér
finnst þessi ágreiningur kalla á end-
urskoðun á reglunum. Það er alvar-
legt þegar hægt er að segja eitt á lok-
uðum vettvangi en svo allt annað á
opinberum vettvangi,“ segir Björk.
Hún leggur áherslu á að mikilvægt
sé að fólk geti tjáð skoðanir sínar
frjálst á lokuðum fundum en ekki
megi nýta sér slíkan trúnað í póli-
tískan leik, líkt og hún upplifði.
Forseti borgarstjórnar ákvað í
kjölfar fundarhlés að ávíta ekki
borgarfulltrúa. „Málin voru leyst á
lokuðum fundi forsætisnefndar í sátt
og samlyndi. Ég áminnti borgarfull-
trúa að gæta orða sinna þegar fund-
ur hófst á ný,“ segir Elsa Hrafnhild-
ur Yeoman, forseti borgarstjórnar.
Hún telur siðareglurnar mikilvægar
og að þær beri að virða en ekki sé
þörf á að breyta reglunum.
Ekki náðist í Dag B. Eggertsson
við vinnslu fréttarinnar.
Siðareglur brotnar
í harðri umræðu
Trúnaður skal ríkja um það sem fram fer á lokuðum fundi
Morgunblaðið/Ernir
Borgarstjórn Á fundi í borgarstjórn Reykjavíkur 21. júní kom fram krafa
um að borgarfulltrúar yrðu ávíttir fyrir brot á siðareglum kjörinna fulltrúa.
Siðareglur
» Siðareglur kjörinna fulltrúa
hjá Reykjavíkurborg voru sam-
þykktar á síðasta kjörtímabili.
» Allir kjörnir fulltrúar undir-
gangast siðareglur með undir-
skrift sinni og lýsa þar með yfir
að þeir ætli að hafa þær að
leiðarljósi.
Ljósmynd/Hávarður Tryggvason
Hávarður Tryggvason ætlar að hjóla hring um þjóðvegi „neðri kjálka“
Vestfjarða, tæplega 700 km vegalengd, til styrktar Grensásdeild og átak-
inu „Á rás fyrir Grensás.“ Hann lagði af stað frá Ísafirði á miðvikudag og
hefur ferðin gengið vel. „Ég tileinka ferðina frænda mínum, Kristjáni Pét-
urssyni, en hann lamaðist ungur,“ segir Hávarður en hægt er að fylgjast
með leiðinni á www.depill.is/grensas. Upplýsingar um reikning átaksins
eru á www.grensas.is.
Hjólar hring um Vestfirði
Átak Hávarður hjólar hring um
Vestfirði til styrktar Grensásdeild.
Stutterma-
bolir
Fleiri gerðir og litir
Sendum
í
póstkröf
u
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 16, sími 553 7300
Opið mán-fös 12-18 og laugd 12-17
S
O
H
O
M
A
R
K
E
T
FULL BÚÐ AF
NÝJUM SUMARVÖRUM
BLÚNDU
AÐHALDSTOPPAR
3.450 kr.
Blúnda að framan og aftan.
Litir: svart og húðlitur
Stærðir: S–XXL
SÍÐ AÐHALDSSAMFELLA
5.990 kr.
Til í svörtu, hvítu og húðlit.
Opin skrefbót.
Blúndulíning á skálmum.
Stærðir: S/M, L/XL, 1X/2X
vera • Laugavegi 49
Sími 552 2020
Útsalan
hefst í dag
Sjósetning lítils kafbáts fór fram í
gærmorgun um tíu sjómílur suður
af Grindavík. Báturinn mun á
næstu fimm mánuðum sigla rúm-
lega fjögur þúsund kílómetra leið
til Kanaríeyja. Tilgangurinn er að
mæla ýmsa eiginleika hafsins á
leiðinni eins og seltu og hitastig
sem nýtast mun við hafrannsóknir.
Vísindamennirnir sem standa að
verkefninu eru staddir hér á landi
á vegum fyrirtækisins Teledyne
Gavia í Kópavogi sem er syst-
urfyrirtæki Teledyne Webb í
Bandaríkjunum sem framleiddi
kafbátinn. Að sögn Arnars Stein-
grímssonar, sölu- og markaðs-
stjóra Teledyne Gavia, mun kaf-
báturinn koma upp á yfirborðið á
u.þ.b. átta klukkustunda fresti og
hafa samband við þá sem að verk-
efninu standa og gefa upp stað-
setningu sína. Þá gefist einnig
tækifæri til þess að breyta stefnu
hans ef þörf krefur, t.d. vegna
óheppilegra hafstrauma.
Afar sparneytinn
Aðspurður segir Arnar að kaf-
báturinn, sem nefnist Webb Gli-
der, sé knúinn af rafhlöðu og sé
afar sparneytinn á þá orku. Hann
vegur um 40 kíló og er gerður úr
léttum en sterkum efnum.
Þess má geta að kafbáturinn fór
árið 2010 frá New Jersey í Banda-
ríkjunum og til Spánar í hlið-
stæðum tilgangi og tók sú ferð sjö
mánuði.
Kafbátur til Kanarí-
eyja á 5 mánuðum
Aflar upplýsinga um seltu og hita
Ljósmynd/ Teledyne Gavia
Langferð Kafbáturinn sjósettur.