Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011 Með trega sest ég niður og rita niður örfá orð til að minnast frænda míns sem nú er horfinn yfir móðuna miklu eftir stutt og erfið veikindi. Minningarnar um mætan mann eru margar og skemmtilegar sem eiga eftir að hlýja manni um hjartarætur um ókomna tíð. Garðar var glaðvær, skemmti- legur og hjartahlýr maður sem ávallt var gott að sækja heim. Garðar var yngstur af fjórum bræðrum og í gegnum tíðina hafa margar góðar og skemmti- legar sögur verið sagðar af þeim bræðrum; augljóst var að þeir voru grallarar miklir, og ein af mínum uppáhaldssögum var sagan af Stínu ráðskonu. Stína var ráðskona á heimili þeirra bræðra en ekki svo vin- sæl svo vægt sé til orða tekið en einn morguninn þegar móðir þeirra kemur fram voru þeir bræður með mynd af Stínu og handsnúna hakkavél. Þegar þeir voru spurðir hvað þeir væru að gera var svarið, við er- Garðar Karlsson ✝ Garðar Karls-son fæddist í Reykjavík 25. nóv- ember 1942. Hann lést á Landspítal- anum við Hring- braut 8. júní 2011. Útför Garðars fór fram frá Há- teigskirkju 20. júní 2011. um að hakka hana Stínu. Já, þeir bræður fundu sér ávallt eitthvað skemmtilegt til dundurs og létu sér aldrei leiðast. Garðar var afar stoltur af sínum nánustu og naut þess að upplýsa okkur hin um okk- ar hag og afrek, þannig hefur maður náð að fylgjast vel með þeim sem mað- ur hittir sjaldan. Hann hafði einstaka ánægju af veislum, einkum ef hann gat hitt ætt- ingja í leiðinni, líkt og bræður hans, og að veislu lokinni þegar komið var að kveðjustund þá var farið yfir hvenær næsta mögulega veisla yrði. Ekki var það einungis að honum þótti svo gott að borða heldur vegna þess að hann hafði einnig mikinn áhuga á að fylgjast vel með þeim ættingjum sem hann hitti sjaldnar, sérstaklega þeim sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu. Garðar var flugvirki og mikill tónlistarmaður og í gegnum tíð- ina hefur hann spilað með all- nokkrum hljómsveitum. Það var mikil upplifun fyrir litla frænku að eiga svo „frægan“ frænda sem spilaði í hljómsveitum. Það var því gríðarleg spenna þegar til stóð að frændi minn og fjöl- skylda komu í heimsókn vestur í Ólafsvík, á árum áður, ekki bara vegna þess að hann var „frægur“ hljómsveitargaur heldur líka vegna þess að hann hefur ávallt, líkt og hans bræð- ur, verið með svo góða nærveru og því einstaklega gott að vera í kringum hann. Um tíma spilaði hann einn á skemmtara og söng á skemmtunum. Þegar ég og mín fölskylda bjuggum vestur á fjörðum, kom Garðar eina helgi og spilaði á bæjarpöbbnum. Hann notaði tækifærið og heim- sótti frænku sína í leiðinni, mik- ið þótti mér vænt um það. Garð- ars verður sárt saknað en minningin um þennan öðling mun lifa um ókomna tíð. Elsku Þura, Viðar, Agnes, Jón, Rannveig og fjölskyldur, ég bið Guð að gefa ykkur styrk á þessari erfiðu stundu og í framtíðinni. Helga Karlsdóttir og fjölskylda. Það er ýmislegt sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til Garðars afa míns, en það sem helst stendur upp úr er nafnið mitt. Nafn mitt er einnig Garð- ar en foreldrar mínir nefndu mig eftir honum. Vegna þess mun hann alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu, aðskilinn frá öllum öðrum. Á vissan hátt finnst mér það vera skylda mín að lifa mínu lífi fyrir hann og gera hann eins stoltan af mér og mögulegt er. Það er nánast eins og að sál hans hafi flætt inn í hjarta mitt og sagt mér að ég þurfi að halda minningu hans á lofti og heiðra afa minn. Afi minn var einn af yndileg- ustu, bestu, fyndnustu og ein- lægustu mönnum sem ég hef hitt. Mín uppáhalds minning sem minnir mig á kímnigáfu hans var fyrir u.þ.b. tíu árum þegar ég var í heimsókn á Ís- landi. Við vorum á leiðinni heim til afa og ömmu, við vorum að koma úr útilegu og stoppuðum í sjoppu svo að fólk gæti farið á klósettið. Þegar ég og afi löbb- uðum inn sagði afi: „Hvað er þetta kallað á ensku? Taking a leak, right?“ Af einhverjum ástæðum hefur þessi minning fest sig í huga mér, kannski af því að mér fannst mjög fyndið að heyra þessa amerísku slettu koma frá honum. Síðasta skiptið sem ég sá afa minn var þegar hann og aðrir úr fjölskyldunni komu hingað til Seattle til að vera viðstödd útskriftina mína í júní 2010. Það gerði mig mjög hamingju- saman að afi gat komið til Seattle til þess að deila þessari sérstöku stund í mínu lífi með mér og mér þótti mjög vænt um að fjölskyldan kom til þess að sjá mig verða að manni. Ef ég ætti að lýsa afa mínum myndi ég segja að hann hafi verið hreinn og beinn. Ég hef aldrei kynnst manni sem var meira ekta heldur en afi minn. Ég elska afa minn með öllu mínu hjarta og ætla að leggja mig allan fram við að gera mitt besta í lífinu til þess að heiðra minningu hans. Hvíldu í friði, Garðar afi, ég elska þig af öllu hjarta. Litli Garðar. Elsku amma, þeg- ar ég hugsa um þig þá er brosið þitt það fyrsta sem ég sé fyrir mér. Brosið þitt sem mætti mér alltaf þegar ég kom í heimsókn til ykkar afa. Og hvað þér fannst gaman að dekra við mig. Þú send- ir afa gjarnan inn í eldhús til að ná í stóra skál af ís með nóg af súkku- laðisósu. Síðan settist ég niður með ykkur og sagði ykkur fréttir af því sem var að gerast í lífi mínu og þið hlustuðuð full áhuga. Þú fylgdist vel með okkur barnabörn- unum þínum. Minningarnar eru margar um þær stundir sem við höfum átt saman, en þær sem eru mér kær- Auður Jónsdóttir ✝ Auður Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 21. októ- ber 1926. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Sóltúni 9. júní 2011. Útför Auðar fór fram frá Háteigs- kirkju fimmtudag- inn 23. júní 2011. astar eru þegar við öll fjölskyldan vor- um saman. Þér þótti svo skemmtilegt þegar við vorum öll saman á hátíðisdög- um, í sumarhúsinu eða bara svo lengi sem við sátum öll saman við matar- borðið og töluðum hvert í kapp við ann- að og glatt var á hjalla. Þú lést mann trúa því að maður gæti náð öllum sínum markmiðum ef viljinn væri fyrir hendi. Að það væri ekkert fjall of hátt til að klífa það. Enda hefur ekkert okkar hætt því verkefni sem við höfum tekið að okkur. Hreinskilni, já- kvætt hugarfar og heiðarleiki er það sem ég hef lært af þér. Og þú fékkst mig til að skilja að svo lengi sem maður hefur þetta efst í huga sér ásamt því að hafa fjölskyldu sína í kringum sig þá hefur maður öðlast gott veganesti í lífinu. Það virkaði hjá þér og því mun ég einnig lifa með þetta að leiðarljósi. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, amma mín. Kveðja, Sævar Vídalín Kristjánsson. Elsku amma. Núna er tilveran í húsinu okkar í Barmahlíðinni ekki sú sama og þegar þú varst hér. Það vantar þig. Í þau 18 og hálft ár sem ég hef lifað og búið í Barma- hlíðinni, eins og þú sagðir alltaf, gat ég komið til ykkar afa hvenær sem mér hentaði. Þú sast þá gjarn- an annaðhvort inni í stofu að prjóna, sauma út eða inn í sjón- varpsherbergi að horfa á sjón- varpið með öðru auganu og skoða bók með hinu. Alltaf þegar ég kom inn og heilsaði þér kom þetta stóra, geisl- andi bros á þig og þú heilsaðir mér svo innilega. Svo kallaðir þú á afa og baðst hann um að gefa mér ís, súkkulaði eða eitthvað annað góm- sætt sem var á boðstólum hverju sinni. Oft þegar ég var að kaupa mér nýja flík eða skó og var í ein- hverjum vafa um hvort þetta færi mér nógu vel og mamma var ekki nógu sannfærandi skottaðist ég bara niður til þín og spurði þig. Þú hafðir alltaf svo næmt auga fyrir því hvað var flott og hvað ekki. Elsku amma, mér fannst þú svo falleg, þú geislaðir alltaf og á gömlum myndum má sjá hversu smekkleg þú varst, alltaf svo smart til fara. Þegar við skoðuð- um myndaalbúmin þín saman fékk ég að heyra sögu við hverja mynd. Mín uppáhaldssaga var við ljósmyndirnar frá Finnlandi en þangað fórstu til að sýna fimleika með flottum hópi Ármenninga. Já, amma, það eru ekki fáar minning- arnar sem við eigum saman, þú og ég. Við bjuggum jú í sama húsi. Við ferðuðumst saman í sumar- húsið þitt á hverju sumri. Við borðuðum oft saman. Þú hlustaðir á mig spila og æfa mig á fiðluna og píanóið. Við vorum báðar miklir sælkerar eins og afi kallaði okkur réttilega. Uppáhaldsliturinn þinn að prjóna úr var rauður, rauður fyrir ástina sem þú sýndir og veittir mér og öllum öðrum í fjöl- skyldunni. Elsku amma, minning þín mun alltaf vera í hjarta mér og ég sakna þín. Við skildum hvor aðra vel og stundum gat einfalt bros sagt allt sem segja þurfti í sam- skiptum okkar. Þín dótturdóttir, Ásdís Vídalín Kristjánsdóttir. Elskulega amma mín er farin frá okkur og vil ég með nokkrum orðum minnast hennar og þakka henni fyrir allan þann tíma sem við áttum saman. Hún amma mín var einstaklega góð og falleg kona í alla staði. Ég naut þeirra forrétt- inda að alast upp við hlið ömmu og afa. Þau áttu heima á litlum bæ rétt fyrir utan þorpið sem var allt- af spennandi að heimsækja hvort sem maður hjólaði, labbaði eða fór á bíl og ég tala nú ekki um að fá að gista sem maður gerði mjög oft. Amma vissi allt og miklu meira en það, að leita til hennar með eitt- hvað var mjög auðvelt því maður fékk alltaf svör. Sögur kunni hún heilan helling af, sönnu sögurnar var alltaf skemmtilegast að hlusta á. Amma hugsaði vel um allt og alla sem í kringum hana voru, hvort sem það voru dýr eða menn. Ég man eftir því hvað hún átti flottar kindur, allar svo hreinar og snyrtilegar. Svona kindur sé ég ekki á öðrum bæjum og horfi ég nú vel í kringum mig á ferð minni um landið. Krummi fékk líka að njóta góðvildar hennar. Já, hún amma var gull af manni og ég á eftir að sakna hennar mik- ið. Með kveðjuorðunum vil ég þakka henni fyrir allt, líka fyrir hönd barna minna sem voru svo heppin að fá að kynnast henni. Elsku amma mín, megir þú hvíla í friði. Þín dótturdóttir, Linda Hlín. Með nokkrum línum langar mig að minnast ömmu á Gileyri. Kærar þakkir, elsku amma mín, fyrir að taka á móti mér opnum örmum og leyfa mér að vera hjá ykkur afa á Gileyri á sumrin. Mér fannst gott að koma og alltaf var nóg að gera á Gileyri. Gefa heim- alningunum, líta til með æðar- varpinu, sækja eggin til hænsn- anna og gefa þeim kartöflur, gefa kindunum brauðbita því þeim þótti það afskaplega gott og best fannst þeim að fá rúgbrauðið við hliðið á leið sinni niður í fjöruna. Kvöld eitt sáum við tófu en hún var að koma yfir þúfurnar úti við Kristín Guðbjörg Ingimundardóttir ✝ Kristín Guð-björg Ingi- mundardóttir fæddist í Gerði á Barðaströnd 8. apr- íl 1919. Hún lést á Heilbrigðisstofnun- inni, Patreksfirði, 14. júní 2011. Útför Kristínar fór fram frá Tálknafjarðar- kirkju 23. júní 2011. kartöflugarð. Ég hræddist gaggið í henni en þú sagðir að hún væri miklu hræddari við okkur því tófur hefðu ofsa- lega gott lyktarskyn og fyndu lykt af okkur langa leið. Við röltum þá niður túnið í átt að varp- inu og tófan sneri við í átt til fjalls og ég sá hana aldrei meir. Ég fékk að fara með þér þegar þú varst að sprauta kindurnar á bæjunum í kring. Þú varst alltaf með verkefni og þegar stund gafst leystir þú krossgátur og varst snillingur í því. Ég man þegar kindurnar störðu á eftir kunnuglegum bílnum, þegar þú keyrðir mig út í laug þar sem ég lærði að synda. Stundum var ég að slæpast eftir sundið með krökkunum úr þorpinu og einu sinni bauð ég öllum að Gileyri í kaffi til þín. Og auðvitað tókstu vel á móti öllum púkunum í stóra eldhúsið þitt, sem virðist reyndar miklu minna í dag. Sögur þínar um álfa og tröll urðu ljóslifandi og seinna kom ég með dætur mínar að Gileyri og þú sagðir þeim einnig sögur. Ég hugsaði oft um að mæta næst með upp- tökutæki en lét aldrei verða af því að ná þessum gersemum á band. Ég man kvöldkaffitímana – heitt Nesquik með kringlu, „drekkutímana“ – brauð með mysingi eða mysuosti og borða mysinginn beint úr dósinni með skeið. Þið afi drukkuð ekki mikið kaffi, helst þegar þið fóruð til borgarinnar, eða eins og afi kall- aði það, að fara af bæ. Kálfabland var ykkar drykkur heitt vatn með mjólk. Ég man eftir drulluköku- bakstri við gilið, þröstunum með hreiðrið sitt í trénu í garðinum, gula túninu með miklu og háu grasi og sóleyjabreiðu sem mað- ur lagðist í og horfði á himinn – skýin breyttu endalaust lögun sinni í ýmsar kynjaverur. Í minn- ingunni er einfaldlega alltaf sól á Gileyri. Skrítið með lífið, það er öruggt þegar við fæðumst að við munum deyja og innst inni þá hef ég vitað í nokkurn tíma að þú færir fljót- lega til afa, í sólina með derhúf- una sem þú baðst mig um á sjó- mannadaginn sl., þar sem sólin væri svo sterk og afa vantaði húfu til að skýla augunum sínum – samt er maður ekki tilbúinn. Ég veit að afi hefur tekið á móti þér í heiðríkjunni og þið getið verið saman. Guð blessi ömmu mína og minningu hennar. Þín Kristín Guðbjörg. Látinn er Ómar Árnason, kennari, stjórnarmaður og fram- kvæmdastjóri HÍK og síðar starfsmaður KÍ. Ég starfaði með honum liðlega áratug í HÍK. Það vakti strax athygli mína hve lipurlega hann leysti úr einföldum og snúnum erind- um ýmist elskulegra eða ofur- æstra hringjenda hvort sem um var að ræða þann fimmtánda eða nítugasta þess dags. Með Ómari kynntist ég því Ómar Árnason ✝ Ómar Árnasonfæddist í Reykjavík 9. apríl 1936. Hann lést á St. Jósefsspítala 11. júní 2011. Útför Ómars fór fram frá Hafnar- fjarðarkirkju 22. júní 2011. fyrirbæri sem menn hafa kallað límheila. Minni hans var nákvæmt – þótt ég muni aldrei að hann hafi fullyrt neitt í þá átt. Nei – hann sagði ævinlega heimildir á tiltekn- um gulnuðum blöð- um. Og – hann vissi ævinlega hvar þau gulnuðu blöð var að finna. Og – það koma ævinlega í ljós að allt sem þau geymdu hafði Ómar einmitt sagt. Mörgum finnst þeir hafa svarið – en koma því ekki fyrir sig. Svo var ekki með Ómar Árnason. Hans minnisúrvinnsla var hnökralaus. Hann fann allt strax á sínum minnisdiski – og allt í því samhengi. Ómar var maður hinnar glöggu yfirsýnar – sem ekki tók aðeins til aðalatriða heldur einnig til hinna fjölmörgu smærri atriða. Þegar á samn- ingafundi voru ræddar hug- myndir um breytingar á launa- eða starfskjörum varð þras- staðan aldrei svo kröpp að hann gæti ekki dregið fram hinar ýmsu afleiðingar og árekstra sem af þeim myndu leiða. Og – þegar aðrir við- staddir sáu ekki samhengið brást það ekki að það kom öll- um í koll síðar. Ómar var sóknþungur samn- ingamaður. Hann átti ætíð fleira ónefnt þegar eitt hafði fengist fram og var aldrei hætt- ur að þrýsta á til hagsbóta ein- stökum félagsmönnum sem brotið hafði verið á eða heildar- innar í kjarasamningum. Hann kunni að doka við, bíða færis og jafnvel að setja tiltekið mál í lengri bið – en ekki að gefast upp. Málið var komið upp á samningaborðið um leið og nýtt tækifæri gafst. Væri Ómar upptekinn var einboðið að fresta samninga- fundi. Starf fyrir stéttarfélag er enginn rósadans. Félagsmönn- um þykir sjálfsagt að fram ná- ist ýtrustu kröfur – og alltaf eru samningar hörmulegir þeg- ar þeir eru kynntir. Þá segir það sitt um stöðu Ómars í hug- um félagsmanna HÍK að meðan hann gaf kost á sér í stjórn fé- lagsins var hann ávallt endur- kjörinn með einna flestum at- kvæðum. Fyrir aldarfjórðungi spurði ég hvort hann ætti annað áhugamál en kennslu og bar- áttu fyrir bættum kjörum kennara. Hann hugsaði sig um eitt andartak – en svaraði svo neitandi. Það var eitt af því frábæra sem ég hef upplifað að kynnast og starfa með Ómari Árnasyni. Kæra Hrafnhildur, börn, niðjar og vinir Ómars, innilegar sam- úðarkveðjur. Gísli Ólafur Pétursson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.