Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Þú ert ekki maður á meðal manna
ef þú kannt ekki að planka. Plank-
fyrirbærið, sem virðist vera að
skjóta rótum hér á landi, er í raun
vinsæll leikur víðsvegar um heim-
inn en leikurinn gengur út á það
að leikmaður leggst á magann á
einhverjum undarlegum eða
óvenjulegum stað, með andlitið á
grúfu og hendur meðfram síðum
með lappirnar og tærnar beinar.
Plankið er síðan skýrt einhverju
nafni og því deilt á netinu. Face-
book-síða hefur verið stofnuð í
kringum leikinn á Íslandi sem ber
nafnið Icelandic Planking Comm-
unity. Þar er hverjum sem er
kleift að hlaða inn mynd með sínu
planki. Alls konar skemmtilegar
myndir hafa komið inn á síðuna af
fólki sem gerir ótrúlegt plank.
Hins vegar er lögð áhersla á að
fara varlega þar sem sumt plank
getur verið varasamt.
Plankaði í miðjum þætti
Fjölmiðlafólk er einnig farið að
taka plankið til sín. Í Morgun-
blaðinu 14. júní sl. birtist til að
mynda skopmynd eftir Helga Sig
þar sem mönnum misheyrðist að
planka fyrir að banka. Þá plankaði
Sigmar Guðmundsson, fréttamað-
ur í Kastljósi, á kynningarborði
Kastljóssins í miðjum þætti. Björn
Ingi Hrafnsson, útgefandi og
stjórnarformaður Pressunnar, hef-
ur nú einnig tekið þátt í þessari
nýjung hér á landi og plankaði á
miðju biljarðborði í vinnunni. Þeg-
ar Morgunblaðið sló á þráðinn til
hans og spurði um plankið hló
hann dátt enda getur þessi list,
eins og sumir vilja kalla það, verið
afar kómísk. „Það er svo gaman
að gera eitthvað sem enginn á von
á að maður gerir,“ sagði Björn
Ingi. „Eftir að maður fór að taka
eftir því að það væru farnar að
birtast slíkar myndir þá ákvað
maður að taka þátt í fjörinu og slá
á létta strengi.“ Björn Ingi segir
að á vinnustað sínum sé fullt af
hressu fólki sem sé búið að reyna
ýmislegt við að planka, hans plank
var þó frumlegasti plankið. Að-
spurður hvort hann ætli sér að
planka í sumar svarar hann: „Það
getur vel verið. Ég hugsa bara að
það sé þannig að allt sem getur
fengið fólk til að brosa, líða vel og
gera eitthvað skemmtilegt í hvers-
dagsleikanum sé af hinu góða. Ef
það að planka gerir það að verk-
um að fólk hefur gaman af, þá er
það hið besta mál. Ég held að
okkur Íslendingum veiti ekki af
því að slá á létta strengi,“ sagði
Björn Ingi.
Plankið góð viðbót í hversdagsleikann
Íslendingar hafa fengið nýtt æði, að
planka Björn Ingi Hrafnsson plank-
aði á biljarðborði
Vinnuplank Björn Ingi sló heldur betur í gegn þegar hann plankaði á biljarðborði í vinnunni.
Hópplank Hópur af fólki kemur sér fyrir á þessum glæsilegu tröppum og plankar í blíðviðrinu.
Feðgaplank Plankið er fyrir alla á öllum aldri, svo er víst.Ömmuplank Amma er í góðu formi og kann líka að planka. Sveitaplank Plankið kemur manni til að brosa.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Fyrir þá sem ekki vita er Liveproj-
ect.me íslensk heimasíða, þar sem
hver og einn getur hlaðið inn
myndum eða myndböndum með
nettengdum síma sínum inn á síð-
una og þannig deilt augnablikinu
með öðrum.
Live Project hefur verið að færa
sig upp á skaftið frá því að hug-
myndin var prufukeyrð í fyrra á
Iceland Airwaves og hefur nú gert
samning við Hróarskeldu. Þetta
þýðir að gestir Hróarskeldu geta
hlaðið inn á síðuna upplifun sinni af
hátíðinni. Þetta er stórt skref og
mikið gleðiefni fyrir aðstandendur
síðunnar, sem og alla sem vilja
hlaða á síðuna myndum og mynd-
böndum. Ekki er þetta heldur
verra fyrir þá sem ekki komast á
hátíðina og geta þá upplifað fjörið í
gegnum netið.
„Við erum alveg í skýjunum yfir
þessu. Þetta kom í hús fyrir um
mánuði, að við fengum þann heiður
að vera opinber útsendingarsíða
hátíðarinnar,“ segir Benedikt
Freyr Jónsson, einn aðstandenda
síðunnar. „Núna erum við að und-
irbúa fyrir hátíðina og erum að
taka upp íslenskar hljómsveitir
sem fara ekki á Hróarskeldu og
ætlum að kynna Live Project með
því. Við erum að taka upp til dæmis
Berndsen, Endless Dark og fleiri.
Það verður því skemmtilegur und-
irbúningur í gangi fram að sunnu-
degi, þá förum við í loftið.“
Strákarnir ætla að fylgjast vel
með íslenskum hljómsveitum á
Hróarskeldu en þeir verða á bak
við tjöldin og reyna að stela ein-
hverjum tónlistarmönnum í spjall.
„Já, við verðum þarna bakdyra-
megin á hátíðinni og reynum að
fiska einhver skemmtileg viðtöl.
Síðan getur vel verið að einhverjar
hljómsveitir taki sig sjálfar upp og
komi sér á framfæri í gegnum síð-
una.“
Benedikt segir að hver og einn
beri ábyrgð á sínu efni en ef sett er
inn óviðeigandi efni verður það tek-
ið út. „Þetta er bara svona eins og á
YouTube. Þar geturðu sett hvað
sem er inn, en ef það er eitthvað
sem er skaðlegt fyrir sjón annarra
verður það bara tekið út. Það sama
gildir hjá okkur. Enginn þarf því að
hafa áhyggjur af einhverjum
typpamyndum,“ segir Benedikt og
hlær en man síðan eftir Naked Pa-
rade, eða nöktu skrúðgöngunni,
sem fer fram á hverju ári á Hróars-
keldu. „Það gæti mögulega farið
fyrir brjóstið á einhverjum.“
Forritið sem notað er fyrir síð-
una er hægt að nálgast á liveproj-
ect.me og er það fyrir bæði iPhone-
og Android-síma.
Gáski Hróarskeldu beint í æð í ár
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Sniðugir Frá vinstri: Benedikt Freyr Jónsson, legókarlinn (sem á að vera Arnar Yngvason) og Hörður Kristbjörns-
son eru aðstandendur síðunnar ásamt Daníel Frey Atlasyni sem er staddur erlendis.
Live Project
vex hratt og stefn-
ir hátt verður
opinber útsend-
ingarsíða Hróars-
kelduhátíðar