Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011 SAMSUNG MINI 27.900 kr. SAMSUNG GIO 39.900 kr. SAMSUNG ACE 54.900 kr. siminn.is 2.620 kr. á mánuði dreift á 12 mánuði * 3.620 kr. á mánuði dreift á 12 mánuði * 4.870 kr. á mánuði dreift á 12 mánuði * 1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán. fylgir. 1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán. fylgir. 1.000 kr. inneign á mán. í 12 mán. fylgir. Símalán-afborgun: Símalán-afborgun: Símalán-afborgun:INNEIGN INNEIGN INNEIGN *Ef greitt er með kreditkorti er hægt að dreifa eftirstöðvunum vaxtalaust á allt að 12 mánuði. Greiðslugjald er 295 kr./mán. E N N E M M / S ÍA / N M 4 6 6 7 2 Embætti ríkislögreglustjóra hefur verið úthlutað 33 milljónum kr. sam- kvæmt samgönguáætlun og umferð- aröryggisáætlun Alþingis til að halda uppi umferðareftirliti á þjóð- vegum landsins í sumar. Þetta aukna umferðareftirlit stendur yfir frá júní fram í september. Á vef ríkislögreglustjóra segir að um sé að ræða aukið umferðareftirlit til viðbótar því hefðbundna sem emb- ættin halda úti hvert í sínu umdæmi. Í eftirlitinu sé lögð sérstök áhersla á hraðakstursbrot og notkun bílbelta. Fram kemur að við skiptingu fjár- magnsins á milli lögregluembætta hafi verið stuðst við svokallaða svart- blettagreiningu Vegagerðarinnar. Þar komi fram hvaða vegir séu taldir hættulegri en aðrir og því geti verið meiri slysahætta á þeim vegum þeg- ar ekið sé yfir hámarkshraða. Lögð sé áhersla á að tryggja sem best löggæslu á þjóðvegum landsins, ekki síst þar sem um miklar vega- lengdir og varasamt landsvæði sé að ræða. Aukið eftirlit á þjóðvegum Morgunblaðið/Júlíus Það var glatt á hjalla í Árbæjarsafni í gær er Félag eldri borgara í Reykjavík og Heimilisiðnaðarfélagið efndu til Jónsmessugleði. Kórsöngur, lúðrablástur, dans, harmonikkuleikur og fjöldasöngur lífguðu upp á kvöldið og þjóðlegir búningar settu mikinn svip á sam- komuna, auk þess sem þjóðbúningur herra var sýndur. Morgunblaðið/Eggert Þjóðlegt á Jónsmessu í Árbæjarsafni Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segist mjög vantrúaður á að sú lækkun sem átti sér stað í gær á olíu- verði sé komin til að vera. Algengt verð á bensíni var í gærkvöldi um 232 krónur. „Við erum búin að sjá undanfarnar vikur að bæði verð á hlutabréfum og hrávörum hefur aðeins verið að gefa eftir,“ segir Hermann og bendir á að þetta sé oft og tíðum árstíðabundið. Markaðurinn eigi það til að gefa eftir á sumarmánuðum. Sú óvissa sem ríkjandi er um efnahagsástand Evr- ópu og Bandaríkjanna er einnig til þess fallin að stuðla að breytingum í verði. „Ég er þeirrar skoðunar að ef horft er til sumars, þá sé ekki von á meiri lækkun á olíu.“ Hermann segir stöðuna í raun ein- falda og vísar til þess að áframhald- andi vöxtur sé í notkun á olíu en lítill sem enginn vöxtur sé í framleiðslu. „Þegar þessir tveir kraftar takast á, þá verður afleiðingin alltaf hærra verð, þótt það komi tímabundin hræðsla í markaðinn.“ Að sögn Hermanns þarf lítið til að olíuverð hækki á nýjan leik, slíkt gæti allt eins gerst strax eftir helgi. „Um er að ræða gríðarlega mikið af fjármagni í heiminum sem er at- vinnulaust. Þ.e.a.s. menn fá enga innlánsvexti í bönkum og leita því allra leiða til að ávaxta féð. Lítil ástæða er til að ætla að hlutabréfa- markaðir rísi mikið meira en þeir hafa gert,“ segir Hermann og bætir við að tækifærin séu því á sviði gjald- eyris- og hrávörumarkaða. Eingöngu tíma- bundin lækkun  Telur að um sé að ræða stutt skot sem snöggt getur tekið breytingum Mikil eftirspurn eftir olíu sem og aukinn hagvöxtur í Asíu, eru t.a.m. orsakavaldur að hækk- andi olíuverði í heiminum. „Á meðan gamli heimurinn er að gefa eftir þá er Asía að taka við,“ segir Hermann Guðmunds- son. Batinn í hagkerfi Banda- ríkjanna sé fremur lítill og hæg- ur í bland við erfitt ástand í Evrópu, slíkt valdi mönnum áhyggjum sem leiði af sér aukna óvissu á mörkuðum, seg- ir Hermann. Hægur bati AUKIN EFTIRSPURN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.