Morgunblaðið - 24.06.2011, Page 10
Stelpurnar í hönnunarteyminu Fær-
ID hafa verið valdar til að taka þátt
í sýningu í Bretlandi sem kallast
One Year On og verður haldin 6.-9.
júlí nk. Þar munu þær sýna vörur
sínar ásamt fleiri hönnuðum sem
hafa starfrækt sjálfstætt fyrirtæki
samfleytt í uppundir eitt ár. Sýn-
ingin er haldin ár hvert í London
og er partur af sýningunni New De-
signers. Hún er opin öllum en er
þó helst ætluð kaupendum, dreifi-
aðilum og framleiðendum.
FærID skipa vöruhönnuðirnir
Þórunn Hannesdóttir og Karin Er-
iksson auk Herborgar Hörpu Ingv-
arsdóttur sem er arkitekt. Þórunn
og Karin hafa unnið saman að
ýmsum verkefnum síðan þær voru
saman í námi í Central Saint Mart-
ins í London en formlegt samstarf
teymisins byrjaði þegar Herborg og
Þórunn byrjuðu starfsemi sína í
Hugmyndahúsi háskólanna í fyrra.
Nú eru þær með vinnustofu á
Klapparstíg í Reykjavík. Karin, sú
þriðja í hópnum, býr í Bretlandi og
hafa þær allar unnið hörðum hönd-
Hönnun
FærID valið á sýningu í London
Færið Glasamotturnar eru skemmtilegar og skrautlegar.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég byrjaði að hanna árið2009, stofnaði svo fyrir-tæki í kringum það fyrirári og opnaði verslunina
Origami hér á Akranesi. Það var
mjög gaman að vera með mína eig-
in búð og gekk rosalega vel, en ég
ákvað að breyta búðinni í vinnu-
stofu og vera frekar eingöngu með
vefverslun, til að hafa tíma til að
anna eftirspurn. En vörurnar mín-
ar fást reyndar líka í Gallerí Urm-
ull hér á Akranesi,“ segir Guð-
munda Sjöfn Magnúsdóttir en hún
hannar föt undir nafninu Topi Di
Pelo, sem er ítalska og merkir
loðnar mýs.
„Þetta nafn kom nú þannig til
að þegar ég fór af stað með mína
hönnun þá vann þúsundþjalasmið-
urinn Tinna Rós Þorsteinsdóttir
með mér og þegar við vorum að
leita að nafni á fyrirtækið þá var
mús fyrir framan okkur, svona
leikfang fyrir kisur, og þessi texti
stóð sem sagt á þessari mús. Okk-
ur fannst þetta bara hljóma svo
flott,“ segir Guðmunda Sjöfn og
bætir við að nú noti hún meira
skammstöfunina TDP.
Skemmtilegt að endurhanna
Guðmunda Sjöfn gerir mikið af
bútabolum í öllum regnbogans lit-
um. „Við höfum gert mörg hundruð
slíka boli og enginn þeirra er eins.
Við notum gömul föt og gamalt
efni, klippum niður og skeytum
saman upp á nýtt. Ég fer oft á
flóamarkaði og finn kannski lítið
notaða flík með flottri mynd sem
Loðnar mýs í öllum
regnbogans litum
Henni finnst mjög skemmtilegt að endurhanna og raða saman upp á nýtt. Hún
vill helst að hver einasta flík sem framleidd er undir hennar vörumerki snerti
hendur hennar. Guðmundu Sjöfn finnst gaman að gera einstakar flíkur.
Sumarlegur Heldur betur væri nú gaman að skarta þessum kjól í sumar.
Á síðunni er að finna stærðfræði-
dæmi fyrir krakka á leikskólaaldri og
allt upp í 8. bekk grunnskólans. Fæst
dæmin er að finna í flokknum fyrir
yngstu börnin en þegar komið er að
dæmum fyrir grunnskólabörn hlaupa
þau á hundruðum fyrir hvern bekk og
fara vel yfir það efni sem börn eiga
að læra á hverju skólaári.
Þegar barn hefur staðið sig mjög
vel og náð settum markmiðum fær
það að spila skemmtilegan leik.
Yfirleitt er um að ræða orðadæmi á
ensku og því gætu foreldrar yngstu
barnanna þurft að sitja hjá og þýða
en þess ætti ekki að þurfa fyrir eldri
börnin þar sem málið sem er notað er
ekki flókið.
Síðan er sniðug fyrir þau börn sem
finnst stærðfræði skemmtileg og
vilja halda þekkingunni við og topp-
stykkinu í þjálfun yfir sumarið með
skemmtilegum dæmum.
Vefsíðan www.ixl.com/math
Morgunblaðið/ÞÖK
Reikningur Síðan er sniðug fyrir þau börn sem finnst stærðfræði skemmtileg.
Heilanum haldið í þjálfun í fríinu
Ástarlíf bandarísku leikkonunnar
Jennifer Aniston hefur verið helsta
áhugamál slúðurmiðla síðan hún
skildi við Brad Pitt fyrir nokkrum ár-
um. Ástarmál Aniston hafa enda ver-
ið nokkuð fjölskrúðug. Hún hefur átt í
samböndum við hina ýmsu leikara,
tónlistarmenn og fyrirsætur og hefur
það allt gengið hálf-brösullega.
Loksins virðist Aniston hafa fundið
ástina til langframa í faðmi Justin
Theroux. Hann flutti nýverið inn til
hennar og virðist framtíð þeirra sam-
an vera björt. Hvernig væri nú að
samgleðjast Aniston, ást hennar og
hamingju?
Endilega …
… samgleðjist
Aniston
Reuters
Ástfangin Aniston hitti loks Amor.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ég verð seint talinn til afreksmanna í íþrótt-um. Í eðli mínu er ég nefnilega einn afþeim sem myndu teljast til svokallaðraandsportista eða náunga sem hafa tileinkað
sér kjörorðin: „Sterk sál í stirðum líkama“. Jafnframt
hef ég haft það sem reglu að horfa frekar á fréttir
heldur en eyða „dýrmætum“ tíma mínum í áhorf á
íþróttaviðburði.
Þó gerist það með reglulegu milli-
bili að ég fæ skyndilegan áhuga á
íslenskum íþróttum. Í kjölfarið
fyrstu tveggja tapleikja U-21 árs
landsliðs okkar Íslendinga á Evr-
ópumeistaramótinu í Danmörku fór
ég að hugleiða hvað það væri sem fær
ákafan andsportista eins og mig til að
fylgjast með íþróttaviðburðum af
þessu tagi. Því það hlýtur jú í
þessu tilviki að
vera undan-
tekningin sem
afsannar regl-
una –ekki öf-
ugt.
Þessi skyndilegi
áhugi minn á tuðrusparki
virðist hafa blossað upp við
allt það umtal sem átti
sér stað í þjóðfélaginu
fyrir mótið. Umtalið
snerist einkum um
framtíðarmöguleika
A-landsliðs okkar Ís-
lendinga á erlendri
grundu. Fyrir mótið
var það varla svo að
maður gæti farið út úr
húsi án þess að sjá aug-
lýsingar frá fyrirtækjum
þaktar myndum af íslenska
U-21 árs landsliðinu.
Sama hvort um er að ræða fótbolta, handbolta,
Eurovision eða bankaviðskipti þá virðast Íslendingar
ávallt vera skrefinu á undan og búnir að hampa sigr-
inum áður en hann er í höfn. Ég er hinsvegar Íslend-
ingur, þó nafn mitt kunni að gefa misvísandi skilaboð,
og því engin undantekning. Nú er það þannig að mað-
ur má ekki heyra minnst á íslenska afreksmenn í út-
löndum án þess að fá fiðring í stirðan líkamann. Hver
kannast ekki við fleyg ummæli á borð við: „Ísland –
stórasta land í heimi“, „You ain‘t seen nothing
yet“ og „We are the vikings“. Ef litið er yfir far-
inn veg þá kristallast þjóðarstolt Íslendinga í
samkeppni við aðrar þjóðir. Það er einmitt
þjóðarstoltið sem vekur áhuga andsport-
istans. Varlega ályktað býst ég við að
þetta eigi við um nokkuð mörg prósent
þjóðarinnar sem engan áhuga hefur
á íþróttum.
Ég var mjög stoltur af U-21 árs
landsliði okkar Íslendinga, sér-
staklega eftir sigurinn á Dönum
síðastliðinn laugardag. Víking-
arnir eiga því skilið gott umtal
frá andsportistanum. Þeir sýndu
það og sönnuðu að viljinn er það
hreyfiafl sem maðurinn hefur og getur
beitt. Jafnframt sýndu þeir að Íslendingar
geta, með viljastyrk og hugmyndaauðgi,
haldið stöðu sinni sem „stórasta land í
heimi“. Að minnsta kosti í mínum heimi.
»Sama hvort um er að ræða fót-bolta, handbolta, Eurovision eða
bankaviðskipti þá virðast Íslendingar
ávallt vera skrefinu á undan og búnir að
hampa sigrinum áður en hann er í höfn.
HeimurJanusar
Janus Arn Guðmundsson
janus@mbl.is