Morgunblaðið - 24.06.2011, Side 11
RVK-
Kökumót
Pipar-
köku-
mótin
góðu hafa
slegið
rækilega
í gegn.
um við að undirbúa markaðs-
setningu varanna þar í landi.
Glasamottur og piparkökumót
FærID er best þekkt fyrir sæl-
gætið sem hópurinn hannaði og
framleiddi fyrir Krabbameinsfélag
Íslands, Íslands-glasamotturnar og
RVK-piparkökumótin. Stefna FærID
er að nýta sér íslenska og sænska
arfleifð sína í hönnunina, en unnið
er að því að koma með fram-
sæknar og skapandi hugmyndir
sem svara mismunandi vanda-
málum í hvert skipti. Hópurinn
sækir m.a. innblástur í
norræna sögu og hefðir,
og með vörunum er oftar
en ekki leitast eftir að
fanga gömul gildi,
sem oft og tíðum
eru gleymd, og að-
laga að nútímalífs-
stíl.
Þær vörur sem
stöllurnar ætla að
kynna á sýningunni
í London eru Mast-
er-skókanínur og
Master-skókettir
auk Show it
hirslulínunnar.
Sælgæti
Bleikt hlaup.
Dugleg Guðmunda Sjöfn á vinnustofunni sinni, kát við störfin.
ég klippi út og nota í nýja flík. Ég
fékk poka frá ömmu minni um dag-
inn fullan af fötum og ég breytti
þeim og gerði úr þeim nýjar flíkur.
Mér finnst mjög skemmtilegt að
endurhanna og raða saman upp á
nýtt. Mér finnst líka svo gaman að
gera ekkert eins, þó ég noti
kannski sama sniðið þá nota ég
nýja liti og ný efni. Þetta á þó ekki
við um brjóstagjafapeysurnar, ég
hef þurft að gera sumar þeirra oft-
ar en einu sinni. En margir kjól-
arnir og bolirnir eru aðeins til í
einu eintaki,“ segir Guðmunda
Sjöfn sem hefur líka hannað þó
nokkuð af barnafötum enda er hún
sjálf móðir ungrar stúlku.
Brjóstagjafapeysur vinsælar
Guðmunda Sjöfn segir að
brjóstagjafapeysurnar hennar séu
mjög vinsælar. „Ég hef verið að
gera þær í hálft ár og það byrjaði
allt á því að til mín kom ung kona
sem sagði að sig langaði í hettu-
peysu sem væri flott og töff en
hægt væri að nota fyrir konur sem
væru með börn á brjósti. Peysan
leggst vel undir brjóstin og það er
hægt að opna hana að framan til að
gefa barninu að drekka. Þetta vatt
upp á sig og nú er þetta orðin vin-
sælasta varan mín. Þessar peysur
eru líka flottar fyrir þær sem ekki
eru með barn á brjósti, þær eru því
fjölnota. Þær eru síðar og sumar
konur tala um þessar peysur sem
kjóla og margar hafa keypt þær til
að vera í við hátíðleg tækifæri, til
dæmis við skírn barnsins síns.“
Með stjórn á öllu sjálf
Guðmunda Sjöfn segist hafa
byrjað að fikta við að sauma þegar
hún var í Menntaskólanum á Ísa-
firði. „Ég flutti svo á mölina og fór
í Iðnskólann í Reykjavík og lærði
klæðskurð og kjólasaum og útskrif-
aðist þaðan hrunsárið 2008. Ég
tók sveinspróf í kjólasaumi í fyrra,
árið 2010, og hef verið á fullu síðan,
enda hef ég alltaf verið ákveðin í
að gera eitthvað með þetta nám
mitt. Ef maður ætlar að vinna við
þetta þá þarf maður að vilja það
mjög mikið og vera sterkur og
fylginn sér. Þegar ég var í starfs-
náminu komst ég að því að það var
ekki mikið í boði, því margt af því
sem er hannað hér heima er fram-
leitt í útlöndum. Ég vil gera allt
sjálf og það er rosaleg vinna. Ég er
nánast allan sólarhringinn í
vinnunni. En mér finnst þetta svo
gaman að ég er tilbúin til að leggja
allt í þetta. Vissulega hef ég verið
að skoða það að láta fjölda-
framleiða fyrir mig, en það yrði þá
einungis fyrir einhverjar ákveðnar
vörur, því ég vil halda þeim mögu-
leika að hafa hverja flík einstaka.
Það verður hver einasta flík sem
framleidd er undir Topi Di Pelo að
snerta mínar hendur,“ segir Guð-
munda Sjöfn sem hefur líka óbil-
andi áhuga á ljósmyndun. „Ég
keypti mér nýlega myndavél og
ætla að fikra mig áfram í því svo
ég geti sjálf tekið myndirnar af
vörunum mínum fyrir auglýsingar.
Mér finnst gott að hafa stjórn á
öllu sjálf og fá fólk sem ég þekki
og stendur mér nær til liðs við mig.
Systir mín hefur til dæmis verið
dugleg að sitja fyrir hjá mér.“
Fallegur Kjólar eru ær og kýr Guðmundu Sjafnar enda er hún með
sveinspróf í kjólasaum. Hér er eitt af mörgum sýnishornum.
Allskonar Guðmunda hannar bæði
barnaflíkur og fullorðins.
Bútabolur Ein af mörgum út-
færslum, enginn bútabolur er eins.
Vefverslunin: www.tdp.is
Facebook: Topi Di Pelo
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
Virðing
Réttlæti
Hefurðu fengið orlofsuppbótina greidda?
Gleðilegt sumar!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Þeir félagsmenn VR sem eru í starfi í
fyrstu viku maí, eða hafa starfað samfellt
hjá sama vinnuveitanda í 12 vikur á
orlofsárinu, eiga rétt á orlofsuppbót að
upphæð 30.300 kr. miðað við fullt starf.
Annars er hlutfallslega miðað við starfs-
hlutfall og starfstíma síðastliðið orlofsár.
Þeir sem eru í hlutastarfi eiga að fá
greidda orlofsuppbót í samræmi við
starfshlutfall sitt.
Orlofsuppbótina átti að greiða síðasta
lagi þann 1. júní.
Nánar á www.vr.is