Morgunblaðið - 24.06.2011, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Slysavarnafélagið Landsbjörg og
Olís standa í dag fyrir forvarnadegi
til að vekja athygli á slysum á
ferðalögum og hvetja fólk til að fara
varlega í sumar. Björgunarsveitir
verður á bensínstöðvum Olís víðs
vegar um landið milli klukkan 16 og
20 í dag til dreifa fræðsluefni til
ökumanna. Ætlunin er jafnframt að
minna á vefsíðuna safetravel.is þar
sem hægt er að skrifa inn ferða-
áætlanir og kynna sér hvernig best
er að undirbúa ferðalög á Íslandi.
„Hálendisvaktin hefst hjá okkur á
morgun og í tilefni af því ákváðum
við að blása í forvarnalúðra í sam-
starfi við Olís.Við verðum úti um
allt land og ætlum að spjalla við
ferðalanga um mikilvægi þess að
undirbúa sig vel og gæta öryggis á
ferðalögum,“ segir Jónas Guð-
mundsson, verkefnastjóri Safetra-
vel. Slysavarnafélagið Landsbjörg
sér um alla starfsemi vefsíðunnar
og Jónas segir að hún sé mikilvægt
tæki fyrir björgunarsveitirnar.
„Það er borði þarna á síðunni þar
sem birtar verða allar tilkynningar
um sérstakar aðstæður á landinu;
það getur verið öskuský, snjóflóða-
hætta, hvassviðri undir Hafnarfjalli
eða hvaðeina. Önnur nýmæli á síð-
unni, sem geta hreinlega skipt
sköpum, eru sá möguleiki að fólk
getur skrifað inn ferðaáætlanir sín-
ar. Þá er jafnframt að finna marga
útbúnaðarlista á síðunni.“
56 útköll flugdeildar
Í Morgunblaðinu í gær sagði frá
annríki björgunarsveitanna sem er
nú stöðugt allt árið um kring. Það
hefur jafnframt verið nóg að gera
hjá Landhelgisgæslunni og útköll
flugdeildar hennar voru hinn 1. júní
síðastliðinn orðin 56 það sem af er
ári. 33 einstaklingar hafa verið
fluttir og/eða verið komið til bjarg-
ar.
Þegar litið er yfir aðgerðir síð-
asta árs kemur helst á óvart hversu
oft þarf að grípa til umfangsmikilla
og kostnaðarsamra leita og björg-
unaraðgerða á sjó.
Þessar aðgerðir hafa þá snúið að
skipum og bátum sem af einhverj-
um ástæðum hætta að senda frá sér
ferilvöktunargögn og ekki næst
fjarskiptasamband við. Tilfellum
fjölgar í beinu hlutfalli við aukna
sjósókn frá vori og fram á haust.
Blásið í forvarnalúðrana
Landsbjörg vill auka meðvitund
ferðamanna um öryggi og undirbúning
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla Forvarnadagur Landsbjargar og Olís er í dag. Björgunarsveitamenn
verða á bensínstöðvum í dag til að dreifa fræðsluefni og spjalla um öryggi.
Þórir Kristinn Þórisson stefnir á
að koma á Siglufjörð í dag en
hann lagði af stað hjólandi frá Sel-
tjarnarnesi að morgni 21. júní.
Þórir einsetti sér að hjóla 400 km
á 4 dögum til styrktar Iðju, dag-
vistun fyrir fatlaða á Siglufirði.
„Frá Hafnarfjalli til Gauksmýrar
fékk ég stanslaust norðanátt í
fangið,“ sagði Þórir um ferðina en
hann var þó heppnari með veður í
gær. Á vefnum fjallabyggd.is segir
að móttaka verði á torgi Siglu-
fjarðar kl. 14.30 í dag og eru bæj-
arbúar hvattir til að hjóla með
Þóri síðasta spölinn. Upplýsingar
um hvernig styrkja megi átakið
eru á Facebook-síðu þess, Hjólað
fyrir Iðju dagvist.
Þórir Hjólað fyrir Iðju dagvist.
400 km að
baki á hjóli
Hjólar lokasprettinn
á Siglufjörð í dag
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Tilboð á netinu að norður-amerískri
fyrirmynd er það nýjasta hérlendis í
þjónustu við neytendur en und-
anfarna fjóra mánuði hafa fjögur
fyrirtæki hafið starfsemi af þessu
tagi. Tilboð með miklum afslætti á
veitingastöðum njóta mestrar hylli
en ýmislegt dekur fyrir konur nýtur
einnig mikilla vinsælda.
Sammerkt með fyrirtækjunum er
að þau bjóða ákveðnar vörur eða
þjónustu með að minnsta kosti 50%
afslætti og stundum er allt að 70%
afsláttur í boði. Tilboðin eru birt á
heimasíðum fyrirtækjanna og fólk
getur líka fengið þau send á netfang
sitt. Til þess að tilboðin virki þarf
ákveðinn fjöldi að skrá sig á kaup-
endalista og stundum miðast tilboðið
einnig við ákveðinn hámarksfjölda.
Kaupendur geta síðan yfirleitt inn-
leyst vöruna á næstu sex til 12 mán-
uðum, en í sumum tilfellum þarf að
nýta tilboðið innan tveggja til
þriggja mánaða.
Neytendum fjölgar
Árni Þór Árnason og félagar riðu
á vaðið og byrjuðu með netfyr-
irtækið hopkaup.is 1. mars síðastlið-
inn. „Þetta gengur glimrandi vel,“
segir hann. Til að byrja með hafi til-
boðin staðið í 48 tíma en nú sé boðið
upp á nýtt tilboð á hverjum degi.
Árni Þór segir að breytingin hafi
aukið umferðina á vefnum stórlega.
Tilboð á matsölustöðum séu vinsæl-
ust og til dæmis hafi um 3.200 manns
tekið slíku tilboði fyrir skömmu.
Hann bætir við að um 15.000 manns
séu á póstlista fyrirtækisins og al-
gengt sé að meira en 1.000 manns
taki tilboði dagsins.
Allra hagur
Viðar Garðarsson hefur liðlega
þriggja mánaða reynslu af þessum
rekstri en fyrirtæki hans, dilar.is,
byrjaði um miðjan mars. Hann segir
að þeir séu enn að fikra sig áfram á
þessum vettvangi, en ljóst sé að til-
boð verði að vera mjög gott og
ávinningur viðskiptavina umtals-
verður til þess að dæmið gangi upp.
Guðný Magnúsdóttir hjá aha.is
segir að reynt sé að vera með fjöl-
breytt tilboð á um tveggja daga
fresti og höfða þannig til sem flestra,
en fyrirtækið byrjaði 7. apríl.
Þrír háskólanemar stofnuðu kaup-
net.is í byrjun júní og eru með nýtt
tilboð á þriggja daga fresti. Auð-
bergur Hálfdánarson segir að þeir
hræðist ekkert. Öll tilboð hafi gengið
upp til þessa og það lofi góðu.
Matur á veitingastöðum með miklum afslætti nýtur mestrar hylli hjá neytendum Elsta fyrirtæk-
ið með um 15.000 manns á póstlista Dæmi um að meira en 3.200 manns hafi tekið tilboði
Tilboð á netinu með allt að 70% afslætti
Tilboð og samvinna
» Falli fólk fyrir ákveðnu til-
boði og sé lágmarksfjölda ekki
náð sendir það gjarnan skila-
boð á Fésbókinni til vina og
kunningja og hvetur fólk til
þess að nýta sér tilboðið.
» Algengt er að fólk veigri sér
við að fara út að borða í krepp-
unni en 60 til 70% afsláttur
breytir oft stöðunni og tilboðin
hitta þannig í mark.
Frestur til að
skila umsögnum
um frumvörp um
fiskveiðistjórnar-
mál er til 20.
ágúst og er öllum
heimilt að senda
umsagnir um
frumvörpin.
Dagana 19. og
20. maí sl. voru lögð fram á Alþingi
þrjú frumvörp um fiskveiðistjórnar-
mál: tvö sem sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra lagði fram og eitt
sem þingmenn Hreyfingarinnar
lögðu fram. Fyrsta málið hefur verið
samþykkt sem lög frá Alþingi.
Seinni tveimur málunum var vísað
til sjávarútvegs- og landbúnaðar-
nefndar 6. júní sl.
Í tilkynningu frá Alþingi er vakin
athygli á því að öllum er heimilt að
senda umsagnir um framangreind
mál á meðan þau eru til meðferðar
hjá Alþingi. Munu allar innsendar
umsagnir liggja fyrir nefndinni þeg-
ar hún hefur umfjöllun sína.
Umsagnir
í sumar
Þau voru björt brosin á garðyrkju- og blómasýn-
ingunni Blóm í bæ, sem sett var í gær í Hvera-
gerði og stendur alla helgina. Bærinn er skreytt-
ur blómum hátt og lágt. Í Lystigarðinum er
sýning á trjáplöntum og sumarblómum, blóma-
sýning í íþróttahúsinu og fjöldi dagskráratriða
verður alla helgina. Tískusýning blómanna verð-
ur í Lystigarðinum laugardag og sunnudag og
fræðslugöngur um skógræktarsvæði Hvergerð-
inga. Örfyrirlestrar, ljóðablómastaurar, leitin að
hæsta tré Hveragerðis og garðasúpa á laugar-
dagskvöldinu er meðal þess sem gestir sýningar-
innar geta notið um helgina.
Allir dagskrárliðir eru ókeypis og strætó
gengur frá Mjódd í Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hveragerði blómstrar um helgina