Morgunblaðið - 24.06.2011, Síða 28

Morgunblaðið - 24.06.2011, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011 ✝ Þórður Snæ-björnsson garð- yrkjubóndi fæddist á Snæringsstöðum í Vatnsdal í Austur- Húnavatnssýslu 19. október 1931. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands 19. júní 2011. Foreldrar hans voru hjónin Snæ- björn Jónsson, f. 30.10. 1897, bóndi á Snærings- stöðum í Vatnsdal, d. 1985, og Herdís Sigríður Emilía Guð- mundsdóttir, f. 6.7. 1898, hús- freyja, d. 1967. Systkini Þórðar: Jón Hannes, f. 10.11. 1924, d. 1985, Fjóla, f. 1938, d. sama ár; Bjarni, f. 7.7. 1939, Guðmundur Þór, f. 10.6. 1942, d. 1942. Hinn 19. október 1952 kvæntist Þórð- ur eftirlifandi konu sinni Ingi- björgu Jóhönnu Jónasdóttur, f. á Hafragili í Laxárdal 13.2. 1929, húsmóður. Foreldrar hennar voru Jónas Sigurðsson og Guð- björg Jóhannsdóttir sem bjuggu á Hafragili í Laxárdal í Skaga- firði. Þórður og Imma eignuðust fimm börn: Guðbjörg, f. 16.4. 1952, dáin 30. júlí 2005 gift Birni S. Pálssyni. Börn þeirra eru Eva, skrifaðist sem garðyrkjufræð- ingur 1953. Þórður fékkst við ýmis störf í Hveragerði og vann m.a. í sex ár í Trésmiðju Hvera- gerðis. Þau hjón byggðu gróð- urhús 1958 og snéru sér alfarið að garðyrkju 1963. Þau hjónin ráku garðyrkjustöðina til ársins 1980. Þórður var í hlutastarf hjá Olíufélaginu frá 1983-1990 sam- hliða því að vera umboðsmaður Brunabótafélagsins, síðar Vá- tryggingafélags Íslands frá 1982-2002. Þórður var mjög virkur í fé- lagsstörfum alla tíð en hann sat í ýmsum nefndum á vegum Hveragerðishrepps, s.s. raf- veitunefnd og skólanefnd. Hann sat í hreppsnefnd Hveragerð- ishrepps tvö kjörtímabili árin 1974-82 og gegndi störfum odd- vita síðara kjörtímabilið. Hann var einn að stofnendum Brids- félags Hveragerðis, Taflfélags Hveragerðis, Framsóknarfélags Hveragerðis og Félags eldri borgara í Hveragerði og átti sæti í fyrstu stjórnum þeirra allra. Þá var hann einn af stofn- endum Golfklúbbs Hveragerðis. Þórður var enn fremur formað- ur Ungmennafélags Hvera- gerðis og Ölfuss um skeið. Þá var hann deildarstjóri Hvera- gerðisdeildar Kaupfélags Ár- nesinga um tíma. Þórður verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju í dag, 24. júní 2011, og hefst athöfnin kl. 13.30. gift Jóhanni Bjarka Júlíussyni, Íris, gift Helga Mar Árna- syni og Björn Ívar. Sturla Snæbjörn, f. 18.11. 1954. Hans börn eru, Snorri í sambúð með Guð- mundu Áslaugu Geirsdóttur og Sif, gift Hlyni Elfari Þrastarsyni. Her- dís, f. 5.5. 1958, gift Sigurði Egilssyni. Dætur hennar eru Henný Björg, gift Gunnari Inga Sveinssyni og Heiðrún Hafný í sambúð með Frey Vil- hjálmssyni. Jónas Þór, f. 6.4. 1960, Ingibjörg Erna, f. 1.8. 1962, gift Sveini Guðmundssyni. Synir hennar eru Þórður, í sam- búð með Auði Elísabetu Guðjóns- dóttur, Anton Svanur og Jóhann Ingi. Barnabarnabörn Þórðar og Immu eru orðin sextán talsins. Þórður ólst upp fram að ferm- ingaraldri á Snæringsstöðum í Vatnsdal. Hann var við nám á Reykjum í Hrútafirði og lauk síð- ar gagnfræðaprófi frá MA. Hann flutti í Hveragerði 1950 og gerð- ist starfsmaður Garðyrkjuskól- ans á Reykjum. Þórður settist síðar sjálfur á skólabekk og út- Nú skilja leiðir um sinn, kæri pabbi minn. Í gegnum hugann fljúga minningarbrot á leiftur- hraða, minningar sem ylja og kalla fram ljúfar æskuminningar, minningar um ótrúlegar útilegu- ferðir í Veiðivötn, Þórsmörk, Landmannalaugar, helst voru sóttir heim staðir sem fáfarnir voru á þessum árum. Með í för var, auk glæsilega hústjaldsins, gashitari fyrir firnafínt pottasett, tjaldhitari, tvöfalda vindsængin sem sló við rúmdýnum þess tíma að gæðum og gasljósið, allt það sem í dag þykir sjálfsagt en var nú aldeilis ekki fyrir fimmtíu ár- um síðan. Gamla „svarta María“ sem var þeim eiginleika gædd að fjöl- skyldan svaf í honum ef veður gerðust váleg, við krakkarnir á vindsængum á tveimur hæðum afturí og þið mamma á bekkjar- öðum frammí. Þegar sjónvarpið hóf útsendingar var keypt sjón- varpstæki á Heiðmörkina, eitt af fyrstu tækjunum í götunni. Það var oft mannmargt í litlu stofunni okkar þegar útsendingar voru. En myndin var í svört/hvítu og fljótlega var keypt filma til að setja á skjáinn til að fá lit á mynd- ina, tilveran er nefnilega ekki svört og hvít eins og þú sagðir. Þú varst mikill tækjakall, pabbi minn, það var örugglega góð fjár- festing þegar þú keyptir raf- magnsskóburstann, enda engin hörgull á skóbursturum eftir það á heimilinu, við systkinin vildum ólm komast í tækið og burstuðum skó eins og enginn væri morgun- dagurinn. Þú hefur eflaust á þeim árum verið einn best skóaði karl- inn í þorpinu. Pabbi minn var sterkur kar- akter, leiðtogi og fylginn sér, svo var mjúka hliðin sem prjónaði sokka og vettlinga á okkur krakk- ana og hann lagði metnað í að hanna krosssaumsmunstur fyrir mig í handavinnuverkefnum í barnaskólanum. Minningarbrotin eru mörg, blómasöluferðirnar í mörg ár um landið á firnaflottum pallbíl, yf- irbyggðum með tjaldi. Á ferðum sínum seldi pabbi afskorin blóm úr garðyrkustöðinni þeirra, auk þess sumarblóm og runna fyrir ræktendur í þorpinu. Þú komst með vorið í marga bæina og þorp- in á þeim árum. Nú er komið að leiðarlokum, guð geymi þig að eilífu, elsku pabbi minn, hafðu þökk fyrir allt. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín dóttir Herdís. Elsku pabbi. Nú er komið að leiðarlokum. Við þökkum þér fyrir sam- fylgdina og þær stundir sem við áttum saman. Síðasta ferðin sem þú fórst í út á land var þegar að þú og mamma fóruð með okkur Svenna vestur í Skötufjörðinn. Við keyrðum Strandirnar vestur og þú manst hvað hver bær hét á leiðinni. Þú hafðir farið þetta nokkrum sinnum áður þegar þú fórst í söluferðirnar með blómin þín fyrir um það bil 35 árum, því- líkt minni, sagði ég nú bara. Þegar þú og mamma fóru að veiða með okkur í ánni, þegar að við vorum komin í Skötufjörðinn, þá sagðir þú að þetta væri með þeim fallegri ám sem þú hafðir veitt í. Það var svolítill spölur að labba út að á. Þá settist þú bara aftan á fjórhjólið hjá mér og við brunuðum saman inn eftir ánni. Það fannst þér gaman. Tveimur árum seinna gafst þú mér Löd- una þína sem ég keyrði síðan vestur og hefur hún þjónað okkur síðustu ár til að fara inn í á að veiða. Um haustið 2005 fóruð þið mamma með okkur Svenna til Edinborgar og dvöldum við í íbúðinni okkar þar og var það góður tími með ykkur. Kveð ég þig með söknuði, pabbi minn, og hvíl í friði. Þín dóttir Ingibjörg Erna Þórðardóttir og fjölskylda. Þær eru margar minningarn- ar, elsku afi minn, sem koma í huga mér þessa dagana. Ekki þótti mér leiðinlegt þegar ég var lítil að fá að koma á bens- ínstöðina til afa og hjálpa til við að raða vörum í hillurnar og fá að hjálpa til við að afgreiða kúnna. Heimsóknirnar niðrá Vís-skrif- stofu þar sem við tókum upp spilastokkinn og fórum að raða kapal saman. Ferðirnar okkar saman niðrí Þorlákshöfn þegar þú skutlaðir mér til vinnu á Lödu sport-jepp- anum þínum. Jólin sem við mamma áttum með ykkur ömmu á Heiðmörk 61 og öll aðfangadagskvöld sem við komum til ykkar í kvöldkaffi og jóladagsmaturinn heima hjá mömmu. Síðustu vikur frá páskum, elsku afi minn, hafa verið mér dýrmætar, það er svo margt sem ég hef lært af þér og gegnum veikindi þín. Þegar ég kom í heimsóknirnar til þín þá vildirðu alltaf gefa mér þrjá kossa og knús og hélst í höndina á mér, við spjölluðum, hlustuðum á Óla Gauk, horfðum á fréttirnar og spjölluðum meira, þessar stundir, elsku afi minn, verða mér alltaf dýrmætar og mun ég geyma þær í hjarta mínu. Þegar ég hugsa dagana framundan mætir mér tómarúm, ekki fer ég lengur í heimsóknir uppá spítala til afa en ég veit í hjarta mínu að þú varst orðinn tilbúinn til að fara og fá hvíldina, núna finnurðu ekki leng- ur til og er ég viss um að hún Bugga dóttir þín heitin hefur tek- ið vel á móti þér. Ég kveð þig hér, elsku afi minn, á sama hátt og ég gerði allt- af á spítalanum þegar ég fór frá þér en með söknuð í hjarta og líka gleði að hafa fengið að kynnast þér og eiga þig að í lífinu. Elsku afi minn, farðu vel með þig, ég elska þig, þrír kossar og knús. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Hvíl í friði, elsku afi minn. Þín Hafný. Þórður Snæbjörnsson Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Kassavanir kettlingar Yndislegir kassavanir kettlingar fást gefins. Hver og einn þarf að komast á gott heimili hjá góðu fólki. Upplýsingar í síma 561-2529. Merktu gæludýrið Fyrir gæludýr. Merki með hlekk, nafni dýrsins og símanúmeri eiganda. Verð 2000 kr. Fannar, Smiðjuvegi 6, Kóp. Rauð gata. Sími 551-6488. fannar@fannar.is Cavalier HRFÍ Til sölu ruby tík með yfirbit, fer á afslætti og tveir ruby rakkar. Eru núna 5 vikna, afhendast um 20. júlí. Eru seldir með ættbók frá HRFÍ. Endilega ef þið hafið áhuga hafið samband við mig í síma 847 3744, Berglind. Coton de Tuléar 9 vikna rakki til sölu! Uppl. 892 7966. Gisting Hótel Sandafell Þingeyri Býður gistingu og orlofsíbúðir. Sími 456 1600. Veitingastaðir HUMAR, HUMAR, HUMAR ... LAMB Hlaðborð alla daga - Borðapantanir í síma 483 1000 og 511 3100. Humarveitingastaðurinn Hafið Bláa - opið alla daga 11.00 - 23.00 - sjá hafidblaa.is Sumarhús Sumarhúsalóðir í Kjósinni Til sölu eignarlóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í símum 892 1938 og 561 6521. ROTÞRÆR OG VATNSGEYMAR. Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir - réttar lausnir Vatnsgeymar frá 300 til 50.000 lítra. Lindarbrunnar. Borgarplast.is Mosfellsbæ S: 561 2211                             !     #          Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Óska eftir Norðmenn óska eftir ca. 50-200 hurðum sem verða notaðar meðan verið er að byggja íbúðir. Uppl. í s. 847 8704 eða manninn@hotmail.com KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bílar Suzuki Swift diesel Suzuki Swift - diesel - silfurgrár að lit - 1300 - GL - 5 dyra - beinskiptur - árgerð 2008 - ekinn 73.000 km. Til sölu frábær bíll og mjög vel með farinn. Verð kr. 1.650.000. Bein sala. Upplýsingar í síma 857 8445. Opel Vectra árg. '00, ek. 186 þ. km 2000 vél, sjálfsk., sk. 2012. Sími 893-5201. TIL SÖLU BMW X5 03/2008 Þetta eintak er á lausu og næstum því með öllu. Bein sala. Uppl. í síma 892-8665. VW Golf Station 2003 Árg. 2003, ek. 150 þús. Sjálfskiptur, sportsæti, álfelgur, topplúga og fl. Nýskoðaður. Fallegur og góður bíll og vel við haldið. Tilboð 890 þús. Uppl. í síma 770-0393. Bílaþjónusta Húsviðhald Þak- og utanhússklæðningar, gler og gluggaskipti og allt húsaviðhald. Ragnar V. Sigurðsson ehf. Sími 892 8647. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is – s. 551-6488. Áskriftarsími Morgunblaðsins er 569 1100 Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgun- blaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 lín- ur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hve- nær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn- ingargreinunum. Undirskrift | Minning- argreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í inn- sendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.