Morgunblaðið - 24.06.2011, Page 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
8 2
4 6 9
2 1
6
8 7 6
3 2 7
1 9 4 2 8
2 4 7 3
3 1
7 4 1
4 8 2 5
2 5 6 7 3
8 5 1 6
3 7
1 4
7
1 2
5 8
8 3
8 5 7 2
2
4 8
6 1
3 4 7 5
6 1 2
6 9
8
6 2 9 3 5 4 1 7 8
1 3 5 8 7 6 2 9 4
4 7 8 9 2 1 5 3 6
2 4 6 5 8 7 9 1 3
3 9 1 6 4 2 8 5 7
5 8 7 1 9 3 4 6 2
9 1 3 4 6 8 7 2 5
7 5 4 2 3 9 6 8 1
8 6 2 7 1 5 3 4 9
5 6 9 3 4 1 7 2 8
8 1 2 7 6 9 5 3 4
7 3 4 2 8 5 1 9 6
1 9 3 4 2 8 6 7 5
6 8 7 9 5 3 4 1 2
2 4 5 1 7 6 3 8 9
3 2 8 6 1 4 9 5 7
9 7 6 5 3 2 8 4 1
4 5 1 8 9 7 2 6 3
5 6 1 8 3 9 7 4 2
7 4 8 2 6 1 9 3 5
3 2 9 5 7 4 1 6 8
2 9 3 7 1 5 6 8 4
1 8 6 4 9 2 3 5 7
4 7 5 6 8 3 2 9 1
9 1 2 3 5 8 4 7 6
6 5 4 9 2 7 8 1 3
8 3 7 1 4 6 5 2 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 24. júní, 175. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Þegar einhver á um sárt að bindaeru Íslendingar fljótir til og
ávallt reiðubúnir að leggja góðu máli
lið. Nýlegt áheitahlaup fjórmenn-
inga til styrktar krabbameins-
sjúkum börnum er nærtækt dæmi.
x x x
Þrátt fyrir hrun og ýmsa óáranhefur lífið sinn vanagang. Í öll-
um samfélögum er afreksfólk á ein-
hverju sviði og þetta fólk virkar
bæði sem vítamínssprauta á aðra og
gleður samferðamennina með fram-
göngu sinni. Oft hefur farið fram
söfnun til þess að aðstoða afreksfólk
til að ná enn lengra og má í því sam-
bandi nefna þjóðarsöfnun til kaupa á
fiðlu fyrir efnilegan fiðluleikara fyrir
nokkrum árum.
x x x
Því verður ekki á móti mælt aðhelsta skemmtun margra er að
fara á völlinn og horfa á fótbolta eða
fylgjast með honum í beinni útsend-
ingu í sjónvarpi. Landsliðsmaðurinn
fyrrverandi, Sigursteinn Gíslason,
sem er 43 ára á morgun, fjöl-
skyldumaður með þrjú ung börn, lék
fótbolta með meistaraflokkum ÍA,
KR og enska liðinu Stoke í samtals
tæplega tvo áratugi og er sigursæl-
asti leikmaður í efstu deild karla á
Íslandi í 66 ár. Hann var níu sinnum
Íslandsmeistari og þrisvar bik-
armeistari. Steini Gísla var valinn
besti leikmaður efstu deildar 1994
og var þá haft á orði að valið hefði
verið sérstaklega óspennandi – svo
miklir þóttu yfirburðir kappans.
Vegna fótboltans hefur Steini
Gísla nánast aldrei farið í frí en nú
getur þessi þjálfari Leiknis í
Reykjavík ekki sinnt vinnu vegna
erfiðs krabbameins sem hann
greindist með um miðjan maí. Um
liðna helgi léku félagar hans í ÍA og
KR fjáröflunarleik fyrir hann á
Akranesi og mættu hátt í fjögur þús-
und manns til þess að styðja knatt-
spyrnumanninn síkáta. Víkverji
hvetur alla og ekki síst þá sem hafa
notið þess að horfa á Steina Gísla á
vellinum að styrkja hann í erfiðustu
baráttunni til þessa (reiknings-
númer: 0330-26-2569; kennitala:
250668-5549). víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 dýflissan, 8 logi, 9
þolna, 10 greinir, 11 reipi,
13 ránfuglsins, 15 fánýtis, 18
farmur, 21 söngflokkur, 22
vagga í gangi, 23 minnist á,
24 listfengi.
Lóðrétt | 2 óbeit, 3 bakteríu,
4 kranka, 5 líkamshlutann, 6
poka, 7 valdi, 12 vesæl, 14
fótaferð, 15 doka við, 16
hugaða, 17 samfokin fönn,
18 stærilæti, 19 hamingju,
20 harmur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ferja, 4 flíka, 7 íbúar, 8 lokan, 9 sæl, 11 aðal, 13 maur,
14 Jonni, 15 skrá, 17 svik, 20 err, 22 kænar, 23 iðkun, 24 reiða,
25 tíðni.
Lóðrétt: 1 fríða, 2 rjúfa, 3 aurs, 4 full, 5 ískra, 6 asnar, 10 ærn-
ar, 12 ljá, 13 mis, 15 sækir, 16 rengi, 18 vikið, 19 kunni, 20 erta,
21 rist.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Síðbúið jólakort. N-Allir.
Norður
♠KD9
♥KG753
♦ÁD6
♣D9
Vestur Austur
♠854 ♠G10762
♥986 ♥ÁD4
♦102 ♦975
♣Á10632 ♣KG
Suður
♠Á3
♥102
♦KG843
♣8754
Suður spilar 3G.
Norður opnar á 1♥, suður svarar á
grandi, norður lyftir áskorandi í 2G og
suður hækkar í 3G. Útspilið er lítið lauf
upp á drottningu blinds og kóng aust-
urs. Hvað gerist svo?
Ekki gott að segja, en yrði nokkur
hissa þótt ♣G austurs ætti næsta slag?
Í framhaldinu gæti sagnhafi dundað
sér við að byggja upp níunda slaginn á
hjarta. A-V gætu í framhaldi af því
rætt saman um hina misheppnuðu
vörn: hvort vestur hefði átt að yf-
irdrepa ♣G, eða hvort austur hefði ef
til vill getað farið aðra leið – leikið bið-
leik í slag tvö. Breski höfundurinn
Danny Roth kallar slíka vörn „jólakort
í febrúar“. Austur ætti að bíða með
laufið, segir Roth, og spila tígli (eða
spaða) í öðrum slag. Draga svo ♣G
fram þegar hann er búinn að innbyrða
slagina á ♥Á-D.
24. júní 1000
Kristnitakan. Kristin trú var
lögtekin á Alþingi á Þingvöll-
um við Öxará. Þar hafði skor-
ist í odda með kristnum mönn-
um og heiðnum en Þorgeir
Þorkelsson Ljósvetningagoði
úrskurðaði að „allir menn
skyldu kristnir vera“
24. júní 1875
Enskur vísindamaður, W. L.
Watts, lagði af stað norður yf-
ir Vatnajökul ásamt fjórum Ís-
lendingum. Fimmmenning-
arnir komu til byggða á
Hólsfjöllum 10. júlí og höfðu
„hreppt hina mestu hrakninga
af ófærð og illviðri,“ sagði í
Þjóðólfi. Þetta var fyrsta ferð
yfir Vatnajökul sem traustar
heimildir eru um.
24. júní 1934
Gunnar Thoroddsen var kos-
inn á þing, 23 ára, yngstur
þeirra sem náð höfðu kjöri til
Alþingis.
24. júní 1967
Gullfaxi, fyrsta íslenska þotan,
kom til landsins. Hún var af
gerðinni Boeing 727 og voru
sæti fyrir 119 farþega.
24. júní 1988
Kanadíski söngvarinn og ljóð-
skáldið Leonard Cohen hélt
tónleika í Laugardalshöll, sem
var þéttsetin.
24. júní 1992
Stærsti og elsti lax sem veiðst
hefur í á hér á landi veiddist á
stöng í Bakkaá í Bakkafirði.
Laxinn vó 43 pund og var tal-
inn tólf ára.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir geðhjúkrunarfræð-
ingur og doktorsnemi er nú stödd í Kyoto í Japan.
Þar heldur hún fyrirlestur á ráðstefnu um fjöl-
skylduhjúkrun sem fjallar um hversu mikilvægur
stuðningur fjölskyldu er á bráðageðdeildum. Eydís
ætlar einnig að ganga á hið heilaga Fuji-fjall með
eiginmanni sínum Sigurði Ármann Snævarr, hag-
fræðingi hjá forsætisráðuneytinu. „Þetta er svolítið
flókið því ég þarf að taka fín föt fyrir ráðstefnuna en
hjúkrunarfræðingar eru þekktir fyrir að vera miklar
pæjur á svona ráðstefnum. Síðan þarf ég að taka göngufötin líka.“
Gangan á tindinn tekur um 8-10 klukkstundir. Byrjað er í um 1.500
metrum en fjallið teygir sig upp í 3.776 metra. Ekki er á vísan að róa því á
þessum tíma er bæði vindasamt og hætt við rigningu.
Eydís ætlaði sér að ljúka doktorsprófi frá hjúkrunarfræðideild HÍ fyrir
fimmtugtsafmælið en af því varð ekki – og þó. Hún ákvað nefnilega að
halda ekki upp á afmælið fyrr en eftir að doktorsprófið væri í höfn, vænt-
anlega rétt eftir áramót. „Afmælisveislan verður um leið og ég ver dokt-
orsverkefnið mitt. Ég horfist þess vegna ekki í augu við að ég sé að verða
fimmtug núna, heldur bara þegar doktorsverkefninu lýkur. Þá er ég
tilbúin til að verða fimmtug.“ runarp@mbl.is
Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir fimmtug í dag
Gengur á heilagt fjall
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
24. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.11 3,0 6.27 1,2 12.45 2,9 18.57 1,4 2.57 24.05
Ísafjörður 2.08 1,7 8.30 0,8 14.47 1,6 21.00 0,9 1.36 25.36
Siglufjörður 4.32 1,0 10.39 0,5 17.09 1,0 23.24 0,5 1.19 25.19
Djúpivogur 3.19 0,8 9.36 1,7 15.57 0,9 22.02 1,6 2.11 23.49
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Leyfðu öðrum að njóta bjartsýni þinn-
ar og fástu ekki um það, þótt einhverjar úr-
töluraddir heyrist. Farðu þér hægt í mál-
efnum hjartans og leyfðu huganum að vera
með í spilinu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Eitthvað hvílir þungt á þér og hindrar
þig í að njóta lífsins. Ástvinur óttast að stand-
ast ekki kröfur þínar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert óvenju umburðarlynd/ur og
sveigjanleg/ur og því er þetta góður tími fyrir
þig til að sleppa fram af þér beislinu. Gömul
húsráð munu reynast þér best þessa dagana.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það þarf að leggja sig fram til að öðl-
ast mikilleika. Reyndu ekki að blekkja sam-
starfsfólk þitt, sannleikurinn er sagna bestur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er ekki nóg að hafa uppi fögur fyr-
irheit, ef ekkert verður úr efndunum. Ýmis-
legt er í lamasessi heima en þá er bara að
brosa meira.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú átt þýðingarmikið samtal við vin í
dag. Reyndu að skapa notalegt andrúmsloft í
kringum þig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hugsar mikið um tilgang lífsins þessa
dagana. Gættu þess að taka ekki of mörg
verkefni að þér í einu. Gefðu öðrum færi á að
vega og meta það sem þú segir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Framtíðaröryggi þitt er ekki mál-
ið, þar sem nútíð og framtíð eru órjúfanleg
heild fyrir þér. Hlýddu þinni innri rödd.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er alls ekki auðvelt að kveðja
fortíðina þegar manni finnst maður eiga ým-
islegt óuppgert. Brettu upp ermarnar, slór
dugar ekki lengur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ekkert er dýrmætara en heilsan.
Maður þarf ekki endilega að samþykkja lífs-
máta annarra, maður horfir bara í aðra átt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Samræður í hópi eru líflegar og
skemmtilegar. Ef hlutirnir eru ekki nógu erf-
iðir hefurðu engan drifkraft.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Einhverjar breytingar á heimavíg-
stöðvum kalla á sérstaka athygli þína. Njóttu
dagsins því þú átt allt gott skilið. Hraðinn í
þínu daglega lífi eykst dag frá degi.
Stjörnuspá
1. c4 b6 2. d4 e6 3. e4 Bb7 4. Bd3 Bb4+
5. Bd2 Bxd2+ 6. Rxd2 Re7 7. Rgf3 O-O
8. Dc2 d6 9. O-O Rg6 10. Hfe1 e5 11. d5
a5 12. g3 Ra6 13. Dc3 Re7 14. Rh4 c6
15. dxc6 Rxc6 16. Had1 Rc5 17. Bb1 g6
18. Rdf3 Dc7 19. Dd2 Hfd8 20. b3 Re6
21. Bd3 Rcd4 22. He3 Hf8 23. Rxd4
Rxd4 24. Hf1 Dc5 25. f4 exf4 26. gxf4
Hae8 27. Hf2 f5 28. De1 fxe4 29. Bxe4
Staðan kom upp í stórmeistaraflokki
Fyrstu laugardagsmótaraðarinnar í
júní sem lauk fyrir skömmu í Búdapest
í Ungverjalandi. Pawel Szablowski
(2425) frá Póllandi hafði svart gegn
Hjörvari Steini Grétarssyni (2422).
29… Hxe4! 30. Hxe4 Dc6! 31. Hd2
Dxe4 32. Dxe4 Bxe4 33. Hxd4 Hxf4 34.
Hxd6 hvítur hefði einnig tapað eftir 34.
Rg2 Hg4. 34…Hxh4 35. Hxb6 Bb1 36.
a3 a4 37. bxa4 Bd3 38. c5 Hc4 og hvít-
ur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is