Morgunblaðið - 24.06.2011, Side 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MUNIÐ AÐ GLÆPIR
BORGA SIG EKKI
EN ÞEIR GETA
VERIÐ BRAGÐGÓÐIR
ÉG ER SVO
ÞUNGLYNDUR...
HVAÐ GET ÉG
GERT Í ÞVÍ?
HÆTT AÐ VÆLA!
ÞETTA GERA 100 KR.
GEÐLÆKNIR
100 KR.
HRÓLFUR, MÁ ÉG
NOKKUÐ RÁÐA ÞÉR
HEILRÆÐI? AUÐVITAÐ
MÁTTU ÞAÐ
LÆKNIR
Á NÆSTA ÁRI, EKKI FELLA
NIÐUR JÓLABÓNUSINN
MÉR ÞYKIR ÞAÐ
LEITT EN ÞAÐ AÐ
SÆKJA HLUTI FYRIR
ÞIG ER FYRIR NEÐAN
MÍNA VIRÐINGU
VILTU
ÖRUGGLEGA RÁÐA
MIG SEM
PLÖTUSNÚÐ?
VISSU-
LEGA EN ÉG
HEF ALDREI
VERIÐ
PLÖTU-
SNÚÐUR
ÞETTA
ER BARA
LJÓSAHÁTÍÐAR-
BALL, ÞETTA
ÞARF EKKERT AÐ
VERA ROSALEGA
FÍNT
SVO LENGI SEM ÞÚ SPILAR
„HAVA NAGILA” OG „YMCA” ÞÁ
VERÐUR ÞETTA ALLT Í GÓÐU
ÞÁ ÞAÐ...
SANDMAN ER FASTUR
Í RYKSUGUPOKA...
ÉG GET EKKI BREYTT MÉR
TIL BAKA HÉRNA INNI
EN
ÉG GET
MJAKAÐ MÉR
ÚT SMÁM
SAMAN
MÉR
ÞYKIR ÞAÐ LEITT,
EN Á ÞESSUM
HRAÐA VERÐURÐU
EKKI KOMINN ÚT
FYRIR JÓL
EN NÚ SKULUM
VIÐ TALA SAMAN
ÞÚ ERT
TÓNLISTARMAÐUR,
ÞÚ HLÝTUR AÐ VITA
ÝMISLEGT UM
TÓNLIST
Gjörningur
Þann 17. júní sl.
hafði ég gengið um
bæinn vítt og breitt
og notið bæði veðurs
og fleiri skemmtana
og gjörninga, sem
framkvæmdir voru
vítt og breitt um
borgina. Eitt vakti
þó undrun mína og
reiði, því er á Aust-
urvöll var komið
blasti við miður ljót
sjón, stytta Jóns Sig-
urðssonar hafði verið
hjúpuð svörtum, ljót-
um kjól frá hvirfli til
ilja, efst uppi var þó að sjá konu-
höfuð sem stóð upp úr kjólnum.
Varla gerði nokkur sér grein fyrir
hvað um var að vera, nema
kannski þeir sem gjörninginn
framkvæmdu. Skömmu seinna var
kjóllinn dreginn niður og fjar-
lægður, en eftir stóð kona klæða-
laus (aðeins á nærbrókum einum
saman) á höfði styttunnar; var sú
hífð niður með krana stuttu síðar,
skjálfandi úr kulda eftir dágóða
stund í háloftunum. Undrar mig
að slíkir gjörningar séu fram-
kvæmdir án vitneskju lögreglu.
Eða var þetta bara allt löglegt?
Hvílík niðurlæging sem afmælis-
barninu var sýnd á þjóðhátíðar-
degi Íslands. Gaman væri að fá
upplýst, hvað vakti fyrir þeim
sem gjörninginn framkvæmdu?
Ekki er vafi á, að hann vakti
mikla athygli og undran fólks og
reiði almennt, varla
var nokkrum skemmt.
Svanur Jóhannsson.
Átt þú gamlar ljós-
myndir af húsum
á sunnanverðu
Skólavörðuholti
(Goðahverfinu)?
Meistaranemi við Há-
skóla Íslands er að
undirbúa sýningu um
verslunarsögu og
vantar tilfinnanlega
gamlar ljósmyndir af:
Kaffistofunni Mið-
garði (Þórsgötu 1),
Ávaxtabúðinni (Óðinsgötu 5), Ern-
inum (Spítalastíg 8), Rafha (Óðins-
götu 7), mjólkurbúðinni (Týsgötu
8), Goðaborg/fiskbúðinni (Freyju-
götu 1), versluninni á Baldursgötu
11 (Ásgeirsbúð, Magnús Mekkinós-
son), Eggertsbúð (Óðinsgötu 30),
Mjólkurbúðinni (Baldursgötu 11/
Óðinsgötu 32) og myndir af allri
starfsemi á Baldursgötu 9 (Hús-
mæðrafélag Reykjavíkur o.fl).
Myndirnar mega einnig vera af
annarri starfsemi á ofangreindum
heimilisföngum. Einnig get ég not-
að myndir af lífinu á torgunum
sem þessi hús standa við. Vinsam-
legast hafið samband í s. 663-7829
eða með því að senda tölvupóst á
netfangið hib1@hi.is.
Ást er…
… eitt lítið blikk.
Skrifstofa
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Bingó kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Tískusýning, sölu-
sýning 30. júní kl. 13. Föt frá heildversl-
unni LOGY. Ragnar Levý kemur með
harmonikkuna. Gott með kaffinu.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8-
16.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunn. kl. 20. Klassík leikur
fyrir dansi. Dagsferð um Árnessýslu
þriðjudaginn 28. júní, ekið til Þingvalla
og nýja veginn yfir Lyngdalsheiði til
Laugarvatns og Laugardals. Kaffiveit-
ingar í Seli, uppl. og skráning s. 588-
2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, botsía kl. 9.15, hádeg-
isverður kl. 11.40, félagsvist kl. 20.30.
Félagsmiðstöðin Aflagranda | Ung-
mennahópur Frístundamiðstöðvarinnar
Frostaskjóls stendur fyrir Bingófjöri fyr-
ir eldri borgara kl. 13. Ekkert þátttöku-
gjald. Veitingar í boði.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Jónshús opnar kl. 9.30, síðasta fé-
lagsvistin í sumar kl. 13.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Molasopi og spjall í Króknum
kl. 10.30. Jóga kl. 11. Spilað í Króknum
kl. 13.30. Púttvöllur.
Félagsstarf Gerðubergi | Opnað kl. 9,
prjónakaffi kl. 10, stafganga kl. 10.30,
frá hádegi er spilasalur opinn.
Háteigskirkja | Brids-aðstoð á föstu-
dögum kl. 13.
Hraunbær 105 | Púttvöllurinn opinn
alla daga. Handavinna kl. 9. Grill kl. 14
Þorvaldur Halldórs kemur og syngur.
Hraunsel | Leikfimi í Bjarkarhúsi kl.
11.30, brids kl. 12.30.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöð kl.
8-16. Sumargrill kl. 18, matur frá Grill-
vagninum, Guðrún Lóa Jónsdóttir syng-
ur, Ingvar, Rúna og Valdi leika fyrir
dansi.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Félagsvist á mánudögum. Lista-
smiðjan opin. Bónus og bókabíll á
þriðjudögum. Kvikmyndasýning á föstu-
dögum. Hæðargarður er lokaður frá og
með 4. júlí til 3. ágúst.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Bingó
kl.13.30. Munið Vestmannaeyjaferðina
30. júní, uppl. í síma 822 3028. Félags-
miðstöðin opin. Hárgreiðslu- og fótaað-
gerðastofur opnar.
Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30.
Kerlingin í Skólavörðuholtinuátti afmæli 19. júní, eins og
fram kemur á fésbókarsíðu henn-
ar. Birgitta Hrönn Halldórsdóttir
var fyrst að óska henni til ham-
ingju með daginn og kerlingin
svaraði:
Þína kveðju þakka pent,
þelið gladdi skrukku,
aðeins hefur ein þú nennt
að óska mér til lukku.
Og það lá vel á kellu:
Fáum hef ég stundir stytt,
steggi burtu hrakið
og aldrei fyrir einhvern titt
auðmjúk lagst á bakið.
Áhugamálin eru mörg og kerl-
ingin lætur sér aldrei leiðast:
Til afþreyju hef úr ýmsu að moða,
útfarir stunda og messur.
Í dag hef ég skemmt mér við að skoða
skítugar tyggjóklessur.
Þegar einn af vinum hennar hét
afmæliskossi stóð ekki á svari:
Ég held að þú vogir þér varla,
þá verð ég á svipinn ljót,
um móða og kyssandi karla
ég kæri mig ekki hót.
Spurð um aldur svaraði kella:
Slank er ég og slétt á kinn
sleip í kukli og galdri.
Ég er, kæri karlinn minn,
kona á besta aldri.
Höskuldur Búi Jónsson orti:
Dýrðar ósk í dag þú færð
er dansar sól um bláma.
Við kökuátið vex þín værð,
væna sneið skalt háma.
Kerlingin átti síðasta orðið:
Áðan ég í túlann tróð
tertunum á fullu,
sveitt nú ligg og melti móð
mædd af illri drullu.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af kerlingu og afmæli