Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011 Fyrr á árinu var sýning sem nefndist EI(land) – IS(not) sett upp víða um land, fyrst í Hofi á Akureyri og síðan í Listasafni Árnesinga í Hveragerði og í Gerðubergi í Breiðholti, en á henni voru sýnd verk sem pólskir ljósmyndarar unnu með íslenskum rithöfundum og blaðamönnum; pólsku listamennirnir ferðuðust vítt og breitt um Ísland og tóku myndir sem vörpuðu nýstárlegu ljósi á kunnuglega þætti í íslenskri menn- ingu, náttúru og þjóðlífi, svo sem trú á huldufólk, einangrun, vatnsföll og laugar, vegasjoppur og helgarskrall í félagsheimilum og íslensku rithöf- undarnir skrifuðu texta sem tengd- ust þessum efnisþáttum og settu þá í djúpstæðara samhengi. Pólverjarnir voru Adam Panczuk, Michal Luczak, Jan Brykczynski, Agnieszka Rayss og Rafal Milach og rithöfundarnir Sindri Freysson, Hermann Stefánsson, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Sigurbjörg Þrastar- dóttir og Huldar Breiðfjörð. Af- raksturinn var einnig gefinn út á bók. Eins og til stóð frá upphafi hefur EI(land) – IS(not) nú verið sett upp í Póllandi en heitir þar reyndar IS (not) – EI(land). Þegar er búið að setja sýninguna upp í tveimur pólsk- um borgum en stærsta sýningin var svo sett upp í Bochenska-galleríi í Koneser-menningarmiðstöðinni í Varsjá. Heiðursgestir á opnuninni voru rithöfundarnir Sindri Freysson og Hermann Stefánsson, sem lásu síðar upp úr verkum sínum í vinsælum menningarklúbbi í Varsjá, Nowy Wspanialy Swiat, sem dregur nafn sitt af framtíðarspá Aldous Huxley, Brave New World. Húsfyllir var á upplestrinum en að honum loknum léku rithöfundarnir og Malín Brand, blaðamaður, fjölbreytt úrval af ís- lenskri dægurtónlist frá seinustu fimm áratugum. Sindri og Hermann tóku einnig þátt í höfundarþingi í Varsjá þar sem þeir ræða aðild sína að verkefninu og efnistök við pólska starfsbræður sína. Sýningin IS(not) – EI(land) stend- ur í Varsjá næstu tvær vikurnar en opnar þá í Bratislava, höfuðborg Sló- vakíu. Einnig stendur til að sýna af- rakstur verkefnisins í Vín og Prag á næstu mánuðum, ásamt því að bókin verður kynnt á bókakaupstefnunni í Frankfurt í haust. arnim@mbl.is Samstarf Sindir og Hermann við opnun IS(not) – EI(land) í Póllandi í Varsjá í vikunni. Sýningin verður síðan sett upp í Bratislava, Vín og Prag á næstu mánuðum og bók með listaverkunum kynnt á bókakaupstefnunni í Frankfurt. IS(not) – EI(land) í Póllandi Þeir Birgir Snæbjörn Birgisson, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Helgi Þorgils Friðjónsson standa að sýn- ingu í Studioi Stafni, sem opnuð var sl. fimmtudag. Þeir hafa haldið all- margar sýningar saman, en einnig sýnt með öðrum. Þeir sýndu þannig til að mynda í Tintype Gallery í Lundúnum í febrúar á síðasta ári og síðan í Listasafni Íslands í mars það ár. Þá tóku þeir þátt í sýning- unni Dyr á þúfu sem lauk fyrir stuttu árs-ferðalagi um Norður- Dakóta, en sú átti uppruna sinn í samnefndri sýningu í Bremenhaven Kunsthalle. Sýning þeirra í Studio Stafni heitir Hringekjuþráhyggja og er einskonar framhald af sýningunni í Tintype Gallery, en þó með öðrum verkum og uppsetningu. Sýningin stendur til 7. júlí og er opin alla daga nema mánudaga kl. 14:00- 17:00. Samsýning A-4, verk eftir Helga Þorgils Friðjónsson. Hring- ekjuþrá- hyggja Nú stendur tónlistarhátíðin Al- þjóðlegt orgelsumar yfir í Hall- grímskirkju. Á hátíðinni koma fram innlendir og erlendir listamenn og fyrstu erlendi gesturinn, Pétur Sak- ari, leikur á tvennum tónleikum um helgina, fyrst í hádeginu á laugar- dag og síðan síðdegis á sunnudag. Pétur Sakari er fæddur 1992 og er yngsti konsertorganisti Finn- lands. Hann ber íslensk fornafn þar sem faðir hans Petri Sakari var lengi aðalstjórnandi Sinfóníu- hljómsveitar Íslands og hefur enn sterk tengsl við íslenskt tónlistarlíf. Pétur byrjaði snemma á tónlistar- námi, því aðeins þriggja ára gamall byrjaði hann í sellónámi. Í ferðalagi með fjölskyldunni til Ródos á Grikk- landi er hann var litlu eldri heyrði hann orgelleik í fyrsta sinn og hreifst af en tókst ekki að ná sama bassahljómi á píanóið heima. Hann fékk því lítið orgel að gjöf og átta ára gamall hóf hann formlegt orgel- nám hjá Pekka Suikkanen, organ- ista við Gömlu kirkjuna í Helsinki, og síðar hjá Tuomas Karjalainen, en samhliða því hélt hann áfram í selló- náminu. Pétur hélt fyrstu einleikstónleika sína á orgel þrettán ára gamall í Loppi í Finnlandi og í framhaldi af því var honum boðið að taka þátt í orgelhátíð í Turku. Hann var verð- launaður sem ungur listamaður árs- ins á alþjóðlegu orgelhátíðinni í Lahti fyrir tveimur árum. Pétur Sakari hefur áður leikið hér á landi, tók þátt í Alþjóðlegu orgel- sumri á síðasta ári, og hann hefur líka komið fram á tónleikum með fíl- harmóníuhljómsveit í Turku Pori- sinfóníettunni. Hann gaf út fyrsta geisladisk sinn á síðasta ári. Á efnisskrá tónleika Péturs eru verk eftir frönsku tónskáldin Du- ruflé, Alain, Messiaen og Dupré og á sunnudagstónleikunum verður frumflutt nýtt verk eftir Áskel Más- son sem er tileinkað Pétri. Tónleik- arnir á laugardag hefjast kl. 12:00, en á sunnudag verða tónleikarnir kl. 17:00. arnim@mbl.is Tvennir tónleikar Péturs Sakari Orgelsumar Pétur Sakari leikur á tvennum tónleikum um helgina.  Frumflytur meðal annars nýtt orgelverk eftir Áskel Másson Greg Mortenson er þekktur mann- vinur vestan hafs, fjallamaður, ræðusnillingur, rithöfundur og stofnandi umsvifamikilla hjálpar- samtaka sem starfa í Austurlöndum fjær. Hann er meðal annars þekktur fyrir metsölubækurnar Three Cups of Tea og Stones into Schools: Pro- moting Peace with Books, Not Bombs, in Afghanistan and Pak- istan, en í þeim rekur hann það hvernig hann hefur barist fyrir bættri menntun og betri lífskjörum fyrir ungmenni í Afganistan og Pak- istan. Three Cups of Tea hefst með frá- sögn af því er hann villtist í fjöllum Pakistans, en íbúar í þorpinu Korphe komu honum til bjargar. Hann var þeim svo þakklátur fyrir lífgjöfina að hann lofaði að byggja fyrir þá skóla. Hófst þannig líknar- starf hans. Svo er glansmyndin í það minnsta, en heldur hefur fallið á hana í kjölfar þess að annar frægur fjallamaður og rithöfundur, John Krakauer, gerði sjónvarpsþátt þar sem flett er ofan af meintum ósannindum Mortensons í bókunum tveim og hann borinn ýmsum sökum; borið er á hann fjár- málamisferli, lúxuslíf fyrir líknarfé og svo má telja. Bók Krauers heitir Three Cups of Deceit: How Greg Mortenson, Humanitarian Hero, Lost His Way. Í kjölfarið hyggjast einstaklingar sem gefið hafa fé til Mortensons og samtaka hans hrinda af stað hóp- málsókn á hendur honum til að heimta fé sitt til baka en aðrir vilja másókn til að fá endurgreiddar bækur eftir hann sem þeir hafa keypt, enda hafi komið í ljós að þær séu hreinar lygisögur. Þeir hafa líka krafist þess að bókin verði merkt sem skáldskapur héðan í frá. Sem dæmi um ósannindi Morten- sons nefna gagnrýnendur hans að hann hafi logið til um skólabygg- ingar í Pakistan og Afganistan, þar á meðal um það hve marga skóla sam- tök hans hefðu reist, sagt ósatt um hve miklum tíma hann eyði í Afgan- istan að staðaldri, gefið rangar upp- lýsingar um fjárhagsleg tengsl sín við líknarhreyfinguna og það hve há laun hann hafi, logið því að honum hafi verið rænt af talibönum og sé meira að segja að ljúga því að sam- tökin byggi skóla á átakasvæðum, þegar þeir skólar sem þó eru byggðir séu reistir í friðsælum héruðum og svo má telja. Mortenson hefur viðurkennt að sumt í bókunum sé fært í stílinn, en ekkert sé í þeim sem segja megi vísitandi ósannindi. Lítið hefur þó heyrst frá Mortenson undanfarið, enda liggur hann á sjúkrahúsi sem stendur, þungt haldinn eftir hjarta- bilun. Hamast að mann- vininum mikla, Greg Mortenson  Mannvinur eða aurapúki? Greg Mortenson Málverk Pablos Picassos af Marie- Therese Walter, ástkonu hans, var selt á uppboði Christie’s í London í vikunni fyrir sem svarar 2,5 millj- örðum króna. Verkið nefnist Jeune Fille Endor- mie og er frá árinu 1935, en þau Pi- casso og Walter kynntust árið 1927 þegar Picasso var 45 ára og Walter 17 ára. Listaverkið var í eigu háskól- ans í Sydney í Ástralíu og verður féð nýtt til að fjármagna vísinda- og rannsóknarstarf við skólann. Nafn- laus einstaklingur gaf skólanum verkið. Málverkið hefur sjaldan ver- ið sýnt opinberlega. Marie-Therese Walter tók saman við Picasso er hann var enn giftur fyrstu eiginkonu sinni, Olgu Khok- hlova, og samband þeirra stóð þar til hann hóf sambúð með Dora Maar, en hann framfleytti þó Walter og dóttur þeirra þó alla tíð. Marie-Therese Walter svipti sig lífi 1977, fjórum ár- um eftir andlát Picassos. Picasso-verk selt fyrir hálfan þriðja milljarð Milljarðaverk Málverkið Jeune Fille Endormie eftir Pablo Picasso. Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Tjarnarbíó 5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is Ferðasaga Guðríðar / The saga of Gudridur Fös 24/6 á íslensku kl. 20:00 Lau 25/6 á íslensku kl. 16:00 Sun 26/6 kl. 20:00 sýnd á ensku / in english Sýnd á ensku 26.júní / In english 26.june Hetja / Hero Fös 24/6 á íslensku kl. 18:00 Lau 25/6 á íslensku kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 16:00 sýnd á ensku / in english Sýnd á ensku 19. og 26.júní / In english 19. and 26.june Sirkus Íslands:Ö faktor Fös 1/7 kl. 19:30 Lau 2/7 kl. 14:00 Lau 2/7 kl. 18:00 Sun 3/7 kl. 14:00 Sun 3/7 kl. 18:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.