Morgunblaðið - 24.06.2011, Qupperneq 36
AF ALÞÝÐUMENNINGU
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Dvaldi á Hjalteyri um síðustu helgi ígóðu yfirlæti. Hjalteyri er smá-byggðarkjarni norðan Akureyrar á
Gálmaströnd, en þar var mikið athafnalíf á
fyrri hluta 20. aldar. Útgerð mikil og Kveld-
úlfur, hið umsvifamikla fyrirtæki Thors Jen-
sen byggði þar stærstu síldarverksmiðju í
Evrópu og var hún var starfrækt til 1966.
Verksmiðjan hefur nú öðlast nýtt líf
sem staður fyrir myndlistarsýningar, tón-
leika, leikhús, bókmenntir, dans, sirkus og
hvaðeina og það var einmitt þar sem ég
rambaði inn á margþætta sýningu Helga
Þórssonar frá Kristnesi sem tók yfir ljós-
myndasýningu, gjörning, tónleika og tísku-
sýningu. Hljómsveitin Helgi og hljóðfæra-
Ljósmyndir/Arnar Eggert
leikararnir kom þar eðlilega við sögu en
þessi mæta norðansveit hefur verið starf-
andi í um kvartöld og er ein af gimsteinum
íslenskrar dægur- og alþýðutónlistar.
Helgi Þórsson er enginn venjulegurmaður. Hann býr sumsé á bænum
Kristnesi ásamt sonum sínum þremur og
konu, Beate Stormo, sem er járnsmiður og
sinnir hún ýmsu handverki öðru, s.s. tré-
skurði og trésmíði. Bú reka þau, en Helgi er
umhverfisfræðingur að mennt. Þau hanna
þá föt í sameiningu og Helgi sinni jafnframt
ritstörfum, hljómlist, myndlist og ljós-
myndun. Þetta er eins „alvöru“ og það ger-
ist og heimur þessara rómantísku hjóna er
óneitanlega heillandi.
Sýningin var athyglisverð, svo ekki sé
meira sagt. Ljósmyndir Helga héngu á
gráum steinsteypuveggjum en verksmiðjan
er gímald mikið. Myndirnar voru einslags
fantasíur, konur í plast- og latexgöllum með
skógardýrum og trjágróðri. Sumar voru
unnar, það er „fótósjoppaðar“ en aðrar upp-
stilltar.
Þegar húmaði að hófst síðan tískusýn-
ing sem var nokkurs konar tískugjörningur
með lifandi undirleik. Helgi settist sjálfur
við trommusettið, Atli trommari sá um
hljómborðsleik, Bobbi gítarleikari lék á
trumbu annars staðar í salnum en Beggi sá
um bassann og Gunný flautuna. Tónlistin
var eins og blanda af ensku síðpönksveitinni
Bauhaus og Jethro Tull. Hápunkti var svo
náð er fyrirsæturnar stigu á svið, eða komu
inn eftir löngum verksmiðjuganginum öllu
heldur. Gjörningurinn fór upp í Lynch-
neskar hæðir og andrúmsloftið var töfrum
blandið. Hljómsveitin endaði svo kvöld-
stundina með að spila „hefðbundið“ sett.
Það er eins og engin mörk séu á millilífs og listar hjá Helga og framsetn-
ingin á öllu því sem hann tekur sér fyrir
hendur er ekkert minna en mögnuð. Að
vanda var hans „heimilislega brjálsemi“ til
stakrar fyrirmyndar. Hann lifi og allt hans
slekti!
»Helgi Þórsson er enginnvenjulegur maður. Hann
býr sumsé á bænum Kristnesi
ásamt sonum sínum þremur og
konu …
Stemning Helgi Þórsson þakkar fyrirsætum, hljómsveit og áhorfendum. Til hliðar má sjá Helga og Bobba, en þeir eru meðlimir í hinni stórkostlegu hljómsveit Helgi og hljóðfæraleikararnir.
Keisarinn af Kristnesi lætur til sín taka
Verksmidjan.blogspot.com.
Einnig er síða á Fésbókinni.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2011
- K.
- P.H
-T.V., Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt
-Þ.Þ., Fréttatíminn
NÚTÍMA ÚTGÁFA
AF BEAUTY AND THE BEAST
FRÁ ÆR MYND
SEM KEMUR
SKEMMTILEGA
Á ÓVART
- MIA I HERALD
- ORLANDO ENTINEL
VANESSA HUDGENS - ALEX PETTYFER - NEIL PATRICK HARRIS
SUPER 8 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 12
MR. POPPER´S PENGUINS kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:20 L
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:25 12
X-MEN: FIRST CLASS kl. 8 - 10:45 14
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 3 - 5:30 L
PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 5 10
/ ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL
BEASTLY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 10 SOMETHING BORROWED kl. 8 L
SUPER 8 kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 12 KUNG FU PANDA 2 M/ísl. tali kl. 43D - 4 - 63D - 6 L
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 VIP KUNG FU PANDA 2 M/ensku tali kl. 10:20 M.texta L
THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 ANIMALS UNITED M/ísl. tali kl. 3:40 L
PIRATES OF THE CARIBBEAN 4 kl. 5:20 VIP - 8 - 10:40 10
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
á allar sýningar merktar með grænu1.000 kr.SPARBÍÓ 3D
FRÁBÆR FJÖLSKYLDU-OG GAMANMYND
MEÐ JIM CARREY Í FANTAFORMI
SUMAR-
SMELLUR
INN
Í ÁR!
-
I
Í !