Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 40
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 175. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Pippa og Harry í ástarhug? 2. Keyptu skilanefndina út 3. „Keisarinn er í engum fötum“ 4. Stærsta skemmtiferðaskipið »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Helgi Þórsson og hljóðfæraleikarar hans stóðu fyrir tónleikum/gjörningi á Hjalteyri um síðustu helgi en við sögu komu m.a. latex-uppstrílaðar fyrirsætur á hjólaskautum. Arnar Eggert fór í málið. »36 Morgunblaðið/Skapti Helgi Þórsson slær í gegn norðan heiða  Fréttir af Prinsessuskóla í Kópa- vogi hafa vakið athygli að undan- förnu. Ákvað tónlistarmaðurinn Prinspóló að opna prinsaskóla „þar sem m.a. verður kennd listin að smjatta og ný tækni við að klippa neglur með tönnunum.“ Skólinn var sett- ur í gær á Kaffi- stofunni á Hverfisgötu með pomp og prakt. Prinsaskóli Prinspóló opnaður  Ákveðið hefur verið, í samstarfi við Akureyrar- stofu, að fara með 60 ára af- mælistónleika Björgvins Hall- dórssonar til Akureyrar í ágúst, nánar tiltekið í menningarhúsið Hof laugardaginn 27. ágúst. Miðasala hefst á Midi.is og Menningarhus.is miðvikudaginn 29. júní kl. 10. Aðeins 500 miðar verða í boði. Björgvin Halldórsson til Akureyrar Á laugardag Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað og dálítil væta öðru hverju norðan- og austanlands. Hiti 5 til 15 stig. Á sunnudag Ákveðin norðaustanátt, fremur stíf suðaustanlands seinnipartinn með rigningu, en annars hægari og úrkomulítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Rigning á köflum nyrðra, annars svipað veður. Hiti 5 til 15 stig. VEÐUR Óvæntustu úrslit ársins til þessa í fótboltanum hér á landi litu dagsins ljós á Ísa- firði í gærkvöld. Nýliðar í 1. deildinni, BÍ/Bolungarvík, lögðu Íslandsmeistara Breiðabliks 4:1 í fram- lengdum leik og mæta Þrótti í 8 liða úrslitum keppninnar. Í Vesturbænum vann KR annan sigur sinn á FH í þessum mánuði, 2:0, og mætir Keflvíkingum á heimavelli. »2-3 Meisturunum skellt á Ísafirði Íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik er í sjötta og neðsta styrk- leikaflokki áður en dregið er í riðla fyrir heimsmeistaramótið í Brasilíu. Íslenska liðið er talið lakast þeirra tólf Evrópuliða sem eru í keppninni og gæti bæði lent í firna- sterkum riðli og í riðli sem gæfi góða mögu- leika á að ná langt í keppn- inni. »1 Ísland í neðsta styrk- leikaflokki fyrir HM „Ég er hrikalega ánægður og gæti lík- lega ekki verið ánægðari. Við fórum upp um deild og nú langar mann að halda áfram. Þeir vilja fara upp í efstu deild og mig langar að taka þátt í því,“ segir Emil Hallfreðsson, knattspyrnumaður hjá Verona á Ítal- íu, en í gær varð ljóst að hann leikur áfram með liðinu á næsta keppnis- tímabili. »2 Emil langar aftur upp um deild á Ítalíu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sjósund er allra meina bót, segja þeir sem reynt hafa. Þar á meðal er Árni Þór Árnason sem hefur stund- að sjósund í um sjö ár og ætlar að reyna við Ermarsundið 7. til 14. júlí næstkomandi, en þá á hann 1. sundrétt yfir sundið. Árni Þór þakkar lélegu líkamlegu ástandi það að hann fór að stunda sjósund 35 ára. Hann segist hafa verið of feitur, með of hátt blóðfitu- hlutfall, of háan blóðþrýsting og með of mikið af slæmu kólesteróli. Hróbjartur Darri Karlsson hjarta- læknir hafi ýtt sér af stað og bent sér á að aukin hreyfing væri nauð- synleg. Hann hafi breytt um lífsstíl, byrjað að hlaupa og dottið í sjó- sundið. „Hróbjartur Darri gaf mér rauða spjaldið og ég fann hilluna mína, sjósundið höfðaði til mín,“ segir hann. Sjósundið á hug hans allan og hann syndir á hverjum degi allt ár- ið. Rétt dýfir sér í sjóinn köldustu dagana en er þá þeim mun lengur í laugunum. „Það er ótrúlegt hvað þetta hefur haft góð áhrif á mig,“ segir hann og bendir á að hann hafi meðal annars læknast af astma. „Þetta er allt annað líkamlegt at- gervi.“ Ermarsundið næst Undanfarna níu mánuði hefur Árni Þór búið sig undir að synda yfir Ermarsundið og hefur synt um 35 til 40 km á viku. Vadím Forofo- now, yfirþjálfari Fjölnis og Íslands- meistari í 5 km sjósundi, hefur verið einkaþjálfari hans og auk hans hafa margir komið að verk- efninu. Hann segir að Benedikt Hjartarson hafi líka reynst sér ómetanlegur og í raun kennt sér allt sem hann kunni í sjósundi. Bein lína yfir Erm- arsundið er um 32 km en vegna strauma er algengt að menn þurfi að synda 40 til 45 km. Árni Þór ætlar sér yfir og segir að það taki sig 12 til 14 tíma. Hins vegar bætir hann við að verkefnið sé mjög erfitt og aðeins um 20% þeirra sem hafi lagt af stað hafi lokið því. Ólýsanleg tilfinning Árni Þór synti Drangeyjarsund og frá Árskógssandi út í Hrísey í fyrra. 2009 synti hann svonefnt fimm eyja sund, sem er í kringum eyjarnar við Reykjavík, og hann hefur synt úr Grímsey á Húnaflóa að Drangsnesi. Hann segir að með þessu klæði hann sig í náttúruna. „Ég er hluti af náttúrunni og það er ólýsanleg tilfinning.“ Klæðir sig í náttúruna  Breytt líferni og líkamlegt ástand allt annað Morgunblaðið/Eggert Æfing Árni Þór Árnason kann vel við sig í sjónum og undirbýr sig í Skerjafirðinum fyrir Ermarsundið. Boðsundssveit úr sjósundsdeild Sundfélags Hafnarfjarðar hefur tryggt sér 1. sundrétt yfir Ermarsund 6. til 13. júlí næstkomandi. Aðrar reglur gilda um boð- sundið en einstaklings- sundið og til dæmis syndir hópurinn fram og til baka. Í hópnum eru Heimir Örn Sveinsson, Björn Ásgeir Guðmunds- son, Kristinn Magnússon, Birna Jóhanna Ólafsdóttir, Ásgeir Elías- son og Hálfdán Freyr Örlygsson. Árni Þór og sundhópurinn ætla að kynna komandi átök með því að synda í Nauthólsvíkinni og ná- grenni í sólarhring og hefst sundið klukkan 19 í kvöld. Benedikt Hjartarson synti yfir Ermarsund sumarið 2008 og er eini Íslendingurinn sem hefur af- rekað það. Sjósund í sólarhring EINN ÍSLENDINGUR HEFUR SYNT YFIR ERMARSUND Árni Þór Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.