Morgunblaðið - 29.06.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Starfsendurhæfing á vegum VIRK
starfsendurhæfingarsjóðs mun
væntanlega eflast til mikilla muna í
kjölfar þess að Alþingi lögfesti á
dögunum skyldu allra launagreið-
enda til að greiða 0,13% iðgjald til
sjóðsins.
Jafnframt var lögfest skylda líf-
eyrissjóða til að leggja sérstakt
gjald á iðgjaldastofn til sjóðanna,
sem rennur til VIRK frá og með
næstu áramótum. Framlag lífeyris-
sjóðanna nemur einnig 0,13% af ið-
gjaldastofni frá 1. janúar næstkom-
andi. Fjármálaeftirlitið telur að
miðað við greidd iðgjöld sjóðanna í
fyrra muni framlög sjóðanna nema
um einum milljarði króna.
Konur í meirihluta
Markmiðið með starfsemi VIRK
er að aðstoða fólk sem verður
óvinnufært vegna veikinda eða slysa
við að komast sem fyrst aftur út á
vinnumarkaðinn í stað þess að fara á
örorkubætur. Fram kom við um-
fjöllun Alþingis um frumvarpið að
sterkar vísbendingar væru um að
þessi þjónusta sé þegar farin að
skila góðum árangri ef litið er til
minnkandi tíðni örorku.
Ríflega 2.000 einstaklingar hafa
leitað til VIRK frá því að þjónustan
á sviði starfsendurhæfingar hófst
haustið 2009, m.a. hjá ráðgjöfum um
allt land. Töluverður meirihluti
þeirra sem óska eftir þjónustunni
eru konur eða um 63% á móti 37%
hlutfalli karla.
Atvinnurekendur sem bundnir
eru af kjarasamningum á almennum
vinnumarkaði hafa greitt iðgjöld til
sjóðsins en með lagabreytingunni á
Alþingi á dögunum nær greiðslu-
skyldan til allra launagreiðenda,
einyrkja sem annarra.
Vigdís Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri VIRK, segir að aukin framlög
til sjóðsins geri VIRK kleift að
þróast áfram og takast á við stærri
hluta af verkefninu. „Við byrjuðum
á því að einbeita okkur að fólki sem
er á vinnumarkaði og hjá sjúkra-
sjóðum stéttarfélaganna en segja
má að einstaklingar sem komnir eru
yfir á ör- orku, t.d. örorkuþegar líf-
eyrissjóð- anna, hafi ekki komið til
okkar í mjög miklum mæli.“
Reikna má með að sá hópur lang-
tímaveikra og þeirra sem eru á ör-
orkulífeyri hjá lífeyrissjóðum þurfi
að jafnaði á meiri og kostnaðarsam-
ari þjónustu að halda og vonast Vig-
dís til þess að takast muni að ná bet-
ur til þessa hóps. Spurð um árangur
af starfinu segir Vigdís mjög merki-
legt að við núverandi aðstæður hafi
dregið úr nýgengi örorku, þvert á
allar spár.Margt hafi eflaust stuðlað
að því. Auk þjónustu VIRK og ann-
arra starfsendurhæfingaraðila hafi
t.d. úrræðum á vegum Vinnumála-
stofnunar fjölgað og vinnuferlar
Tryggingastofnunar o.fl. hafi breyst
en starfsemi VIRK eigi örugglega
sinn þátt í þessari þróun. Það segi
sig sjálft að ef hægt er að hjálpa
fólki sem glímir við alvarlegan
heilsubrest fyrr í ferlinu þá stuðli
það að því að færri fari á örorku.
Mikil eftirspurn
„Það er okkar hlutverk. Við höf-
um tekið á móti ríflega 2.000 manns
frá upphafi. Við byrjuðum að taka á
móti fólki haustið 2009 og eftir-
spurnin varð strax meiri en við átt-
um von á,“ segir hún.
„Árangurinn er margþættur. Við
sjáum að meirihluti þeirra sem ljúka
þjónustu hjá okkur fer aftur í vinnu.
Það er það sem máli skiptir. Fjöldi
fólks fær aðstoð við að gera líf sitt
betra og það skiptir miklu máli að
einstaklingarnir komist fyrr til
vinnu á nýjan leik,“ segir hún. ,,Við
þurfum að efla okkur á öllum svið-
um. Það er mikilvægt að ná góðu
samstarfi við hið opinbera, að starfs-
endurhæfingarmál séu í heild sinni í
góðum farvegi og að það vinni allir
saman. Það hafa allir hag af því að
vel takist til.“
Morgunblaðið/Ómar
Dansað Þeim sem eru bundnir í hjólastól er ýmislegt til lista lagt. Hér sýnir forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, að vel er hægt að dansa í hjólastól.
Hægir á nýgengi örorku
Á þriðja þúsund sem hættu störfum vegna sjúkdóma eða slysa hafa leitað til
Starfsendurhæfingarsjóðs Flestir sem luku endurhæfingu vinnufærir á ný
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Niðurstöður krufningar hvíta-
björns er felldur var í Rekavík á
Hornströndum 2. maí síðastliðinn
liggja fyrir. Dýrið var fellt tæpum
sex klukkustundum eftir að til þess
sást í fjörunni í Hælavík.
Samkvæmt aldursgreiningu
sem gerð var á dýrinu og byggð á
talningu árhringja á tannrótum
bendir flest til að um hafi verið að
ræða ríflega þriggja ára gamla
birnu. Hún var 173 sentimetrar á
hæð og 95 kílógrömm. Þyngd birn-
unar telst lítil miðað við aldur og
lengd og var gróflega áætlað að
fituforði hennar hafi einungis num-
ið fimm prósentum af líkams-
þyngd. „Þetta dýr ætti við eðlileg-
ar kringumstæður að vera með
einhverja tugi prósentna af líkams-
þyngdinni í formi fitu. Að vera
komin niður í fimm prósent er ekki
eðlilegt,“ segir Karl Skírnisson,
dýrafræðingur á Tilraunastöð HÍ á
Keldum. Samkvæmt niðurstöðum
krufningar er talið útilokað að
þessi fituforði hefði nægt birnunni
til að tímgast.
Jafnframt kom í ljós að birnan
var ekki smituð af sníkjuorminum
tríkínu, en mikilvægt er að hindra
fótfestu tríkínu hér á landi, einkum
sökum þess að slíkir sníkjuormar
geta reynst mönnum hættulegir.
Við athugun á meltingarvegi kom í
ljós að birnan hafði ekki nærst áð-
ur en hún var felld. Fundust þó
leifar af fuglsfjöðrum og þykir slíkt
benda til að hún hafi ekki verið ný-
komin á land. „Hún hefur senni-
lega komið daginn áður myndi ég
halda,“ sagði Karl. Að krufning-
unni komu, auk Karls, Ólöf Guðrún
Sigurðardóttir, dýralæknir og
dýrameinafræðingur á Keldum, og
Þorvaldur Björnsson, hamskeri
Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Birnan
reyndist
vannærð
Var ekki nýkomin á
land er hún var felld
Morgunblaðið/RAX
Bangsi Annar tveggja hvítabjarna
sem felldir voru á Skaga 2008.
Alls voru komnar 1.507 tillögur að
nafni á foss, sem myndast hefur í
Morsárjökli í Öræfum, síðdegis í
gær. Nokkur nöfn njóta meiri vin-
sælda en önnur, en sé hvert nafn tal-
ið einungis einu sinni höfðu í gær
borist tillögur um 884 nöfn.
Hugmyndasamkeppni um nafn á
fossinn, sem mæling benti til að sé sá
hæsti á landinu, lýkur á hádegi á
morgun, klukkan 12.00 fimmtudag-
inn 30. júní. Morgunblaðið og mbl.is
efndu til hugmyndasamkeppni hinn
17. júní síðastliðinn um nafn á foss-
inum.
Tekið er við hugmyndum í gegn-
um mbl.is og er hnappur á forsíðu
vefjarins. Lesendur Morgunblaðsins
og mbl.is hófu strax að senda inn
hugmyndir.
fram úr. Niðurstaðan verður til-
kynnt í Morgunblaðinu og á mbl.is
laugardaginn 2. júlí næstkomandi.
Tillögurnar verða síðan sendar til ör-
nefnanefndar. gudni@mbl.is
Ritstjórn Morgunblaðsins mun
fara yfir tillögurnar og velja þær
sem hún telur koma til greina. Veitt
verða þrenn vegleg bókaverðlaun
fyrir tillögurnar sem þykja skara
1.507 tillögur að nafni
Hugmyndasamkeppni Morgunblaðsins og mbl.is um nafn
á ónefndan foss í Morsárjökli lýkur á hádegi á morgun
Ljósmynd/Jón Viðar Sigurðsson
Morsárjökull Nýi hái fossinn er í klettabeltinu til hægri á myndinni.
Hægt hefur á fjölgun öryrkja á
milli ára. Frá þessu var greint á
aðalfundi Tryggingastofnunar
ríkisins í seinasta mánuði. Svo-
kallað nýgengi örorku jókst á
árunum 2008-2009 en síðan
hafa orðið umskipti þar á. Sig-
ríður L. Baldursdóttir, forstjóri
TR, sagði frá því að á milli ár-
anna 2009 og seinasta árs varð
aukning milli ára einungis 1,4%
eða um 200 manns í stað 400
til 800 manns
um langt
skeið. Líkleg-
asta skýringin
væri sú, að
gripið hefur
verið til marg-
víslegra úr-
ræða til að
tryggja betur endurhæfingu og
virkni í kjölfar atvinnumissis og
heilsubrests.
Öryrkjum fjölgar minna
ENDURHÆFING OG AÐRAR AÐGERÐIR SKILA ÁRANGRI
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225