Morgunblaðið - 30.07.2011, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
14.-30. september 2011
Spennandi ævintýra- og lúxusferð þar sem við heimsækjum Shanghai,
siglum á Li-ánni með útsýni til hinna sérstæðu kalksteinsfjalla í Guilin,
göngum á Kínamúrinn, förum á Torg hins himneska friðar og að
Forboðnu borginni í Peking. Farið verður í ævintýralegan leiðangur
langt inn í Kína að sjá hið sérstæða landslag í Zhangjiajie og mikla
náttúrufegurð á þeim stað sem kvikmyndin Avatar var tekin.
Hápunktur ferðarinnar er svo Lhasa í Tíbet.
Góð ferð með þrautreyndum fararstjóra!
Verð frá 567.000 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Á mann í tvíbýli, innifalið: Flug til og frá Kína, allt innanlandsflug í Kína,
flugvallaskattar, Gisting á 4* og 5* hótelum, ferðir skv. ferðatilhögun,
íslensk fararstjórn og máltíðir samkvæmt ferðalýsingu.
*Verð án Vildarpunkta: 577.000 kr.
VITA - ferðaskrifstofa á traustum grunni
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.IS
V
IT
55
82
9
07
/1
1
VITA er lífið
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Fararstjóri er Héðinn Svarfdal Björnsson
en hann hefur mikla reynslu af fararstjórn í Kína.
Suðurlandsbraut 2
Hilton Reykjavik Nordica
Svo virðist sem aukinn kraftur sé
að færast í makrílveiðar íslenskra
skipa fyrir austan landið í kjölfar
hækkandi sjávarhita. Arnþór Hjör-
leifsson, skipstjóri á Lundey NS,
segir umtalsverða breytingu hafa
orðið síðustu dagana en sjávarhit-
inn hafi hækkað á tiltölulega
skömmum tíma um allt að 2,5 gráð-
ur. Þetta kemur fram í samtali við
hann á vefsíðu HB Granda.
Lundey kom til hafnar í Vopna-
firði með um 500 tonna makrílafla.
Skipið var að veiðum í Hvalbaks-
hallinu og Rósagarðinum og fékkst
þessi afli í þremur holum á tæpum
sólarhring.
Arnþór segir að makrílveiði hafi
verið léleg fyrir austan upp á síð-
kastið enda hafi sjórinn verið mjög
kaldur. „Síðustu dagana hefur hita-
stigið hins vegar hækkað úr um
5,5°C í 7-8°C og það munar öllu
hvað makrílveiðarnar varðar. Hér
hafa verið lélegar lóðningar en
núna virðist makríllinn vera að
þétta sig og smáblettir skila mjög
skarpri veiði,“ segir Arnþór.
Makríllinn
þéttir sig
fyrir austan
Makríll Með hækkandi sjávarhita er
auðveldara að veiða hann.
Sjávarhiti hækkaði
um 2,5 gráður
Vegagerðin vill benda vegfarendum
á að búast má við mikilli umferð um
land allt um næstu helgar, eins og
undanfarin ár.
Vegfarendur eru því hvattir til að
sýna tillitssemi, þolinmæði og kurt-
eisi á för sinni um þjóðvegi landsins.
Þrír viðburðir sömu helgina
Á ýmsum stöðum má reikna með
einhverjum töfum á mestu álagstím-
um, ekki síst í nánd við skipulagðar
stórsamkomur, segir á vef Vega-
gerðarinnar.
„Til dæmis má reikna með mikilli
umferð til og frá Siglufirði og líklegt
að einhverjar tafir geti orðið við og í
Stráka- og Múlagöngum, sem hvor
tveggja eru einbreið með útskotum
til að mætast. Það sama á reyndar
við um næstu helgi þar á eftir, þegar
samtímis verður Fiskidagurinn
mikli á Dalvík, Pæjumótið í Fjalla-
byggð og Króksmótið á Sauðár-
króki. Á þessum slóðum eru vegfar-
endur sérstaklega hvattir til að sýna
varkárni og tillitssemi,“ segir Vega-
gerðin.
Hugsanlega mun lögreglan grípa
til sérstakrar umferðarstjórnunar
um jarðgöng á þessu landsvæði til
að koma í veg fyrir umferðarteppur,
en reiknað er að mesti álagstíminn
verði milli kl. 13:00 og 19:00, eins og
reyndar á við um þjóðvegakerfið al-
mennt. sisi@mbl.is
Hætta á töfum við jarðgöng
Morgunblaðið/Ómar
Jarðgöng Bílar geta ekki mæst í Stráka- og Múlagöngun og því verða tafir.
Stráka- og Múlagöng eru einbreið og með útskotum til að
mætast Hugsanlegt að lögregla stjórni umferðinni
Allar fjölförn-
ustu hálend-
isleiðir lands-
ins hafa verið
opnar undan-
farnar vikur.
Akstursbann
hefur þó verið
á nokkrum
slóðum á Stórasandi. Nú hefur mik-
ið þornað á svæðinu og það er að-
eins slóðinn upp úr Víðidal inn á
Stórasand sem er enn lokaður,
samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerðinni.
Vegna kuldanna í vor og fyrri
hluta sumars hafa hálendisvegir
verið opnaðir mun seinna en und-
anfarin ár. Leiðin um Sprengisand
var sú síðasta sem var opnuð.
Mikil umferð hefur verið á há-
lendinu að undanförnu.
Einn slóði er
enn lokaður
á hálendinu