Morgunblaðið - 30.07.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
www.gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ólafsdalsskólinn varbændaskóli sem rekinnvar í Ólafsdal á árunum1880 til 1907. Skólann rak
Torfi Bjarnason með dyggri aðstoð
frá eiginkonu sinni Guðlaugu Zakk-
aríasdóttur. En þau hjónin voru
miklir frumkvöðlar í landbúnaði og
grænmetisrækt. Gamla skólahúsið í
Ólafsdal hefur nú verið tekið í gegn
að nokkru leyti eftir að hafa verið í
niðurníðslu í mörg ár. Ólafsdals-
félagið hefur staðið fyrir fram-
kvæmdunum en markmið þess eru
meðal annars að stuðla að eflingu og
varðveislu húsins og vekja athygli á
staðnum innan ferðaþjónustunnar.
Fjölþætt miðstöð
„Húsið er ríkiseign en Ólafs-
dalsfélagið, sem var stofnað árið
2007, hefur unnið að því að koma
saman hópi fólks og vinna að fjár-
mögnun til þess að gera húsið þann-
ig að hægt sé að nýta það. Það hefur
verið rafmagns- og vatnslaust í ára-
tugi og í rauninni illa farið. Nú er
unnið að því að þarna geti orðið mið-
stöð fyrir t.d. matvæli af svæðinu
eins og grænmetið en líka að laða
fólk að svæðinu og umhverfinu.
Þannig eru uppi hugmyndir um að í
Ólafsdal yrði rekinn veitingarekstur
og þess vegna gistiaðstaða og fræði-
Kennsla endur-
vakin í Ólafsdal
Í Ólafsdal í Gilsfirði var unnið mikið frumkvöðlastarf á 19. öld. Það verður nú
endurvakið með námskeiðshaldi þar sem þátttakendur munu meðal annars læra
að nýta hráefni úr nærumhverfinu í matargerð.
Ljósmynd/Þóra Sigurðardóttir
Glæsilegt Búið er að gera gamla húsið í Ólafsdal upp að hluta en framkvæmdir standa enn.
Hollusta Í grænmetisgarðinum er
að finna grænmeti og kryddjurtir.
Stjórn Þóra Sigurðardóttir er í
Ólafsdalsfélaginu.
Þegar veðrið er ekki sérlega gott, líkt
og lítur út fyrir að veðrið um helgina
verði, er gott að geta bjargað sér við
ýmsar aðstæður. Ef tjaldið þitt er t.d.
hundblautt og rifið þá getur verið
ágætt að kunna að byggja sér skýli.
Fyrir þá sem eru litlir útilegukappar
getur slík vosbúð líka tekið á taug-
arnar og þá er gott að kunna leiðir til
að róa sig niður. Svo er líka gott að
kunna hvernig best er að klæða sig ef
kuldinn er farinn að naga mann að
innan. Það er nú kannski ekki hægt
að tala um að aðstæður á íslenskri
útihátíð séu jafn erfiðar og þær sem
miðað er við á vefsíðunni wilderness-
survival.net. En þó er aldrei að vita.
Borgarbörnum kann að þykja það
ferðalag út í óbyggðir að halda út á
land og tjalda í næsta polli. Þá getur
verið gott að geta bjargað sér og fá
góð ráð frá reyndum köppum.
Vefsíðan www.wilderness-survival.net
Morgunblaðið/RAX
Óbyggðaferð Það er eins gott að kunna að tjalda við allar aðstæður á Íslandi.
Að geta tjaldað í næsta polli
Næstkomandi mánudag frá klukkan
13-16 verður haldinn markaðsdagur í
Laufási í Grýtubakkahreppi. Þar verð-
ur á boðstólum fjölbreytt íslenskt
handverk eins og silfurmunir, prjóna-
vara, snyrtivörur og matvara úr hér-
aði ásamt ýmsu öðru forvitnilegu.
Markaðurinn er haldinn hjá gamla
torfbænum í Laufási en búið var í
gamla bænum fram á fjórða áratug
20. aldar. Þar er nú sýning um lifn-
aðarhætti í íslenskum torfbæ. Í Lauf-
ási er líka hægt að fá sér hressingu á
Kaffi Laufási. Laufás er 30 km norð-
austur af Akureyri og því tilvalinn án-
ingarstaður á leið austur á land.
Endilega …
… kíkið á mark-
að í Laufási
Fallegur Búið var í gamla bænum
fram á fjórða áratug 20. aldar.
Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla verður
haldin í 19. sinn dagana 5.-8. ágúst næstkom-
andi. Þar munu hundrað sýnendur taka þátt
í ár og fjölbreytnin verða mikil. Innandyra
má sjá og kaupa fatnað, fylgihluti, keramik,
list, snyrtivörur, textílvörur, skart og fleira úr
rammíslenskum hráefnum svo sem hrauni,
ull, roði, lambskinni, hreindýraskinni og vest-
firsku klóþangi. Þá má ekki gleyma góðgætinu
úr íslensku náttúrunni sem til sölu verður á úti-
svæðinu.
Tískusýning og traktoraþraut
Ýmsar uppákomur verða á útisvæðinu. Þar verða
meðal annars haldnar tískusýningar alla dagana líkt
og undanfarin ár og svæðafélag HRFÍ á Norðurlandi –
Norðurhundar verður með kynningu á ýmsum hunda-
tegunum, hlutverki þeirra og ræktun. Þá verður félag
ungra bænda á Norðurlandi með uppákomur og haldin
verða ýmiss konar námskeið, meðal annars í nálaor-
keringu, taulitun og tauþrykki. Gestir á öllum aldri
ættu því auðveldlega að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi á hátíðinni.
Listmunir, tíska og
íslenskt góðgæti
Tískusýning Fatnaður
frá Volcano Icelandic.
Handverkshátíð
Roð og ull Hönnun Soffíu Mar-
grétar Hafþórsdóttur/Joja ehf.
Ljósmynd/Margrét Ingibjörg Lindquist
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Það er þægilegt að skella hárinu
bara í tagl og vera ómálaður í sum-
arbústaðnum eða útilegunni. En ef
þú vilt fríska dálítið upp á þig og
vera sæt á kvöldvökunni eða ball-
inu þarf það ekki að kosta svo mik-
inn auka farangur. Góðar gallabux-
ur er gott að taka með sér því þær
geta gengið alls staðar og hægt að
tóna þær niður með hettupeysu
eða poppa upp með flottum hlýra-
bol. Sem fer jú ekki mikið fyrir í
töskunni. Fallegur klútur um háls-
inn er líka tilvalinn og þá verður
manni heldur ekki kalt. Nú hafa
flestir fengið smá lit framan í sig í
sumarsólinni og þá er alveg nóg að
pakka niður sólarpúðrinu. Ofan í
snyrtibudduna fer líka maskarinn
og flottur gloss með smá lit er
ómissandi. Þessi þrenna gerir mik-
ið fyrir útlitið. Þá sérstaklega ef
maður hefur vaknað dálítið mygl-
aður í tjaldinu eftir góða kvöld-
stund. Sjampó og slíkt getur tekið
pláss en þá er bara að hella uppá-
halds sjampóinu í litla ferðabrúsa
eða kaupa sér sjampó og hárnær-
ingu í litlu ferðapakkningunum.
Svo er að taka með sér gott og
létt ilmvatn og gleyma nú alls ekki
svitalyktareyðinum!
Fegurð
Sólarpúður, maskari og gloss
skotheld þrenna í útileguna