Morgunblaðið - 30.07.2011, Page 11
Ræktun Þátttakendur fá að taka brakandi ferskt grænmeti með sér heim.
mannaaðstaða. Á sínum tíma var allt
grænmeti fyrir Ólafsdalsskólann
ræktað á staðnum. Þessi garður hef-
ur nú verið endurgerður og verður
uppskeran til sölu á grænmet-
ismarkaði sem haldinn verður á ár-
legri Ólafsdalshátíð þann 7. ágúst,“
segir Þóra Sigurðardóttir myndlist-
armaður og félagi í Ólafsdalsfélag-
inu.
Þróuðu nýja rófutegund
Hjónin Torfi og Guðlaug höfðu
mikinn áhuga á því að gera tilraunir
með ræktun og notkun grænmetis.
Þau héldu uppi metnaðarfullu
starfi og kynntu nýjungar á sviði
landbúnaðar og tækni ekki síður en í
gerð og varðveislu matvæla. Þau
þróuðu til að mynda ákveðna rófu-
tegund og hafa afkomendur þeirra
sem voru í skólanum á sínum tíma
haldið upp á fræin. Meðal þeirra er
Vernharður Gunnarsson sem rekur
gróðrastöðina Storð og selur þar
rófufræin. Þau voru sett niður í
Ólafsdal í vor en þar er líka að finna
kryddjurtir eins og steinselju, dill og
fennel, lauka og alls konar salöt,
brokkólí og gular og rauðar rófur.
Garðurinn var þannig útbúinn
að einungis var settur lífrænn
áburður í hann af svæðinu. Kalk úr
Arnarfirðinum og þörungar úr
Breiðafirðinum í bland við húsdýra-
áburð. Fyrsta námskeiðið kallast
„Grænmeti og góðmeti“ og snýst
einmitt um slíka ræktun lífræns
grænmetis og neyslu þess. Slíkt
kemur inn á hugmyndafræði Slowfo-
od samtakanna en Dominique Plédel
Jónsson, formaður samtakanna, er
leiðbeinandi á námskeiðinu ásamt
Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni
og Sigríði Jörundsdóttur sagnfræð-
ingi.
Sushi og ostagerð
„Hvaðan maturinn kemur og
hvernig hann verður til er nokkuð
sem við þurfum að huga að meir og
meir í okkar samfélagi og umhverfi.
Slowfood hreyfingin er frumkvöðull
að því leyti að vekja athygli á þessu.
Börnin vita stundum ekki að gulræt-
urnar koma upp úr jörðinni, þær eru
bara í plastpoka úti í búð. Núorðið
eru reyndar margir farnir að vinna í
þessari upplýsingu og mikill áhugi
hefur vaknað hér heima á því að
rækta sitt grænmeti. Enda hefur
fólk komist að því að það grænmeti
sem fólk ræktar sjálft og er ekki
langt að sækja er langbest og fersk-
ast,“ segir Þóra.
Á námskeiðinu Sölvafjara og
sushi verður gengið í sölvafjöru við
Tjaldanes og safnað þangi, þara og
sölvum til að nota í sushi. Þóra segir
að þarann og þörungana í hafinu í
kringum landið sé hægt að nýta mun
meira en Íslendingar hafi gert hing-
að til. Rannsóknir hafi sýnt að í þör-
ungum og þara sé í rauninni öll þau
efni sem mannslíkaminn þurfi á að
halda og mikill kostur að bæta slíku
hráefni inn í fæðuna. Þetta hafi As-
íubúar jú vitað í þúsundir ára enda
komi stór hluti þeirra fæðu úr haf-
inu. Það eru þau Rúnar Marvinsson
kokkur og Dominique Plédel Jóns-
son sem leiða námskeiðið. Þá verður
einnig haldið námskeið í heima-
vinnslu mjókurafurða með áherslu á
einfalda ostagerð. Þar mun Jóhanna
Þorvaldsdóttir frá Háafelli kynna
Slowfood hreyfinguna og geitaost-
ana sína og Eggert Antonsson,
mjólkurfræðingur, mun leiðbeina
um ostagerð í heimahúsum auk þess
sem ostagerð gamla Landbún-
aðarskólans í Ólafsdal verður kynnt.
Fjórða námskeiðið verður síðan af
eilítið öðrum toga en þar mun Ari
Jóhannesson hleðslumaður kenna
grjót- og torfhleðslu með aðstoð
Grétars Jónssonar. En á sínum tíma
voru hlaðnir umfangsmiklir grjót-
garðar um túnin í Ólafsdal.
Uppskeran með heim
Áhersla er lögð á að námskeiðin
séu fjölskylduvæn og tvö þeirra
beinlínis miðuð að því að börnin séu
með. Elsa Dóróthea Gísladóttir,
myndlistamaður og kennari, mun
hafa ofan af fyrir börnunum með
ýmsum leikjum og uppátækjum. Þá
fá allir þátttakendur að taka með sér
svolitlar birgðir af hinu bráðholla
grænmeti úr Ólafsdalsgarðinum.
Námskeiðin fara fram í lok ágúst
og byrjun september en allar nán-
ari upplýsingar má nálgast á vef-
síðunni www.olafsdalur.is
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
KORTIÐ GILDIR TIL
30.09.2011
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
FRÁBÆRT TILBOÐ TIL MOGGAKLÚBBS-
FÉLAGA TIL SRI LANKA 5. TIL 17. OKT.
Moggaklúbburinn í samstarfi við Ferðaskrifstofuna
Trans-Atlantic býður nú Moggaklúbbsmeðlimum
upp á einstaka ferð á slóðir dulúðar og ótrúlegrar
náttúru, Sri Lanka.
Takmarkaður sætafjöldi og frábær afsláttur til
Moggaklúbbsmeðlima.
MOGGAKLÚBBSTILBOÐ
Hringdu strax í síma 588 8900
til að tryggja þér sæti.
Nánari upplýsingar um ferðina má finna á
www.transatlantic.is/sri-lanka
Tilboðsverð 384.990 kr. miðað við tvo í herbergi
Moggaklúbbsverð 334.990 kr.
50 þúsund króna afsláttur á mann miðað við tvo í herbergi
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Hafðu samband í síma 569 1122 hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
„Ég er staddur á Egilsstöðum og er
með atriði hér í kvöld við opnunina á
Landsmóti ungmennafélaga. Við er-
um þar með parabólurnar sem eru
stór og mikil hljóðfæri. Þetta er
svaka stórt dót sem þarf að senda
með flutningabílum á milli staða. Við
notum parabólurnar og trompet og
básúnu og erum líka með tölvu. Svo
flytjum við líka raftónlist eftir hann
Kippi Kaninus (Guðmund Vigni
Karlsson) með slagverki og blæstri
núna í eftirmiðdaginn,“ segir Sig-
tryggur Baldursson tónlistarmaður
þegar blaðamaður slær á þráðinn til
hans á föstudagsmorgni.
Bogomil upp úr flugkistunni
Sigtryggur verður sannarlega á
ferð og flugi þessa verslunarmanna-
helgina en í fyrramálið flýgur hann til
baka til Reykjavíkur og keyrir þaðan í
Sólheima. Þar munu þeir Bogomil
Font og Davíð Þór Jónsson píanóleik-
ari halda tónleika í Sólheimakirkju
klukkan 14 í dag.
„Þá þarf ég að kveikja á Bogomil
Font og tek hann upp úr flugkistunni.
Hann ætlar að taka yfirlit af lögum úr
dægurlagasögunni á Íslandi og raula
calypso-slagara líka. Svo ætla ég að
njóta gestrisni hins góða fólks á Sól-
heimum og gista þar á yndislega hót-
elinu með fjölskyldunni. Á sunnudag-
inn keyri ég síðan í bæinn og spila á
Innipúkanum með Kippa Kaninus á
sunnudagskvöldið. Það er gaman að
hafa nóg að gera og aldrei dæmigerð
verslunarmannahelgi hjá mér. Stað-
urinn fer bara eftir því hvar ég er að
spila en um síðustu verslunarmanna-
helgi var ég á Siglufirði að syngja,“
segir Sigtryggur. Hann segist lítið
hafa farið á útihátíðir eftir tvítugt
nema til að koma fram. Nú kunni
hann því best að vera í næði með fjöl-
skyldunni þessa helgi á milli þess
sem hann treður upp.
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
Morgunblaðið/Eggert
Stuð Sigtryggur Baldursson verður á ferð og flugi um landið um helgina.
Kveikir á Bogomil Font
Ljósmynd/Kristín Þ. Helgadóttir
Fallegt Þetta græna hálsmen er hönnun Kristínar Þ. Helgadóttur.