Morgunblaðið - 30.07.2011, Page 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 2011
✝ Sveinbjörn Sig-urjónsson, bif-
reiðarstjóri, fædd-
ist á Torfastöðum í
Fljótshlíð þann 19.
mars 1920. Hann
lést á Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli, 17. júlí
2011.
Foreldrar hans
voru hjónin Sig-
urjón Jónsson,
bóndi, f. 24.6. 1898,
d. 18.9. 1947 og kona hans, Ól-
ína Sigurðardóttir, f. 21.9. 1882,
d. 19. mars 1963. Systkini
Sveinbjarnar voru Sigurjón, bif-
vélavirki, f. 24.3. 1921, d. 31.7.
1994, Anna Sigríður, húsmóðir,
f. 17.9. 1923, d. 6.10. 1985 og
Óskar fyrrv. sérleyfishafi, f.
16.8. 1925. Hálfbróðir Svein-
bjarnar, sammæðra, var Sig-
urður Sveinbjörnsson, bifreið-
arstjóri, f. 30.8. 1907, d.
23.7.1967.
Þann 4. júní 1946 kvæntist
Sveinbjörn eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Ástu Ingibjörgu
Árnadóttur, f. 23.1. 1923, frá
Ölversholtshjáleigu í Holtum.
Foreldrar hennar voru Marsibil
Jóhannsdóttir, f. 23.3. 1893, d.
26.12. 1980 og Árni Árnason,
kennari og bóndi, f. 2.11. 1886,
4) Óskar Örn, f. 3.12. 1953, d.
12.7. 1954 og 5) Margrét Þóra,
f. 22.11. 1959, d. 1.7. 1960.
Ásta og Sveinbjörn bjuggu á
Torfastöðum en 1946 keyptu
þau Höfða sem var nýbýli. Þar
bjuggu þau til 1962 er þau
fluttu til Reykjavíkur. Um 1994
hófu þau ræktun trjáa á spildu í
landi Torfastaða og byggðu þar
sumarbústað. Í apríl sl. fluttu
þau síðan austur að Kirkjuhvoli
þar sem hann naut einstakrar
aðhlynningar.
Frá unga aldri hafði Svein-
björn mikinn áhuga á bílum.
Þegar hann hafði fengið rétt-
indi til að aka bíl fékk hann
vinnu hjá Vegagerðinni og ók
bílum fyrir hana en 1946 keypti
hann sinn fyrsta vörubíl, L-10,
sem var hans númer eftir það.
Árið 1963 stofnuðu þeir Óskar
bróðir hans ásamt konum sínum
og tveimur öðrum hjónum
rútufyrirtækið Austurleið h/f.
Sveinbjörn starfaði hjá Aust-
urleið til ársins 1977. Um það
leyti fékk hann starfsleyfi sem
leigubílstjóri hjá Hreyfli og
sinnti leiguakstri þar til hann
hætti vegna aldurs um 1992,
rúmlega sjötugur. Hann var
virkur í félagsmálum leigubíl-
stjóra, hann sat í stjórn stétt-
arfélags Bifreiðastjórafélagsins
Frama og var varaformaður um
tíma.
Útför Sveinbjarnar fer fram
frá Breiðabólstaðarkirkju í
Fljótshlíð í dag, 30. júlí 2011, og
hefst athöfnin kl. 14.
d. 4.9. 1949. Börn
Ástu og Svein-
bjarnar eru: 1)
Erna Marsibil,
fyrrv. skólastjóri, f.
5.6. 1944, gift Jóni
Sverri Garðarssyni,
mjólkurfræðingi, f.
24.9. 1945. Börn
þeirra eru: a)
Sveinbjörn, f. 28.8.
1965, kvæntur
Marcosa Medico, f.
25.4. 1970 og eiga þau 3 börn, b)
Sigrún Eugenio, f. 21.9. 1970,
gift Vitor Hugo Eugenio, f.
16.12. 1975, eiga þau einn son,
c) Ásta Björg, f. 14.8. 1971, gift
Jóhanni Ólafi Steingrímssyni, f.
29.11. 1963, eiga þau 5 börn. 2)
Sigurlín, skólastjóri, f. 3.7.
1947, var gift Gylfa Gunn-
arssyni, endurskoðanda, f. 2.7.
1943, d. 21.4. 2011. Börn hennar
eru: a) Ásbjörn, f. 23.6. 1965,
unnusta hans er Kristi Lysaker,
f. 26.11. 1966, á hann átta börn,
b) Árni, f. 28.4. 1967, kvæntur
Karen Eiríksdóttur Kinchin, f.
25.11. 1969, eiga þau eina dótt-
ur og á Árni eina dóttur af
fyrra sambandi, c) Margrét, f.
3.7. 1977, gift Juan Pulgar, f.
26.1. 1975, eiga þau tvö börn. 3)
Árni, f. 30.8. 1950, d. 4.3. 1951,
Hann pabbi okkar hefur nú
kvatt þetta jarðlíf og langar okkur
að minnast hans hér með nokkr-
um orðum. Pabbi ólst upp við
vinnusemi, hann þurfti snemma
að hjálpa móður sinni við búskap-
inn þar sem faðir hans fór þá oft-
ast á vetrarvertíð til Vestmanna-
eyja. Á þeim tíma voru
búskaparhættir aðrir og krafðist
það mikillar vinnu að afla til fæðis
og klæðis fyrir fjölskylduna. Ung-
ur fékk hann áhuga á bílum og öllu
sem þeim viðvék. Voru þeir Tor-
fastaðabræður; pabbi, Sigurjón og
Óskar annálaðir bíla- og hagleiks-
menn.
Pabbi var ekki mikið heima
þegar við vorum að alast upp því
hann vann svo mikið. En mest af
frítíma sínum var hann í bragg-
anum á Torfastöðum sem bæði
var bílaverkstæði og smíðaverk-
stæði. Hann hafði komið sér upp
töluverðu af verkfærum, m.a. raf-
suðu- og logsuðutækjum. Hann
gerði við bíla fyrir sjálfa sig og
aðra, smíðaði varahluti ef þeir
fengust ekki og margir heyvagnar
og kerrur voru smíðaðar í bragg-
anum. Börnin gleymdust ekki, það
voru smíðaðir skíðasleðar fyrir
okkur systur, dúkkurúm og fleiri
leikföng. Sama var uppi á teningn-
um þegar hann var fluttur til
Reykjavíkur. Þau rúmu 20 ár sem
þau hjón bjuggu í húsi sínu í Heið-
argerðinu voru margir gamlir
bílar gerðir upp í bílskúrnum hans
og komu frá honum eins og nýir
væru. Á efri árum sýndi hann mik-
ið listfengi við útskurð og vann
ótal fallega gripi sem hann gaf
fjölskyldu og vinum.
Óhætt er að segja að pabbi okk-
ar hafi verið drengur góður í þess
orðs fyllstu merkingu og var hann
almennt öllum mjög bóngóður.
Hann var ekki skaplaus en fór
ákaflega vel með það, var glað-
lyndur og brosmildur. Heiðarleg-
ur og hjálpsamur var hann og
traustur sem klettur. Pabbi var
alltaf góður og ljúfur pabbi sem
við bárum mikla virðingu fyrir.
Velferð okkar dætra hans og
seinna barnabarna og langafa-
barna hafði alltaf forgang. Heimili
þeirra var okkur öllum alltaf opið
og öll aðstoð sem þau gátu veitt.
Verður sú umhyggja seint full-
þökkuð.
Hann var ekki vanur að fjöl-
yrða um hlutina en sýndi hug sinn
með verkum sínum og gæðum.
Þau hjónin ferðuðust mikið,
hann tók konuna sína með í rútu-
ferðirnar ef tök voru á. Pabbi
þekkti landið vel og flökkuðu þau
einnig vítt og breitt um það á bíln-
um sínum. Þau ferðuðust einnig
nokkuð til útlanda og höfðu mikla
ánægju af.
Þegar pabbi var kominn á átt-
ræðisaldur var jörð foreldra hans
Torfastaðir seld eftir að hafa verið
í eigu ættarinnar í um 140 ár.
Pabbi og mamma héldu þá eftir
spildu úr landinu og plöntuðu þar
trjám. Fyrir rúmum áratug
byggðu þau þar sumarbústað sem
hefur veitt okkur öllum ómælda
ánægju. Mikill kraftur var í hon-
um við framkvæmdirnar þó kom-
inn væri á efri ár.
Okkur systrum finnst við hafa
átt frábæra barnæsku með bestu
foreldra í heimi. Pabbi hefur alla
tíð verið kjölfestan og fyrirmynd
fyrir okkur öll í fjölskyldunni.
Blessuð sé minning hans.
Erna Marsibil og Sigurlín.
Hann afi minn.
Besti maður sem ég hef haft
heiðurinn af að kynnast er farinn
yfir móðuna miklu eftir löng og
ströng veikindi. Ég man samt ekki
eftir að hafa heyrt hann kvarta
einu sinni. Það var mjög dæmigert
fyrir hann afa. Ég veit einnig að
okkur 29 barnabörnum og barna-
barnabörnum hefði alveg fundist
allt í lagi að hafa afa okkar með
okkur í lágmark 91 ár í viðbót.
Fyrir mitt leyti þá veit ég að
það voru mikil forréttindi að hafa
alist upp í kringum afa. Það var
með ólíkindum hvað maðurinn gat
verið þolinmóður þegar litlir gutt-
ar eltu hann um allar trissur, þeg-
ar verið var að stússa í bílskúrn-
um, þrífa rútu, eða bera á
sumarbústaðinn. Og svo þegar
litlir puttar óhjákvæmilega kom-
ust í eitthvað sem þeir áttu ekki að
fikta við þá var aldrei skammast
heldur var litlum höndum leið-
beint hvernig væri rétt að standa
að málunum. Í leiðinni lærðum við
ekki einungis praktíska hluti eins
og hvernig á að skipta um stýr-
isenda á Saab 96 eða rétt handlag
með orf og ljá, heldur einnig mik-
ilvægari lærdóma eins og þolin-
mæði, virðingu og sjálfstraust.
Hann afi var ekki mikið fyrir að
tala um hluti, hann lagði frekar
áherslu á að láta verkin tala fyrir
sig. Nýlega var RÚV með frétta-
flutning af bónda nokkrum sem
byggði sér vindrafstöð til að knýja
bú sitt. Afi og Óskar bróðir hans
gerðu slíkt hið sama fyrir rúmlega
50 árum við Höfða í Fljótshlíð án
þess að hafa fyrir því að tilkynna
það fjölmiðlum.
Annað skemmtilegt dæmi er
þegar amma tók einn daginn eftir
því að allir öskubakkar á heimilinu
voru búnir að vera tómir í nokkra
daga og spurði afa hvernig stæði á
því. Hans svar var að honum var
farið að finnast að hann væri að
verða háður reykingunum og þess
vegna hefði hann ákveðið að hætta
þessu. Þetta var eftir að hann
hafði reykt 2 pakka af filterslaus-
um sígarettum á dag í nokkra ára-
tugi.
Það hefur heldur ekki verið
ónýt arfleifð að vera kenndur við
afa. Það eru ótal dæmi í gegnum
ævina sem ég hef upplifað að vera
spurður hverra manna ég væri og
eftir að hafa nefnt afa á nafn hefur
viðlagið í hvert einasta skipti verið
á sömu leið; að þar sé sérstaklega
góðum að líkjast. Iðulega fylgdi
einnig einhver skemmtileg saga,
t.d. um hvernig viðkomandi hefði
oft fengið sem ungur piltur far
með afa í vörubílnum, eða unga
móðirin sem stóð peningalaus með
barnaskarann niðri á BSÍ og
þurfti að komast í flug með hópinn
þegar afi kom þar að í leigubíln-
um. Auðvitað skutlaði afi hópnum
endurgjaldslaust. Þannig maður
var hann.
Þín verður sárt saknað.
Árni Jensen.
Þegar ég hugsa um hann afa
minn þá er það fyrsta sem mér
kemur til hugar nýrökuð kinn
hans ilmandi af Old Spice og stórt
bjarnarknús. Afi var alltaf svo
snyrtilegur og vel tilhafður að
ógleymdum hattinum sem hann
fór aldrei án. Ekki var hægt að sjá
á honum að hans uppáhaldsstaður
væri úti í bílskúr að grúska. Í mín-
um huga mun hann alltaf vera eins
konar ofurmenni sem gat allt.
Hann gat gert við hvað sem var,
og ekki að spyrja að því að hann
var alltaf til taks ef eitthvað vant-
aði því afi gat alltaf reddað manni.
Alltaf átti hann líka grænan ópal í
vasanum sem var bráðnauðsyn-
legt í bíltúrum í leigubílnum.
Hann kenndi mér ótal margt í
gegnum árin en það sem stendur
upp úr er vinnusemi og að ekkert
verk er of ómerkilegt. Einnig vil
ég meina að hann hafi gefið mér
þann hæfileika að geta gert við
vélar og tæki. Ég á mér hlýjar
minningar úr bílskúrnum hans
með hausinn ofan í vélarhúddi,
spyrjandi spurninga um hvað
þessi hlutur og hinn hluturinn
gerði og alltaf svaraði hann með
mestu þolinmæði. Þegar ég fékk
að smíða með honum pallinn fyrir
framan litla húsið í Múlakoti,
hrósaði hann mér fyrir hvað ég
var dugleg að negla og ég held að
það hrós hafi þýtt meira fyrir mig
en nokkuð annað. Það var merki-
legt að það var alveg sama hvað
gekk á um daginn, ef maður sett-
ist hjá afa þá vissi maður einhvern
veginn að allt myndi vera í lagi.
Af öllum þeim minningum sem
flæða fram þegar maður lítur til
baka er eflaust sú besta að vita til
þess að þarna var maður sem ég
sá aldrei fúlan eða reiðan og vildi
öllum vel. Hann sagði aldrei mikið
enda þurfti hann þess ekki til að
maður skildi. Maður þurfti heldur
ekki að segja neitt við hann því
þögnin var svo náttúrleg. En eitt
er víst að þegar hann talaði þá
hlustuðu allir vel því þá vissi mað-
ur að það skipti máli.
Ég kveð hann afa minn með
miklum söknuði en veit líka í
hjarta mínu að ef einhver á það
skilið að hvíla sig þá er það hann.
Hann var búinn að vinna sér inn
hvíld fyrir löngu. Ég er honum
óendanlega þakklát fyrir allt sem
hann kenndi mér og allt það sem
hann gaf mér í gegnum árin. Hann
var heimsins besti afi og mun allt-
af eiga stóran hluta af hjarta mínu
og huga. Ég tek nú með mér inn í
framtíðina þennan lærdóm og
vonast til að geta verið brot af því
stórmenni sem hann var og gert
hann stoltan þegar hann lítur nið-
ur til mín.
Litla afastelpan,
Margrét.
Hann afi minn var ekki maður
margra orða heldur kom dugnað-
urinn, snyrtimennskan og vænt-
umþykjan fram í verkum hans.
Aldrei féll honum verk úr hendi og
sá maður hann aldrei öðruvísi en
að gera við bíla eða bóna þá,
snyrta eða lagfæra húsakynni
þeirra hjóna bæði utan dyra og
innan. 79 ára gamall lagðist hann í
það stóra verkefni að koma upp
sumarhúsi í Strákateig í Fljóts-
hlíð, og voru ekki alltaf nýtísku-
vélar notaðar heldur farið í verk-
efnið með handaflinu einu saman.
Þegar ég bjó vestur á Patreks-
firði voru farnar margar ferðir til
Reykjavíkur og þá gistum við oft-
ast hjá ömmu og afa. Ég var ekki
gömul þegar ég áttaði mig á hvað
það var gott að vera hjá ömmu og
afa. Í eitt skiptið eftir slíka heim-
sókn faldi ég mig á róluvellinum
sem var við hliðina á húsinu
þeirra, ég vildi alls ekki fara heim
heldur vildi ég vera hjá þeim. Og
ekki var slæmt þegar komið var til
Reykjavíkur að eiga afa sem var
leigubílstjóri. Hann fór með okkur
í ótal bíltúra, í sundlaugarnar og í
allar þær útréttingar sem þurfti
að sinna þegar komið var í höf-
uðstaðinn.
Margar eru minningarnar um
afa eins og þegar ég var nýkomin
með bílpróf og afi lánaði mér
gamlan Saab sem hann var búinn
að gera upp. Skiptingin á bílnum
var hjá stýrinu en þannig bíl hafði
ég aldrei keyrt áður. Þrátt fyrir
reynsluleysið fannst afa sjálfsagt
að ég fengi bílinn lánaðan.
En ein er sú minning og sú saga
sem amma hefur oft sagt mér í
gegnum árin sem er mér sérstak-
lega kær. Foreldrar mínir voru í
ferðalagi og ég var í pössun uppi í
Borgarfirði. Amma og afi voru í
litla húsinu sínu (eins og það var
kallað) í Fljótshlíðinni. Þeim barst
það til eyrna að eitthvað gengi illa
með mig í sveitinni og gerði afi sér
þá lítið fyrir og keyrði alla leið í
Borgarfjörðinn til að sækja mig
og fór með mig í litla húsið í
Sveinbjörn
Sigurjónsson
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 8284 / 551 3485
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947
✝
Ástkær stjúpmóðir mín, tengdamóðir,
systir og mágkona,
ELÍN INGVARSDÓTTIR,
lést að Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn
17. júlí.
Jarðarförin hefur farið fram, í kyrrþey, að ósk
hinnar látnu. Innilegar þakkir til allra sem
sýndu okkur umhyggju og hlýhug.
Fyrir hönd ættingja,
Kristjana Ragnarsdóttir, Haraldur E Logason,
Ráðhildur Ingvarsdóttir, Sigurgestur Ingvarsson.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EGILL JÓNASSON STARDAL
cand mag,
Brúnalandi 6,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalnum Fossvogi laugar-
daginn 23. júlí verður jarðsettur frá Lágafells-
kirkju þriðjudaginn 2. ágúst og hefst athöfnin
klukkan 13.00.
Inga Fanney Egilsdóttir, Sigurður Arason,
Jónas Egilsson, Steinunn Ingibjörg Pétursdóttir
Kristrún Þórdís Egilsdóttir Stardal,
og barnabörn
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SIGRÍÐUR VALDIMARSDÓTTIR
frá Bringu í Eyjafirði,
lést á Kjarnalundi miðvikudaginn 27. júlí.
Jarðarför hennar verður gerð frá
Munkaþverárkirkju kl. 13.30 þriðjudaginn 2. ágúst.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Sverrir Gunnarsson,
Vignir Gunnarsson, Bergljót Jónsdóttir,
Kristbjörg Gunnarsdóttir, Jón Matthíasson,
Valdimar Gunnarsson, Svava Jóhannsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur og bróðir,
ELMAR HALLDÓRSSON,
Þiljuvöllum 37,
Neskaupstað,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 24. júlí.
Útför hans fer fram frá Norðfjarðarkirkju
miðvikudaginn 3. ágúst kl. 14.00.
Bergþóra Stefánsdóttir,
Stefán Einar Elmarsson, Aðalbjörg Ósk Guðmundsdóttir,
Katrín Unnur Elmarsdóttir,
Melkorka Elmarsdóttir, Margeir Örn Óskarsson,
Tómas Styrmir Stefánsson,
Oliver Snær Stefánsson,
Fanney Ósk Sveinbjörnsdóttir,
Kristín Elma Margeirsdóttir,
Halldór Hinriksson,
og systkini hins látna.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og stjúpmóðir,
KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR,
Vallholti 2,
Ólafsvík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut aðfaranótt mánudagsins 25. júlí.
Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 6. ágúst
kl. 14.00.
Per Sören Jörgensen,
Bjarney Jörgensen, Jón Þór Lúðvíksson,
Gígja, Janus og Hilma,
Þuríður Jörgensen, G. Marel Sigurðss