Morgunblaðið - 09.08.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
www.noatun.is
www.noatun.is
Pantaðu veisluna þína á
eða í næstu Nóatúns verslun
Grillveislur
1299
Á MANN
VERÐ FRÁ
MEÐ MEÐL
ÆTI
Grísahnakkasneiðar
Lambalærissneiðar
Kjúklingabringur
Lambafille
Þín samsetning
Grillveislur Nóatúns
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Geir Gunnlaugsson landlæknir segir
fulla ástæðu til þess að hafa áhyggj-
ur af stöðu heilsugæslunnar. Lausn-
in á þeim vanda sem hún stendur
frammi fyrir sé hins vegar margþætt
og ekki bara við stjórnvöld að sakast.
„Hver heilbrigðisstofnun verður að
skoða málin hispurslaust,“ segir
hann. „Við erum að kljást við alþjóð-
legan vinnumarkað, við erum að
kljást við innri vanda hér á Íslandi,
við erum að kljást við efnahags-
þrengingar og við erum að kljást við
vaxandi kröfur til læknanna og
heilsugæslunnar á margs konar
hátt.“ Lúðvík Ólafsson, lækningafor-
stjóri Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins lýsti því nýverið, í viðtali
við Morgunblaðið, sem hann kallar
hrun heilsugæslunnar og var í kjöl-
farið boðaður á fund í velferðarráðu-
neytinu vegna ummæla sinna.
Fjöldi lækna að komast á aldur
Í minnisblaði sem Lúðvik sendi
Guðbjarti Hannessyni velferðarráð-
herra fer hann yfir aðfinnslur sínar
og skýrir val sitt á orði til þess að
lýsa ástandinu: „Það er hrun þegar
fólk sem þarf á lækni að halda verður
að láta sér nægja minni eða verri
þjónustu eða nær ekki læknisfundi á
réttum tíma,“ skrifar hann.
Lúðvík segir heilsugæslu á höfuð-
borgarsvæðinu hafa búið við van-
mönnun frá fyrstu tíð. Ástandið hafi
hins vegar versnað á undanförnum
árum. „Fyrir nokkrum árum sóttu
um hverja stöðu heimilislæknis, sem
auglýst var á höfuðborgarsvæðinu,
um og jafnvel yfir 10 sérfræðingar í
heimilislækningum. Nú telst gott að
fá eina umsókn,“ segir í minnis-
blaðinu. Á næstu tíu árum muni 51
heimilislæknir af 193 á landinu, þar
af 34 á höfuðborgarsvæðinu, ná 70
ára aldri og 76 ná 65 ára aldri, þar af
50 á höfuðborgarsvæðinu. Sé miðað
við að heimilislæknar starfi til 70 ára
aldurs og að brottfall af öðrum
ástæðum verði 15%, svo sem búferla-
flutningum, þarf að ráða sex nýja
heimilislækna á ári til þess að halda í
horfinu. Þá er ekki tekið tillit til
mannfjölgunar. Lúðvík segir vand-
ræði heilsugæslunnar munu birtast
annars staðar í heilbrigðiskerfinu
„og vísast lækka þjónustustig þess“.
Verði eftirsóknarvert starf
Geir segir enga „patentlausn“ á
þessum vanda að finna. Hann telur
hins vegar mikilvægt að starf heilsu-
gæslunnar sé skipulagt með þeim
hætti að þar sé eftirsóknarvert að
vinna. „Norðmenn hafa ekki leyst
þetta hjá sér. Þeir nota peninga til
þess að laða til sín fólk. Við höfum
ekki þann möguleika, ekki á sama
hátt, og þurfum að leita annarra
leiða,“ segir Geir. Mikilvægt sé að
forsvarsmenn heilbrigðisstofnana
taki frumkvæðið í þeirri viðleitni og
velti hverjum steini við.
Ekki leyst með peningum
Fjöldi heimilislækna nálgast eftirlaunaaldur og stefnir í óefni ef nýliðun eykst
ekki í greininni Landlæknir segir vandann ekki verða leystan með peningum
„Norðmenn hafa ekki
leyst þetta hjá sér. Þeir
nota peninga til þess að
laða til sín fólk.“
Geir Gunnlaugsson
Vart hefur farið framhjá nokkrum manni sem
leið hefur átt um miðborg Reykjavíkur að und-
anförnu að háannatími er í ferðamennsku.
Hvert sem litið er má sjá ferðamenn virða fyrir
sér það sem fyrir augu ber. Og þótt ósagt skuli
látið hvort við Tjörnina hafi í gærkvöldi setið
erlendir ferðamenn er víst að parið naut lífs-
ins, tók ljósmyndir hvort af öðru og Reykjavík-
urborg.
Rómantík við Reykjavíkurtjörn
Morgunblaðið/Ernir
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Ákveðið var í gær að gera vikuhlé á
samningaviðræðum í kjaradeilu leik-
skólakennara og sveitarfélaga. Við-
semjendur voru á sáttafundi hjá rík-
issáttasemjara í gær en lítill árangur
náðist í viðræðunum og tók hann þá
ákvörðun að fresta þeim.
Að sögn Ingu Rúnar Ólafsdóttur,
formanns samninganefndar sveitar-
félaga, er ekki mikill ágreiningur um
annað en launamálin.
„Það ber enn dálítið mikið á milli í
launaliðum,“ segir Inga Rún en vill þó
ekki segja hve mikið. „Við áttum góð-
an fund í dag en höldum áfram næsta
mánudag.“ Þá er einungis vika eftir í
verkfall og þegar spurt er hvort það
sé ekki knappur tími segir Inga Rún
að tíminn fram að næsta fundi verði
nýttur vel til undirbúnings.
Munar um 11% á launaliðum
Haraldur Freyr Gíslason, formað-
ur Félags leikskólakennara, segir að
enn muni um 11% á launaliðum. Byrj-
unarlaun leikskólakennara eftir
þriggja ára háskólanám séu kr.
247.000 á mánuði og þeir séu einfald-
lega að sækja leiðréttingu. Kreppan
hafi haft þau áhrif að þeir hafi dregist
aftur úr viðmiðunarstéttum á borð við
kennara sem séu nú með um 20%
hærri laun. Þar sé miðað við heild-
arlaun þar sem leikskólakennarar eigi
ekki möguleika á að fá greidda yfir-
vinnu. Hvorki unna né óunna.
Haraldur hefur boðað til stjórnar-
fundar í Félagi leikskólakennara á
miðvikudag til að fara yfir stöðuna.
„Við þurfum að fara að huga að
verkfallinu, setja verkfallsnefnd og
gera allt klárt ef svo illa fer. Við erum
búin að hafa endalausan tíma en það
hefur ekkert þokast í samkomulagsátt
núna.“
Hafa boðað til verkfalls 22. ágúst
Leikskólakennarar hafa boðað til
verkfalls 22. ágúst næstkomandi, náist
samningar ekki fyrir þann tíma.
Samningaviðræður hófust fyrir jól á
síðasta ári. Þeim var vísað til ríkis-
sáttasemjara í mars. Haraldur segir
að beðið hafi verið niðurstöðu kjara-
viðræðna á almennum markaði en að-
ilar hafa fundað reglulega síðan með
fyrrgreindum árangri.
Lítill árangur í viðræð-
um við leikskólakennara
Strandar enn á launaliðum Búa sig undir verkfall
Höskuldur Þór-
hallsson, þing-
maður Fram-
sóknarflokksins,
segir þing-
mannahópinn
sem skipaður er
sex þingmönnum
stjórnarflokk-
anna og hefur
undanfarið unnið
að gerð fjárlaga-
ramma ekki starfa lögum sam-
kvæmt. Það sé framkvæmdavaldsins
að leggja fram frumvarp til fjárlaga.
Í kjölfar þess komi löggjafarvaldið,
Alþingi, að málinu og taki það til efn-
islegrar meðferðar.
Niðurlæging við Alþingi
Þingflokkar Samfylkingarinnar
og Vinstri grænna héldu sameig-
inlegan vinnufund langt fram á gær-
kvöld um gerð fjárlaga næsta árs.
Flokkarnir eru með minnsta meiri-
hluta á þingi og reynir því á sam-
stöðu. Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður
Framsóknarflokksins, greindi frá
því í gærkvöldi að hann hefði heim-
ildir fyrir því að hækkun virð-
isaukaskatts á matvæli væri eitt af
því sem rætt hefði verið við vinnuna.
„Núna er löggjafarvaldið með
puttana í þessu, að semja grunninn
að því sem það ætlar svo sjálft að
taka til efnislegrar meðferðar, gagn-
rýna og leita umsagna um,“ segir
Höskuldur. „Valdamestu mennirnir
í því ferli verða sem sagt með sitt
eigið afkvæmi til meðferðar [á Al-
þingi]. Það er algjörlega verið að
blanda saman framkvæmdavaldi og
löggjafarvaldi og um leið verið, að
mínu mati, að niðurlægja Alþingi.“
einarorn@mbl.is
Eigið af-
kvæmi til
meðferðar
Höskuldur
Þórhallsson
Framkvæmdavald
sinni fjárlagagerðinni
N1 lækkaði í gær verð á eldsneyti.
Lítrinn af bensíni hefur lækkað um
tvær krónur og lítrinn af dísilolíu um
eina krónu. Skýring breytinganna er
lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu.
Lítrinn af bensíni kostar nú 237,80
krónur á bensínstöðvum N1 og lítr-
inn af dísil 238,80 krónur.
Bæði Orkan og Atlantsolía hafa
einnig lækkað verð á eldsneyti
Bensín lækkar