Morgunblaðið - 09.08.2011, Page 6
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það hefur gengið ákaflega vel að
taka á móti skemmtiferðaskipum í
sumar. Reyndar þurfti eitt skip að
aflýsa komu sinni í vikunni vegna
þess að það lenti í slæmu veðri á
Grænlandssundi. Nú stefnir í að 31
skip komi hér til hafnar í sumar og
með þeim komi um 21.400 farþegar,“
segir Guðmundur M. Kristjánsson,
hafnarstjóri í Ísafjarðarbæ, um
fjölgun skemmtiferðaskipa.
Gott fyrir rekstur hafnarinnar
Hann segir skipin góða búbót.
„Við áætlum að tekjur hafnarinn-
ar vegna komu skemmtiferðaskipa í
sumar verði á bilinu 32 til 34 millj-
ónir. Það er aukning frá fyrra ári. Í
fyrrasumar voru tekjur af skemmti-
ferðaskipum á milli 30 og 31 milljón
króna og voru þá um fjórðungur af
120 milljóna árstekjum hafnarinnar.
Þetta fór að taka verulega við sér
fyrir fimm til sex árum. Árið 2003
komu hingað 10 skip. Þetta hefur því
þrefaldast á tæpum áratug.“
Stærri skip og fleiri farþegar
Aðspurður um útlitið framundan
kveðst hann fullur bjartsýni.
„Forbókanir fyrir næsta ár ganga
mjög vel. Heildarstærð skipa sem
koma í ár er um 800.000 brúttótonn.
Talan fyrir næsta ár er hins vegar
þegar komin yfir milljón og gæti
heildartalan farið í 33 skip. Svo er
það hitt að skipin eru alltaf að
stækka. Farþegum fjölgar því hrað-
ar en fjölgun skipa segir til um.
Því má búast við að eftir fjögur
eða fimm ár verðum við komin í
40.000 farþega. Þá er gaman að
segja frá því að fyrirtækið Aída-
Cruises hefur bókað þrjár komur ár-
ið 2013. Þeir hafa aldrei komið
hingað áður. Það lít-
ur út fyrir að hing-
að komi hátt í 5.000
manns í þessum
þremur
komum,“
segir
Guð-
mundur og lýsir ánægju sinni með
þróunina.
Daníel Jakobsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar, segir tölur frá fyrri
helmingi ársins sýna að fleiri hafi
flutt til Ísafjarðar en frá bænum,
þvert á þróunina á Vestfjörðum.
„Við erum í mikilli vörn en höfum
tækifæri til að snúa vörn í sókn,“
segir bæjarstjórinn sem fagnar
fjölgun skemmtiferðaskipa.
Sýnir réttmæti vegabóta
„Skemmtiferðaskipum hefur
fjölgað og ferðaþjónustan náð frá-
bærum árangri. Það hefur sýnt sig
að það er beint samhengi á milli
ferðamanna og vegsamgangna.
Tjaldstæðin hafa verið þétt setin eft-
ir að leiðin var malbikuð til okkar
alla leið frá höfuðborginni. Íslensk-
um ferðamönnum fjölgar hratt.
Maður er stöðugt að hitta fólk sem
segist aldrei hafa komið hingað áður.
Þessi þróun undirstrikar að það þarf
að ráðast í gerð Dýrafjarðarganga.
Ferðaskrifstofurnar eru að
óbreyttu ekki spenntar fyrir því að
fara suðurhluta Vestfjarða á rútum.“
Fyllir bæinn af fólki
Ísfirðingar njóta góðs af stöðugri fjölgun skemmtiferðaskipa Stefnir í að
40.000 manns komi með skipunum sumar hvert Skapar dýrmætar tekjur
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Fögur fley Skemmtiferðaskiptið MV. Marina (stærra skipið fjær) og Le Boreal liggja samtímis við Ísafjarðarhöfn í sumar.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
KEMUR Þ
ÉR
Á ÓVART!
fyrst og fremst ódýrt
Mál á hendur 25
ára gömlum
karlmanni sem
ákærður er fyrir
að verða unnustu
sinni og barns-
móður að bana í
maí sl. verður
þingfest í Hér-
aðsdómi Reykja-
ness eftir hádegi
í dag.
Maðurinn ók með konuna, sem
var á 21. aldursári, upp í Heiðmörk
þar sem hann réðst á hana og veitti
áverka sem leiddu til dauða hennar.
Í kjölfarið ók hann með hana að
Landspítalanum í Fossvogi og gaf
sig fram.
Maðurinn er vistaður á rétt-
argeðdeildinni á Sogni og hefur
verið úrskurðaður ósakhæfur af
geðlæknum. Endanleg ákvörðun
um sakhæfi hans er hins vegar í
höndum dómara. Greint var frá því
í fjölmiðlum í gær, að ákæruvaldið
mundi fara fram á að þinghald yrði
lokað, til hlífðar þeim sem málið
varðar. andri@mbl.is
Þingfesting í mann-
drápsmáli í dag
Skottið Maðurinn
ók að Landspítala.
Betur fór en á horfðist þegar ung
kona velti bíl sínum við Baldurs-
heimsveg í Mývatnssveit í gærmorg-
un. Konan sem var ein í bílnum slapp
með minniháttar meiðsli en bifreiðin
er talin ónýt. Hún var engu að síður
flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri til
skoðunar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu er talið að konan hafi sofnað
undir stýri með fyrrgreindum afleið-
ingum. Hún var í bílbelti sem hefur
að öllum líkindum skipt sköpum.
Sofnaði undir stýri
og velti bíl sínum
Þrettán öku-
menn voru teknir
fyrir að aka und-
ir áhrifum fíkni-
efna á höfuð-
borgarsvæðinu
um helgina. Þá
voru sjö öku-
menn teknir fyr-
ir ölvunarakstur.
Tíu þeirra sem reyndust undir
áhrifum vímuefna voru stöðvaðir í
Reykjavík og þrír í Kópavogi. Um
var að ræða ellefu karla á aldrinum
17-32 ára og tvær konur á þrítugs-
aldri. Sjö þessara ökumanna höfðu
þegar verið sviptir ökuleyfi.
Fjórir ölvuðu ökumannanna voru
karlar á aldrinum 17-48 ára og
þrjár konur, 20-63 ára.
Tuttugu undir áhrif-
um í umferðinni „Með fleiri skipum koma fleiri
vinnudagar. Þetta hefur verið að
aukast jafnt og þétt á síðustu ár-
um. Við tökum á móti farþegum
og förum með þá í bátsferðir,
annars vegar inn í Vigur og hins
vegar inn á Hesteyri. Svo förum
við í rútuferðir um svæðið og
komum m.a. við á Bolungarvík
og Flateyri,“ segir Birta Jón-
asdóttir, starfsmaður hjá Vest-
urferðum, um sumarvertíðina.
„Hér er bullandi uppgangur í
ferðaþjónustu. Júní var
þó rólegur. Hann
var kaldur. Það
hefur hins vegar
verið brjálað að
gera í júlí
og fullt í all-
ar ferðir.“
Mikil uppgrip
FULLT Í ALLAR FERÐIR
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
„Ef við eigum að fara að bera ábyrgð
á sköttum einstaklinga þá er ljóst að
við getum ekki tekið að okkur þann-
ig vinnu,“ segir Guðmundur Kjart-
ansson, áhættu- og gæðastjóri hjá
endurskoðunar- og ráðgjafarfyr-
irtækinu Deloitte. Forsvarsmenn fé-
lagsins eru ósáttir við vinnubrögð
dómsvaldsins í nýlegu máli þar sem
forsvarsmenn félaga voru sýknaðir
af skattalagabrotum á grundvelli
þess að þeir hefðu leitað sér að-
stoðar hjá fagaaðila, Deloitte.
Fjallað var um málið í föstudags-
blaði Morgunblaðsins 5. ágúst sl.
Komu ekki að málinu
„Mér finnst þetta furðulegt mál.
Þetta er líka spurning um vinnu-
brögð. Við höfnum því að við höfum
gert mistök í þessu máli og okkur
finnst orðspor hafa skaðast að vissu
leyti af málinu. Við tókum aldrei
ákvörðun fyrir þessa aðila. Þeir
komu með þetta tilbúið og við sett-
um þetta í formið. Við aðstoðuðum
einungis við framtalsgerð á grund-
velli þeirra gagna sem við fengum
frá þeim. Við skrifuðum ekki einu
sinni undir ársreikninginn, segir
Guðmundur. „Við vorum ekki leidd
sem vitni í málinu eða neitt slíkt.“
Ábyrgðin ekki fagaðilans
Guðmundur telur að sumir hafi
túlkað dóminn þannig að forsvars-
menn félaga geti yfirfært ábyrgðina
yfir á þann fagaðila er þeir fela að
sjá um skattskil sín. Það sé hins veg-
ar í ósamræmi við skattalögin því þá
geti aðilar fríað sig ábyrgð með því
að fara til fagaðila. Vinna fagaðilans
byggist á þeim gögnum sem hann fái
frá umbjóðanda sínum. Umbjóðand-
inn beri því sjálfur endanlega
ábyrgð á sínum skattskilum líkt og
lög gera ráð fyrir.
Deloitte ósátt við vinnubrögð
dómsvaldsins í dómsmáli
Hafna því að hafa gert mistök Ábyrgðin ekki þeirra
Ekki fordæmisgefandi
» Þar sem Deloitte var ekki
aðili að málinu hafði félagið
ekki færi á að áfrýja dómnum
en frestur til áfrýjunar rann út
þann 27. júlí sl.
» Ákæruvaldið hefur ekki
áfrýjað dómnum til Hæsta-
réttar en hefði það verið gert
hefði fengist skorið úr for-
dæmisgildi hans.
Læknishúsið
á Hesteyri