Morgunblaðið - 09.08.2011, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Litlatún í Garðabæ
- verslunarkjarni í alfaraleið
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég yrði verulega óhress ef svona
skemmdir kæmu fram á 30 ára
gömlu húsi. Klæðningin á bygging-
unni er illa skemmd,“ segir Björn
Marteinsson, arkitekt og verkfræð-
ingur, spurður um skemmdir á
klæðningu Öskju, náttúrufræðahúss
Háskóla Íslands í Vatnsmýri.
Eins og þeir sem komið hafa að
byggingunni nýlega geta vitnað um
er hún víða illa ryðguð.
Gæti hlaupið á tugum milljóna
Ræðir þar annars vegar um hlið-
ina sem snýr að flugvellinum til suð-
urs og um hliðina sem snýr til vest-
urs, eða í átt að aðalbyggingu
Háskóla Íslands. Björn telur ljóst að
viðgerð á húsinu verði dýr.
„Það er tvennt sem kemur til
greina; að festingar hafi ekki hentað
klæðningarefnum og svo hitt að það
sé galli í yfirborðshúðinni. Það er
deilt um hvort er tilfellið,“ segir
Björn sem telur aðspurður ljóst að
kostnaðurinn hlaupi á milljónum, ef
ekki tugum milljóna króna.
Þarf að skipta um ysta lagið
Guðmundur Kr. Guðmundsson
arkitekt hannaði núverandi höfuð-
stöðvar Seðlabanka Íslands.
„Þetta er ysta lag kápunnar þann-
ig að það verður að skipta um þetta
efni,“ segir Guðmundur sem kveðst
„hissa á því að það skuli ekki hafa
verið gert“. „Annað hvort er hér á
ferð röng efnismeðferð eða þá hitt að
efnið sé gallað.“
Fram kemur á vef Háskóla Ís-
lands að kostnaður við Öskju hafi
numið 2.400 milljónum kr. þegar
húsið var vígt í apríl 2004. Sé upp-
hæðin framreiknuð er núvirðið 3.150
milljónir kr, samkvæmt útreikningi
Seðlabanka Íslands.
Guðmundur R. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála og reksturs
hjá Háskóla Íslands, segir ekki
ákveðið hvenær gert verði við húsið.
Horft sé til vandaðrar viðgerðar sem
kosti tugi milljóna króna, fremur en
ódýrari lausnar sem vari skemur.
Féð verði sótt í sjóð sem happdrætti
HÍ stendur undir. Kostnaðurinn geti
því hægt á öðrum framkvæmdum.
Guðmundur segir jafnframt að
unnið sé að tilraunum með viðgerðir
og að deilt sé um ástæður ryðsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kominn tími á viðhald Suðurhluti Öskju er illa farinn af ryði. Deilt er um hvort skipta þurfi um klæðningu.
Sjö ára og illa ryðguð
Klæðningin á suður- og vesturhluta Öskju, náttúrufræðahúss HÍ, er skemmd
Húsið var vígt árið 2004 Kostnaður var á fjórða milljarð króna á núvirði
Dr. Maggi Jónsson arkitekt
hannaði Öskjuna. Hann segir
viðhaldið ekki vera í sínum
verkahring.
„Ég stjórna því ekki. Ég veit
ekki hvenær til stendur að end-
urmála húsið. Það er búið að
rannsaka þetta heilmikið og
þykir nú ljóst að vandamálið er
málningin. Það þarf að endur-
mála húsið. Hvenær það verður
gert er hins óákveðið. Málningin
tollir ekki á hluta af húsinu.“
– Þarf nýja klæðningu?
„Nei. Það held ég ekki.
Klæðningin er þykk og hún er
ekki orðin svo tærð að grípa
þurfi til þess. Eftir því sem ég
best veit hefur hún ekki þynnst
svo alvarlega. Ég hef þó ekki
skoðað þetta nýlega.“
Má rekja til
málningarinnar
ARKITEKT RÆÐIR VANDANN
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Illa farið Samskeyti á klæðn-
ingu við glugga eru illa farin.