Morgunblaðið - 09.08.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
sími 540 3200 · www.mp.is
Við leggjum áherslu á persónulega
þjónustu fyrir fólk og fyrirtæki og skjóta
afgreiðslu mála í síma- og þjónustuveri.
Þannig á banki að vera og þess vegna
eru meira en 90% viðskiptavina ánægð
með þjónustuna hjá okkur.
Við tökum vel á móti þér!
Debetkort
Launareikningar
Sparnaðarreikningar
Kreditkort
Netbanki
Erlend viðskipti
Útlán
Ef þú skiptir um banka,
þá læturðu ekki einhvern
annan velja hann fyrir þig!
Jónína Gunnarsdóttir, viðskiptastjóri í þjónustuveri
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Össur Skarphéðinsson komfyrir Rannsóknarnefnd Al-
þingis á sínum tíma og sagðist
þar eiðsvarinn ekki hafa hunds-
vit á efnahags- og bankamálum.
En hann var sem kunnugt er að-
alfulltrúi Samfylkingarinnar um
viðbrögð við falli bankans Glitn-
is.
Nú segir Össurum atburðina
í Evrópu og þá
sjálfsagt í krafti
þess vits sem fært
var til bókar: „Og
ég tel að evran
komi miklu sterk-
ari út úr því en hún er í dag og
það eru góðar fréttir, ekki bara
fyrir Evrópu og heiminn heldur
ekki síst fyrir Ísland sem er að
velta fyrir sér að gerast aðili að
myntbandalaginu því ef við yrð-
um aðilar að ESB eigum við kost
á því að taka upp evruna. Það er
í augum margra eftirsóknarvert
að því gefnu að það sé búið að
taka til á fjármagnsmörkuðum
Evrópu.“
Það er nú reyndar svo að þauríki sem gerast aðilar ESB
neyðast til að taka upp evru,
nema þau nái að kría út sérstaka
undanþágu. Er lakara að Össur
hafi ekki verið upplýstur um
það, sem hefði þá verið til við-
bótar annarri þekkingu hans á
efnahags- og bankamálum.
Nauðsynlegt er að yfirlýsingÖssurar verði þýdd af ein-
hverjum þeirra tuga þýðenda
sem hann hefur látið ráða. Í
Evrópu er nefnilega fjöldi
manna með miklar áhyggjur af
þróun mála, og vita ekki að hér
er aðeins um smátiltekt að ræða,
og bara til bóta þegar upp verð-
ur staðið.
Skyldu evrópskir hundar vitaþetta líka?
Össur
Skarphéðinsson
Hamingjuríkt hrun
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.8., kl. 18.00
Reykjavík 14 heiðskírt
Bolungarvík 13 léttskýjað
Akureyri 10 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 15 léttskýjað
Vestmannaeyjar 14 heiðskírt
Nuuk 13 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 17 léttskýjað
Kaupmannahöfn 15 skúrir
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 20 skýjað
Lúxemborg 16 léttskýjað
Brussel 12 skúrir
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 heiðskírt
London 21 léttskýjað
París 16 skúrir
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 15 skúrir
Berlín 16 þrumuveður
Vín 18 skýjað
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 28 heiðskírt
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 30 heiðskírt
Chicago 25 alskýjað
Orlando 32 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:00 22:07
ÍSAFJÖRÐUR 4:48 22:30
SIGLUFJÖRÐUR 4:30 22:13
DJÚPIVOGUR 4:25 21:41
Kafarar sprengjudeildar Landhelg-
isgæslu Íslands fundu í gær stél af
flugvélasprengju í Kleifarvatni.
Sprengjusérfræðingum Gæslunnar
er það hulin ráðgáta hvernig stél
sprengjunnar, líklega af tegundinni
MK 83 og vegur 450 kg að þyngd,
hafnaði í vatninu. Hugsanlega hafi
hann þó verið notaður við æfingar
Varnarliðsins í Kleifarvatni.
Kafarar björgunarsveitar Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar í
Hafnarfirði tilkynntu um torkenni-
legan hlut í vatninu. Ákveðið var að
rannsaka hann og fannst hluturinn
fljótlega eftir að köfun hófst. Að því
er segir á vef Gæslunnar var stélið
flutt á land eftir að sprengju-
sérfræðingar voru fullvissir um að
það væri ekki hættulegt.
Fundu stél
af sprengju
Lögreglan á Sel-
fossi kærði 23
ökumenn fyrir of
hraðan akstur í
umdæminu í lið-
inni viku og
nema álagðar
sektir um 1.100
þúsundum króna.
Samkvæmt
upplýsingum frá
lögreglunni óku
tveir þeirra það hratt að þeir verða
sviptir ökurétti, annar á 149 km/
klst hraða og sætir eins mánaðar
sviptingu en hinn á 154 km/klst
hraða og sætir tveggja mánaða
sviptingu.
Einnig voru tveir kærðir fyrir að
aka fram úr öðru ökutæki þar sem
bann er við framúrakstri. Þá var
einn kærður fyrir að nota ekki ör-
yggisbelti og annar reyndist án
ökuréttinda en hann gleymdi að
endurnýja þau þegar gildistími
ökuskírteinis hans rann út.
Sextán umferðaróhöpp voru til-
kynnt og urðu slys á fólki í fjórum
þeirra.
1,1 milljón
kr. í sektir
á einni viku
Lögregla Stöðvað
á Suðurlandsvegi.