Morgunblaðið - 09.08.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Haust 2011
- Toppar
- Kvarterma bolir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Svartar - klassískar - gallabuxur 3 litir
BUXNATILBOÐ KR. 16.900
NÝ SENDIN
G
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Stöðugur straumur ferðamanna hefur legið í
Seljavallalaug undir Eyjafjöllum í sumar og er
laugin sennilega vinsælli sem baðstaður en
nokkru sinni fyrr eftir vel heppnað hreins-
unarstarf í maí síðastliðnum.
Að sögn Grétars Óskarssonar, bónda á
Seljavöllum, virðist sem orðspor laugarinnar
hafi raunar borist jafnt og þétt út undanfarinn
áratug, en líklega varð frægð hennar tryggð
með endemum eftir eldgosið í Eyjafjallajökli í
fyrra, þegar öskunni rigndi yfir dalinn og laug-
in varð barmafull af ösku. „Laugin getur nú
eiginlega ekki verið meira auglýst. Allir Ís-
lendingar vita hvar hún er í dag svo hún er
ekki falið leyndarmál lengur,“ segir Grétar.
Skoðað í gegnum bílrúðuna
Í vor tók hópur sjálfboðaliða höndum saman
um að koma Seljavallalaug í sitt gamla horf og
var mörgum tonnum af ösku mokað upp úr
henni. Þrátt fyrir að laugin hafi ekki verið
vænleg til sundferða í fyrra segir Grétar samt
að umferðin um svæðið hafi sennilega aldrei
verið meiri en einmitt eftir öskufallið. „En sú
traffík átti ekkert skylt við sundferðir, það var
bara verið að skoða svæðið og fólk fór ekki
einu sinni út úr bíl. Heilu rúturnar komu meira
að segja og tóku bara hring en hleyptu fólki
ekki út svo það bæri öskuna ekki með sér.“
Útlendingum fjölgar meira
Íslendingar leggja enn margir leið sína aust-
ur undir Eyjafjöllin til þess að kynna sér áhrif
eldsumbrotanna á bændur og sveitina, að sögn
Grétars. Nú er fólk hinsvegar farið að baða sig
í lauginni aftur og þegar blaðamaður var þar á
ferðinni í liðinni viku kom heil rúta með
spænskum ferðamönnum á staðinn. Grétar
segir það hafa færst í aukana að leiðsögumenn
beini hópum í laugina.
„Ég held að útlendingatraffíkin hafi frekar
aukist hérna en íslenska traffíkin. Það er svona
þegar fararstjórarnir átta sig á því að þeir fá í
vasann fyrir að fara með lið þarna inn eftir að
sjá eitthvað sem það hefur aldrei séð áður.
Svo er þetta náttúrulega upplifun eins og
staðan er. Þetta ógeð sem þú nánast þreifar á
þegar þú gengur þarna um, það er kannski
verið að reyna að höfða til fólks með því.“
Seljavallalaug ekki lengur falið leyndarmál
Færist í aukana að ferðahópum sé vísað í laugina Varð fræg að endemum eftir öskufallið í fyrra
Morgunblaðið/Una
Fagurgræn Seljavallalaug er nú aftur komin í sitt fyrra horf sem skemmtilegur baðstaður þar sem heitir lækir
seytla niður fjallshlíðina ofan í fagurgræna laugina. Ösku er þó víða að sjá og ber hún vitni um hamfarirnar.
Morgunblaðið/Ernir
Sandkassi Seljavallalaug minnti meira á sandkassa en sundlaug þegar ask-
an lagðist yfir Laugarárgil. Mörgum tonnum af ösku var mokað úr lauginni.
Unnur Stefánsdóttir
framkvæmdastjóri
lést á líknardeild
Landspítalans í gær
eftir stutta legu. Unn-
ur fæddist hinn 18.
janúar 1951 í Vorsabæ
í Gaulverjahreppi.
Foreldrar hennar voru
Guðfinna Guðmunds-
dóttir húsmóðir og
Stefán Jasonarson
bóndi.
Unnur lauk hús-
mæðraskólaprófi frá
Húsmæðraskóla Suð-
urlands 1970 og út-
skrifaðist sem fóstra frá Fóstur-
skóla Íslands fjórum árum síðar. Í
millitíðinni lagði hún stund á al-
mennt íþróttanám við Idræts-
højskolen í Sønderborg í Dan-
mörku. Hún lauk framhaldsnámi í
stjórnun og uppeldisfræði frá
Fósturskóla Íslands árið 1984.
Unnur kom víða á starfsferli sín-
um. Hún var aðstoðarkennari við
Húsmæðraskólann á Laugarvatni
1971-1972, fóstra og forstöðumað-
ur leikskóla í Reykjavík 1974-1975
og umsjónarfóstra í Kópavogi
1979-1982. Þá starfaði hún við um-
ferðarfræðslu barna, sem
dagvistarfulltrúi Ríkisspítalanna
og verkefnisstjóri í heilbrigð-
isráðuneytinu. Unnur kenndi hag-
nýta uppeldisfræði við Fósturskóla
Íslands á árunum 1991-1995 áður
en hún varð leikskólastjóri heilsu-
leikskólans Skólatraðar og síðar
Urðarhóls. Unnur þróaði heilsu-
stefnuna sem sautján
leikskólar á landinu
starfa eftir. Und-
anfarin ár var hún
framkvæmdastjóri
Skóla ehf., sem reka
fimm leikskólanna.
Unnur starfaði um
árabil innan Fram-
sóknarflokksins og
var meðal annars for-
maður Freyju, félags
framsóknarkvenna í
Kópavogi, og varafor-
maður og síðar for-
maður Lands-
sambands framsókn-
arkvenna. Á árunum 1985-2002 átti
hún sæti í miðstjórn, landsstjórn
og framkvæmdastjórn Framsókn-
arflokksins og var gjaldkeri
flokksins um árabil. Unnur var
varaþingmaður 1987-1995 og tók
sæti á Alþingi sem slíkur.
Unnur var afrekskona í íþróttum
og keppti í frjálsum íþróttum frá
tólf ára aldri fyrir ungmenna-
félagið Samhygð og HSK. Hún var
landsliðskona í 400 og 800 metra
hlaupi. Hún sat í framkvæmda-
stjórn Íþrótta- og ólympíusam-
bands Íslands um nokkurra ára
skeið og gegndi sömuleiðis for-
mennsku í nefnd um umbætur í
kvennaíþróttum á vegum ÍSÍ.
Eftirlifandi eiginmaður Unnar
er Hákon Sigurgrímsson. Börn
þeirra eru Finnur hljóðtæknimað-
ur, Grímur kvikmyndaleikstjóri og
Harpa Dís, menntaskólanemi og
rithöfundur.
Andlát
Unnur Stefánsdóttir
Nemendur Kvikmyndaskóla Ís-
lands fyrr og nú, nýnemar, kenn-
arar, starfsfólk og aðrir velunn-
arar hafa boðað til mótmæla á
Austurvelli í dag á milli klukkan
14 og 16, og raunar alla virka
daga þar til málefni skólans verða
leyst. Yfirskrift mótmælanna er:
„Eigum við ekki bara að fresta
þessu aðeins lengur?“ og hyggjast
mótmælendur mæta á náttfötum
einum fata.
Skólasetning er fyrirhuguð 22.
ágúst nk. og segja aðstandendur
mótmælanna ótækt að fullkomin
óvissa ríki enn um hvort 150 nem-
endur við skólann og fimmtíu
starfsmenn þurfi að leita annað
eftir námi – og eða starfi.
Hyggjast mótmæla
á náttfötunum
Týr, stærsti bor landsins, fer í dag
áleiðis til Nýja-Sjálands á vegum
Jarðborana sem hafa fengið verk-
efni þar hjá einu stærsta orkufyr-
irtæki landsins, Mighty River Po-
wer. Gert er ráð fyrir að verkefnið
taki um tvö ár og verðmæti samn-
ingsins nemur um þremur milljörð-
um króna.
Borinn Týr vegur um 1.700 tonn
með öllum þeim búnaði sem honum
tilheyrir. Fyrir flutninginn var bor-
inn tekinn í sundur og síðustu fjórir
dagar hafa farið í að koma honum
um borð í skip. Farmurinn allur tel-
ur tæplega 100 hluti en sá sem veg-
ur þyngst er tæplega 90 tonn.
Siglingin til Nýja-Sjálands tekur
um 40 daga en nú þegar eru þrír
menn á vegum Jarðborana úti að
undirbúa verkefnið, segir Vilhjálm-
ur Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri þróunar- og markaðsmála
Jarðborana. Alls fara um 30 manns
frá Íslandi til að vinna við borunina
en þar sem um vaktavinnu er að
ræða eru um fimmtán í einu úti á
vegum fyrirtækisins við störf. Bor-
inn verður staðsettur mitt á milli
borganna Taupo og Rotorua sem
eru á Norðureyju Nýja-Sjálands.
Þar mun hann bora eftir jarðhita
sem ætlaður er til rafmagnsfram-
leiðslu.
Þetta er ekki eina útrás Jarðbor-
ana í ár því félagið hefur einnig
fengið verkefni í Dóminíku og fleiri
eru í pípunum. sigrunrosa@mbl.is
Bor Þyngsti hluti borsins, sem er hér hífður um borð, vegur um 80-90 tonn.
Stærsti bor
landsins fer utan
Mun bora eftir jarðhita á Nýja-Sjálandi
Borinn Týr
» Týr er gríðarstór og vegur
um 1.700 tonn með öllum þeim
búnaði sem honum tilheyrir.
» Lyftigeta Týs er um 270
tonn. Til samanburðar er lyfti-
geta næststærsta bors Jarð-
borana á Íslandi um 200 tonn.
» Týr getur borað um 3-4 kíló-
metra niður í jörðina.