Morgunblaðið - 09.08.2011, Qupperneq 10
Hið árlega Reykjavíkurmaraþon fer fram 20. ágúst næstkomandi. Yfir þrjú
þúsund hlauparar hafa þegar skráð sig til leiks. Hluti þeirra er að hlaupa í
fyrsta skipti og hefur Íslandsbanki, sem er bakhjarl Reykjavíkurmaraþonsins,
boðið upp á hlaupanámskeið fyrir óvana sem lengra komna í sumar. Það geta
allir hlaupið ef rétt er farið að, segir Torfi Leósson hlaupaþjálfari.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Það hafa margir sótt þettanámskeið sem er opið öll-um. Sumir mæta alltaf enaðrir koma við í nokkur
skipti til að hjálpa sér við sitt eigið
persónulega plan. Æfingar eru
tvisvar í viku en ég mæli með að
fólk hlaupi eða taki góða gönguferð
einu sinni í viku til viðbótar,“ segir
Torfi Leósson sem er einn þeirra
sem kenna á námskeiðunum.
Í gær var lengsta hlaup byrj-
endahópsins fyrir Reykjavíkur-
maraþonið. „Fæstir hafa hlaupið 10
km áður en ætla að fara þá vega-
lengd í maraþoninu. Í dag [í gær]
ætlum við að hlaupa átta kílómetra
sem er það lengsta sem við höfum
farið á æfingu. Ég sé ótrúlegar
framfarir hjá hópnum. Fyrst fórum
við undir 3 km en nú fara þau orðið
létt með 6 til 7 km. Það skiptir öllu
máli að komast vegalengdina, tím-
inn er algjört aukaatriði. Ég nota
ákveðna aðferð þar sem er hlaupið
og gengið til skiptis. Yfirleitt er
hlaupið í þrjá mínútur og gengið í
eina mínútu. Þetta kerfi kemur frá
bandarískum þjálfara sem heitir
Jeffrey Galloway,“ segir Torfi.
Gott að ganga inn á milli
Á hvað leggur hann áherslu í
þjálfun óvanra hlaupara? „Að fara
rólega af stað, bæði á æfingum og
þegar kemur út í keppnina sjálfa.
Þá dugar orkan lengur. Það er
mjög erfitt að halda aftur af sér en
það er mikið unnið með því. Þeir
sem eru búnir að vera að æfa lítið
sem ekkert í sumar en eru í ágætu
líkamlegu ásigkomulagi og langar
að fara 10 km, þeir geta það alveg.
Sérstaklega ef þeir prófa að hlaupa
einu sinni 7 km og komast þá án
þess að þurfa að leggjast útaf. Ef
þú nærð 70% á æfingu getur þú al-
veg náð 100% í keppni, þá jafnvel
með því að ganga inn á milli,“ segir
Torfi og tekur fram að það sé gott
að ganga inn á milli ef það er rétt
gert.
„Það sem menn upplifa nei-
Mikið unnið með því
að halda aftur af sér
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlaupahópurinn „Ég sé ótrúlegar framfarir hjá hópnum. Fyrst fórum við undir 3 km en nú fara þau orðið létt með
6 til 7 km,“ segir Torfi Leósson hlaupaþjálfari. Hann notar ákveðna aðferð þar sem er hlaupið og gengið til skiptis.
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útvivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Patti Húsgögn
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18
Basel
Aspen
Þú velur
og drauma sófinn þinn er klár
GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Torino
Rín
Roma
Markmiðið með vefsíðunni
Motleyhealth.com er að hjálpa fólki
að verða heilbrigðara, grannara og
hamingjusamara. Aðstandendur síð-
unnar telja það hlutverk okkar allra
að fræða hvert annað um heilbrigt
mataræði og þjálfun. Speki þeirra er
að vera með aflappaðra viðhorf til
heilbrigðs lífernis og finnst þeim að
það þurfi að færa það aðeins niður á
jörðina aftur.
Síðuhaldarar trúa á fjölbreytni
þegar kemur að þjálfun og mataræði.
Að léttast á ekki að vera flókið að
þeirra mati né kosta neitt, enda sé
það náttúrulegt fyrir manneskjur að
vera í góðu formi. Heimilið og um-
hverfið á að vera líkamsræktarstöðin
og er þessi síða stofnuð til að vera
líkamsræktarfélag þeirra sem kjósa
að komast í form á eigin spýtur.
Þarna má lesa margar greinar og
ráðleggingar um allskonar æfingar.
Hægt er að velja flokka eftir mark-
miði. Það er flokkur fyrir þá sem ætla
að styrkja sig, annar fyrir þá sem
ætla að létta sig og sá þriðji fyrir þá
sem vilja bara komast í almennt gott
form. Fjallað er um mataræði og þá
má lesa sér til um hvernig íþrótta- og
Hollywoodstjörnur halda sér í formi.
Vefsíðan www.motleyhealth.com
Morgunblaðið/Eyþór
Fjallganga Útivera er meðal þess sem mælt er með á síðunni.
Afslappað viðhorf til heilbrigðis
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Bongóblíða á að vera víðast hvar um
landið út þessa viku. Að minnsta
kosti miðað við hvernig veðurspáin
var í gær.
Njótið sólarinnar, hitans og ham-
ingjunnar og haldið ykkur utandyra.
Berið á ykkur sólarvörn, takið fram
þægilega skó og gangið á næsta fjall.
Eða ögrið ykkur svolítið, prófið línu-
skauta, gangið nýjar leiðir, húllið úti í
garði eða dansið. Hættið að hugsa
um hvað aðrir gætu haldið, gerið það
sem ykkur sýnist.
Leikir eru alltaf upplífgandi og fátt
finnst börnunum skemmtilegra en að
leika við foreldra sína. Farið í elting-
arleik, feluleik, Dimmalimm, Fram
fram fylking eða eitthvað annað sem
ykkur eða börnunum dettur í hug.
Njótið bara lífsins, sama hvað.
Endilega…
… njótið
bongóblíðunn-
ar í botn
Morgunblaðið/Ernir
Húllahopp Góð líkamsrækt í sólinni
og oft og tíðum skemmtileg.