Morgunblaðið - 09.08.2011, Qupperneq 11
kvætt við að ganga inn á milli er að
þeir byrja á að hlaupa marga kíló-
metra, verða svo alveg uppgefnir
og neyðast til að ganga og ganga þá
jafnvel í langan tíma. Þá dettur nið-
ur öll orka og allur taktur og það
verður erfitt að koma sér af stað
aftur í hlaup. En ef menn byrja
strax í upphafi hlaups að ganga er
sagan önnur. Þá er gott að halda
aftur af sér með því
að hlaupa í 2-3
mínútur og labba
svo í mínútu.
Mínúta líður hjá á
engum tíma og tel-
ur lítið í heildartím-
anum. Sparnaður í
orkunni er samt mikill
og þá er frekar hægt
að hlaupa alla leið í
mark eftir 6-7 km af
hlaupi og göngu til skipt-
is.“
Teygjur og mataræði
Auk þess að taka hlaupið
rólega segir Torfi mikilvægt að
óvanir hlauparar teygi vel. „Teygj-
ur ganga út á að slaka á vöðvum
sem eru spenntir á æfingu. Það er
mjög gott að teygja og fara í heitt
bað, gufu eða í heitan pott. Hlaup-
arar eru þá fljótari að ná sér eftir
hlaup.
Það er ekki sniðugt að gera
miklar breytingar á mataræði
stuttu fyrir hlaup, það er betra að
halda sig við það sem líkaminn er
vanur. Á hlaupadaginn mæli ég
ekki með að menn séu að borða
mikið styttra en 2-3 tímum fyrir
hlaup. Það er líka gott að vakna
snemma því líkaminn er þá betur
vakandi þegar kemur að hlaupi.“
Spurður hvort allir geti hlaup-
ið jánkar Torfi því. „Ef veikindi eða
annað setja ekki strik í reikninginn.
Það eru aðallega þeir sem hafa ekki
stundað íþróttir sem börn og ung-
lingar sem þurfa að fara sér-
staklega varlega af stað. Þeir sem
hafa ekki verið að stunda neinar
íþróttir eða hreyfingu verða að
reikna með að það taki alveg tvo
mánuði fyrir liði og liðamót að taka
við sér. En ef menn hafa alltaf ver-
ið að hreyfa sig t.d. ganga reglu-
lega komast þeir hraðar inn í
hlaupið.“
Hvetjandi að fara eftir kerfi
Auk þess að þjálfa óvana eru
líka æfingar fyrir lengra komna hjá
Íslandsbanka. „Við erum núna að
trappa lengra komna niður. Þeir
eru búnir að hlaupa sín stærstu
hlaup þremur vikum fyrir
Reykjavíkurmaraþonið og eiga að
trappa sig niður fram að keppn-
isdegi – spara orkuna,“ segir Torfi.
Á æfingum fyrir lengra komna
er stuðst við æfingakerfi frá Paul
Tergat, fyrrverandi heimsmethafa í
hálfu og heilu maraþoni. Torfi segir
gott að fylgja svona kerfum við
þjálfunina. „Það skiptir ekki öllu
máli hvaða kerfi er fylgt. En það
skiptir máli að gera eitthvað sem er
heildrænt svo öll hlaupin miði að
ákveðnu marki. Það er samt allt í
lagi öðru hvoru að brjóta upp rút-
ínuna svo maður verði ekki of mikið
vélmenni. Það er hvetjandi að fara
eftir svona kerfi. Þegar anað er út í
æfingar eftir innblæstri er hættan
á að maður verði óþarflega góður
við sjálfan sig.“
Vettvangur fyrir óvana
Torfa finnst mjög gefandi að
þjálfa óvana skokkara. „Það er
aðalmarkmiðið okkar og í ár höfum
við lagt enn meiri áherslu á að ná
til algjörra byrjenda. Það er mik-
ilvægt fyrir þá að fá að kynnast
þessu á eigin forsendum – að fara
ekki inn í hópa þar sem er farið
geyst af stað. Það vantar kannski
fleiri hópa sem eru sniðnir að byrj-
endum. Við sem sáum um hlaupa-
hópa Íslandsbanka í fyrra stofn-
uðum einn byrjendahóp síðasta
haust, í samstarfi við heilsubúðina
Góð heilsa. Við reiknum með að
bjóða upp á slíkan byrjendahóp aft-
ur í vetur. Byrjendum finnst
óþægilegt að vera í kringum vana
hlaupara og þarna erum við að búa
til vettvang fyrir þá,“ segir Torfi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjálfari Torfi segir nauðsynlegt að óvanir hlauparar fari rólega af stað.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Jökulsárshlaupið fór fram í áttunda
sinn á laugardaginn. Boðið var upp á
þrjár hlaupaleiðir, 32,7 km frá Detti-
fossi í Ásbyrgi; 21,2 km frá Hólma-
tungum í Ásbyrgi og 13 km frá
Hljóðaklettum í Ásbyrgi.
Að sögn Þórs Gíslasonar, verk-
efnastjóra Jökulsárhlaupsins 2011,
gekk hlaupið vonum framar í ár. „Við
höfðum áhyggjur af veðurspánni
framan af vikunni. Hinsvegar kom í
ljós að þetta var alveg úrvals
hlaupaveður. Það voru tvö braut-
armet sett, annarsvegar kom nýr
tími í karlaflokki í 32,7 km, og svo
kom líka nýr tími í karlaflokki í 13
km,“ segir Þór.
„Það voru 281 sem hlupu. Stærsti
hópurinn, um 130 manns, hljóp
stystu vegalengdina, en svo var
þetta jafnt á hinar vegalengdirnar,
um 80 á hvora leið. Það voru ívið
færri sem komu en höfðu skráð sig
og við skrifum það aðallega á veðr-
ið. En öll framkvæmd gekk stórvel.“
Ný brautarmet eru slegin nánast á
hverju ári og segir Þór það ánægju-
legt. „Hlaupið er orðið þekktara og
hlauparar sem leggja sig fram í
þessum hlaupum á landinu taka orð-
ið þátt. Svo er það þannig að þegar
hlaupari hefur einu sinni komið í
Jökulsárshlaupið þá kemur hann aft-
ur, enda um einstaklega fjölbreytta
og krefjandi hlaupaleið að ræða.“
Jökulsárshlaupið verður vinsælla
með hverju árinu en Þór segir
ákveðin stærðarmörk vera á því.
„Það munu ekki fleiri en 350 geta
tekið þátt á meðan aðstæður eru
eins og þær eru. Þetta er allt mjög
háð flutningi á mannskap þarna
uppeftir og hlaupastígarnir eru mjóir
og þola bara ákveðið álag. En við er-
um afskaplega ánægð með hvernig
þetta hefur þróast undanfarin ár og
hvað það er stór hópur sem kemur
aftur og aftur,“ segir Þór.
Úrslit
32,7 km karlar
1. Þorbergur Ingi Jónsson 2:05:30
2. Friðleifur Friðleifsson 2:17:35
3. Birgir Sævarsson 2:23:32
32, 7 km konur
1. Ásdís Kristjánsdóttir 2:48:50
2. Rakel Heiðmarsdóttir 3:18:39
3. Bryndís Óladóttir 3:21:15
21,2 km karlar
1. Tómas Zoëga 1:31:59
2. Björn Traustason 1:39:41
3. Reimar Marteinsson 1:40:04
21,2 km konur
1. Hólmfríður V. Svavarsd. 1:50:00
2. Júlíana Jónsdóttir 1:56:05
3. Guðrún Arngrímsdóttir 1:57:06
13 km karlar
1. Snæþór Aðalsteinsson 0:58:35
2. Reynir Zoëga 0:59:59
3. Sævar Helgason 1:00:08
13 km konur
1. Sonja Sif Jóhannsdóttir 1:06:05
2. Helga Halldórsdóttir 1:09:28
3. Erna S. Hannesdóttir 1:12:27
ingveldur@mbl.is
Hlaup
Ljósmynd/Ari Páll Pálsson
Jökulsárhlaup Fór fram í áttunda skipti sl. laugardag og var þátttaka góð.
Tvö brautarmet slegin
íJökulsárshlaupinu
Sigur Gott að
komast í mark.
SKRÁNING
Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslands-
banka stendur til kl. 16 miðvikudaginn 17.
ágúst. Síðastliðinn föstudag höfðu meira
en þrjú þúsund hlauparar skráð sig til
þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu. Flestir
eru skráðir í 10 km hlaupið eða 1.391 og
næst flestir í hálft maraþon eð 941. Skráð-
ir erlendir þátttakendur eru 889 sem er
49% fleiri en á sama tíma í fyrra.
Skráning fer fram á vefsíðunni
www.marathon.is.
Flestir hlaupa
tíu kílómetra
Pólarolía góð fyrir líkamann
Í nýlegri doktorsrannsókn Linn
Anne Bjelland Brunborg kom í ljós
að selolía, sem var gefin í gegnum
sondu beint niður í skeifugörn,
linar liðverki, dregur úr liðbólgum
og hefur að auki jákvæð áhrif á
þarmabólgu. Fæða áVesturlöndum
inniheldur hlutfallslega mikið magn
af omega 6 fitusýrum í samanburði
við omega 3 fitusýrur. Þetta getur
orsakað ójafnvægi í líkamanum, sem
að einhverju leyti getur útskýrt af
hverju margt fólk þjáist af offitu og
ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum
eins og hjarta- og æðasjúkdómum,
sykursýki og krabbameini.
Besta leiðin til að greiða úr þessu
ójafnvægi er að auka neyslu á sjávar-
fangi sem almennt er auðugt af lang-
keðju omega fitusýru og samtímis að
minnka neyslu á matvörum sem eru
ríkar af omega fitusýrum.
Þarmabólga og liðverkir
Rannsókn Brunborgs á selkjöti
bendir til að það sé bæði holl og
örugg fæða. Selspikið er mjög ríkt
af langkeðju omega fitusýrum sem
hefur áhrif á staðbundin hormón,
sem meðal annars eru mikilvæg fyrir
bólguviðbrögð líkamans.Virkni sel-
olíunnar á bólguviðbrögð var prófuð
í klínískri tilraun á sjúklingum með
liðverki og IBD. IBD-sjúklingar hafa
oft minnkandi starfsgetu og lífsgæði
vegan sjúkdómsins og möguleikar á
lækningu eru litlir. Lyf sem draga úr
liðverkjum geta gert þarmabólguna
verri. Brunborg sýndi með tilraunum
að selolía, sem var gefin í gegnum
sondu, linar liðbólgur, liðverki
og hefur að auki jákvæð áhrif á
þarmabólgu. Að neyta nægilegs
sjávarfangs með omega fitusýrum
getur haft fyrirbyggjandi áhrif þegar
um þróun sjúkdóma eins og IBD og
annarra bólgusjúkdóma, hjarta- og
æðasjúkdóma er að ræða. Selolía fæst
í öllum helstu apótekum og heilsu-
búðum og ber nafnið Polarolje.
A U G L Ý S I N G
Linar verki og minnkar bólgur Polarolje
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur
Minn læknir mælir með
Polarolíunni, en þinn ?
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð
Nú líka
í hylkjum
Nýtt!
na