Morgunblaðið - 09.08.2011, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
STUTTAR FRÉTTIR
● Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði
um 0,24 prósent í gær og endaði í
209,13 stigum. Verðtryggði hluti vísi-
tölunnar hækkaði um 0,18 prósent og
sá óverðtryggði um 0,41 prósent. Heild-
arvelta á skuldabréfamarkaði nam 12,3
milljörðum króna í gær.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækk-
aði um 2,02 prósent í gær og er óvenju-
legt að hún hreyfist svo mikið á einum
degi. Gengi bréfa BankNordik lækkuðu
um ein 9,72 prósent og bréf Marels um
3,29 prósent. Gengi bréfa Century Al-
uminum lækkaði um ein 33,33 prósent í
gær, en að vísu í mjög litlum við-
skiptum. bjarni@mbl.is
Íslensk hlutabréf lækka
● Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
ásamt öðrum fagfjárfestum hefur gert
samning um kaup á hlutafé í fyrirtæk-
inu cooori ehf.
Í frétt á vef sjóðsins segir að fyrir-
tækið vinni að þróun veflægs hugbún-
aðar til tungumálanáms sem byggist á
nýjustu tækni í máltöku- og kennslu-
fræðum og noti gervigreind til að laga
kennsluna að hverjum einstaklingi fyrir
sig og hámarka árangur.
bjarni@mbl.is
Nýsköpunarsjóður
kaupir í Cooori
FIH-bankann. Er endanlegt kaup-
verð háð því hvernig virði ákveð-
inna eigna FIH þróast, en Pandora
er ein þessara eigna.
Eiginfjárhlutfall lækkaði
Einkunn FIH er nú Ba2. Fram
kemur í tilkynningu Moody’s að
bankinn þurfi á tímabilinu frá ágúst
2012 til júní 2013 að endurfjár-
magna 50 milljarða danskra króna
lán, sem FIH fékk hjá danska rík-
inu.
Moody’s telur að gengishrun
hlutabréfa Pandora og lækkun eigin
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s
hefur sett danska bankann FIH Er-
hvervsbank á athugunarlista og
segir að lánshæfiseinkunn bankans
verði hugsanlega lækkuð í kjölfar
gengishruns á hlutabréfum dönsku
skartgripaverslunarkeðjunnar Pan-
dora.
FIH-bankinn var eitt sinn í eigu
Kaupþings banka og endaði í eigu
Seðlabanka Íslands, vegna þess að
hlutabréf í FIH voru sett sem veð
fyrir neyðarláni Seðlabankans til
Kaupþings. Seðlabankinn seldi svo
hópi danskra og sænskra fjárfesta
fjár FIH sem því fylgdi, muni auka
á erfiðleika bankans við að endur-
fjármagna skuldirnar. FIH greindi
frá því í síðustu viku að gengis-
lækkun Pandora hefði áhrif til
lækkunar á eiginfjárprósentu bank-
ans um eitt prósentustig, eða úr
15,9 prósentum í 14,9.
Gengi bréfa Pandoru lækkaði um
rúm 65% þann 2. ágúst. FIH til-
kynnti daginn eftir að bankinn hefði
tapað 730 milljónum danskra króna
á bréfunum frá því í apríl. Moody’s
lækkaði lánshæfiseinkunn FIH í
júní úr Ba1 í Ba2.
Morgunblaðið/Ómar
FIH Seðlabanki Íslands seldi hlut sinn í FIH en endanlegt kaupverð verður ekki ljóst fyrr en árin 2014 og 2015.
Moody’s setur FIH
banka á athugunarlista
Gengishrun bréfa Pandora setur bankann í erfiða stöðu
FRÉTTASKÝRING
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Ekkert lát er á því hruni sem ein-
kennt hefur hlutabréfamarkaði síð-
ustu daga. Í gær hélt hrunið áfram í
Evrópu og Bandaríkjunum. Banda-
rísku vísitölurnar lækkuðu meira í
gær en þær hafa gert á nokkrum degi
síðan árið 2009. Þýska DAX vísitalan
lækkaði um ein 5,02 prósent, franska
CAC vísitalan um 4,68 prósent og
breska FTSE vísitalan um 3,39 pró-
sent. Það segir sitt um hve almennt
hrunið er á hlutabréfamörkuðum að
ekkert hlutafélag í þýsku og frönsku
vísitölunum hækkaði í gær og aðeins
eitt félag í FTSE vísitölunni. Var það
gullnámufyrirtækið Randgold sem
hækkaði um ein 7,43 prósent.
Ekki er undarlegt að fyrirtæki sem
sérhæfir sig í gullgreftri skuli hafa
hækkað í gær, því heimsmarkaðsverð
á gulli hækkaði mjög í gær og hafði
um tíma hækkað um 4,2 prósent og
stóð þá í 1.722 dölum á únsuna.
Gull hækkar venjulega í verði þeg-
ar útlitið dökknar almennt í hagkerf-
um heimsins og er því mælikvarði á
ótta fjárfesta við framtíðina.
Fleiri gætu fylgt í kjölfarið
Eins og áður segir hafa hlutabréfa-
markaðir verið að lækka allt frá mán-
aðamótum, en á föstudag lækkaði
greiningarfyrirtækið Standard & Po-
or’s lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna
úr AAA í AA+. Breska BBC frétta-
stofan hefur það eftir talsmanni fyr-
irtækisins að Bandaríkin muni að öll-
um líkindum ekki fá sína fyrri
einkunn í bráð. Þvert á móti er útlit
fyrir fjöldi fyrirtækja og opinberra
aðila verði lækkaður í bókum S&P
þar sem einkunnir þeirra eru háðar
einkunn bandaríska ríkisins.
Þá geta menn sér til um að fleiri
ríki muni fylgja í kjölfarið. Erfitt sé að
réttlæta AAA einkunn á ríki eins og
Frakkland þegar búið sé að lækka
einkunn Bandaríkjanna.
Tæknilega er ekki gefið að hluta-
bréf ættu að lækka í verði þegar láns-
hæfiseinkunnir ríkissjóða eru lækk-
aðar. Við aðstæður eins og þær eru
núna er hins vegar líklegt að fjárfest-
ar telji að ríkissjóðir, hvort heldur
sem er í Bandaríkjunum eða Evrópu,
muni eiga erfitt með að spýta meira
fjármagni inn í hagkerfin miðað við
skuldastöðu þeirra. Af þessum sökum
sé ekki hægt að búast við því að hluta-
bréf haldi áfram að hækka eins og þau
hafa gert frá því að seðlabankar
Bandaríkjanna og Evrópu hófu inn-
spýtingar sínar eftir hrunið 2008.
Lokað fyrir viðskipti
Evrópski seðlabankinn hefur þó
ekki gefist upp á því að reyna að róa
markaði í álfunni. Ávöxtunarkrafa á
skuldabréf Ítalíu og Spánar lækkaði
töluvert í gær eftir að bankinn hóf að
kaupa skuldabréfin á eftirmarkaði.
Krafa á tíu ára skuldabréf beggja
ríkja fór yfir sex prósent fyrir helgi en
lækkaði um 0,6-0,8 prósentur í gær.
Kom það ekki í veg fyrir að hluta-
bréf í ríkjunum tveimur lækkuðu líkt
og þau gerðu annars staðar í álfunni.
Ítalska MIB vísitalan lækkaði um
2,35 prósent og var lokað tímabundið
fyrir viðskipti með hlutabréf Fiat og
Pirelli vegna þess hve hratt þau lækk-
uðu. Lækkaði Pirelli um 10,36 pró-
sent og Fiat um 9,64 prósent í gær.
Hrunið heldur áfram
á hlutabréfamörkuðum
Lækkun á lánshæfi Bandaríkjanna hefur víðtæk áhrif á mörkuðum heimsins
Stress Ekki voru allir jafnstressaðir fyrir utan kauphöllina í New York og
þeir sem innan veggja voru. Þessi kona stundaði jóga á Wall Street í gær.
Reuters
Hlutabréfahrun
» Á einum mánuði hafa helstu
hlutabréfavísitölur lækkað
mjög og í því felst gríðarlegt
tap fjármuna.
» Á einum mánuði hefur FTSE
vísitalan breska lækkað um
15,38 prósent og þýska DAX
vísitalan hefur lækkað um
19,99 prósent á sama tímabili.
» Hrunið er ekki bundið við
Evrópu því japanska Nikkei
vísitalan hefur lækkað um
10,26 prósent á einum mánuði,
en hún lækkaði um 2,18 pró-
sent í gær.
» Bandaríska Dow Jones
hlutabréfavísitalan lækkaði um
5,5 prósent í gær, sem þýðir að
hún hefur nú lækkað um 14,6
prósent á einum mánuði. S&P
500 vísitalan lækkaði í gær um
6,66 prósent, sem þýðir að
hún hefur lækkað um 16,69
prósent á einum mánuði.
Lárus Ásgeirs-
son, forstjóri
Sjóvár, hefur
ákveðið að láta
af störfum hjá
félaginu, en
greint var frá
þessu í gær. Lár-
us lætur strax af
störfum, en ekki
hefur verið ráðið
í stöðuna. Ólafur
Njáll Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs er staðgengill
forstjóra og mun sinna þeim verk-
efnum þar til nýr forstjóri verður
ráðinn til fyrirtækisins.
Lárus var ráðinn til Sjóvár fyrir
tæpum tveimur árum í kjölfar end-
urskipulagningar á félaginu. Í til-
kynningu er haft eftir Lárusi að í
framhaldi af því að ný stjórn hafi
tekið við félaginu hafi hann afráðið
að hætta störfum.
Vandasömu en árangursríku
breytingaferli sé lokið og hann telji
eðlilegt að nýir eigendur með nýjar
áherslur ráði forstjóra. Sjóvá
standi traustum fótum með góðan
vátryggingarekstur.
Erna Gísladóttir, stjórn-
arformaður Sjóvár, segir í tilkynn-
ingunni að Lárus hafi unnið mjög
mikilvægt starf fyrir fyrirtækið og
óskar honum velfarnaðar.
Lárus hætt-
ir hjá Sjóvá
Lárus
Ásgeirsson
Ekki hefur verið
ráðið í starfið enn
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+00-/,
++1-2+
33-.4
3+-.53
+2-252
+,+-.5
+-40+3
+04-34
+14-3
++,-51
+0/-4+
++2-.,
33-+.4
3+-./4
+2-20/
+,+-4,
+-40,,
+04-2/
+14-11
33.-2325
++,-15
+0/-02
++2-5/
33-+10
3+-+,1
+2-04+
+,+-02
+-40/0
+0,-54
+1,-+3
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Póstdreifing hefur keypt fjóra
nýja Mercedes-Benz Sprinter
sendibíla sem ganga fyrir metani,
að því er kemur fram í frétta-
tilkynningu.
Þar er haft eftir Erni Jóhanns-
syni, deildarstjóra akstursdeildar
Póstdreifingar, að markmið fyr-
irtækisins sé að bílafloti þess sé
umhverfisvænn. Mercedes-Benz
bílarnir hafi reynst vel bæði í
rekstraröryggi og hagkvæmni.
Bílarnir fjórir eru sérpantaðir
fyrir Póstdreifingu og eru sér-
útbúnir til dreifingarþjónustu að
sögn Páls H. Halldórssonar, sölu-
stjóra atvinnubíla hjá Öskju, um-
boðsaðila Mercedes-Benz á Ís-
landi.
Páll segir að metanbílar séu
góður kostur fyrir íslensk fyr-
irtæki og þeir hafi komið vel út í
rekstri og viðhaldi
Póstdreifing
kaupir fjóra
metanbíla