Morgunblaðið - 09.08.2011, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
✝ Elín Ingv-arsdóttir var
fædd í Berjanesi í
Vestur-Landeyjum
17. september
1920. Hún lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 17. júlí 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Ingvar Sig-
urðsson, f. 30. mars
1901 á Nesi Norð-
firði, d. 11. janúar
1979 og Hólmfríður Ein-
arsdóttir, f. 22. apríl 1896 í
Berjanesi í Vestur-Landeyjum,
d. 25. ágúst 1979. Systkini El-
ínar eru: Sigurður Halldór, f. 1.
nóvember 1914, d. 2. júlí 2004,
Aðalheiður Sigurveig, f. 5. októ-
ber 1916, d. 13 ára, Einar, f. 14.
ágúst 1922, d. 13. apríl 1999,
Guðlaug, f. 16. október 1923, d.
29. október 1979, Jólín, f. 1. nóv-
ember 1924, d. 9. desember
2004, Trausti, f. 15. júlí 1926, d.
9. júní 1977, Sigurður, f. 6. sept-
ember 1927, d. 3. febrúar 2005,
Ráðhildur, f. 25. maí 1929, Sig-
urgestur, f. 10. nóv-
ember 1933 og
Kristbjörg, f. 13.
maí 1936. Elín gift-
ist 11. maí 1940 Er-
lendi Ragnari
Teitssyni, f. 17.
mars 1909, d. 27.
júní 1944. Dóttir
Ragnars og stjúp-
dóttir Elínar er
Kristjana Ragn-
arsdóttir, f. 16. júlí
1937. Eiginmaður Kristjönu er
Haraldur Eldon Logason, f. 1.
júní 1938, þeirra börn eru:
Ragnar Kristján, f. 8. maí 1960,
d. 3. mars 1961, Elín Jóna, f. 8.
nóvember 1961, Ragnar f. 5. júní
1963, Jóhann, f. 11. október
1965, d. 29 október 2006. Sam-
býlismaður Elínar var Stanley
Jónsson, f. 19. apríl 1917, d. 28.
desember 1985.
Elín starfaði m.a. sem fisk-
verkakona og bóndakona.
Útför hennar fór fram í kyrr-
þey frá Grafarvogskirkju 28.
júlí 2011 að ósk hinnar látnu.
Sól skín á hvíta fjallatoppa,
haustgolan leikur um rjóðar
kinnar, hundgá í fjarska og hófa-
dynur, jarmandi safnið rennur
niður hlíðina; flestar hvítar, ein-
hverjar svartar, mórauðar, grá-
ar, golsóttar og þær skræpóttu
vekja alltaf mesta hrifningu.
Lág, þéttvaxin kona í lopapeysu
hallar sér upp að réttarveggnum,
ásamt tveimur börnum, horfir
rannsakandi á féð og bendir á
hverja kind sem hún þekkir á ný
og fagnar þeim með glettni og
góðum orðum. Þannig minnumst
við systkinin góðra samveru-
stunda í réttunum með Ellu föð-
ursystur okkar. Elín Ingv-
arsdóttir var engin venjuleg
kona; skapmikil baráttukona, al-
þýðukona, verkakona sem vann
alla tíð erfiðisvinnu með hönd-
unum og fannst sér ávallt skylt
að tala máli þess sem henni þótti
minna mega sín. Fyrir okkur
krökkunum var Ella þó fyrst og
fremst einlæg og sönn sveita-
kona. Börn hændust að henni og
bústússi hennar; ógleymanlegar
ferðir á gula Fíatinum í Fjár-
borgirnar ofan við Reykjavík til
þess að huga að kindum og hest-
um, hænum, kanínum og kal-
kúni. Það var líka gott að koma í
blokkina í Kötlufellinu þar sem
hún bjó í nokkur ár ásamt Stanl-
ey, sambýlismanni sínum. Þar
átti tíkin Lady sinn stað undir
stofusófanum oft með hvolpa og
stundum voru andarungar í
kassa í glugganum. Ef til vill var
það þessi eiginleiki Ellu sem
heillaði barnshugann, að ekkert
væri ógerlegt þó að í borg væri.
Hún hafði sveitina með sér hvert
sem hún fór og stóð á vissan hátt
fjarri stöðlum og hefðbundnum
viðmiðum nútímasamfélags. Það
er dýrmætt að hafa þannig feng-
ið að kynnast anda gamallar tíð-
ar. Og þá er maturinn enn ótal-
inn, því alltaf var það fyrsta
hugsun hennar þegar smáfólk
kom inn úr dyrunum að gefa því
að borða; ilmandi hrossakjöt,
soðinn fiskhaus, heimaræktaðar
rauðar kartöflur með smjöri,
sveskjugraut með rjóma eða
þykkar og vel bakaðar pönnu-
kökur með sykri. Eftir matinn
var gjarnan tekið í spil og barið í
borðið með viðeigandi tilþrifum
og kátínu. Við munum líka nokk-
ur aðfangadagskvöld hjá Ellu
þar sem jólamaturinn var kalt
hangikjöt og heit svið eins og
hún var vön úr sinni bernsku í
Landeyjunum. Heimili Ellu, í
Blesugróf, Kötlufelli og Löngu-
hlíð bar merki um hennar eigin
viðmið; stígvél með hlýjum há-
leistum, hnakkar og beisli í for-
stofunni, kartöflur í spírun á
stofugólfinu, kálplöntur í glugg-
um, alltaf eitthvað sem gaf fyr-
irheit um að nú stæði eitthvað
mikið til. Þessi einstaka orka og
vilji til nýrra verka hélst ótrú-
lega lengi þrátt fyrir háan aldur
og hamlandi sjúkdóm; hún snar-
aðist þá gjarnan upp í bíl sinn til
þess að renna fyrir fisk, setja
niður kartöflur eða fylgjast með í
Fjárborgunum af gömlum vana.
Við kveðjum Ellu með þökk fyrir
liðnar stundir þar sem sveitin og
gangur náttúrunnar réðu ríkj-
um.
Móðurjörð, hvar maður fæðist.
Mun hún eigi flestum kær.
Þar sem ljósið lífi glæðist
og lítil sköpun þroska nær.
(Sigurður Breiðfjörð.)
Áslaug og Frosti.
Mig langar að minnast Ellu
vinkonu minnar, eða frænku sem
mér fannst hún verða við nánari
kynni.
Fundum okkar bar saman hjá
sameiginlegri kunningjakonu
okkar. Þá var Ella farin að
ganga við hækjur en keyrði um
allt. Fljótlega kom í ljós að við
höfðum sameiginleg áhugamál,
hesta, ber og kartöflur. Svo langt
gekk þessi della okkar að við
máttum til með að prófa að fá
okkur útungunarvél og fengum
bæði fullt af hænuungum og önd-
um sem við urðum náttúrlega að
gefa.
Við Ella vorum búnar að
þekkjast í á þriðja ár þegar við
uppgötvuðum að hún gekk í
móðurstað náfrænku minni en
móðir hennar dó við fæðingu
hennar. Móðir hennar var systir
móður minnar. Faðir stúlkunnar
og Ella urðu síðan par en hann
lést af slysförum þegar hún var 8
eða 9 ára.
En áfram baslaði Ella, kom
stelpunni til manns en síðar bjó
hún með manni sem var látinn
þegar ég kynntist henni. Við fór-
um strax á Selfoss með kartöflur
til að kynna okkur frænkur. Svo
fórum við nokkrar ferðir í Dali
og Landeyjar á meðan hún hafði
heilsu til.
Síðustu ár ævi sinnar dvaldi
Ella á Víðinesi og Hrafnistu.
Við Gísli viljum þakka henni
fyrir alla hennar vinsemd í okkar
garð. Við vottum aðstandendum
hennar okkar innilegustu samúð.
Kristín og Gísli.
Elín Ingvarsdóttir
✝ Anna ÞorbjörgEyþórsdóttir
fæddist á Akureyri
2.4. 1934. Hún lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Mörk 18. júlí
2011.
Foreldrar henn-
ar voru Eyþór
Helgi Tómasson,
forstjóri Súkku-
laðiverksmiðjunnar
Lindu, f. 16.12.
1906, d. 29.11. 1988 og Laufey
Sveinsdóttir húsfreyja, f. 5.6.
1913, d. 17.7. 1979 og voru þau
fjögur systkinin frá því hjóna-
Ágústsyni og eignuðust þau
tvær dætur, Kitty Hrönn Magn-
úsdóttur, f. 6.6. 1944 og Krist-
björgu Ágústu Magnúsdóttur, f.
22.1. 1950. Anna giftist Guð-
mundi Kristni Jónssyni árið
1967 og átti Anna fyrir dóttur,
Eddu Björk Ragnarsdóttur, f.
9.3. 1958 og eignaðist hún tvo
syni: 1) Kristopher Martein
Waltersson Bremer, f. 13.8.
1979, hans dætur eru Holly
Marie Bremer, f. 14.1. 2009 og
Sophie Mae Bremer, f. 29.4.
2010, þau eru búsett Bandaríkj-
unum, og 2) Eric Nicholas Bre-
mer, f. 3.3. 1984.
Anna og Guðmundur fluttu
af landi brott árið 1969 og fóru
til Svíþjóðar, síðan til Banda-
ríkjana árið 1972 og voru búsett
þar þangað til þau sneru aftur
til Íslands árið 2005.
Útförin hefur farið fram.
bandi og var Anna
næstelst af þeim.
Friðjón Eyþórsson,
f. 9.5. 1932, d. 8.7.
1995, Linda Denný
Eyþórsdóttir, f.
30.5. 1938, d. 3.2.
2009 og Tómas Ey-
þórsson, f. 24.1.
1940, d. 11.2. 2002.
Eyþór kvæntist
aftur Hildi Eiðs-
dóttur og eign-
uðust þau tvo syni, Viðar Ey-
þórsson, f. 13.10. 1957 og Val
Eyþórsson, f. 4.1. 1962. Laufey
einnig giftist aftur Magnúsi
Anna frænka var drottning.
Glæsileiki var það fyrsta sem
fólk tók eftir í fari hennar, en
hún hafði munninn fyrir neðan
nefið, stolt hennar og kraftur
kom henni þangað sem hún
ætlaði sér. Hún var mér sem
önnur móðir, á hún mikla þökk
fyrir að hafa verið til staðar
frá því ég man eftir mér. Ég
var ekki gamall þegar ég gerði
mér grein fyrir þeim hlýja
faðmi sem tók á móti mér þeg-
ar ég leitaði á hennar náðir,
hvort sem það var á Íslandi
eða í Ameríku þá stóðu mér
allar dyr opnar hjá þeim hjón-
um.
Anna var dugleg að koma
heim til Íslands og fór ég ófáar
ferðirnar bæði til lengri dvalar
og í stutt frí til þeirra í New
York og síðar til Flórída. Síð-
ustu árin hefur Anna átt við
veikindi að stríða og hefur not-
ið umönnunar Eddu Bjarkar,
dóttur sinnar, hér heima. Það
var átakanlegt að sjá svo
sterka konu fella laufin. En
karakter sínum hélt Anna fram
til síðasta dags og segir það
margt um þrautseigju hennar.
Minning hennar verður
ávallt ljós í lífi mínu.
Ég votta Guðmundi, Eddu,
Kristófer og Erik samúð mína.
Sigurður Eyþór.
Anna Eyþórsdóttir
Jónsson
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEINAR GUÐMUNDSSON,
Lindargötu 57,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 11. ágúst kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er
vinsamlegast bent á Minningarsjóð Grundar, dvalar- og
hjúkrunarheimilis, s. 530 6100.
Anna Steinarsdóttir, Gísli Ársæll Snorrason,
Magnús Steinarsson, Eygló Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Maðurinn minn, bróðir okkar, mágur,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
ÞÓRARINN GUÐMUNDUR
ÞORSTEINSSON
sjómaður,
Bollagötu 5,
Reykjavík,
áður til heimilis á Reykhólum,
sem lést á deild 11 E Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 4. ágúst, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 12. ágúst kl. 13.00.
Þórunn Játvarðardóttir,
Steinunn Erla Þorsteinsdóttir,
Sigvaldi Þorsteinsson, Kristín Mogensen,
Gústaf Jökull Ólafsson, Herdís Erna Matthíasdóttir,
Margrét Berglind Ólafsdóttir,
Gyða Lóa Ólafsdóttir, Jan Ruby Olsen,
Hlynur Gunnarsson, Viktoría Rán Ólafsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og
tengdamamma,
MAGNEA GUÐNÝ STEFÁNSDÓTTIR,
Bragavöllum 4,
230 Reykjanesbæ,
lést fimmtudaginn 4. ágúst.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Þorsteinn Ívar Sæmundsson,
Dagný Gísladóttir, Eysteinn Eyjólfsson,
Stefán Magnús Jónsson, Ester Sigurjónsdóttir,
Hildur Björg Jónsdóttir, Rúnar Eyberg Árnason,
Sigursteinn Þorsteinsson,
Helma Þorsteinsdóttir, Erlingur Reyr Klemenzson,
ömmubörn.
✝
Elskuleg móðir mín, amma, systir og
mágkona,
ÞÓRUNN H. FELIXDÓTTIR
kennari
og námsráðgjafi,
lést á Landspítala við Hringbraut laugar-
daginn 6. ágúst.
Jarðaförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 12. ágúst
kl. 15.00.
Felix Valsson,
Þórunn Helga Felixdóttir,
Áslaug Felixdóttir,
Bergur Felixson, Ingibjörg Guðmundsdóttir.
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, sonur,
tengdafaðir og afi,
REYNIR AXELSSON
skipstjóri,
sem andaðist á Landspítalanum við
Hringbraut deild ll E miðvikudaginn 3. ágúst,
verður jarðsettur frá Ingjaldshólskirkju Hellis-
sandi laugardaginn 13. ágúst kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðbjörg Jónsdóttir,
Stígur Reynisson, Þuríður Hall Sölvadóttir,
Sigurlaug Anna Reynisdóttir, Ægir Skjóldal Sigurðsson,
Davíð Arnar Reynisson, Ásdís Ósk Guðbjörnsdóttir,
Sævar Þór Reynisson,
Jóhanna Davíðsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GARÐAR AÐALSTEINSSON,
Brekkugötu 38,
Akureyri,
sem andaðist aðfaranótt föstudagsins 29. júlí
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 11. ágúst kl. 13.30.
Alda Þorgrímsdóttir,
Ómar Garðarsson, Rannveig Benediktsdóttir,
Smári Garðarsson,
Páll S. Garðarssson, Sigurður Ö. Guðbjörnsson,
Eydís Garðarsdóttir, Bjarni Einarsson,
Viðar Garðarsson, Sigríður Á. Viðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri,
SVERRIR SIGÞÓRSSON
bakarameistari,
Huldubraut 58,
Kópavogi,
er látinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hans
eigin ósk.
Þeim sem vildu minnast Sverris er bent á Félag nýrnasjúkra.
Elísabet (Betý) Jónsdóttir,
Edda Sverrisdóttir, Gottskálk Friðgeirsson,
Gústav Sverrisson, Hrafnhildur Júlíusdóttir,
Sigurjón Smári Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL EIRÍKSSON
fyrrverandi yfirlögregluþjónn,
Mánatúni 4,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 29. júlí.
Útförin fer fram í Grafarvogskirkju miðvikudaginn
10. ágúst kl. 13.00.
Svanfríður Gísladóttir,
Sigrún Pálsdóttir, Ingjaldur Eiðsson,
Gísli Pálsson, Kolbrún Gísladóttir,
Eiríkur Örn Pálsson, Arnheiður Ingimundardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.