Morgunblaðið - 09.08.2011, Side 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Húsnæði óskast
Par með ungbarn ÓE. íbúð í 101,
105, 107.
Vantar fljótlega 3+ herbergja íbúð,
70 m²+. Reyklaus og reglusöm.
Heitum skilvirkum greiðslum.
Greiðslugeta er allt að 140 þús.
m/ rafmagni og hita. Samband í síma
8685201.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Frysti og kæliklefar til sölu.
Hagstætt verð.
Myndin sýnir stærð: 3 x 2 x 2,5m.
SENSON S.511-1616.
senson@senson.is
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar
í úrvali
Auk gullhringa eigum við m.a. tita-
nium- og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar-
þjónusta. ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s: 551-6488
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhald og reikningsskil
Ársreikningar, bókhald, laun,
ráðgjöf og stofnun félaga.
Reynsla, þekking, traust.
Viðskiptaþjónustan,
Dalvegi 16d, Kópavogi.
vth.is / arni@vth.is / s. 517 0100.
Get ég aðstoðað?
Til þjónustu reiðubúinn fyrir þig í
fasteignaviðskiptum.
hallihar@remax.is
Sími 690 3665.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Mjóddin s. 774-7377
Sendum í póstkröfu
Náttföt - Sloppar - Náttkjólar
Undirkjólar - Sundföt - Undirföt
Vertu vinur á facebook
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
! " #$% ####
Þjónusta
VW Golf 98" ekinn 130 þ. km
sjálfskiptur verð 490 þúsund
staðgreitt. VW Golf 98" ekinn
130 þ. km sjálfskiptur. Fallegur og
góður bíll 5 dyra, heilsársdekk og
nýleg tímareim.
Verð 490 þúsund staðgreitt.
Upplýsingar í síma 820 4640.
Bílar
Óli fæddist um
páskana 1950 og
börnunum í götunni fannst þetta
stórkostlegar fréttir. Hann hlaut
að vera ótrúlega flottur og vel á
sig kominn eins og öll hin börnin í
Þingholtunum. Hann ólst upp á
Þórsgötu 15, í svokölluðu „fjöl-
skylduhúsi“ sem voru algeng á
þessum tíma, þar sem frænkur/
frændur, makar og barnaskarinn
bjuggu í sátt og samlyndi á öllum
hæðum hússins. Óli var uppá-
haldsbarn mömmu sinnar og fékk
hann eitt og annað sem hin fengu
ekki. Þegar hann var skírður var
hann látinn heita Ólafur eftir
einni móðursystur sinni, Ólafíu,
og Donald, eftir bandarískum eig-
inmanni hennar. Voru það sára-
bætur fyrir að fá ekki að ættleiða
hann. Óli var því oft kallaður Óli
Don. Hann var kraftmikill og svo
atorkusamur að stundum fannst
mömmu hans nóg um. Oft hótaði
hún honum að fara með hann í
flengingarvélina á lögreglustöð-
inni, sem var þá í Pósthússtræti.
Hann gerði sér lítið fyrir og hljóp
niður á lögreglustöð. Með sigur-
bros á vör kom hann heim og
sagðist hafa fengið að skoða alla
lögreglustöðina og þar var engin
flengingarvél. Þar með var sú
hótun fallin um sjálfa sig.
Hann var ekki hár í loftinu
þegar hann fór að selja dagblöðin
í miðbænum og atti kappi við Óla
blaðasala og fleiri góða drengi.
Allt fyrir mömmu.
Um fermingu var hann sendill
hjá Morgunblaðinu í Aðalstræti í
nokkurn tíma, enda viljugur, fé-
lagslyndur, brosmildur og smá-
stríðinn. Fyrsta morgunverkið
Ólafur Donald
Helgason
✝ Ólafur fæddist íReykjavík 6.
apríl 1950 og ólst
upp í Þingholt-
unum. Hann lést 25.
júlí 2011.
Útför Ólafs var
gerð frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík 3.
ágúst 2011.
var að fara með
Moggann upp í
Garðastræti til Ólafs
Thors og hlýtur það
að hafa verið mikill
heiður að vera
treyst fyrir því.
Óli vann á ýmsum
stöðum og um tíma
vann hann hjá Ís-
birninum og slasað-
ist í vél og missti
framan af fingri.
Hálfi fingurinn var eitt af sterk-
um einkennum Óla.
Hann vildi fermast hjá sr. Jak-
obi í Hallgrímskirkju eins og
„hinir strákarnir“. Nokkrum dög-
um fyrir ferminguna voru þeir við
Austurbæjarskólann að fikta með
eldspýtur. Leikurinn endaði með
því að hann fékk sviðnar auga-
brúnir og hárið strítt upp í loftið
og fermdist eins og pönkari.
Mömmu hans var ekki skemmt.
Hann slasaðist ungur á togara
á baki sem háði honum alla ævi.
Sennnilega hefur honum fundist
skemmtilegast að vinna með
Tomma, kenndum við Tomma-
borgara, þar sem þeir unnu við
breytingar og lagfæringar á Hót-
el Borg. Þeir voru mjög nánir vin-
ir.
Smálýsing á honum þegar
hann var krakki á Þórsgötunni:
Hann hitti Björgvin frænda sinn
sem bjó í húsinu og var alltaf kall-
aður Buggur, sonur Rósu. Bugg-
ur rétti honum fimm krónu pen-
ing og sá stutti leit íbygginn á
frænda sinn og sagði: „Geturðu
ekki haft það tíkall?“
Hann fór í félagsskapinn sem
fór „breiða veginn“ og dýrkaði
Bakkus. Eftir 1980 tókst honum
eftir nokkrar tilraunir að losa sig
frá eitrinu og náði mörgum góð-
um árum frá því.
Hann fór í hjartaþræðingu á
síðasta ári og var mjög mikill
sjúklingur eftir það.
Nú er hann kominn til mömmu
sinnar þar sem kærleikurinn ríkir
hjá þeim og þeim líður vel og
hlæja örugglega saman.
Við minnumst hans með ást og
kærleika.
Far í friði, með þökk fyrir allt
og allt.
Fyrir hönd systkina og fjöl-
skyldna þeirra,
Ingibjörg Jóna (Imma).
Kæri vinur.
Nú er komið að kveðjustund og
minningarnar streyma í gegnum
hugann, minningar sem tengjast
fyrrum vinnustað okkar, Hótel
Borg. Við Óli kynntumst þegar ég
byrjaði að vinna á Hótel Borg
snemma árs 1993 og tók þá við
ævintýratímabil undir styrkri
stjórn vinar okkar Tomma,
reyndar áttuð þið Tommi einstakt
vináttusamband sem ég var svo
lánsöm að fá að taka þátt í.
Ferðir okkar innanlands sem
erlendis, ógleymanlegar stundir
með skemmtilegum ferðafélög-
um, þar sem við samhæfðum
reynslu okkar, styrk og vonir og
sem leiddu til ævarandi vináttu
sem nær langt út yfir þetta líf.
Þrátt fyrir lítið samband hin síð-
ari ár hittumst við á stundum og
alltaf var til staðar minningin um
yndislegan mann og vin.
En í myrkustu afkimum menn
hafa ljósið fundið,
í mannlegri reisn okinu af
herðum sér hrundið.
Um vorglaðar nætur vonin fest
rætur
og vináttuböndin bundið.
(ERE.)
Takk fyrir, Óli minn,
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til barna og fjölskyldu
Óla.
Heiður Gunnarsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Hafðu hjartans þökk fyr-
ir allt, Óli minn, og sérstak-
lega demantinn okkar hana
Dagmar.
Blessuð sé minning þín.
Elsa.
✝ Guðrún KristínKristjánsdóttir
fæddist á Bíldudal
14. júlí 1943. Hún
lést á heimili sínu,
Reykjavíkurvegi
40, Hafnarfirði, 8.
júlí 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Kristján
Ásgeirsson, f. 9.10.
1919, d. 5.6. 1992
og Ingibjörg Jóns-
dóttir, f. 14.6. 1910, d. 5.2. 1991.
Guðrún var elst fimm systkina.
Systkini Guðrúnar eru: Rík-
harður Frímann, f. 8.8. 1946,
maki Ida Sveinsdóttir. Brynhild-
ur Björk, f. 9.11. 1948, maki Dið-
rik Ólafsson. Ingþór Víðir, f. 5.4.
1951, maki Aðalbjörg Helga-
dóttir og Sigurleifur, f. 27.2.
1956, maki Þórunn J. Jónsdóttir.
Eiginmaður Guðrúnar er
15.3. 1971, maki Kristín Grét-
arsdóttir, f. 7.5. 1971. Börn
þeirra: Guðrún Herdís Arnars-
dóttir, f. 16.11. 1998, Tómas
Orri Arnarsson, f. 14.9. 2002 og
Hjördís Ylfa Arnarsdóttir, f.
17.1. 2006. Brynja Dögg Guð-
mundsdóttir, f. 7.8. 1984.
Guðrún, eða Gurra eins og
hún var alltaf kölluð, ólst upp á
Bíldudal og gekk í grunnskól-
ann þar. Gurra átti lengst af
heimili á Bíldudal og sinnti þar
ýmsum störfum samhliða heim-
ilisrekstri og barnauppeldi. Eft-
ir að skólagöngu á Bíldudal lauk
vann hún til að byrja með í
frystihúsinu en síðar lengi í
Kaupfélaginu á Bíldudal. Gurra
vann síðar í nokkur ár í apótek-
inu þar og meðfram vinnu sinnti
Gurra lengi störfum meðhjálp-
ara við Bíldudalskirkju. Gurra
helgaði seinni hluta ævi sinnar
umönnun Brynju dóttur sinnar
sem er fötluð en árið 2001 flutti
fjölskyldan til Hafnarfjarðar og
starfaði Gurra þá um skeið á
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útför Gurru hefur farið fram
í kyrrþey.
Guðmundur Þór-
arinn Ásgeirsson,
sjómaður, f. 22. 7.
1943. Þau gengu í
hjónaband 14.6.
1970. Guðrún lætur
eftir sig 5 börn:
Emil Jón Hreið-
arsson, f. 22.7.
1961, maki Þóra
Gyða Júlíusdóttir,
f. 19.9. 1963. Synir
þeirra: Eggert Þór,
f. 22.6. 1996 og Baldur Örn, f.
21.10. 1997. Linda Björk Guð-
rúnardóttir, f. 8.10. 1962, börn
hennar: Birkir Sigurðarson, f.
18.9. 1985 og Sóley Hafsteins-
dóttir, f. 9.9. 1994. Gunnar Hilm-
ar, f. 20. 12. 1966, ættleiddur af
Gísla H. Hansen og Gróu Alex-
andersdóttur, maki Gyða
Traustadóttir, f. 17.12. 1965.
Arnar Freyr Guðmundsson, f.
Fallin er frá allt of snemma
tengdamóðir mín Guðrún Krist-
jánsdóttir, fædd á Bíldudal fyrir
nálægt 68 árum. Bíldudalur
fóstraði þessa fallegu konu
lengst af. Þar átti Gurra ham-
ingjuríka barnæsku í faðmi
góðra og umhyggjusamra for-
eldra og í hópi flottra systkina.
Þar ól hún börnin sín. Þar
kynntist hún manninum sínum
honum Dubba og bjó þar með
honum heimili, uns þau fluttu
suður í Hafnarfjörð fyrir nokkr-
um árum.
Ekki átti fyrir Gurru að liggja
að sækja langskólanám en eng-
um sem til þekkti duldist greind
hennar og geta til náms. Þessi
hlið hennar fékk kannski útrás í
miklum áhuga hennar og unun
af lestri góðra bóka. Hún las alla
tíð mjög mikið, var alæta á bæk-
ur og var þannig vel að sér um
margvíslega hluti. Lífið reyndist
tendamóður minni ekki alltaf
dans á rósum. Hennar einstaka
geðslag fleytti henni þó óskilj-
anlega langt í lífsins ólgusjó,
ótrúlegt jafnaðargeð og viljinn
til að horfa alltaf á það jákvæða
og spaugilega í hverjum aðstæð-
um. Gurra var félagslynd að
upplagi, átti gott með að kynn-
ast og umgangast fólk, gerði
ekki greinarmun á stöðu þess og
aldrei man ég til þess að hún
segði styggðaryrði um nokkurn
mann.
Ég kýs að minnast tengda-
móður minnar eins og hún var á
þeim tíma sem ég kynntist henni
fyrst, skemmtileg, falleg og góð
með glaðvært blik í augum.
Megi elskuleg tendamóðir mín
hvíla í friði, hennar verður
minnst með hlýju í hjarta.
Kristín Grétarsdóttir.
Guðrún Kristín
Kristjánsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins.
Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda
lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar