Morgunblaðið - 09.08.2011, Side 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Sudoku
Frumstig
8 7 4 6
3
6 2 8
9 7
6 5 2
7 5 9 8 6
2
3 4 9 8 7
7 4
1
4 8 2 5 1
2 9
8
4 6
8 3 5
5 1 9
9 2 3
8 3 6 4
1 8
7 5 1
3 6 8
4 7
1 3 7 4
6 5
6 9 2
3 7 8 5
8 7 4 1 9 2 3 6 5
1 3 5 7 6 8 2 9 4
2 6 9 4 5 3 7 1 8
4 8 2 9 3 5 1 7 6
3 5 6 2 1 7 8 4 9
7 9 1 6 8 4 5 3 2
6 4 7 5 2 1 9 8 3
9 2 8 3 7 6 4 5 1
5 1 3 8 4 9 6 2 7
8 2 6 4 3 5 9 7 1
5 3 7 1 9 2 4 8 6
1 9 4 6 7 8 3 5 2
9 1 5 7 8 3 2 6 4
7 4 8 2 6 9 5 1 3
2 6 3 5 4 1 8 9 7
4 8 1 3 5 7 6 2 9
3 7 9 8 2 6 1 4 5
6 5 2 9 1 4 7 3 8
6 1 2 8 4 7 3 5 9
9 7 3 5 2 1 6 8 4
5 4 8 3 9 6 2 1 7
8 3 9 7 6 5 4 2 1
1 6 5 2 8 4 9 7 3
4 2 7 1 3 9 5 6 8
3 9 1 6 7 2 8 4 5
2 5 4 9 1 8 7 3 6
7 8 6 4 5 3 1 9 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 9. ágúst, 221. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Drottinn er hlutskipti
mitt og minn afmældi bikar; þú held-
ur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.)
Starfsmenn skipulags- og bygg-ingarsviðs Reykjavíkurborgar
hafa einstakt lag á því að gera Vík-
verja graman og úrillan. Víkverji
býr í hverfi sem er að byggjast upp.
Lóðirnar eru að taka á sig mynd og
íbúar keppast við að fegra umhverf-
ið. Skipulag nokkurra húsa við göt-
una gerir ráð fyrir því að borgin
leggi bílastæði langt inn á lóðir húsa
þrátt fyrir að við hús Víkverja séu
þegar tvö bílastæði og allmörg hin-
um megin við götuna. Víkverji, sem
á einn bíl og hjólar venjulega í vinn-
una, gæti því auðveldlega komið sex
bílum fyrir við húsið sitt.
x x x
Íbúar við götuna höfðu reyndarfengið þau viðbrögð hjá borginni
að ólíklegt væri að borgin færi að
malbika þessi bílastæði því hana
skorti sárlega peninga í þörf verk-
efni um allan bæ. Víkverji hóf því í
samvinnu við nágranna sinn að reisa
girðingu á lóðinni sem náði aðeins út
á skipulagt bílastæðið sem enginn
kærði sig um. Víkverji var reyndar
ekki búinn að skrúfa nema nokkrar
spýtur þegar eftirlitsmenn frá borg-
inni voru mættir á svæðið og sögðust
ætla að fara að malbika stæðið. Þeg-
ar þeir voru spurðir hvort ekki væri
nóg af bílastæðum í götunni kom
svarið: „Bílastæðin eru á skipulagi
og þegar eitthvað er komið á skipu-
lag þarf kraftaverk til að breyta
því.“
x x x
Fjölskylda Víkverja hefur því síð-ustu kvöld komið saman til að
biðja um kraftaverk. Í bænum fjöl-
skyldunnar er himnafaðirinn beðinn
um að hvísla því að starfsmönnum
borgarinnar að nota peningana frek-
ar í að ljúka við skólalóðina í hverf-
inu en að malbika bílastæði inni á
miðri lóð sem enginn kærir sig um.
Víkverji vonar að borgarstarfsmenn
hlusti og íbúa borgarinnar og vonar
að guð komi góðu til leiðar.
Víkverji spurði reyndar mennina
frá Reykjavíkurborginni hvort það
ríkti ekki ást og friður í borginni, en
þeir sögðu glottandi að það væri
bara í Vesturbænum!
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 steins, 8 kven-
menn, 9 starfið, 10 greinir,
11 blóms, 13 endast til, 15
sól, 18 borða, 21 skúm, 22
róin, 23 skriðdýrið, 24
hryssingslegt.
Lóðrétt | 2 nirfill, 3 nemur,
4 eyddur, 5 korn, 6 bjartur,
7 ilma, 12 beita, 14 bók-
stafur, 15 bráðum, 16 hrak-
yrðir, 17 nabbinn, 18 högg,
19 heiðarleg, 20 hófdýrs.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 dreki, 4 hegri, 7 mótor, 8 lyfin, 9 afl, 11 asni, 13 æran,
14 logns, 15 holl, 17 arða, 20 ári, 22 rotin, 23 gildi, 24 annar, 25
akarn.
Lóðrétt: 1 dimma, 2 ertin, 3 iðra, 4 hóll, 5 gæfur, 6 innan, 10
fægir, 12 ill, 13 æsa, 15 hirta, 16 látin, 18 rolla, 19 alinn, 20 ánar,
21 igla.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hamman á villigötum. A-Enginn.
Norður
♠ÁD973
♥ÁD
♦ÁG74
♣KD
Vestur Austur
♠102 ♠K8
♥10762 ♥K83
♦K95 ♦32
♣G965 ♣Á108743
Suður
♠G654
♥G954
♦D1086
♣2
Suður spilar 4♠.
Kóngarnir í hálitunum liggja báðir
vitlaust, en ♦K er réttur í vestur og
það ætti að tryggja sagnhafa tíu slagi.
En fislétt opnun austurs sló Bob
Hamman út af laginu.
Spilið er frá Spingold-úrslitaleik
Zimmermanns og Nickells. Á öðru
borðinu varð Nunes sagnhafi í norður
og fékk út tígul upp í gaffalinn. Hann
lagði fljótlega upp. Hinum megin lenti
samningurinn í höndum Hammans í
suður eftir létta opnun Helness á
Standard-laufi. Hamman beit það í sig
að austur ætti kóngana þrjá og spilaði
upp á innkast. Út kom lauf og meira
lauf, sem Hamman svaraði með ♠Á og
spaða. Helness spilaði tígli, drottning
upp og dúnmjúk tígulfimma frá Helg-
emo í vestur. Það sannfærði Hamman
endanlega. Hann spilaði ♦Á og tígli í
þeim tilgangi að endaspila Helness…
9. ágúst 1851
Þegar fulltrúi konungs sleit
Þjóðfundinum, sem staðið
hafði í Reykjavík í rúman
mánuð, reis Jón Sigurðsson
upp og mótmælti því „í nafni
konungs og þjóðarinnar“. Þá
sögðu flestir þingmenn í einu
hljóði: „Vér mótmælum allir!“
Einni öld síðar var afhjúpuð
minningartafla um fundinn í
hátíðarsal Menntaskólans í
Reykjavík, þar sem fundurinn
var haldinn.
9. ágúst 1908
Jóhannes Sveinsson, síðar
nefndur Kjarval, opnaði fyrstu
málverkasýningu sína í Góð-
templarahúsinu í Reykjavík,
22 ára. Í Lögréttu var spurt:
„Hvað verður nú Íslandi úr
þessu listamannsefni?“
9. ágúst 1979
Menntamálaráðuneytið gaf út
tilkynningu um friðun gamalla
húsa á svonefndri Bernhöfts-
torfu í miðbæ Reykjavíkur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„Það er ekkert sérstakt skipulagt í dag. Ég ætla
bara að vera hér heima í sveitinni og njóta veð-
urblíðunnar,“ segir Ásdís Haraldsdóttir, vænt-
anlegur þjóðfræðinemi og hrossabóndi á Álftanesi
á Mýrum. Aðspurð hvernig veðrið hafi verið í sum-
ar segir hún það hafa verið mjög gott. Hún hafi
notað sumarið meðal annars til þess að sinna
hestamennskunni og það eina sem hún hafi farið
sé á Landsmót hestamanna sem fram fór á Vind-
heimamelum í Skagafirði fyrr á árinu. Hún kunni
þó alltaf best við mig heima.
Hins vegar er ætlunin að gera meira í tengslum
við afmælið um helgina, að sögn Ásdísar, en þá kemur bróðursonur
hennar í heimsókn sem búsettur er í Bandaríkjunum ásamt konu sinni
og tæplega ársgamalli dóttur sinni. „Þá ætlar fjölskyldan að hittast og
halda upp á allt sem við getum haldið upp á,“ segir hún.
Ásdís starfaði um árabil sem blaðamaður á Morgunblaðinu en hefur
undanfarin ár unnið sem íslenskukennari við Menntaskóla Borg-
arfjarðar. Næsta vetur stefnir hún hins vegar á meistaranám í þjóð-
fræði við Háskóla Íslands sem hún er að vonum mjög spennt fyrir.
hjorturjg@mbl.is
Ásdís Haraldsdóttir er 55 ára í dag
Heima í sveitasælunni
Hlutavelta
Nýlega héldu þær
Nadia Lóa Atladótt-
ir, Þórey Inga Örv-
arsdóttir, Andrea
Lóa Guðnadóttir og
Arna Geirsdóttir
tombólu við Björns-
bakarí á Fálkagötu.
Þær söfnuðu 2.900
krónum sem þær
gáfu til Rauða
krossins.
Flóðogfjara
9. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.14 3,0 8.34 1,2 15.08 3,3 21.35 1,2 5.00 22.07
Ísafjörður 4.21 1,7 10.46 0,8 17.23 2,0 23.50 0,8 4.48 22.30
Siglufjörður 0.23 0,5 7.04 1,1 12.56 0,6 19.19 1,3 4.30 22.13
Djúpivogur 5.11 0,7 11.53 1,9 18.28 0,8 4.25 21.41
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Taktu því rólega svo þér takist ætl-
unarverkið í fyrstu atrennu. Líttu á litríkt líf
þitt frá sjónarhóli einhvers utanaðkomandi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Samtal við vin getur gert þig óörugg-
an og óvissan í þinni sök. Sumir munu
hlýða á visku þína, en aðrir eru bara að
spyrja af gömlum vana og nenna varla að
hlusta á svarið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Nú er kominn tími til að hlusta á
sína innri rödd og hræðast ekki að fylgja
henni eftir. Aðalmálið er að vera sáttur við
sjálfan sig.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér hefur láðst að fylgja málum
þínum nægilega vel eftir og sýpur nú seyð-
ið af því. Eitthvert leynimakk á sér stað.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ekkert er meira spennandi en að vera
nýorðinn ástfanginn. Gefðu þér tíma til að
sinna þörfum vina og vandamanna.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þarft að ganga úr skugga um að
ekki sé verið að ganga á rétt þinn. Að því
sögðu útheimtir það ábyggilega meiri tíma
og peninga en ráð var fyrir gert.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Reyndu ekki að berjast til forystu í
ákveðnu máli því hún er ekki þitt hlutskipti
að svo stöddu. Láttu það samt ekki brjóta
þig niður en hafðu gát á orðum þínum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Takið ekki sem sjálfsagða hluti
ýmislegt sem ykkur er gefið. Vertu til taks
og leyfðu hæfileikunum að njóta sín.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þín bíða afdrifaríkir valkostir.
Reyndu að finna þér skjól meðan þú meltir
málin og finnur þínar lausnir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Allt sem þú hefur lagt á þig að
undanförnu er að byrja að skila árangri.
Ferðaáætlanir vekja áhuga þinn.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Of miklar upplýsingar gætu
flækt málin og komið í veg fyrir að þú finn-
ir réttu lausnina. Ekki hlusta á útjaskað
fólk.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fagnaðu félagslyndinu í sjálfum þér,
það á eftir að gera kraftaverk í viðskiptum
og fjármálum að styrkja tengslanetið.
Reyndu samt að lífga upp á það með ein-
hverjum hætti.
Stjörnuspá
Vinkonurnar Sóley Arna Frið-
riksdóttir og Eygló Auðbjörnsdóttir
sem búsettar eru á Eskifirði héldu
tombólu til styrktar sveltandi börn-
um í Sómalíu. Afrakstur tomból-
unnar var 9.100 krónur sem þær
gáfu í söfnunarsjóði Rauða krossins.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Bc5 6. c3 b5 7. Bb3 d6 8. d4 Bb6
9. Be3 Bg4 10. Rbd2 0-0 11. h3 Bh5 12.
dxe5 dxe5 13. De2 De7 14. Hfd1 Ra5
15. Rf1 Rxb3 16. axb3 De6 17. b4 Bxe3
18. Dxe3 Hfd8 19. Hxd8+ Hxd8 20.
Re1 Dc6 21. f3 Hd6 22. Rd3 Rd7 23.
Rc5 Rxc5 24. Dxc5 f6 25. Re3 Bf7 26.
Rf5 Dxc5+ 27. bxc5 He6 28. Re3 Kf8
29. b4 Hc6 30. g4 h5 31. Kf2 h4 32. Rd5
g5 33. Ke3 Ke8 34. Hd1 Kf8 35. Kd3
Be6 36. c4 bxc4+ 37. Kxc4 Kf7 38. Ha1
Bd7
Staðan kom upp í heimsmeist-
arakeppni landsliða sem lauk fyrir
skömmu í Ningbo í Kína. Sergei Mov-
sevsjan (2.700), sem nú teflir fyrir
Armeníu, hafði hvítt gegn bandaríska
stórmeistaranum Alexander Onischuk
(2.675). 39. b5! axb5+ 40. Kb4! Be8 41.
Ha7 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik