Morgunblaðið - 09.08.2011, Síða 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HERRA MINN, ÉG HELD
AÐ ÞESSI MAÐUR HAFI
VERIÐ MYRTUR
MYRTUR
SEGIRÐU?
JÁ HERRA,
LÍTTU Á PÍANÓIÐ
PÍANÓIÐ?
UH...JÁ,
PÍANÓIÐ SEM
LIGGUR Á HONUM
JÁ,
ÞAÐ
PÍANÓ
ÞAÐ
GETA EKKI ALLIR
RANNSÓKNAR-
LÖGREGLUMENN
VERIÐ SKARPIR
...DISKUR FYRIR
ÞRJÁTÍU TOMMU PÍZZUR
ÉG ER
KOMINN MEÐ
ANSI GOTT
SAFN AF
DÖLLUM
MORGUNVERÐAR-
DALLUR, EFTIRRÉTTAR-
DALLUR...
...OG SVO
UPPÁHALDIÐ MITT...
ÉG ER ÁNÆGÐ MEÐ
AÐ VIÐ SKULUM HAFA
TEKIÐ OKKUR VETRARFRÍ...
...EN GÁTUM VIÐ
EKKI FARIÐ EITTHVERT
ANNAÐ EN Í
SUMARHÚSIÐ OKKAR?
MIG LANGAR
SVO AÐ REYKJA EINN
AF VINDLUNUM SEM
RAJIV GAF MÉR
ÉG BÍÐ ÞANGAÐ TIL
HÚN ER FARIN, SVO HÚN
FARI EKKI AÐ PIRRA SIG
ÞETTA VAR LAGIÐ, MIKLU
MINNA VESEN
ERTU
VISS UM AÐ
SABRETOOTH
HAFI SIG Á
BROTT?
ÞANNIG AÐ PETER PARKER
NEYÐIST TIL AÐ EYÐA MEIRI TÍMA MEÐ
KONUNNI SINNI?
EN
EF ÞÚ
ÆTLAR AÐ
GERA ÞAÐ...
ÞÁ ÞARFTU AÐ KOMA
MEÐ MÉR TIL MIAMI
ALLIR HERS-
HÖFÐINGJAR KEISARANS
ERU LÁTNIR...EINHVER
VERÐUR AÐ LEIÐA
HERINN
KJÚKLINGUR TSO
HERSHÖFÐINGJA
JÁ, EF
HANN FINNUR
EKKI KÓNGULÓAR-
MANNINN
Reykjavíkur-
flugvöllur
Nú er talað um að
leggja niður tvær
flugbrautir á Reykja-
víkurflugvelli árið
2016.
Enginn hefir
minnst á það, hvað
eigi að koma í staðinn.
Eða hvar kennslu- og
æfingaflug eigi að
vera. Um miðjan
fjórða áratug seinustu
aldar réð ríkisstjórnin
Gústaf E. Pálsson
verkfræðing til þess
að finna góðan stað
fyrir flugvöll. Gústaf taldi besta
staðinn vera Bessastaðanes, gallinn
væri bara, hve erfitt væri að sigla yf-
ir Skerjafjörð í vondu veðri. Sama
sinnis og Gústaf er hinn frækni flug-
stjóri Dagfinnur Stefánsson, sem
sagði að þarna væri frítt til allra
átta, engin fjöll eða sviptivindir. Auk
þess mætti hæglega gera þarna
10.000 feta langa flugbraut.
Væri ekki ágæt byrjun að gera
þarna á nesinu æfinga- og sportflug-
völl með tveim brautum, N-S og SV-
NA. Þessar flugbrautir geta þá
þjónað sem varabrautir fyrir
Reykjavík þá fáu daga á ári sem ekki
er hægt að nota S-A-brautina.
Stundum hefir verið sagt að flug-
völlur á þessum stað truflaði forset-
ann. Frá þessum
Bessastaðanesflugvelli
yrðu 1500 metrar að
Bessastöðum, en það
er svipuð vegalengd og
frá miðjum Reykjavík-
urflugvelli að forseta-
skrifstofunni. Svo er
það spurning, hvort
ekki sé heppilegast að
forsetinn hafi sinn bú-
stað í Sóleyjargötu 1
og skrifstofan í húsi
embættisins við Lauf-
ásveg. Það er illa farið
með orku forsetans og
eldsneyti að eyða einni
til tveim klukkustund-
um á dag í óþörf ferða-
lög. Í framtíðinni gæti svo öll flug-
starfsemi flust frá Reykjavík suður
á Bessastaðanes.
Suðurgötuna er hægt að fram-
lengja yfir fjörðinn, vegalendin er
1500 metrar fjöru í fjöru, grunnsævi
lengst af leiðinni og nóg fyllingarefni
á botninum.
Nú er talað um að Keflavíkur-
flugvöllur anni ekki meira á álags-
tímum, svo Reykjavíkurflugvöllur
þarf að vera klár fyrir Evrópuflugið
næsta vor, svo hægt verði að taka á
móti öllum sem hingað vilja koma.
Gestur Gunnarsson.
Ást er…
… samband með sögu.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Bridgedeild FEBK mun hefja starf eftir
sumarleyfi fimmtudaginn 18. ágúst kl.
13 í Gullsmára 13. Framvegis verður
spilað á sama tíma kl. 13 á mánudög-
um og fimmtudögum.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, hádegisverður og
heitt á könnunni.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður og myndlist kl. 9, ganga kl. 10,
Kanasta kl. 13.
Hraunbær 105 | Blöð liggja frammi og
kaffi á könnunni. Púttvöllur er opinn
alla daga. Bónusbíll kemur kl. 12.15.
Tímapantanir hjá Helgu fótafræðingi
eru í síma 698-4938, tímapantanir á
hárgreiðslustofu í síma 894-6856.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16. Böð-
un fyrir hádegi, hádegisverður, mið-
dagskaffi, fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listasmiðjan opin fyrir ein-
staklinga og hópa. Hugmyndabankinn
opinn. Skráning hafin. Panta þarf há-
degisverð fyrir kl. 9.30. Síðdegiskaffi.
Haustfagnaður föstudag 2. september
kl. 14. Uppl. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Línudans í
Kópavogsskóla, hópur I kl. 14.40, hóp-
ur II kl. 16.10 og hópur III kl. 17.40.
Pútt á æfingasvæðinu við Kópavogslæk
kl. 17. Uppl. í síma 554-2780 og á
www.glod.is
Vitatorg, félagsmiðstöð | Erum farin
að skrá á námskeiðin hjá okkur í vetur.
Bútasaumur, bókband, postulínsmálun,
leirmótun og glerbræðsla. Uppl. í síma
411-9450.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, hárgreiðslu- og fóta-
aðgerðarstofur opnar, félagsvist kl. 14.
Pétur Stefánsson var að drepastúr rasssæri og harðsperrum
eftir útreiðartúr, enda langt síðan
hann hafði verið á hestbaki. Hon-
um varð að orði:
Bauðst mér í gærdag hnakkur og
hestur,
hélt ég í reiðtúr með vinkonum tveim.
Reið ég í suður, reið ég í vestur,
reið ég svo norður og austur og heim.
Árni Jónsson í Kotabyggð las
vísuna á Netinu og orti þegar:
Orsök sárra eymsla þinna
er af reynsluleysi manns.
Hefðir átt að hælast minna
hér á öldum ljósvakans.
Friðrik Steingrímsson stenst
aldrei mátið að senda Pétri
kveðju:
Að rasssár sé af ríðingum
rímar ekki í trúnni,
ég held það sé af hýðingum
sem hann má þola af frúnni.
Sigrún Haraldsdóttir kom Pétri
til varnar:
Frískur, laus við fát og trega,
fimur eins og laxinn,
rammbyggður og roknalega
reiðmannlega vaxinn.
Pétur Stefánsson þakkaði Sig-
rúnu kveðjuna:
Loksins naut ég sannmælis.
Við yrking þína er allra síst
eitthvað ljótt og bogið.
– Hérna er mér hárrétt lýst,
hér er engu logið.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af útreiðartúr og eymslum
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Góður gangur í Sumarbrids
í Reykjavík
Sumarbrids hefur gengið mjög
vel í sumar og aðsókn oft verið á
bilinu 15-20 borð. Miðvikudaginn
þriðja ágúst var spilað á 16 borð-
um og urðu Arnar Geir Hinriksson
og Guðmundur Þ. Gunnarsson
efstir með 537 stig í plús eða
63,9%. Í öðru sæti urðu Guðjón
Sigurjónsson og Kjartan Ás-
mundsson með 63,3% og þriðju
Halldór Svanbergsson og Sverrir
Þórisson með 57,5%.
Í bronsstigasöfnun er staðan
þessi:
Halldór Þorvaldsson 286
Hermann Friðriksson 257
Oddur Hannesson 216
Magnús Sverrisson 193
Árni Hannesson 190
Með hæstu skor á kvöldi eru
þessir efstir (%):
Jón Ingþórss. – Hermann Friðrikss. 67,49
Erla Sigurjónsd. – Inda Hr. Björnsd.66,07
Ísak Örn Sigurðss. – Helgi Sigurðss. 65,2
Spilað er alla mánudaga og mið-
vikudaga kl. 19 í húsnæði Brids-
sambands Íslands að Síðumúla 37.