Morgunblaðið - 09.08.2011, Blaðsíða 29
Miðasala á tónleika Gustavos
Dudamels og Gautaborgar-
sinfóníunnar 18. september í
Eldborg hefst á hádegi í dag.
Stjórnandinn Gustavo Duda-
mel er aðeins þrítugur að aldri
en á litríkan og merkan feril að
baki. Sinfóníuhljómsveit
Gautaborgar verður fyrsta
gestahljómsveitin til að sækja
Hörpu heim.
Á efnisskrá tónleikanna er
meðal annars frumflutningur verksins Tiger
Touch eftir Karin Rehnqvist, Sinfónía nr. 6 eftir
Tchaikovsky og Klarinettukonsert eftir Mozart.
Einleikari er Martin Fröst.
Tónlist
Miðasala á Duda-
mel hefst í dag
Gustavo
Dudamel
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Eins og ef Eric Clap-
ton væri með gítar-
námskeið 30
»
Á fimmtudaginn halda þær Agnes
Tanja Þorsteinsdóttir sópran og
Agnes Löve píanóleikari tónleika í
Selinu á Stokkalæk. Þær flytja tón-
list eftir íslenska og erlenda höf-
unda af ýmsu tagi: ljóðatónlist og
aríur m.a. eftir Brahms, Schubert,
Schumann og Hugo Wolf, Mozart,
Puccini og fleiri.
Agnes Tanja stundaði söngnám
hjá Angelicu Vogel á haustdögum
2009 í München. Þá hefur hún sótt
tíma hjá Dunja Vejzovic, prófessor í
Stuttgart, og hjá þeim Anton
Steingruber og David Bartleet sem
eru mörgum Íslendingum að góðu
kunnir. Agnes var síðastliðinn vetur
gestanemandi við tónlistarháskól-
ann í Vín og var kennari hennar þar
Anton Scharinger prófessor. Í vor
stóðst Agnes inntökupróf í háskól-
ann og verður nemandi þar næstu
árin en af 180 umsækjendum kom-
ust aðeins 10 inn. Agnes hefur kom-
ið fram á ýmsum tónleikum, m.a.
sungið Stabat Mater eftir Pergolesi
í Vídalínskirkju og á Hólum í
Hjaltadal.
Agnes Löve á að baki glæsilegan
feril. Hún gegndi starfi tónlistar-
stjóra Þjóðleikhússins á árunum
1982-1992 og er nú skólastjóri Tón-
listarskóla Garðabæjar. Agnes var
stjórnandi Þjóðleikhúskórsins og
hefur verið einleikari með Sinfón-
íuhljósveit Íslands og hljómsveit-
arstjóri í uppfærslum á söngleikjum
í Þjóðleikhúsinu. Þess má geta að
Agnes Löve er amma Agnesar Þor-
steinsdóttur.
Tvöföld Agnes kemur fram
á tónleikum á Stokkalæk
Flytja aríur og ljóðatónlist eftir íslenska og erlenda höfunda
Morgunblaðið/Golli
Tónlistarkona Agnes hefur komið víða við á farsælum ferli.
Í kvöld stíga Matthías Ingiberg
Sigurðsson klarínettuleikari og
Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleik-
ari á svið á tónleikum í Salnum í
Kópavogi. Þau flytja verk eftir
tónskáld á borð við Debussy,
Poulenc, Stravinsky og Brahms.
Eva Þyri er búsett í London þar
sem hún lauk námi í fyrra og
hlaut The Christian Carpender
Piano Prize fyrir framúrskarandi
lokatónleika. Hún hefur meðal
annars komið fram sem einleikari
með hljómsveit auk þess að hafa
haldið einleiks-, kammer- og ljóða-
tónleika víðs vegar um Evrópu.
Matthías er búsettur í Amst-
erdam þar sem hann stundar tón-
listarnám. Hann hefur unnið til
fyrstu verðlauna í Alþjóðlegu
klarínettukeppninni á Kýpur og
vann jafnframt keppnina Ungir
einleikarar í fyrra og lék þá ein-
leik með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands.
Tónleikarnir eru í tengslum við
Tónlistarhátíð unga fólksins sem
er haldin í fjórða sinn um þessar
mundir og verða þeir síðustu í röð
opinberra tónleika hátíðarinnar.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.
Matthías og Eva
Þyri í Salnum
Leika m.a. verk Debussy og Brahms
Tvíeyki Matthías og Eva Þyri hafa
vakið athygli fyrir leik sinn.
ASA-tríó leikur á tónleikum á Café
Rósenberg á morgun, miðvikudag. Á
efnisskránni verður efni úr ýmsum
áttum, þar á meðal af nýútkomnum
diski sveitarinnar sem ber nafnið
ASA Trio plays the music of Thelon-
ious Monk. Skífan er sú fyrsta sem
sveitin sendir frá sér en þar má-
heyra hvernig hún nálgast verk eins
og Ask me now og Criss Cross eftir
Monk. Viðtökur djassspekúlanta
hafa verið ágætar og töluvert verið
ritað um gripinn í netheimum.
Tríóið, sem hefur verið starfandi í
fimm ár, er skipað þeim Agnari Má
Magnússyni á Hammondorgel, Scott
McLemore á trommur og Andrési
Þóri sem leikur á gítar. Hljómsveitin
leikur það sem henni hugnast hverju
sinni og áhorfendur geta átt von á að
heyra tónlist ólíkra listamanna á
borð við Jimi Hendrix, Fionu Apple,
Wayne Shorter eða jafnvel Kaliforn-
íupopparana í Red Hot Chili Pep-
pers.
Frekari upplýsingar og tóndæmi
er að finna á vef sveitarinnar asa-
trio.com.
Tónleikarnir hefjast klukkan
21:00 og er aðgangseyrir 1.500 krón-
ur.
Sveifla ASA-tríó á tónleikum.
ASA-tríó
leikur á
Rósenberg
Búast má við
fjölbreyttu lagavali
Þriðjudaginn 9. ágúst 2011 kl.
18:30 gengur Margrét Hrönn
Hallmundsdóttir fornleifa-
fræðingur með gestum um
bæjarhólinn í Nesi á Seltjarn-
arnesi og gæðir forminjarnar
lífi með frásögnum sínum. Í
Nesi hefur verið búið allt frá
landnámsöld og þar er að finna
ýmsar fornminjar sem segja
þá sögu.
Margrét þekkir fornminj-
arnar í Nesi vel en hún hefur tekið þátt í nokkrum
fornleifarannsóknum sem þar hafa farið fram.
Gangan hefst kl. 18:30 og er öllum opin en að-
gangur er ókeypis.
Fornmenning
Gengið um Nesið
með Margréti
Nesstofa
Hinn 14. ágúst kemur út platan
Segið það móður minni. Á
henni eru 14 lög við kvæði Dav-
íðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi. Lögin eru öll eftir Ingólf
Steinsson nema eitt sem Sig-
valdi Kaldalóns samdi. Ing-
ólfur og dætur hans Arnþrúður
og Sunna syngja lögin en þeim
til aðstoðar eru nokkrir góð-
kunnir hljóðfæraleikarar. Lög-
in eru aðallega við kvæði úr
eldri bókum skáldsins svo sem Svörtum fjöðrum
(1919), Kvæðum og Kveðjum en einnig úr Ljóðum
frá liðnu sumri sem kom út 1956. Útgáfutónleikar
verða á Rósenberg 22. ágúst.
Tónlist
Lög við
kvæði Davíðs
Davíð
Stefánsson
Hallur Már
hallurmar@mbl.is
Fyrir helgina bárust fréttir af því að
Reykjavík hefði verið útnefnd ein af
Bókmenntaborgum UNESCO.
Svanhildur Konráðsdóttir sviðs-
stjóri Menningar- og Ferða-
málasviðs Reykjavíkurborgar segir
að útnefningin sé afrakstur um-
fangsmikillar vinnu sem hafi farið
fram frá því í ársbyrjun 2010.„Um-
sóknin sjálf er rit upp á rúmar 130
síður þar sem farið er ofan í saum-
ana á íslenskri bókmenntamenn-
ingu. Hún er raunar merkileg fyrir
þær sakir að þar er íslenska bók-
menntalífið kortlagt í fyrsta skipti
með þessum hætti.“
Í umsókninni er sett fram framtíð-
arsýn um bókmenntatengda starf-
semi. Þar er gert ráð fyrir að setja á
fót bókmenntahús Reykjavíkur eða
miðstöð orðlistar í Reykjavík þar
sem heimili Bókmenntaborgarinnar
verður. Þá er ætlunin að efla til lest-
arhvatningar í grunnskólum lands-
ins. Vigdís Finnbogadóttir lagði
Reykjavíkurborg og samstarfs-
aðilum hennar lið og stofnun hennar
mun á næstunni setja á fót al-
þjóðlega tungumálamiðstöð sem
Bókmenntaborgin hefur mikinn hug
á að tengjast. Með þessum leiðum á
að ná því markmiði að bókmenntir
og ritlist verði ein af grunnstoðum í
skapandi starfi innan borgarinnar.
Eftirsótt hlutverk
Markmið UNESCO með verkefn-
inu með verkefninu er að lyfta undir
menningu og sérkenni ólíkra borga,
hvetja til skapandi ferðaþjónustu og
fjölga tækifærum til þróun ar og
samstarfs á ýmsum sviðum menn-
ingar. Að sögn Svanhildar er hlut-
verkið afar eftirsóknarvert og sam-
kvæmt UNESCO bíða nú um 20
borgir eftir svari við umsókn. „Það
er ekki langt síðan UNESCO setti
verkefnið á laggirnar en það kom í
hlut Edinborgar að verða fyrsta
bókmenntaborgin árið 2004. Við höf-
um átt í góðu samstarfi við skrifstof-
una sem var sett á laggirnar þar í
tengslum við hlutverkið.“
Athygli vekur að Reykjavík er
fyrsta bókmenntaborgin sem er ut-
an ensks málsvæðis. En Svanhildur
segir að sem bókmenntaborg taki
borgin þátt alþjóðlegu neti skapandi
borga sem geti t.d. legið á sviði tón-
listar, kvikmynda og hönnunar auk
bókmennta. UNESCO hefur t.a.m.
tilnefnt Glasgow sem tónlistarborg,
Sydney sem kvikmyndaborg og Ös-
tersund er matargerðarborg.
Svanhildur segir skemmtilegt að
svarið hafi komið fyrir bók-
menntahátíðina í Frankfurt. „Við er-
um í góðu samstarfi við Halldór Guð-
mundsson og hans fólk en verkefnið
verður kynnt sérstaklega á hátíðinni
í október- en innanlands munum við
ýta þessu formlega úr vör á Bók-
menntahátíð í Reykjavík, sem haldin
verður í byrjun september.“
Bókmenntaborgin Reykjavík
Markmiðið að
ritlist og bók-
menntir verði stoð
skapandi starfs
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Eitt af markmiðum verkefnisins Skapandi borga er að efla ferðaþjónustu.