Morgunblaðið - 09.08.2011, Side 32
AF LISTUM
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Hægt er að flokka bók-menntir eftir ótal mis-munandi aðferðum. Er
textinn í bundnu máli eða ekki?
Eru efnistökin skálduð upp eða
eru þau fræðilegs eðlis? Er um
leikrit að ræða sem ætlað er að
flytja á sviði?
Það er í eðli okkar að flokka
hluti því flokkun auðveldar skiln-
ing, svo ekki sé talað um bóka-
kaup. Lítið gaman væri að ganga
um stóra bókabúð, þar sem bók-
um væri raðað upp í stafrófsröð
án tillits til efnistaka og forms
viðkomandi bóka. En flokkun get-
ur hins vegar orðið á kostnað
heildarmyndarinnar.
Ein af flokkununum, sem ég
held að sé síður til góðs, er flokk-
unin í fagurbókmenntir annars
vegar og fræðirit hins vegar, eins
og gert er þegar íslensku bók-
menntaverðlaunin eru veitt. Í
þessari flokkun, eða orðavalinu á
flokkunum öllu heldur, felst óhjá-
kvæmilega sú skoðun að fræðirit
geti ekki verið fagurbókmenntir.
Að til þess að geta talist fag-
urbókmenntir verði efnistök bóka
að vera uppdiktuð, að hluta til að
minnsta kosti.
Ég hef undanfarna mánuðiverið að lesa mig í gegnum
verk Winstons Churchill, en hann
skrifaði eins og margur veit, fjöl-
mörg sagnfræðirit. Efniviðurinn
voru stundum nýliðnir atburðir,
eins og þegar hann skrifaði um
reynslu sína í S-Afríku og Súdan,
eða bókaraðirnar sem hann skrif-
aði eftir fyrri og seinni heims-
styrjaldir. Hann skrifaði einnig
sagnfræði um fyrri aldir, þar á
meðal sögu forföður síns, John
Churchill, fyrsta hertogans af
Marlborough og sögu enskumæl-
andi þjóða.
Eftir flokkun íslensku bók-
menntaverðlaunanna teljast rit
Churchills til fræðirita en ekki
fagurbókmennta. Þeir sem lesið
hafa bækurnar vita hins vegar að
fáir enskumælandi rithöfundar
standa Churchill framar þegar
kemur að prósaskrifum. Skiptir
það engu máli að umfjöllunarefni
hans er sagnfræði en ekki skáld-
skapur. Alger unun er að lesa
bækur hans, textinn er meitlaður
og ber þess merki að höfundurinn
hefur lagt mikið á sig til að ná
fullkominni stjórn á tungumálinu.
Skiptir þar litlu máli hvort
Churchill er að lýsa síðustu stóru
riddaraliðsárás heimsins við Omd-
urman, átakanlegri og brjóst-
umkennanlegri tilveru Hinriks
sjötta eða öllum þeim mistökum
sem bresk stjórnvöld gerðu í að-
draganda seinni heimsstyrjald-
arinnar. Alltaf er lesandinn sem
límdur við blaðsíðuna.
Ég er svo sem ekki að segja
neitt sem ekki hefur áður verið
sagt, enda fékk Churchill bók-
menntaverðlaun Nóbels fyrir af-
rek sín á sviði bókmennta.
Þessi skil milli fagurbók-mennta – litteratúrs – og
fræðirita eru ekki ný og ekki sér-
íslenskt fyrirbæri. Hetjuljóð Hóm-
ers teljast til fagurbókmennta,
sem og leikrit Aeskilosar, Sófók-
lesar og Evrípídesar. Sagn-
fræðirit Xenófóns og Þúkýdídesar
og heimspekirit Platóns teljast til
fræðirita. Getur hins vegar ein-
hver haldið því fram að hinir síð-
arnefndu hafi haft minni áhrif á
evrópskar bókmenntir og menn-
ingu en hinir fyrrnefndu?
Ég verð að viðurkenna að ég
hef almennt meiri áhuga á fræði-
bókum en skáldskap, að
ákveðnum jaðargreinum bók-
mennta undanskildum, einkum
vísindaskáldskap og fantasíum.
Þetta kann að skýra þessa af-
stöðu mína til skiptingar bók-
mennta.
Ég hef einnig skilning á því
að nema að ætlunin sé að gefa að-
eins ein bókmenntaverðlaun í stað
tvennra sé í raun óhjákvæmilegt
að flokka bókmenntir með þeim
hætti sem gert er hér á landi.
Tilgangur þessara skrifa ereingöngu að velta upp þeirri
spurningu hvort flokkunin sem
slík hafi ekki óhjákvæmilega
áhrif á það hvaða augum við lít-
um fræðirit. Þegar við erum vön
að líta á þau sem bókmenntir sem
ekki eru fagurbókmenntir, er þá
ekki viðbúið að afstaða okkar til
fræðirita verði neikvæðari en
ella? Að við hugsum um þau sem
þurr og leiðinleg rit sem við les-
um tilneydd en ekki vegna þess
að við njótum þess. Að bækur
sem ekki eru fagurbókmenntir
hljóti að vera ljótar bókmenntir?
Kannski er ég að berjast hér
við strámenn. Kannski er enginn
annar sem hefur þessar sömu
áhyggjur og ég, en mér þykja
pælingar sem þessar engu að síð-
ur áhugaverðar.
Fræðirit sem fagurbókmenntir
»Er þá ekki viðbúiðað afstaða okkar til
fræðirita verði neikvæð-
ari en ella? Að við hugs-
um um þau sem þurr og
leiðinleg rit sem við les-
um tilneydd en ekki
vegna þess að við njót-
um þess.
Associated Press
Saga Samkvæmt frægri, en bjagaðri tilvitnun í Winston Churcill, óttaðist hann ekki að sagan myndi fara óþægileg-
um höndum um hann, því hann ætlaði að skrifa hana sjálfur. Hver sem tilgangurinn var tókst honum vel til.
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Skó
lar &
nám
ske
ið
Skólar
& náms
keið
SÉRBLAÐ
MEÐAL EFNIS:
Endurmenntun
Símenntun
Iðnnám
Námskeið
Tölvunám
Háskólanám
Framhaldsskólar
Tónlistarnám
Skólavörur
Skólatölvur
Ásamt full af
spennandi efni
Skólar & námskeið
Þann 19. ágúst
kemur út glæsilegt
sérblað um skóla
og námskeið sem
mun fylgja Morgun-
blaðinu þann dag
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 15. ágúst
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Besta mynd vikunnar 1.8.–7.8. tók Ragnheiður G. Ást-
valdsdóttir. Þessi glæsilega mynd er af af tónlistarhús-
inu Hörpu en glergluggarnir sem prýða húsið minna á
nokkurs konar stiga í átt til himnaríkis. Ljósmynda-
keppni Canon og mbl.is er enn í fullu fjöri og stendur
keppnin til 1. september næstkomandi. Vegleg verðlaun
eru í boði fyrir fyrstu þrjú sætin.
Ljósmyndasamkeppni Canon og mbl.is
Himnastigi Hörpunnar
www.mbl.is/folk/ljosmyndakeppni