Morgunblaðið - 07.09.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég er heilluð af hinu frá-bæra rými sem er hér áÍslandi til sköpunar ogþað er ein af ástæðum
þess að ég ílengdist hérna og hef
verið á skemmtilegu tónlistarlegu
ferðalagi síðan ég kom,“ segir
írska tónlistarkonan Joanne Kear-
ney sem skrapp til Íslands í tíu
daga fyrir fimm árum til að heim-
sækja vin. „En ég fylltist sterkri
löngun til að vera hér lengur og
búa til tónlist. Ég hafði verið í
nokkrum hljómsveitum heima á
Írlandi og verið með nokkur gigg
með gítarinn minn. Ég bjó fyrst á
Grundarfirði í nokkra mánuði og
samdi þar þónokkuð af lögum og
textum. Og svo leiddi eitt af öðru
og úr varð tólf laga diskur, Phas-
es. Það er einhvern veginn þannig
að þegar maður ákveður að gera
eitthvað þá fer eitthvað af stað og
það kemur til manns sem maður
þarf á að halda,“ segir Joanne og
nefnir nokkur dæmi.
Mikil vinátta í hópnum
„Þegar ég ákvað að hafa pía-
nóleikara með mér á diskinum þá
hitti ég einn slíkan tveimur dögum
síðar í boði hjá vinum mínum. Það
var hann Daði Sverrisson og
seinna kom pabbi hans, Sverrir
Guðjónsson, líka að diskinum,
hann var mér innan handar með
mixið. Þegar ég ákvað að hafa
fiðluleikara á diskinum þá hitti ég
fyrir tilviljun hana Önnu Von Hey-
nitz fiðluleikara á kaffihúsi. Og
svona var þetta með alla sem
koma fram á diskinum. Við kom-
um öll hvert úr sinni áttinni sem
skipum hljómsveitina en sam-
vinnan varð til þess að sterk vin-
átta myndaðist á milli okkar.“
Blanda af því Íslandi og
Írlandi sem í mér býr
Hún segir ekki auðvelt að
flokka þá tegund tónlistar sem
finna má á diskinum. „Ég kalla
það þjóðlagatónlistarbræðing (e.
folk fusion) en ég vil í raun ekki
setja þetta á einhvern bás. Þessi
tónlist spratt upp úr ólíkum jarð-
vegi. Sumt af því sem ég syng á
þessum diski samdi ég áður en ég
fór til Íslands, eitthvað sem ég
átti eftir að koma frá mér. Þau lög
og textar sem ég kom með mér í
farteskinu voru frekar þung en ég
er búin að létta þau. Annað samdi
ég hér á Íslandi og þá var náttúr-
an hérna og andlega rýmið drif-
krafturinn. Þessi tónlist er því
blanda af því Írlandi og Íslandi
sem í mér býr,“ segir Joanne og
bætir við að þetta sé bara byrjun-
in, meira komi síðar. „Ég efast
ekki um að ég fæ meiri athygli
heima á Írlandi með því að gera
disk hér á Íslandi. Ég væri týnd
eins og nál í heystakki í útlöndum.
Ég elska Ísland. Eftir að ég kom
hingað gat ég ekki snúið aftur til
Dublinar í mitt daglega munstur
þar. Ég hafði ótrúlega mikinn
tíma og rými til að framkvæma og
skapa fyrsta íslenska veturinn
minn á Grundarfirði, sem var
Á Íslandi er mikið
rými til sköpunar
Hún kom til Íslands fyrir fimm árum og ætlaði að stoppa í 10 daga en er hérna
enn. Írska tónlistarkonan Joanne Kearney gaf nýlega út diskinn Phases sem inni-
heldur einhverskonar þjóðlagatónlistarbræðing. Hún fékk til liðs við sig íslenska
og erlenda tónlistarmenn og frjósemi innan hópsins er ótrúlega mikil.
Stemning Joanne með hluta af meðlimum bandsins sem spilar með henni
á disknum Phases. Joanne lýsir tónlistinni sem þjóðlagatónlistarbræðingi.
Vefsíðan Skilnadur.is er ætluð þeim
sem ganga í gegnum erfitt tímabil og
þurfa að leysa flókin mál sem fylgja
sambúðarslitum. Á síðunni er hægt
að fá frían aðgang að lesefni og leið-
beiningum sem geta hjálpað ein-
staklingum að taka erfiðar ákvarð-
anir og horfa til framtíðar.
Sambandsslit eru mörgum áfall og
geta valdið því að ákvarðanataka og
hegðun verði órökvís og tilvilj-
anakennd. Það getur valdið miklum
skaða ef fólk fær ekki viðeigandi að-
stoð á svo erfiðri stundu, aðstoð sem
er miðuð við að vinna vel úr málum
fyrir alla sem skilnaðurinn snertir.
Ábyrgðaraðili vefsíðunnar er Björn
Vernharðsson sálfræðingur. Á vefsíð-
una er einnig hægt að senda ein-
staklingsfyrirspurnir en gjald er tekið
fyrir slíka þjónustu. Til að nota vef-
síðuna þarf að skrá sig en fyllsta
trúnaðar er gætt.
Vefsíðan www.skilnadur.is
Morgunblaðið/Heiddi
Deila Það vill oft gerast að börnin lendi á milli þegar foreldrarnir skilja.
Stuðningur á erfiðu tímabili
Danski einleikurinn Kontrabassinn,
eftir Patrick Suskind í flutningi And-
ers Ahnfelt-Rønne, verður sýndur í
sal Norræna hússins kl. 20 á morgun.
Verkið er á dagskrá í tengslum við Al-
þjóðlega bókmenntahátíð í Reykjavík
og hefur góður rómur verið gerður að
því í Danmörku.
Kontrabassinn er tónlistarleikverk
og leikur Ahnfelt-Rönne stoltan, við-
kvæman og ástfanginn hljómsveit-
arleikara sem staddur er í litlu íbúð-
inni sinni nokkrum tímum fyrir
frumsýningu á Wagner í óperunni.
Leiksýningin fer fram á dönsku og
er aðgangseyrir 1.500 kr.
Endilega ...
... sjáðu
Kontrabassann
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Tómstundaskólinn í Mosfellsbæ
fagnar fimm ára starfsafmæli í ár
og eru þar námskeiði af ýmsum
toga í boði nú á komandi haustönn.
Heimilisleg stemning
„Fólk er þakklátt fyrir að geta
sótt námskeið í sinni heimabyggð
en fólk á öllum aldri hefur sótt hjá
okkur námskeiðin,“ segir Helga Jó-
hannesdótir, myndlistarkona og
framhaldsskólakennari, sem stjórn-
ar skólanum. En hann er rekinn
með stuðningi Menningar- og
fræðslusviðs Mosfellsbæjar. Helga
segist hafa reynt að fá kennara úr
Mosfellsbæ til að kenna við skólann.
Þannig þekkist fólk frekar og það
skapi heimilislega stemningu í skól-
anum. Yfir vetratímann er lögð
áhersla á námskeið fyrir fullorðna
þó að eitt og eitt námskeið sé einnig
á dagskránni fyrir börn og ung-
linga. Námskeiðin breytast eftir
árstíðum en Helga segist ætíð
reyna að bæta einhverju nýju við á
hverri önn og velja það þá sam-
kvæmt því sem vinsælast er hverju
sinni.
Tungumál og matargerð
„Það eru alltaf ákveðin námskeið
sem eru sívinsæl hjá okkur eins og
silfursmíði, tölvunámskeið, nám-
skeið í indverskri matargerð og
tungumálum,“ segir Helga. Á nám-
skránni í vetur kennir ýmissa
grasa. Þar má finna námskeið í hár-
greiðslu fyrir konur sem vilja getað
bjargað sér sjálfar og gert eitthvað
flott og auðvelt við hárið á sér. Þá
er ýmiss konar handverk í boði,
þæfing í merinó ull og silki, nýstár-
legt heklnámskeið og bókband þar
sem þátttakendur búa til eigin
gestabók. Þá er í boði sérstakt mat-
reiðslunámskeið fyrir karlmenn
sem nefnist „Matargerð fyrir
stráka á öllum aldri“. Þar munu
matreiðslumeistararnir Björn Al-
bert og Bjarni Gunnar, matreiðslu-
meistarar í Hörpu, sem báðir eru úr
Mosfellsbæ, kenna körlum listina
að elda ljúffengan mat. En nám-
skeiðið er bæði ætlað fyrir byrj-
endur og þá sem vilja bæta við sig
fróðleik. Þá fer gítarkennsla einnig
fram í skólanum auk fleiri nám-
skeiða en allar frekari upplýsingar
má nálgast á tomstundaskolinn.is.
Tómstundanámskeið
Heimilisleg stemning á fjöl-
breyttum námskeiðum
Stemning Námskeið í matargerð eru sívinsæl hjá skólanum.
Vandvirk Þátttakendur á námskeiði í konfektgerð hjá Hafliða Ragnarssyni.